Þjóðviljinn - 09.09.1964, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 09.09.1964, Blaðsíða 1
Hættulegur burnuleikvöllur Myndin hér fyrir nc'ðan er af bamalcikvclli við Háabarð í Hafnarfirði og- sýnir betur en orð fá Iýst þær aðstæður sein bðmum em búnar af núverandi bæjarstjórnarmeirihluta. Völlur þessi er þannig til kom- inn, að snemma í vor birtist í hverfinu vinnuflokkur frá bæn- um og hófst handa við að grafa alldjúpan skurð í kringum ó- hyggt svæði er þar var. Að því verki loknu var ýmsum leik- tækjum hrúgað á hið óbyggða svæði, innan um stórgrýtið og mölina er upp úr skurðinum hafði komið. Til þess að auð- velda börnum að komast að tækjunum voru lagðir plankar á nokkrum stöðum yfir skurðinn. Að því búnu hvarf vinnuflokk- urinn á brott og hefir ekki sézt í hverfinu síðan, ekki einu sinni til þess að hirða sína eigin muni svo sem náðhúsið, sem stendur inn á miðjum leikvell- inum og sést hér á myndinni. Fundur fulltrúu miðstjómur Kommúnistufíokks Sovét- ríkjunnu og fulltrúunefndur Sósíuiistufíokksins íMoskvu Nefnd frá Sósíalistaflokknum átti um sl. mánaðamót viðræður við forystumenn í Kommúnistaflokki Sovétríkj- anna. Eftirfarandi fréttatilkynning um viðræðurnar mun einnig birt í Pravda í dag. (Sjá leiðara á 4. síðu). ■ Nýlega átti félagi L. I. Bresnev, meðlimur í framkvæmdanefnd Kommúnistaflokks Sovétríkj- anna og fitari miðstjórnar hans, fund með full- trúanefnd miðstjórnar Sameiningarflokks alþýðu — Sósíalistaflokksins, en í henni voru félagarnir Einar Olgeirsson, formaður Sósíalistaflokksins, Lúðvík Jósepsson, varaformaður Sósíalis'faflokks- ins, Guðmundur Hjartarson formaður fram- kvæmdanefndar Sósíalistaflokksins, Brynjólfur Bjarnason og Sigurður Thoroddsen. ■ Viðræðurnar fóru fram í vinsamlegum anda og voru rædd ýms áhugamál beggja flokkanna. Að frumkvæði nefndar Sósíalistaflokksins var rætt um möguleika á auknum viðskiptum milli íslands og Sovétríkjanna. í þessum viðræðum kom í ljós að góðar horfur eru á aukningu slíkra við- skip'ta. ■ Viðstaddur fundinn var varaformaður alþjóða- deildar miðstjórnar Kommúnistaflokks Sovét- ríkjanna, félagi A. S. Beljakov. Hæstu vinningar í happdrætti SIBS Hæstu vinningar í Happdrætti SÍBS komu á þessi númer: 36669 kr. 200.000.00 29248 kr. 100.000.00 43368 kr. 50.000.00 Skrá trm alla aðra vinninga í þessum drætti er birt á 6. síðu. oi'. ; ÍWíÆWwx':- . ;x ( ■ . ... .. . Sildaraflinn á micSnœfii s/. laugardag: Eru íbúar hverfisins að vonum illir yfir þessum vinnubrögðum, enda er börnum stór hætta bú- in af stórgrýtinu og skurdinum, sem í rigningum fyllist af vatni. (Ljósm. J. BJ. Slys í gœr Klukkan rúml. tólf á hádegi i gær vildi það slys til, að kona datt í stiga að Shellveg 4 í Rvík og var þegar flutt í sjúkrahús. Meiðsli voru ekki að fullu kunn, er síðast fréttist. 9 Samkvæmt síldveiðiskýrslu Landssambands íslenzkra útvegsmanna höfðu 22 skip aflað yfir 20 þúsund mál og tunnur á miðnætti sl. laugardag. Langaflahæsta skipið er Jörundur III. Reykjavík með 36.278 mál og tunnur og er það nýtt og glæsilegt aflamet. Annar í röðinni er Jón Kjartansson Eskifirði með 32.989 mál og tunnur sem einn- ig er ofan við hið gamla aflamet Eggerts á Sigurpáli og þriðja skipið í röðinni er Snæfell frá Akureyri með 31.996 mál og tunnur. Hér á eftir fer skrá yfir þau 22 skip sera aflað hafa yfir 20 þúsund má' og tunnur: Jörundur III., Rvík 36.278, Jón Kjartansson Eskifirði 32.989, Snæfell, Akureyri 31.996, Sigur- páll, Garði 28.287, Sigurður Bjarnason, Akureyri 27.060. Höfrungur III., Akranesi 25.837, Bjarmi II., Dalvík 25.754, Helga Guðmundsd., Patr.f. 25.037, Haf- rún, Bolungarvík 24.372, Helga, Rvík 23.948, Árni Magnússon, Sandgerði 23.262. Faxi, Hafnar- firði 22.844. Ölafur Friðbertsson, Súgandaf. 22.608, Þórður Jónass. Reykjavík 22.455, Guðrún Jóns- dóttir, Isafirði 22.125, Lómur, Keflavík 21.434, Hannes Haf- stein, Dalvík 21.370, Doftur Bald- vinsson, Dalvík 21.357. Reynir, Vestmannaeyjum 20.834 Sólfari, Akranesi 20.337, Pétur Ingjaldss., Framhald á 3. síðu. Á sjöunda tímanum í gær- kvöld vildi það slys til, að trossur biluðu, er verið var að skipa vörum við Mánafoss, og féll vöruhlaði í höfuð Guðmundi Sigurbjömssyni, er þarna var að vinnu. Var hann fluttur í sjúkrahús, en meiðsli ekki tal- in alvarleg. Loks gerðist það kl. rúmlega átta í gærkvöld, að sjö ára gam- all drengur varð fyrir bíl á gatnamótum Bústaðavegar og Tunguvegar. Rannsókn á meiðsl- um hans var enn ekki lokið, er blaðið fór í prentun. YINNÍNGAR: TRABANTBIFREIÐ AÐ VERÐMÆTI KRÓNUR 82 ÞÚSUND - TUTTUGU . 2000 KRÓNA VINNINGAR ÞRJÁTÍU OG EINN 1000 KRÓNA VINN- INGAR. DREGIÐ 5. OKTÓBER ★ Þetta glæsilcga happ- drætti hefst í dag, en dregið verður 5. október. Vinningar eru alls 51: Trabant-bifreið, 20 tvö þúsund króna og 31 eitt þúsund króna vinningar. Vinningsmögulcikar þeirra, sem kaupa miða, eru því miklir. ★ Fyrir Þjóðviljann er þetta happdrætti hið þýðing- armesta. Þjóðviljinn berst á- fram við reksturshalla. Dýr- tíðarflóðið kemur hart niður á blaðinu ekki síður en á al- menningi. En auk þess er staðið í stórræðum til þess að bæta og auðvelda aðstöðu blaðsins: Þeir, scm eiga Ieið fram hjá Skólavörðustíg 19, geta séð, að búið er að rífa hina hrörlegu þakhæð húss- ins og næstu daga verður hafizt handa um að reisa efstu hæðina. En þetta krefst mikils fjár. Árangur happ- drættisins mun því scgja mikið til um það, hversu fljótt stuðningsmenn Þjóðvilj- ans sjá hina nýju hæð rísa og hús Þjóðviljans fullgcrt. 3. HAPPDRÆTTISFLOKKUR ÞJÖÐVILJANS ★ Okkur er Ijóst, að hagur alþýðu manna er nú sérstak- lega erfiður, með því að dýr- tíðarflóð ríkisstjórnarinnar hefur verið kórónað mcð svo grimmilegri skattaárás, að þúsundir heimila berjast í bökkum. ★ En eitt megin svar al- þýðunnar til þess að hrinda þessari árás og hefja gagn- sókn alþýðunnar er það að efla Þjóðviljann um allan helming og tryggja sigur í því happdrætti, sem nú er að hefjast. ★ Af öllum þessum ástæð- um er því heitið á 'alla stuðn- ingsmenn Þjóðviljans að bregðast skjótt og ákvcðið við, þrátt fyrir alla erfiðleika, Aðeins 25000 happdrættismið- ar, hver á 50 krónur, eru gefnir út. Þjóðviljinn sem og málstaður almennings þarf á þvi að halda, að allir þessir miðar seljist upp! Stuðnings- menn blaðsins eru beðnir um að hafa náið samband við happdrættisskrifstofuna, Týs- götu 3, sími 17514 og fastir á- skrifendur að happdrættinu beðnir að vitja miða sinna, hafi þeir ekki fengið þá senda. Hver og einn, sem hefur aðstöðu til, er beðinn að leysa miða sína út nú eða næstu daga, að einhverju eða öllu Ieyti. / ★ Margar hcndur vinna létt verk! Sönnum þetta gamla spakmæli enn á ný með því að koma hvcrjum einasta happdrættismiða í verð og vinna þar mcð Þjóð- viljanum og málstað alþýð- unnar ómetanlegt gagn.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.