Þjóðviljinn - 09.09.1964, Side 3
Miðvikudagur 9. sopternber 1964
ÞIÓÐVILIINN
SlÐA
Keralastjórn féll
TRIVANDRUM 8/9. Stjórn-
in í Kerala-fylki, sem er i
suðvesturhluta Indlands.
féll í dag og var vantraust
á hana samþykkt á fylkis-
þingi með 73 atkvæðmr
gegn 50. Það var Kongreí
flokkurinn. sem með völd
in fór í héraðinu, og réði
það örlögum stjórnarinnar,
að fimmtán þingmenn
flokksins snerúst gegn
henni. Stjórn Kongress-
flokksins í Kerala hefur
verið borin fjármálaspill-
ing á brýn og ýmislegt
misferli annað. ^ !
Til Ungverjalands
ADDIS ABEBA 8/9. Haile
Selassie, keisari í Eþíópíu,
kemur í opinbera heimsókn
til Ungverjalands 20. sept.
og stendur heimsóknin í
tvo daga.
Klofinn flokkur
NEW DELHI 8/9. A. K.
Goplan, sem verið hefur
formaður í þingflokki ind-
verskra kommúnista, klauf
í dag flokkinn og stofnaði
sinn eigin þingfl. hlynnt-
an kínverskum kommúnist-
um. Goplan tók með sér
tíu af 32 þingmönnum
flokksins í neðri dcild
þingsins, en þrjá af ellefu
í þeirri efri. Þessi klofn-
ingur hefur það í för með
sér, að Kommúnistaflokk- t
ur Indlands er ekki lengur ^
stærsti stjórnarandstöðu-
flokkurinn.
Viðræður
*
BELGRAD 8/9 — Tító
Júgóslavíuforseti og Ghe-
orghe Gheorghiu-Dej, for-
seti Rúmeníu, áttu á mánu-
dag nytsamlegar viðræður
um ýmis alþjó'ðamál. segir
í frétt frá TANJUG-frctta-
stofunni. Þeir forsetarnir
áttu annars fund með sér
vegna sameiginlegra virkj- ('
unarframkvæmda, sem fyr-
irhugaðar eru á Iandamær-
um Júgóslavíu og Rúmen-
íu.
NÆSTA ALÞJÓÐA HEIMS-
SÝNING f MONTREAL
x___. ._____________________^.uioiiiiiguna í Chile var fylgzt af athygli um heim allan. Ilér talar fram-
bjóðandi Alþýðufylkingarinnar Allende á fjöldaf undi í höfuðborginni, Santiago de Chili.
t-------------------------------
Borgaraleg stjórn
í Finnlandi?
HELSIN GFORS 8/9 — Frétta-
mönnum þótti sem aukizt hefðu
líkurnar fyrir því, að kornið
yrði á fót borgaralegri stjórn,
sem meirihluta hefði í finnska
þinginu. Þóttu viðræður um
þessi mál hafa vel á stað farið
um helgina.
SamsærT"
ZOMBA. MALAVÍ 8/9 —
Hastings Banda, forsætis-
ráðherra í Malaví, lýsti því
yfir í þjóðþinginu á þriðju-
dag, að kínverska sendiráð-
ið í Dar-es-Salam í Tang-
anyika hefði staðið á bak
við samsæri gegn sér. Einn-
ig kvað Banda sendiráðið
hafa boðið mútur til þess
að Malaví viðurkenndi Kín-
verska alþýðulýðveldið.
Samskólaganga
NEW VORK 8/9 — A
þriðjudag hófu hvít börn
og þeldökk skólagöngu i
sömu skólum í Montgom-
ery í Alabama og Farm-
ville í Virginia. Ekki kom
til neinna átaka í sam-
bandi við skólagönguna.
Kveður Tékka
sammála Sovét
MOSKVU 7/9 — Nikita Krúst-
joff, forsætisráðherra Sovétríkj-
anna, hélt í dag sjónvarps- og
útvarpsræðu, en hann ec nú ný-
kominn heim frá Tékkóslóvakíu.
Krústjoff kvað Tékka sammála
Sovétleiðtogunum um það, að
Kommúnistaflokkur Kína sé að
kljúfa alþjóð,ahreyfingu komm-
únista og veítti um leið heims-
valdasinnum hvatningu til nýrra
hemaðarævintýra.
Ungur Rvíkinpr
sýnir á Mokka
I gær opnaði 24 ára gamali
Reykvíkingur, Eyjólfur Einars-
son málverkasýningu í Mokka á
Skólavörðustíg.
Sýnir hann þar 6 vatnslita--
myndir og 8 olíumálverk. Þetta
er fyrsta sýning listamannsins.
Hann er nemandi í listaakadem-
íunni í Kaupmannahöfn og hef-
ir vérið það síðastliðin tvö ár.
Áður stundaði hann nám við
Handíða- og myndlistarskólann.
Virðist hann fremur svartsýnn
á tilveruna, því að allar myndir
hans eru málaðar í svörbum eða
mjög dökkum litum.
Samtímis þessu gerðu bæði
kommúnistar og sósíaldemókrat-
ar harða hríð að embættis-
mannastjórn þeirri. er nú hef-
ur setið að völdum í nærri þvi
ár. Forystumaður þeirrar stjórn-
ar er Rheino Lehto. Báðir höföu
þessir flokkar lagt fram fyrir-
spurnir um efnahagsstefnu
stjórnarinnar.
Samkvæmt þingræðisvenjum í
Finnlandi mun þesum fyrir-
spumum verða fylgt eftir með
vantraustsyfirlýsingu á stjórn-
ina. Ríkisstjórninni er skylt að
svara ásökununum innan hálfs
mánaðar frá þeim tíma, er þær
eru bornar fram. .
Síldin
Framhald af 1. síðu.
Rvík 20.205 og Jón Finn&son,
Garði 20.045.
Til samanburðar má geta
þess að um þetta leyti í fyrra
höfðu aðeins fjögur skip aflað
yfir 20 þúsund mál og tunnur
en það voru Sigurpáll, Garði
26.878, Guðmundur Þórðarson,
Reykjavik, 25.616, Sigurður
Bjamason, Akureyri, 22.249 og
Grótta, Reykjavík 20.690.
Sendisveinn óskast
Piltar eða stúlka, hálfan eða allan daginn.
KRISTJÁN Ó. SKAGFJÓRÐ,
sími 24120,
Fulbrightstyrkir
til náms- og ferða
Menntastofnun Bandaríkj-
anna hér á landi, Fulbright-
stofnunin, tilkynnir, að hún
muni veita náms- og ferða-
styrki íslendingum, sem þegar
hafa lokið háskólaprófi og
hyggja á frekara nám við
bandaríska háskóla á skólaár-
inu 1965—1966.
210 kirkjukérar
Aðalfundur Kirkjukórasam-
bands íslands var haldinn laug-
ardaginn 29. ágúst sl. Mættir
vorijt fulltrúar frá flestum
kórasamböndum víðsvegar að
af landinu.
Fundarstjóri var kjörinn
séra Þorgrímur Sigurðsson,
prófastur, Staðarstað, og fund-
arskrifari séra Andrés Ólafs-
son prófastur, Hólmavík. For-
maður Kirkjukórasambandsins,
Jón ísleifsson, flutti skýrslu
um liðið starfsár. Hann gat
þess, að tveir kirkjukórar
hefðu verið stofnaðir á starfs-
árinu og væru þeir samkvæmt
skýrslum 21» talsins um gjörv-
allt landið. 42 kirkjukórar
nutu söngkennslu og fjárhags-
legrar aðstoðar Kirkjukóra-
sambands fslands í alls 47 vik-
ur. Fjögur organistanámskeið
voru haldin á vegum Kirkju-
kórasambandsins í fulla þrjá
mánuði í tveim prófastsdæm-
um, Barðastranda og, Skaga-
fjarðar. Þátttakendur voru 69.
Aðalkennari Kirkjukórasam-
bandsins var i ár sem fyrr,
Kjartan Jóhannesson organisti,
Stóra-Núpi.
Stjórn Kirkjukórasambands
fslands skipa: Jón ísleifsson
organisti, formaður. Frú Hrefna
Tynes, ritari. Finnur Árnason,
byggingafulltr., gjaldkeri. Jón-
as Tómasson, tónskáld, ísa-
firði. Eyþór Stefánsson, tóh-
skáld, Sauðárkróki. Séra Einar
Þór Þorsteinsson, Eiðum. Frú
Hanna Karlsdóttir, Holti.
Athugasemd við
yfirlýsingu
próf. Hreins
Benediktssonar
Vegna bréfs prófessors Hreins
Benediktssonar hefur dr. Þor-
geir Einarsson beðið blaðið fyr-
ir eftirfarandi:
Yfiriýsing prófessors Hreins,
þó löng sé og full af útskýr-
ingúm á formsatriðum, breiðir
ekki yfir þá staðreind, að ég
fékk ekkei't af fyrirhuguðum
mannaskiptum að vita, fyrr en
óviðkomandi maður sagði mér
frá þeim í byrjun ágúst. Þá
fyrst hringdi ég i prófessor
Hrein til þess að fá staðfest-
ingu á fréttinni. Það er því
ekki rétt, sem prófessor Hreinn
gefur í skyn í yfirlýsingu sinni,
að ég hafi vitað af fyrirhuguð-
um mannaskiptum í taeka tíð.
Virðingarfyllst.
Þorgeir Einarsson
Æ.F.H.
Félagsfundur verður hald-
inn n.k. fimmtudag í Góð-
templarahúsinu (uppi).
DAGSKRÁ:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Kosning fulltrúa á þing
Æ. F.
3- Önnur mál.
4ríðandi að allir félagsmenn
mæti-
STJÓRNIN.
ÁriS 1967 gengst alþjóðlega
he’mssýningarráðið fyrir heims-
sýningu í Montreal í Kanada.
Ráð betta var stofnað árið 1928
og var þá ákvcðið að heimssýn-
ingar skyldu haldnar tíunda
bvert ár. Var sú fyrsta í París
árið 1937, önnur skyldi haldin í
Róm 1947, en féll niður vegna
ðstandsins eftir síðari heims-
styrjöldina önnur sýningin var í
Briissel 1958 og er sýningin í
Montreal því sú þriðja í röðinni.
Fyrir stuttu var staddur hér á
landi M. Pierre Dupuy fyrrver-
andi ambassador Kanada í Haag.
Róm og París, en hann er að-
alframkvæmdastjóri sýningar-
innar í Montreal. Sýningin hefir
verið skipulögð að mestu leyti
og ferðast hann nú heimsend-
anna á milli, til að semja við
ríkisstjórnir og vekja áhuga al-
mennings á sýningunni.
Fer hér á eftir það helzta.
sem hann sagði um framkvæmd
sýningarinnar á blaðamanna-
fundi s.l. föstudag.
Sýningin mun standa frá 28.
apríl til 27. október, en 1. júlí
1967 eru liðin hundrað ár frá
því að kanadísku fylkin voru
sameinuð undir sameiginlega
sjálfstjóm og er sýningin jafn-
framt haldin í minningu þess.
Kanadíska stjómin skipulegg-
ur í öllum höfuðdráttum sýn-
inguna, en hvert ríki um sig
ber kostnað af sýningarskálum
sínum.
Helzta markmið sýningarinnar
er að sýna manninn og heim
þann er hann lifir í í tdag.
Sýningunni er skipt í sex að-
aldeildir og eru þær: ,
1) Maðurinn og heimsskauta-
svæðin.
Þar er sýnt við hvaða erfið-
leika þær þjóðir. er búa nyrzt
og syðst í heiminum eiga við
að etja og hvernig úr þeim er
leyst.
2) Maðurinn og geimurinn.
Þar sýna Bandaríkin og Sov-
étríkin í sameiningu þróun
geimvisinda og helztu nýjungar
í þeim efnum. i
3) Maðurinn og hafið.
Þar munu allar strandþjóðir
segja frá m. a. nýjum fiskveiði-
aðferðum, rannsóknum á sviði
fiskveiða, nýrri samgöngutækni
á sjó. vinnslu á fersku vatni úr
sjó. o.s.fi*v.
4) Maðurinn, sem framleiðandi
Þar er sýnd öll hin nýjasta
tækni í iðnaði.
5) Maðurinn, scm skapari.
Fimmtíu vísindamenn eru nú
að starfa við rannsóknir í þvi
sambandi og ákveða hverju sú
deild skuli lýsa.
6) Maðurinn og stórborgin.
Þar eru sýndar ýmsar nýjung-
ar í húsagerðarlist og glímt við
ýmis vandamál, sem myndast í
stórborgum.
Auk þessara sex aðaldeilda, er
, svo sérstök deild fyrir unga fólk-
ið í heiminum. Og er unnið að
því að fá unga verkamenn, sjó-
menn og stúdenta til þess að
koma til Montreal og setja þar
fram skoðanir sínar á þeirra
eigin vandamálum
Stærsti sýningarskálinn á sýn-
ingunni verður skáli Bandaríkj-
anna. Einnig eiga aðrir aðilar en
einstök rfki þar skála, svo sem
Alheimskirkjuráðið og Samein-
uðu þjóð'mar.
í sambandi við sýninguna
verður mikið um að vera í lista-
lífi borgarinnar. Hafa verið
gerðir samningar við t.d. Scala
óperuna í Mílanó. Bolshoi ball-
etinn, Parísaróperuna, Metró-
pólítan og Bayreuth — Wagner-
flokkinn um að listafólk frá
þeim komi til Montreal og
skemmti á meðan á sýningunni
standi.
Að lokum má geta þess að
heimssýningar þær sem alþjóð-
lega heimssýningarráðið gengst
fyrir, standa í engu sambandi
við þær heimssýningar, sem ein-
stök ríki með aðstoð nokkurra
stórfyrirtækja halda í gróða-
skyni, svo sem eins og heims-
sýningin í New York.
Sænskur tæknifræðingur
óskar eftir 2—3 herbergja íbúð sem fyrst.
Þrennt í heimili.
Upplýsingar fást hjá póst- og símamála-
stjórninni í síma 221 gegnum 11000.
Netagerðin VÍK
Brekkustíg 34 — Ytri Njarðvík — sími 92-2220.
Tökum að oss hverskonar vinnu við net og næt-
ur — uppsetningu — viðgerðir — geymsla —
þurrkun.
Netagerðarmeistari:
GUNNLAUGUR GUÐLAUGSSON sími 50399.
Upplýsingar gefur ennfremur
ÁKI JAKOBSSON sími 15939.