Þjóðviljinn - 20.09.1964, Side 2
SIDA
ÞróDVHTINN
—
——
Sunraidagur 20. september I9t»
DANSSKÓLI Heiðars Ástvaldssonar
Kennsla hefst mánudaginn 5. okt.
Samkvæmisdansar (nyju- og gömlu dansamir)
og barnadansar. Flokkar fyrir böm (4—12 ára),
unglinga (13—16 ára) og fullorðna (einstaklinga
og hjón). Byrjendaflokkar og framhaldsflokkar.
Reykjavík
Innritun daglega frá 2—7 í síma 1-01-18 og 3-35-09,
Kennt veröur í nýjum, glœsilegum húsakynnum
skólans að Brautarholti 4.
Kópavogur
Innritun daglega frá 10 f.h. til 2 e.h- og 20 — 22 í
síma 1-01-18.
Hafnarfjörður
Innritun daglega frá 10 f.h. til 2 e.h. og 20—22 í
síma l-Ql-18.
Keflavík
Innritun daglega frá 3—7 í síma 2097.
Nemendur þjálfaðir til að taka heimsmerk-
ið í dansi.
KARLMANNASKÓR
frá ENGLANDI og ÞtZKALANDI
HAUSTTÍZKAN 1964
SKÓBÚÐ AUSTURBÆJAR
Laugavegi 100
ódýrir karlmannaskór
úr leðri með
nælon, leður og gúmmísólum
Verð kr. 232,00 og kr. 296,00
STÖRGLÆSILEGT ÚRVAL
SKÓBÚÐ AUSTURBÆJAR
Laugavegi 100
75 ára:
Guðmundur Eyjólfsson
1 dag er Guðmundur, vin-
ur minn. á Þvottá 75 ára.
Guðmundur Eyjólfsson er
Austfirðingur í húð og hár,
fæddur 20. sept. 1889 í Ham-
arsfirði og al:nn upp í Álfta
firði, að mestu leyti í Markús-
arseli, sem nú er löngu kom-
ið í eyði. Hann kvæntist ung-
ur Þórunni Björnsdóttur, sem
látin er fyrir nokkrum árum.
og áttu þau 9 böm. sem öll
eru á lífi. Guðmundur og Þór-
unn bjuggu lengst af á Star-
mýri í Álftafirði en fluttu
skömmu fyrir 1950 að Þvottá
í sömu sve t. Á Þvottá býr
Guðmundur nú með Kristni
syni sínum og konu hans og
börnum.
Það segir sig sjálft, að það
er ekkert íhlaupaverk fyrir
eínyrkja bónda að koma upp
svona stórum barnahóp, enda ^
féll Guðmundi víst sjaldan
verk úr hendi og heyrt hel
ég, að hann hafi oft prjónað
peysur á bömin sín, auk ann-
ars. En þrátt fyrir stritið hef
ur Guðmundi alltaf gefizí
tími til lestrar, enda er hann
ákaflega fróður og skemmti-
legur maður.
Ég kynntist Guðmundi fyrst
þegar. ég var nýfermd og var
á Þvottá eitt sumar. Urðum
við þá fljótt góðir vinir oc
töluðum margt saman, og fá-
um l.ef ég kynnzt, sem méi'
hefur þótt skemmtilegra að
tala við.
Vonandi á Guðmundur eft-
ir að búa lengi enn á Þvottá
enda væri Álftafjörður snöggt-
um fátæklegri án hans. Nú á
þessum tímamótum, óska ég
honum alls hins bezta.
H.E.
MÍMIR
Kennsla hefst í
næstu viku.
Sími 21655.
Hringur og tvær myndir hans. (Ljósm. G. M.),
Viðtal við Hring Jóhannesson listmálara
,Vel gerð mynd hefir
alltaf eitthvað að segja'
Hringur Jóhannesson heitir hann, fæddur og uppalinn
í Þingeyjarsýslunni. Fluttist til borgarinnar þegar hann
var á sextánda árinu og hefur dvalizt hér síðan. Á dag-
inn vinnur hann við keramikskreytingu hjá Glit h/f, en
kennir teikningu í Myndlistáfskólánum við Fréyjugötu
á kvöldin. Um lík{ leyti og aðrir ganga til náða tekur
hann til við eftirlætisiðju sína, að teikna og mála, en
árangur þessa næturstarfs geta Reykvíkingar nú fengið
að sjá á veggjum Ásmundarsalar við Freyjugötu.
Einn daginn hittum við hann
að máli, þar sem hann var viö
vinnu sína hjá Glit h.f. og
innfcum hann eftir, hvernig sýn-
ingin hefði gengið.
— Mjög vel. Miklu betur, en
ég bjóst við. Aðsókn hefur ver-
ið mjög góð, 19 myndir hafa
selzt. Og það sem er allra bezt,
myndimar hafa lent hjá góðu
fólki. Fólki sem hefur áhuga á
list.
Er þá ekki rétt að spyrja,
hvað þér finnist um myndlist-
aráhuga Islendinga?
— Eftir því sem ég bezt veit
er hann mikið almennari hér
en víðast hvar annars staðar
í heiminum. Uti virðist mynd-
listaráhugi vera bundinn við
fámenna hópa, en hér má víða
sjá góða myndlist inn á venju-
legum alþýðuheimilum. Affcur
á móti er myndlistargagnrýni
á algem frumstigi hér til dæm-
is miðað við leikhús- og í-
þróttagagn rýni.
Þá snýst talið að hvaða fyr-
irmyndum listamaðurinn hafi
mest dálæti á, og vinni helzt
úr.
— Ég er eins og stendur að
reyna að fá eitthvað nýtt út
úr landslagi, sem mér finnst
ekki hafa verið gerð nógu góð
skíl af íslenzkum málurum.
En þegar ég vinn eftir slíku
„motivi“, þá reyni ég að fjar-
lægja öll smáatriði, eins og
ég væri að þjappa skáldsögu
saman í smásögu, til þess að
fá sterkari og einfaldari á-
hrif. — Annars finnst mér ekki
„motiv“ skipta höfuðmáli, eins
og sjá má af sýningunni, þai
sem ógerningur er að sjá hver
myndin er unnin eftir ákveðnu
„motiv“ og hver ekki.
Álítur þú að myndlist eigi
að hafa sérstakan boðskap að
flytja?
— Vel gerð mynd hefur allt-
af eitthvað að segja en beinn á-
róður í myndlist á ekki rétt
á sér, nema að hann falli sam-
an við myndræna heild.
Nú erum við búin að tefja
listamanninn nokkuð lengi frá
vinnunni, en áður en við
kveðjum finnst okkur rétt að
spyrja, hvar hann hafi aflað
sér mennfcunar og hvort hann
hyggi á nokkuð frekara nám
í grein sinni.
— Ja, ég hef nú eiginlega
ekkert lært að minnsta kosti
ekki miðað við langskóla-
gengna „kollega“ mína. Fékk
að vera einn vetur hjá teikni-
kennara á Húsavík og hafa
það gott — gerði ekkert nema
að teikna. Svo var ég 3 vet-
ur f Handíða- og Myndlistar-
skólanum hjá Sigurði Sigurðs-
syni og fleirum, síðan hef ég
aðeins verið að puða upp á
eigin spýtur.
— Um frekara nám? — Jú,
ég hef hug á að fara út að
skoða söfn, ef allur ágóði af
sýningunni fer ekki í það, að
borga skattana.
Frá
Þjóðdansafélagi
Reykjavíkur
Vetrarstarfið hefst mánudaginn 28. sept. Kenndir
verða bæði gömludansamir og þjóðdansar í flokk-
um fyrir böm og fullorðna.
Upplýsingar og innritim j síma 125 07 milli lrl. 4
og 7 næstu daga.
Þjóðdansafélagið.
Auglýsið i Þjóðviljanum
KIP4UTGCRfi> RiKISINS
Vestmannaeyja- og Surtseyj-
arferðir m.s. Heklu.
Þar sem færri komust. með
skipinu en vildu í þrem freðum
í byrjun mánaðarins, verður efnt
til tveggja ferða skv. ofan-
greindri fyrirsögn um næstu
helgi ef veður og aðrar ástæð-
ur leyfa.
Ferðaáætlun:
Laugardaginn 26,79 kl. 13.00 frá
Reykjavík. 21.00 að Surtsey.
23.00 til Vestmannaeyja.
Sunnudag 27/9 kl. 13.00 frá
Vestmannaeyjum. 16.00—17.00 i
Þorlákshöfm 20.00—22.00 við
Surtsey.
Mánudag 28/9 kl. 07.00—08.00
til Reykjavíkur.
Fafgjöld í fyrri ferðinni kr
750.00 til kr. 995.00, en í síðari
ferðinni kr. 495.00 til kr. 740 00
að meðtöldu 1. fl. fæði fyrir alla
og bílfari frá eða til Þorláks-
hafnar.
í fyrri ferðinni verða kynnis-
ferðir skipulagðar i Vestmanna-
eyjum eftir því sem fáanlegur
bflakostur leyfir, gegn sérstöku
gjaldi.
Farmiðar verða strax seldir i
báðar ferðimar en pantaðir
miðar óskast innleystir í síð-
asta lagi á miðvikudag
SKJALDBREIÐ
fer vestur m land til ísafjarð-
ar 24. þm. Vörure ðttaka á mánu-
dag og þriðjvdag til Patreks-
fjarðar, Sv Jnseyrar, Bílcludals,
Þingeyrar, Flateyrar, Suðureyr-
ar og ísafjarðar.
Farseðlar seldir • •*
t
i