Þjóðviljinn - 12.09.1964, Side 10

Þjóðviljinn - 12.09.1964, Side 10
i Hvað segja þeir um j kjörbúðarvagninn? Dómsmálaráðuneytið bannar Þjóðviljinn hafði samband í gær við Baldur Möller deild- arstjóra í Dómsmálaráðuneyt- inu og fórust honum svo orð um lokún kjörbúðarvagnsins í Kópavogi. Ráðuneytið féllst á túlkun bæjarfógeta á þrettándu grein lögreglusamþykktar Kópavogs og leyfir ekki rekstur kjörbúðabíla í Kópa- vogi. Engin ósk hefur borizt frá bæjarfógetanum í Hafnarfirði um lokun kjörbúðarbíla i hans umdæmi og sjáum við ekki ástæðu til að skipta okkur frekar af þeim má'lum. Aðspurður sagðist hann ekki hræðast pilsaþyt hús- mæðra í Kópavogi og myndi slíkt bitna á embættismanni staðarins. Lífið gengur sinn vanagang í hinu aldna húsi við Arnar- hól. Hræðisí’ eigi pilsaþyt Bæjarfógetinn í Kópavogi Sigurgeir Jónsson, var heldur þurr á manninn í símanum í gærkvöld, þegar við höfð- um samband við hann. Hann hafði greinilega dreg- ið sig inn í þessa hörðu emb- ættismannaskel og bíður á- tekta. Það er búið að loka kjör- búðarvagninum í Kópavogi? Já. — ráðuneytið féllst á túlkun mína á þrettándu grgin lögreglusamþykktar og ekki kemur þar síður til greina heilbrigðissamþykkt kaupstaðarins, sagði þæjarfó- geti. Hræddur við pilsaþyt hús- mæðra í Kópavogi? Þegar ég tel mig vera að gera rétt sem lögregluyfir- vald, þá skipta mig ekki skoðanir eins eða neins á gjörðum mínum. Orðvar kaupfélags- stjóri Við höfðum samband við Ingólf Ólafsson, kaupfélags- stjóra KRON og leituðum eft- ir áliti hans um lokun vagns- ins. Ég segi nú helzt ekki neitt nema hafa samráð við lög- fræðing fyrirtækisins í þessu máli. Hann heitir Sigurður Baldursson. Það gildir að vera orðvar á svona tímum og smíða ekk; vopnin upp í hendumar á lögklókum mönnum. Mér er þó óhætt að full- yrða, að við héldum okkur vera þama á réttri braut i bættri verzlunarþjónustu við neytendur. Á sínum tíma var þetta margrætt á deildarfundum í Kron þama suður frá og hef- ur farið fram löng og ýtarieg athugun, hvernig bezt mætti bæta verzlunarþjónustuna á þessu svæði. Það var fyrst og fremst eftir ákveðnum óskum neyt- enda í Kópavogi, að þetta rekstrarform var tekið upp. Fjörutíu ára reynsla er fyr- ir hendi á þessum vögnum i Svíþjóð á vegum saensku sam- vinnuhreyfingarinnar og eru þar reknir tvö hundmð og fimmtíu kjörbúðarbílar. Hef- ur þeim farið fjölgandi síð- ustu árin og fjölgar ennþá. Kjörbúðarvagninn í Kópa- vogi er byggður eftir síðustu kröfum í þessum efnum og hann útvegaður fyrir milli- göngu sænsku samvinnuhreyf- ingarinnar. Þykir hann hent- ugur í borgarhverfum. sem era hálfsmíðuð og langt til næstu verzlunar. Þá er hann ekki siður not- aður úti á landsbyggðinni. Þá sagði Ingólfur ennfrem- ur: Það hefur ekki verið á- kveðið, hvort við áfrýjum þessu máli til Hæstaréttar. Hafa neytendur í Kópavogi áhuga á þessari þjónusfcu? Við högum baráttunni eft- ir þvi. Má ekki tala við frúna Við höfðum samband við Axel Jónsson, bæjarfulltrúa í Kópavogi og inntum hann eftir skoðun hans á þessu máli. Á sínum tíma þótti mér óeðlilegt að leyfa þennan rekstur í óþökk bæjarfógeta og er enmþá á sömu skoðun. Þér eruð Þá á móti kjörí búðarvögnum? Ég hef skilning á þörfum húsmæðra, sagði þessi æfði pólitíkus. Get ég fengið að tala við húsmóðurina á bænum? Þá hló pólitíkusinn. Nei, — það getið þér ekki fengið. Hún er nefnflega ekki heima. Annars tel ég, að hún sé á sömu skoðun. Kronbúð er hérna beint á móti okkur. Forseti bæjarstjórnar Ólafur Jensson er forseti bæjarstjómar í Kópavogi og hefur þetta um málið að segja: Hérna ráðast tveir Iögregluþjónar til uppgöngu í kjörbúðar- vagninn og rétt á eftir héldu þeir með vagninn á braut. Síð- an var hurðum skellt í lás. (Ljósm. Þjóðv. G.M.). Kjörbúðarbílar hafa sér- stöku hlutverki að gegna í nýjum bæjarhverfum, þar sem verzlanir eru enn ekki starfandi, svo sem vei hefur sannazt hér í Kópavogi að undanförnu. Enginn slíkur bíll var til hérlendis, þegar heilbrigðis- samþykkt og lögreglusam- þykkt voru settar í Kópa- vogi. Þar eru því engin sérstök ákvæði um þessa bfla, en augljóst er, að þeir geta ekki að. öllu leyti Iotið sömu regl- um, sem venjulegar verzlan- ir. Ég hef ekki séð úrskurð ráðuneytisins og get því ekki rætt hann sérstaklega. N En mér virðist sem nauð- synlegt sé nú að vinna að breytingum á áðurnefndum regiugerðum, þannig að starf- ræksla kjörbúðarbíla sam- ræmist þeim. , Ágreiningurinn í heilbrigð- isnefnd var hinsvegar ekki fyrst og fremst um túlkun reglugerðanna heldur um það, hvort starfræksla kjör- búðarbíla væri æskileg eða ekki. Þar var ég á öndverðum meið við bæjarfógeta. Hvað er kjörbúðar- vag«? Við höfðum samband við Ragnar Pétursson, kaupfé- Iagsstjóra í Hafnarfirði, og inntum hann eftir áliti í þessu máli. Kaupfélag Hafnfirðinga fær ennþá að reka sína kjörbúð- arvagna. Hinsvegar finnst mér furðu- legt að stöðva þennan kjör- búðarvagn í Kópavogi og harma þessi málalok. Þær eru ótaldar húsmæð- urnar í Garðahreppi, sem hafa látið ánægju sína í Ijós við mig á rekstri kjörbúðar- vagnsins og beinlínis þakkað okkur þessa þjónustu. Við höfum rekið svona vagna síðan á öndverðu ári 1963. Það er til dæmis haft eftir einni húsmóður í Silfurtúni, að fjölskylda hennar myndi flytja burtu þaðan, ef loka ætti kjörbúðarvagninum þar. Það er misskilningur, að heimsending frá matvöru- verzlun sé nægileg verzlunar- þjónusta við íbúa fjarlægra hverfa. Húsmæður panta oft í kvöldmatinn seinni hluta dags, en verzlanir * anna oft ekki að kO:ma vörupöntun til skila fyrr en komið er langt fram á kvöld og fjölskyld- an verður þannig að bíða eft- ir málsverði, þar til vöru- pöntunin er komin. Kjörbúðarvagn bætir þessa þjónustu. Vagnar Kaupfélags Hafn- firðinga og vagn Kron eru keyptir fyrir milligöngu sænska samvinnusambands- ins og uppfylla heilbrigðis- kröfur þær, sem gerðar eru í Svíþjóð. í vögnunum er kæliborð, djúpfrystir og kæli- skápur fyrir mjólk og mjólk- urvörur, fisk, kjöt og kjöt- vörur. Loftræstingarvifta er í vögnunum, sem blæs út lofti eða dregur inn eftir vild. Þá er rennandi vatn í vögnunum úr geymi úr ryðfríu stáli og handlaug einnig úr ryðfríu stáli fyrir starfsfólkið, sem er einn eða tveir eftir þörf- um. Salerni er ekki í þess- um vögnum og þekkist það ekki í búðarvögnum, þar sem ég hef haft spurnir af, en við höfum farið sömu leið og Svi- ar j þessum efnum og komizt að samkomulagi við húsráð- anda í hverju hverfi um af- not af hreinlætisherbergi og • síma fyrir starfsfólkið. Laugardagur 12. september 1964 — 29. árgangur — 206. tölublað. RENATO DE BARBIERI HELDUR HÉR TONLEIKA Italski fiðlusnillingurinn Ren- ato de Barbieri heldur tónleika fyrir styrktarfélaga Tónlistarfé- Iagsins n.k. mánudags og þri'ðju- dagskvöld kl. 7 í Austurbæjar- bíói. Á efnissjrránni eru þessi verk: Sónata í d-moll op. 108 eftir Brahms, Svita í a-moll eftir Sinding, Introduction og Rondo capricioso eftir Saint-Saens, þi’jár Gaprisur eftir Paganini. Nigun eftir Bloch, Allegro eftir Brahms og Búrleska eftir Suk. Guðrún Kristinsdóttir píanó- leikari aðstoðar. Renato de Baiþieri er fæddur í Genúa á Italíu, fæðingarborg Paganinis og veitist stundum sá heiður að fá að leika á fiðlu Herskáir Arabar ALEXANDRIA 11/9 — Leiðtog- ar allra meðlimaríkja í ai’abíska sambandinu hafa setið fúnd i Alexandríu í Sameinaða araba- lýðveldinu og lauk honum í dag, og höfðu þeir þá náð fullu sam- komulagi um mál sem höfðu verið á dagskrá fundarins. Ákveðið hefur verið að setja á fót Palestínuher, einkum skip- aðan Palestínuaröbum, sem hafa einhverja hemaðarþjálfun og til- gangurinn er að sýna ísraels- mönnum í tvo heimanna. meistarans, sem nú er varðveitt sem mikill kjörgripur í Pagan- ini-safninu þar í borg. Barbieri hefir haldið fjölda tón'leika í ýmsum löndum og blaðadómar um tónleiká hans sem hingað hafa borizt eru allir á einn veg, framúrskarandi góðir. Þetta verða aðrir tónleikar Tónlistarfélagsins nú i haust, eða þeir sjöundu á þessu ári. Kirkjudagur Ó- háða safnaðarius Hinn árlegi kirkjudagur Óháða safnaðarins í Reykjavík er á morgun. sunnudag. Hefst hann með messu kl. 2 e.h. en eftir messu gengst kvenfélag kirkj- unnar fyrir kaffisölu í safnaðar- heimilinu Kirkjubæ til ágóða fyrir starfsemi sina. Lagði fé- lagið alls um 270 þúsund krón- ur til kirkjunnar á s.l. ári. Um kvöldið verður almenn kvöldvaka í kirkjunni og er að- gangur ókeypis. Kirkjuorgan- istinn, Kjartan Sigui’jónsson, leikur einleik á orgel, kirkju- kórinn syngur, Eygló Viktors- dóttir syngur einsöng, Gunnar Eyjólfsson les upp og sýndar verða litmyndir af kirkjumál- verkum. Hringur Jýhannesson sýnir / Asmundarsai Ungtemplarar vilja stöðva ófengissölu í þrjá mánuði ■ Fyrir skömmu héldu Islenzkir ungtemplarar ársþing sitt að Jaðri og sóttu það um 20 fulltrúar. Einnig efndu samtökin til Jaðarsmóts og sóttu það um 800 manns- lUT-þingið ræddi mörg mál. Meðal samþykkta þess, var til- laga þar sem íslenzkir ung- templarar gera þá kröfu, að lög- in um aukna og skipulagða fræðslu um skaðsemi áfengis og tóbaks komi til fullra fram- kvæmda í skólum landsins í vet- ur og skorað er á fræðslumála- stjóm að bæta úr hið bráðasta bæði um eftirlit og framkvæmd- ir. Þingið minnti á, að ekki hef- úr enn verið gerð tilraun með að öll sala áfengis verði stöðvuð um t.d. þriggja mánaða tíma, eins og tillaga kom um í fyri’a, svo að ráðrúm fengist til að at- huga áhrif áfengissölunnar á glæpi og slys í landinu. En þetta væri hið nauðsynlegasta rann- sóknarefni. Skoraði þingið á borgarlækni og yfirvöld að koma ðhlmann efstur Eftir níu umferðir á alþjóð- lega skákmótinu, sem haldið er í Havanna á Kúbu til minning- ar um Capablanca, er Austur- Þjóðverjinn Uhlmann í efsta sæti með 7V2 vinning, næstur er Evans frá Bandaríkjunum með 6V2 vinning og eina biðskák, Stahlberg og Smysloff fyrrver- andi heimsmeistari eru með 6 vinninga og eina biðskák, í fimmta sæti er Búlgarinn Pad- ewski með 5V2 vinning. rannsókn þessari í framkvæmd sem allra fyrst. Ennfremur íti’ekaði þingið fyrri samþykktir um stuðning við aðgerðir, er miði að því að bæta stöðu þeldökkra í S-Afríku. Hvetur þingið meðlimi lUT og aðra að kaupa ekki vörur frá Suður- Af ríku. Lýst var yfir sérstakri ánægju með og þakklæti fyrir þau skipu- lögðu bindindismót, sem haldin hafa verið um verzlunarmanna- helgina og hvatt er til þess að haldið sé áfram á þeirri braut og þessi starfsemi aukin þannig að hún nái t.d. til hvítasunnu- helgarinnar. Þá fagnaði þingið starfi æskulýðsnefndar Mýra- og Borgarfjarðarsýslu, sem það taldi til fyrirmyndar. I stjórn sambandsins fyrir næsta starfsár voru kosnir: séra Árelíus Níelsson. formaður, Grétar Þorsteinsson, vai’aformað- ur, Gunnar Þorláksson, ritari, Kristinn Vilhjálmsson, gjald- keri, Jóhann Larsen. meðstjórn- andi, Einar Hannesson og Alfreð I Hc.rðai’son. 1 dag opnar Hringur Jóhann- esson listmálarí sýningu á verk- um sínum f Ásmundarsal víð Freyjugötu Þetta er önnur sjálf- stæða sýning listamannsins, hina fyrri hélt hann í Bagasalnum ár- ið 1962. Á sýningunni eru 49 myndir, flestar unnar með olíu- krít, noldvrar teikningar og 3 kcramikmyndír. Olíumyndirnar eru uimar á aUnýstárlegan hátt. Notar lista- maðui’inn sænskt \ððarlakk í stað fixativs, til þess að binda krítina og hefir það tvo kosti í för með sér. að þá er hægt að fara margar ferðir yfir mynd- ina og gler þarf ekki að vera yfir myndinni, því lakkið ’bindur krítina nægilega vel. Einnig má geta þess í sam- bandi við sýninguna, að kera- mikmyndir eru mjög sjaldgæfar á listsýningum hér, hafa aðeins einu sinni áður komið fram á sýningu. Hrfngur Jóhannesson. Er því full ástæða fyrir fólk að líta inn á sýninguna í Ás- mundarsal einhvern næstu daga. Teikningin hér fyrir neðan er ein myndanna á sýningunni og nefnist hún „Tveir bátar”. 1

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.