Þjóðviljinn - 08.11.1964, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 08.11.1964, Blaðsíða 5
Sunnudagur 8. nóvember 1964 HðÐVIlIINN SIÐA 5 Þetta er Michele Denny ein ai' beztu frjálsíþróttakonum Frakka og meðal þátttakenda í spjótkasti á OL í Tokíó. ÐROTTNINC OL 1964 * □ „Drottningar“ eru þær kallaðar stúlkurnar sem glæsilegasta árangri ná á Olympíuleikjun- um hverju sinni. í London, á því herrans ári 1948, var það hollenzka stúlkan Fanny Blankers- Koen, sem titilinn hlaut, í Helsinki fjórum árum síðar var það dýfingameistarinn Patricia Mc- Jormick. Á Olympíuleikjunum í Melbourne 195f var það Betty Cuthbert sem hnossið hreppti, en hún vann þrenn gullverðlaun á leikjunum. — ,Drottning“ leikjanna í Róm 1960 var „gasellan’ Wilma Rudolph og í ár heitir ,,drottningin“ Vera vJaslevska. Hin tékkneska Vera Caslevska féki hvorki meira né minna en þrenn gullverðlaun í Tokíó, hún sigraði í fjölþraut, stökki og á slá. Vera, sem er aðeins 22 ára, veitti kynsystrum sínum á OL einnig harða keppni í hinni ó- ipinberu keppni um titilinn fegurðardrottning OL 1964”. Þessi fallega stúlka, sem bú- ~tt er í Prag, færði landi ;nu þrenn af þeim fimm gull- ’erðlaunum sem Tékkóslóvakía ’.laut að þessu sinni. Fvrir ut- an þær greinar leikfiminnar sem Vera sigraði f með gl.æsi- brag, varð hún framarlega í tveim öði’urn; hún varð númér fimm í svifráræfingum og sjötta í gólíæfingum. Vera Caslevska vakti verð- skuldaða athygli á Olympíu- leikunum í Róm 1960. Hún beið þá lægri hlut fyrir þjálf- ara sínum og samlanda, Evu Bosakova, sem er margfaldur heimsmeistari í framangreind- um greinum. Vera varð þá í thinda sæti í fjölþraut og kom.st með naumindum í úr- slit í svifrárkeppninni. Það var árið 1957 sem Vera UPPÞVOTTUR Þvol er dásamlegt til þvotta á Wash’n Wear skyrtum og yfirleytt öllu handþvegnu, sem ekki þarf að strauja. Þvol er það bezta, sem völ er á, betra en sápuspænir til þvotta á u11, silki og nælon. Þvol töfrar burt óhreinindin og skol- ast auðveldlega úr. Þvol þvær jafnt í köldu sem heitu vatni, og skýrir liti í ullartaui. Við upp- þvott er Þvol ómissandi. Fita og önnur óhrein- indi renna af glösum og diskum, og leirtauið verður skýlaust og gljáandi. SÁPUGERÐÍN FRiGG Vera Caslevska kom fyrst fram, á alþjóðlegri íþróttakeppni, þá aðeins 15 ára gömul. Það var í heimsmeist- arakeppni, sem fram fór í Moskvu. Tveim árum siðar hlaut hún evrópumeistaratitil- inn í æfingum á svifrá og fékk silfurverðlaun fyrir stökk. Árið 1962 var háð heims- meistarakeppni í Iþróttahöll- inni í Prag. Frammistaða Veru í beirri keppni vakti alheims- athygli. Hún varð heimsmeist- aiá í stökkum og varð númer tvö í stigakeppninni. Sigurveg- ari varð rússneska stúlkan Latynina, en áhorfendur voru óánægðir með þessi úrslit og álitu með nokkrum rétti að sú rússneska hefði fengið fleiri stig en henni bar, en Caslevska hafi verið dregin niður í stigatölu á óréttmætan hátt. Á OL í haust tókst Veru á efirminnilegan hátt að sanna að hún stóð Latyninu fyllilega á sporði. en þar krækti hún í þrenn gullverðlaun fyrir fram- an nefið á Latyninu. Vera, sem er einkaritari að atvinnu notar allar sínar frí- stu.ndir til æfinga. Til gamans má geta þess, að þes-si fallega 22 ja ára gamla stúlka er ó- gift, vegur 57 kg. og er 159 sm á hæð. Skæðasti keppiuaulurinn Vera Latynina Bmdaríkin hlutu flest gull- verðluunin á OL í Tokíó en Sovétríkin fíest stigin □ Olympíuleikjunum í Tokíó lauk um svipað leyti og blaðaútgáfan stöðvaðist hér vegna verk- falls — og þess vegna hefur ekki verið unnt að skýra fyrr en nú frá heildarúrslitunum í OL- keppninni. Fyrirfram var spáð harðri og jafnri keppni milli hinna bandarísku og sovézku íþrótta- manna og sú varð líka raunin. Lokaúrslitatölur hafa valdið ým-sum bollaleggingum í er- lendum blöðum og raunar hafa þau ýmist verið skýrð sem sig- ur Bandaríkjanna eða Sovét- ríkjanna! Hvernig má það verða? kann einhver að spyrja — og þá er nærtækast að líta á eftir- farandi: Bandaríkjamönnum má eigna sigurinn af þessum ástæðum: IÞeir hlutu flest gullverð- • launin, 36 talsins, á móti 30 sigrum sovétmanna. cy Ef reiknuð eru stig verð- --i* launamannanna, þannig að 1. rnaður fær 3 stig, 2. tvö stig og 3. eitt, þá hafa Bandaríkin alls hlotið 188 stig, en Sovét- ríkin 187. Sigur Sovétríkjanna er feng- inn með eftirfarandi: II hinni opinberu stiga- • keppni þátttökuþjóðanna í Tokíó hlutu sovézku íþrótta- mennimir samtals 612,75 stig, en þeir bandarísku 580,5. (Þá eru stigin reiknuð þannig að sigurvegarinn fær 7 stig, ann- ar maður 5 st. þriðji 4, fjórði 3, fimmtí 2, sjötti eitt). „Breiddin“ var meiri hjá • Sovétríkjunum, þau hlutu Framhald á 9. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.