Þjóðviljinn - 20.09.1964, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 20.09.1964, Blaðsíða 10
10 SÍÐA ÞIÓÐVILJINN Sunnudagur 20. september 1964 er konan. sem hefur verið svo elskuleg að lofa okkur syni sín- um. Hún veit að það verður son- ur í þetta skipti. Hún á fjóra drengi og tvær telpur, og hún hefur aldrei getið rangt til. Hún kom til okkar í kvöld, og ég vildi óska að þú hefðir séð hana. Hún er breið eins og flygill, með fallegt, dökkt hörund og þama sat hún með sjal um höfuðið og ég get sagt þér að ég gat ekki hugsað um annað, en að þama hefði gyðja frjóseminnar stigið niður í höllina okkar. Varaðu þig, Bertha Holt, hefði Jack viljað segja. varaðu þig. Hvað skyldu frúmar í Oklahoma City hugsa, ef þær heyrðu þig tala svona? Myndu þær hleypa dyrum sínum til Rómar? — Það sem mér hefur allt af fundizt prýða Italina svo mikið, sagði frú Holt dreymandi yfir rhumbumar og tumspírurnar í rómversku nóttinni, er að þeir hafa svo fallegar tennur. Tenn- umar skipta svo miklu máli, finnst þér það ekki líka. Jack? Jack lýsti sig samþykkan því að tennur skiptu miklu máli og spurði Tucino riddaralega hvort hún vildi dansa í tilefni dagsins og hún sagði: Ó, það er alltof elskulegt, og reis á fætur og sveif í fang honum og fylgdi honum með frómu, vínblöndnu brosi, eins og kettlingur sem fengið hefur konjak í rjómann sinn af kvikindishætti. Léttfætt. viðkvæm og ófrjó dansaði hún öll flóknu sporin í sterklegum, ítölskum örmum, og Jack horfði á hana og vor- kenndi henni, vegna þess að hún hélt að sonur, annara sonur. gæti fært henni hamingjuna. Að vorkenna Tucino útheimti eins konar guðdómlega samúð, vegna þess að aðeins var hægt að vorkenna honum sem einum í samfélagi, fulltrúa aðlaðandi en fordæmrar manngerðar, fjár- hættuspilara. bjartsýnismanna, sem aldrei geta sillt sig um að tvöfalda framlagið og fá hvem ótrúlega vinninginn af öðrum unz kemur að hinu algera og endanlega tapi. Einhvem tíma áður en þú verður þrítugur, hugsaði Jack. meðan hann horfði á Lucino stjóma Berthu Holt milli dansfólksins, kemur það kvöld að þú hefur ekki efni á að HÁRGREIÐSLAN Hárgreiðslu og snyrtistofu STEINTJ og DÓDÓ Laugaveet 18. III h (lyfta) - SÍMI ? 46 16 borða kvöldverð á sh'kum stað Max var kannski *á sem mesf ástæða var til að vorkenna, vegna þess að hann var í miðj- um einum landflótta og var í þann veginn að hefja r,ýjan. Hann yrði aldrei framar jafnná- tengdur Bresach. Hann hafði verið rekkjunautur Bresachs vegna þess að aðeins var til eitt rúm; þeir höfðu satt saman hungur sitt vegna þess að þeir höfðu lifað af brauðskorpum og með því að deila kjörum við Max, hafði Bresach veitt honum aftur trúna á góðleik og hjarta- gæzku náungans. Nú yrðu rúm- in mörg og deglegar hátíðamál- tíðir kæmust upp í vana og eng- inn tæki eftir þeim. Bróðurþel yrði að vorkunnsemi og vork- unnsemi er byrði hins landflótta, rétt eins og ofsóknir. Max tók fagnandi þátt í sigri Bresachs þetta kvöld, vegna þess að hann var skynsamur, en hann vissi að hver nýr sigur myndi fjarlægja Bresach. Að vorkenna Barzelli var fag- urfræðilegt hugtak, ópersónulegt og hreint, vegna þess að aðeins var hægt að vorkenna það að hún yrði eldri og fegurð henn- ar fölnaði með tímanum. Ef hægt væri að vorkenna fagurri, auðri byggingu sem tíminn myndi með árunum breyta í duft og ösku, þá var hægt að vorkenna Barzelli. Öðru máli gegnir um Sam Holt. Sem hann sat og horfði á konu sína dansa og gladdist yfir gleði hennar, voru örlög hans augljós og sársaukafull. Ham- ingja hans var bundin eiginkon- unni og sá fjötur var hættuleg- ur. Það var eins og Holt fyndi á sér að Jack var að hugsa um hann, því að hann sneri til höfðinu og brosti til hans Þetta er nú kvöld í lagi, sagði hann. Finnst þér ekki? — Jú, það má nú segja. — Ég get ekki lýst því hve ég er feginn að þú .skulir ganga í félag við okkur. sagði Holt. Það veitir mér notalega örygg- iskennd. Okkur vantaði mann eins og þig. Traustan, ábyrgan, háttvísan. Þetta er tilvalin grafskrift handa mér, hugsaði ég. Hér hvílir ábyrgur maður í örvænt- ingu sinni. — Ég hef verið að íhuga dá- lítið, sagði Holt. — Þú manst að ég sagði þér frá mági mínum, yngri bróður Berthu — ég sagði þér að ég væri að hugsa um að setja hann á launalistann sem aðstoðar- mann — vegna skattsins .... — Jái sagðl Jack. Það man ég vel. — Já, ^agðS Holt. Ég er bSinn að íhuga þetta mál. Og ég ætla ekki að gera það. Ég vil ekki að hann verði þér til byrði. Ekki svo að skilja, að ykkur myndi sjálfsagt semja vel, sagði Holt í skyndi af háttvísí. Þetta er indæll maður. En þetta er samt ekki við hans hæfi .... Hann brosti út í annað munnvikið. Ég ætla að hjálpa honum á annan hátt. Þennan venjulega hátt. Eins og skattayfirvöldin vilja. Þá gerum við okkar til að borga fyrir eldflaugarnar sem senda á til tunglsins. Holt stundi þreytu- lega. þegar harm reiknaði ósjálf- rátt. út í hundraðasta skipti dá- lítið skömmustulegur yfir að hugsa bannig. hvað beesi indæli náungi bróðir Berthu hálffer- tugur. myndi kosta hann áöi.'.r en lyki. Svo glaðnaði aftur yfir honum. Þetta er dásamlegt kvöld, finnst þér ekki? Hann horfði með ánægjusvip á Bre-i ach sem var að hlæja að eir hverju, sem Barzelli hvíslaði að lionum. Ég þori að veðja að 75 hann á eftir að muna lengi eft- ir þessu kvöldi. Æjá — það er synd og skömm að Maurice skuli ekki geta verið með okkur í kvöld. Erfidrykkja , hugsaði Jack. Hann er svo sem héma. Andlit hans svífur milli kampavíns- glasanna. Aðeins líkaminn er fjarvevandi. — Þetta hefur verið dásamleg- ur dagur að öllu leyti, sagði Holt. Mamma hefur sjálfsagt sagt þér frá ftölsku frúnni, sem hefur veríð svo elskuleg að leyfa okkur að ættleiða bamið sitt, þegar það — Hann leitaði að viðeigandi orði yfir hinn vænt- anlega atburð. Þegar þa»' .... hm.... kemur. — Já, hún sagði mér það, sagði Jaok. Til hamingju. — Við megum fá það strax, sagði Holt. Svo að mömmu geti fundizt eins og það sé hennar eigið bam. Hún ætlar í búðir á morgun að kaupa bamaföt og barnavagn. Það verður mikil breyting á lífi hennar, 1»eldurðu ekki? Það var dálítill bænar- hreimur i röddinni. — Án efa, sagði Jack. — Til hins betra, sagði Holt í skyndi, hræddur við að Jack gæti hugsað sér eitthvað annað. — Auðvitað.j sagði Jack. — Ég ætla að skrifa uppeldis- fræðingum í Bandaríkjunum um drenginn, sagði Holt. Ég tek á- hættuna í sambandi við kjmið .. Hann brosti undirfurðulega. Ég vil að hann gangi í beztu skóla. Groton eða Andover eða þess háttar skóla. Mér hefur skilizt að aldrei sé of snemma sótt um skólavist. Ég vil að hann finni að honum standi allt opið .... Þá sá Jack Veronicu yfir öxl- ina á Holt. Hún kom gangandi yfir homið á dansgólfinu bak- við yfirbjóninn sem leiddi hana að borði í hinum enda salarins. Við hliðina á henni gekk há- vaxinn. ljóshærður ungur maður og hélt um olnbogann á henni. Já, auðvitað, hugsaði Jack kvíðinn, ég hefði átt að geta mér þess til. Hvert annað ætti fólk í brúðkaupsferð að fara, sem ætlaði aðeins að dveljast eitt kvöld í Róm? Setjizt inn í dimmt skot, bað Jack. Setjizt bar sem enginn þekkir ykkur. Hann leit á Bresach. Bresacb sneri sér að Barzelli og talaði ákaft við hana. Veronica og ljóshærði maður- inn settúst við Ktið borð. Það var einmitt handan við hom. Jack stundi af feginleik. En svo birtist út fyrir homið í skini sá hann vangasvip Veronicu Ijóskastaranna. Hún hallaði sér hæfilega mikið fram til þess að hún sást frá Jack. Síðan skyggði dansfólkið á hana og hann missti sjóraar á henni sem snöggvast. — A næstu árum, sagði Holt, sem var enn að tala um uppeldi drengsins, sem enn var ekki fæddur af þeldökkri konu frá Napolí. Og hvort sem okkur Bandaríkjamönnum líkar það betur eða verr, þá mxmum við stjóma heiminum — að minnsta kosti okkar fjórða hluta. Hann var mjög alvarlegur og hann lagði höndina á úlnlið Jacks orðum sínum til áherzlu, stóra hrjúfa og vinnxxsama höndina, sem margra ára strit hafði mót- 5>ð og ai’.ðurinn hafði ekki enn megnað að mýkja. Það sem viö rerðum að gera er að sjá um s7' hægt verði að þekkja heiminn '-.uðvitað breytist hann, en það verður hhitverk okkar að sjá til 1 þess að breytíngamar líkist því sem við höfum haft og kunnað vel við hfngað til. Og við getum aldrei gert það með því að heyja styrjöld fyrir það. Ein styrjöld ennþá, og sjálfur guð sem skap- aði heiminn myndi ekki einu sinni þekkja hann aftur. Við verðum að gera það með vinnu og góðu fordæmi og viðræðum. Þetta er nú undarlegt. sagði hann og hristi höfuðið. Við er- um þjóð lögfræðinga, og samt sem áður getum við ekki sann- fært einn einasta útlending um að bann eigi að pissa undan vindi, nema við mútum honum eða hótum honum vetnisspreragj- unrai. En það táknar ekki að við eigum að hætta að reyna að sannfæra hann. Nei, sir, sagði sann með áherzlu. Það táknar aðeins, að við verðum að finna betri oðferðir til að sannfæra hann. Og þegar maður er vel menntaður og hagar sér eins og hefðarmaður, getur hann verið miklu meira sannfærandi og miklu gagnlegri. Ég er enginn hefðarmaður sjálfur, ég óx upp eins og arfakló, eins og sagt er, og ég get sagt þetta án þess að móðga nokkum mann .... Og ef drenguriran er sprottinn úr — hm — grófum, alþýðlegum jarð- vegi og evrópúbúi að fæðingu og ef hann — eins og við höfum hugsað okkur — rýfur ekki sambandið við föðurland sitt .. Já, sagði hann feimnislega. Þá höfum við mamma ef til vill lagt fram okkar litla skerf .... — Fyrirgefðu, sagði Jack. Hann hafði séð maraniran, sem var í fylgd með Veronicu, koma fram úr hominu sem þau sátu í, og ganga fram hjá bamum að snyrtiherbergi karla. Ég var rétt í þessu að koma auga á vin, sagði Jack og reis á fætur. Hann vissi að Holt hlaut að sáma þessi ruddaskapur hans, en hann máttí engan tíma missa. Viltu hafa mig afsakaðan andartak. Ég verð að tala við hann. Eins stillilega og unnt var gekk Jaek meðfram dansgólfinu að bamum. Bresach leit ekki einu sinni upp, þegar Jack gekk framhjá. Svo gekk Jack með dansfólkið milli sín og borðsins að horninu þar sem Veronica sat alein með kampavínsglas fyrir framan sig og flöskuna í ísfötu á næsta borði. Hún var í kjól úr kremlitu brókaði með naktar axlir og hárið sett upp í hnút öðrum megin á höfðinu. Áhrifin voru sterk blanda af glæsileik og kaldri fegurð og hún var næstum eins og ókunn- ug manneskja í augum Jacks. FERÐIZT MED LANDSÝN © Seljum farseðia með flugvélum og skipum Greiðsluskilmálar Loftleiða: • FLOGIÐ STRAX - FARGJALD GREITT SÍÐAR © Skipuleggjum hópferðir og eio staídingsferðir REYNIÐ YIÐS8CIPT1N FERÐASKRIFSTOFAN L/\N O SVN ^ TÝSGÖTU 3. SÍMI 22890. — P.O. BOX 465 — REYKJAVÍK. CJMBOÐ LOFTLEIÐA. Verkfræðingar, Tæknifræðingar Samband íslenzkra rafveitna og Ljóstækntfélag íslands óska að ráða rafmagnsverkfræðing eða raf- magnstæknifræðing til starfa. Umsóknarfresttrr er til 10. okt. 1964. Umsóknir sendist SambanÆ ísl. rafveitna, pósthólf 60, Reykjavík. Nánari npplýs- ingar eru veittar í síma 18222. / :um OIÍUSIGTI bílabúð Aármúla P E R M A Garðsenda 21. — SIMI: 33 9 68. Hárgreiðslu og snyrtístofa D O M U R ! Hárgreiðsla við allra hæfl - TJARNARSTOFAN, — Tjamar götu 10 — Vonarstrætísmegin - SlMI: 14 6 62. HÁRGREIÐSLUSTOFA AUSTURBÆJAR — (Maru Guðmundsdótlirl Laugavegi 11 — SÍMI: 14 6 56. — Nuddstofa ? sama stað. ALLT FYRIR GLUGGA - ENGIN TEPPI Sérverzlun með glugga og allt fyrir glugga GLUGGAR H.F. Hafnarstræti 1 — 3. — Sími 17450.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.