Þjóðviljinn - 20.11.1964, Side 1
Föstudagur 20. nóvember 1964 — 29. árgangur — 256. tölublað.
KÓREU-
BALETTINN
KOMINN
☆ Um næstu hclgi heldur
☆ Arirangr-ballettinn frá Suð-
k ur-Kóreu þrjár sýningar í
•jír Þjóðleikhúsinu eins og frá
☆ hefur verið skýrt í fréttum.
☆ í gær kom bailettflokkur-
☆ inn hingað til Reykjavik-
☆ ur frá Bandaríkjunum með
☆ flugvél frá Loftleiðum og
☆ er myndin tekin á flugvell-
☆ inum við komuna. —
☆ (Ljósm. Heimir Stígsson.)
Meðal tillagna borgarfulltrúa Alþýðubandalagsins um húsnæðismál:
Óhæfu húsnæði í eigu horgar-
innar verði utrýmt í áföngum
■ Meðal þrettán mála á löngum fundi borgar-
stjómar Reykjavíkur í gærkvöld voru þrjár til-
lögur borgarfulltrúa Alþýðubandalagsins um hús-
næðismál.
Alfreð Gíslason bar fram svo-
fellda tillögu um útrýmingu
heilsuspillandi húsnæðis í eigu
borgarinnar:
„Borgarstjórn harmar það ó-
fremdarástand, að þorri íbúða
i eigu borgarinnar skuli vera
fyrir neðan það, sem talizt get-
ur mannsæmandi húsnæði, og
ályktar, að úr þessu skuli bætt
svo fljótt sem verða má. Fel-
ur borgarstjórnin borgarráði
og borgarstjórr. að láta þegar
gera áætlun um útrýmingu þess-
ara óhæfu íbúða í áföngum,
og Icggja þá áætlun fyrir borg-
arstjórn eigi síðar cn í febrúar
1965. Sérstaka áherzlu leggur
borgarstjórnin á, að íbúðir í
Selbúðum og Suðpól verði að
frllu rýmdar sem fyrst og þessi
hús síðan rifin til grunna“.
Guðmundur Vigfússon flutti
svofellda tillögu:
„Borgarstjórnin ályktar að
ASÍ-þingið afgreiddi einróma ólyktun um atvinnumól
Ifling fískifíotans og full-
nýting afíans brýn verkefni
■ í gær, á fjórða degi Alþýðusambandsþings, var unnið að afgreiðslu margra þing-'®'
mála, í nefndum þingsins, og á almennum þingfundum sem hófust kl. 4 e.h. og stóðu
fram á nótt, að frádregnu matarhléi frá kl. 7—9.
■ Merkasta málið sem afgreitt var á síð ’egisfundinum var ályktun þingsins um at-
vinnumál. Var hún sambykkt einróma eins og verkalýðs- og atvinnumálanefnd þings-
ins hafði frá henni gengið. f ályktuninni er þung áherzla lögð á endurnýjun og ný-
sköpun fiskiskipaflotans og að keppt verð: að því að fullnýta fiskaflann til matvæla-
framleiðslu-
hefja á næsta ári undirbúning
að byggingu eigi færri en 200
íbúða af mismunandi stærðum,
er ætlaðar verði til útrýmingar
heilsuspillandi húsnæðis, svo og
til að leysa vanda húsnæðis-
Iausra f jölskyldna, einkum barna-
fólks. Skulu íbúðir þessar reist-
ar í hentugum sambýlishúsum
og óskað tillagna eigi færri en
5 viðurkenndra arkitekta um
gerð þeirra. Gert sé ráð fyrir
að íbúðir þessar verði Ieigu-
íbúðir.
Borgarráði og borgarstjórn er
falið að annast undirbúning
málsins og leggja nánari tillög-
ur um framkvæmdirnar fj'rir
borgarstjóm eins fljótt og unnt
er“.
Þá flutti Guðmundur og svo-
fellda tillögu um athugun á
lagasetningu um leigu íbúðar-
húsnæðis:
„Borgarstjómin fclur borgar-
ráði að taka til athugunar, hvort
ekki sé rétt og tímabært, að
borgarstjórnin bciti sér fyrir því,
að sett verði ný lög um leigu
íbúðarhúsnæðis, svo og hverjar
ráðstafanir séu vænlegastar til
að tryggja framkvæmd slíkrar
lagasetningar".
Eins og fyrr var sagt stóð
borgarstjórnarfundurinn í gær
lengi fram eftir kvöldi, og
er því eigi unnt að skýra að
sinni frá umræðum um tillög-
urnar eða afgreiðslu þeirra. Frá-
sögn af umræðum um tillögu
tíddu Báru Sigfúsdóttur, borgar-
fulltrúa Alþýðubandalagsins,
verður einnig að bíða.
Umræðum lauk um atvinnu-
málályktunina á síðdegisfundin-
um. Framsögumaður hennar, Eð-
varð Sigurðsson, ekýrði frá að
nefndin legði auk þess til að til-
laga frá fulltrúum Málmiðnaðar-
og skipasmiðasambandsins um
dráttarbrautir yrði samþykkt
sem ályktun þingsins, og var það
gert í einu hljóði. Sú tillaga var
birt hér í blaðinu í gær.
Brýnustu verkefnin
Hér fer á eftir síðari hluti á-
lyktunarinnar um atvinnumál,
en þar er dregið saman hver
verkefni í atvinnumálum Al-
þýðusambandsþing telur brýn-
ust að unnin verði á næstu
tveimur árum.
„Þingið telur brýnt, að eftir-
töldum aðgerðum til eflingar at-
vinnulífinu verði hrundið í fram-
kvæmd á næstu tveimur árum:
I
Endurnýjun fiskiskipaflotans
verði haldið áfram bæði með
því keypt verði stór og vönduð
fiskiskip, sem vel henta til síld-
veiða og þorskveiða. Einnig
verði gerðar sérstakar ráðstafan-
ir og sérstök fyrirgreiðsla til
endurnýjunar minni fiskibáta.
Framhald á 5. síðu.
RÍKISSTJÓRNIN ÚTBÝR
NÝJA SKA TTSVIKALEIÐ
Ríkisstjórnin gekk slíkan berserks-
gang á Alþingi í gær, að gárungar
sögðu, að stíkt hefði ekki komið fvrir
síðan í marzlok 1949. Þar var verið að
drífa í gegn frumvarn um heimild fvr-
ir rfkisstiómina tit að taka inntent lán
og gefa út til bess sknldabréf og snari-
skírteini að upphæð 75 mil'j. kr. Skulu
skuldabréfin og skírteinin vera undan-
þegin skattskyldu og framtalsskyldu.
með 7,2% vöxtum og verðtryggð.
H Með þessu er ríkisstjómin að
efna til harðvítugrar samkeppni
við viðskintabankana um sparlfé.
® Með þessu er ríkisstjórnin að
ýta undir skattsvik e'fnamanna.
■ Með þessu er ríkisstiórnin að
taka óhagstæðara lán en hún hef-
ur nokkum tíma tekið áður.
■ Með þessu er ríkistjómin að
selia sér sjálfdæmi um ráðstöfun
75 milj., sem lánsfjárupphæðin
nemur.
Lúðvík Jósepsson gerði þessi atriði að um-
talsefni og lagði með breytingartillögum til
að þetta yrði fært í betra horf, en þær
voru allar fetldar. Einkanlega gerði hann að
umtalsefni það atriði að undanþiggja bréf-
in og skírteinin framtalsskyldu. Sagði hann.
að þetta gerði skattalögreglunni erfiðara
fyrir með að hafa eftirlit með framtölum
Grandvcrum mönnum verður á að spyrja-
Var það eins og venjule'ga bara sýndar.
mennská. þegar rfkissfiórnin talaðí um aá
afnema skattsvikin?
Launakjör barna-
kennara algerlega
óviðunandi
Eftirfarandi ályktun var samþykkt á fundi í Stéttarfélagi barna-
kennara í Reykjavík í síðustu viku:
★ „Aðalfundur stéttarfélags barnakennara í Reykjavík, haldinn í
Melaskólanum fimmtudaginn 12. nóv. 1964, lýsir óánægju sinni
með launakjör barnakennara og telur þau algerlega óviðunandi.
Fundurinn telur, að verðlags- og launaþróunin undanfarið hafi
gert að engu þær launabætur, sem bamakennarar fengu með
Kjaradómi 3. júlí 1963.
it Fundurinn lítur svo á, að sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar um
2ja til 5 flokka hækkun allra þeirra framhaldsskólakennara,
sem hafa sömu eða minni skólamenntun en bamakennarar og
birt var í bréfi til L. F. S. K. dags. 5. júní 1964, sé endurmat
á kennslustarfinu og krefst þess- eindregið að þetta endurmat sé
nú þegar látið ná til bamakennara einnig.
★ Þá krefst fundurinn þess, að nú þegar verði greitt fyrir heima-
vinnu í bamaskólum og greiðslur þessar hækki um sömu pó-
sentutölur og fast kaup bamakennara hækkaði með dómi
kjaradóms frá 3. júlí 1963.
'fc Jafnframt telur fundurinn brýna nauðsyn bera til þess, að þeg-
ar í stað verði leitað úrskurðar Félagsdóms og Kjaranefndar
um þau ágreiningsatriði f framkvæmd Kjaradóms frá 3. júlí
1963, sem varða bamakennara.
fcr Fundurinn ályktar, að verði engin jákvæð lausn fundin á mál-
um þessum, megi búast við þvi, að stór hópur bamakennara
snúi sér að öðrum betur launuðum störfum eins fljótt og upp-
sagnarákvæði opinberra starfsmanna heimila."
R^fnna oai íslend-
1 8. umferð úrslitakeppni Ol-
ympíuskákkeppninnar gerðu fs-
lendingar iafntefli við Finna.
Bjöm Þorsteinsson gerði jafn-
tefli við Kankonen. Trausti
Björnsson vann Vesterinen. Jón
Kristinssor tanaði fyrir Niem-
ela og Magnús Sólmundarson
gerði jafntefli við Rantanen.
Fyrir umferðina voru tslend-
ingar f 4. sæti í C-riðli með 19
vinninga. Næstir voru Sviss-
'endingar með 20rA vinning og
Finnar og Kólumbíumcnn iafn-
!r með 20 vinninga.
I A-flokki hafa Sovétmenn
forustu brátt fyrir nokkur áföll
svo sem tap fyrir V-Þjóðverjum.
Lúðvík Jósefsson
Flokksþing
sett í dag
14. flokksþing Samein-
ingarflokks alþýðu — Sós-
íalistaflókksins hefst í dag
kl. 5 síðdegis að Tjarnar-
götu 20 og setur formaður
flokksins, Einar Olgeirsson
þingið með ræðu.
Dagskrá þingsins verður
þessi:
1. Þingsetning.
2. Skipun kjörbréfanefndar
og nefndanefndar.
3. Rannsókn kjörbréfa.
4. Álit kjörbréfanefndar og
nefndanefndar.
5. Kosning starfsmanna
þings og starfsnefnda.
6. Skýrsla miðstjómar,
stjómmálaviðhorfið, og
verkalýðshreyfingin og
næstu verkefni flokksins.
(framsögumenn: Einar
Olgeirsson og Lúðvík
Jósefsson).
7. Skipulagsmál Alþýðu-
bandalagsins (Framsögu-
maður: Guðm. Hjartar-
son)
8. Sósíalistaflokkurinn og
starfsemi hans (Fram-
sögumaður Kjartan Ól-
afsson).
9. Menningarmál (Fram-
sögumaður: Árni Berg-
mann).
10. Reikningar flokksins,
blaða- og bókaútgáfa.
11. Rekstur Þjóðviljans og
fjármál flokksins.
12. Fjárhagsáætlun fyrir
næstu 2 ár.
13. Lagabreytingar.
14. Kosning flokksstjómar
og varamanna ásamt
endurskoðendum og vara-
mönnum
15. Ákvörðun staðar fyrir
næsta flokksþing.
16; Þingslit.
I dag fara fram 6 fyrstu
dagskrárliðirnir þ. e. fund-
inum lýkur með ræðum
Einars Olgeirssonar og Lúð-
'o'ks Jósefssonar.
FuIItrrar beir. sem enn
hafa ekki skilað kiörbréf-
"m eru beðnir að skila
beim á skrifstofu mið-
stjórnar í Tjarnarirötu 20
fvrri hlutc ðairsins >' flag.