Þjóðviljinn - 27.11.1964, Blaðsíða 1
Föstudagur 27, nóvember [1964 — 29. árgangur — 262. tölublað.
Er kirkjusókn að aukast?
f gærkvöld var brotizt inn
í Dómkirkiuna og sá kona
nokkur á Kirkjutorgi á eftir
manni inn um vestasta glugg-
ann að sunnanverðu og
brauzt maðurinn um nokkuð
ferlega með afturhlutann
fastan í glugganum. Konan
hraðaði sér niður á Lögreglu-
stöð og gerði þar viðvart. Fór
Lárus Salómonsson á vett-
vang með lið vaskra manna
og komu að lokuðum kirkju-
dyrum. Urðu þeir að dýrka
upp kirkjuhurðina.
Þegar inn í kirkjuna var
komið heyrðist þrusk upp á
sönglofti og réðust þeir til
uppgöngu og tókst skálki að
flýja ofan af lofti og barst
leikurinn fram að altari.
Um síðir handtóku þeir
manninn og var hann þá
skorinn á hendi eftir glugga-
innbrotið. Þessi maður hefur
áður gerzt brotlegur að því
að brjótast inn í kirkjur og
braust þannig inn f Ólafs-
víkurkirkju um árið. Tók
hann þar messuklæðin
traustataki og labbaði þannig
skrýddur niður f einn beitu-
skúrinn í þorpinu.
Eðvarð Sigurðsson
Fullveldis-
fognaður á
Hótel
☆
☆
☆
☆
☆
☆
☆
☆
☆
☆
☆
☆
☆
☆
Eins og skýrt hefur verið
frá hér í blaðinu efna her-
námsandstæðingar til fjöl-
breytts fullveldisfagnaðar í
Súlnasalnum á Hótel Sögu
n.k. sunnudagskvöld. Að-
göngumiðar að skemmtun-
inni fást í Bókabúð KRON
í Bankastræti, Bókabúð
Máls og menningar að
Laugavegi 18 og í skrifstofu
Samtaka hemámsandstæð-
inga að Mjóstræti 3, opið
kl. 4.30—6.30 dag hvern.
Eðvarð Sigurðsson lýsti því á Alþingi hvernig ríkísstjórnin
hefur blekkt skattborgara með fagurgala um lækkun
opinberrá gjalda 1964. Engin svör hafa borizt við mála-
leitan launþegasamtakanna frá 6. nóvember s.l.
□ Eðvarð Sigurðsson varaíorseti Alþýðusambands íslands fletti eftir-
> minnilega ofan af sýndarmennsku ríkisstjórnarinnar í sambandi við
þær samningaviðræður, sem átt hafa sér stað milli ríkisstjórnarinnar
annars vegar og ASÍ og BSRB um hugsanlegar lækkanir á opinber-
um gjöldum álögðum 1964.
□ Eðvarð tók til máls við umræðu um frumvarp Alþýðubandalagsins um endurá-
lagningu gjalda árið 1964, en á undan honum höfðu talað þeir Einar Ágústsson og
Lúðvík Jósepsson.
Q Af ræðu Eðvarðs mátti marka að viljayfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um sam-
komulagsvilja vegna skattabyrðanna voru gort eitt og hjóm. ASÍ og BSRB sendu
ríkisstjórninni bréf 6. nóv. sl. þar sem boðið er upn á ákveðin atriði til lausn-
ar þessu máli en síðan hefur EKKERT HEYRZT FRÁ STJÓRNINNI í RÚMAR
ÞRJÁR VIKUR.
Eðvarð sagði í upphafi,
fram hjá því yrði ekki komizt
að gera leiðréttingar á skatta-
álögunum frá sl. sumri. Rakti
hann nú einkum þann þátt þess-
ara mála, sem snýr að samn-
ingaviðræðum um skattamálin á
Leiguhúsnæði borgarinnar
Vestast í Vesturbænum er að finna þessi leiguhús í eigu Reykja-
víkurborgar, Selbúðirnar. Á húsakynnin þar og víðar í borginni er
drepið í frétt á 12. síðu um umræðurnar sem urðu í borgarstjóm-
taní í síðustu viku um húsnæðismálin. — (Ljósm. Þjóðv. A. K.).
að vegum ASÍ, BSRB og ríkisstjóm-
arinnar.
Sl. sumar heföi risið mikil
óánægja meðal skattborgara er
skattskráin kom út. Hafi menn
talið augljóst að skattabyröinni
væri mjög misskipt og því hafi
miðstjóm ASl rætt þessi mál á
íundi 13. ágúst og samþykkt að
senda þréf til ríkisstjómarinnar,
mótmælaorðsendingu.
Þar segir giögglega hvemig
níðzt er á hinum almenna laun-
þega og hann fái ekkert í sinn
hlut það, sem eftir er af þessu
ári nema greiðslukvittanir frá
skattayfirvöldunum. Segir orðrétt
í orðsendingunni, að „skattaþyrð-
ar þær, sem launþegum er nú
ætlað að bera, jafngilda veru-
legri kauplækkun og ógna þvi
þeim friði, sem samið var um“.
Þá segir i lok þréfsins að BSRB
hafi óskað eftir samstöðu við
ASl um þessi mál.
Nú voru haldnir tveir við-
ræðufundir um málið og sagði
Eðvarð, að ríkisstjórnin hafi
virzt hafa einhvern áhuga á
lausn þessa máls og var nú
skipuð nefnd með einum full-
trúa frá hverjum þessara aðila:
BSRB, ASl Sambandi ísl. sveit-
arfélaga og ríkisstjóminni.
Nefndin skilaði af sér þann
13. október og var niðurstaða
hennar að úrbóta væri í raun
þörf en hún gerði engar tillög-
ur til breytinga, en ríkisstjómin
skyldi gefa skattþegnunum tæki-
færi til að fá lánað hluta hinna
opinberu gjalda og átti Seðla-
bankinn að greiða sveitarfélög-
unum það fé, sem þannig yrði
lánað skattborgurunum.
Ræðumaður sagði, að laun-
þegasamtökin hefðu engan veg-
inn getað sætt sig við niður-
stöður nefndarinnar og sendu
þv£ ríkisstjóminni tillögur um
lækkun og hvemig standa skyldi
straum af þeim tekjumissi, sem
sveitarfélögin yrðu fyrir við
lækkunina. 1 tillögum þessum er
talað um „belna eftirgjöf á á-
lögðum gjöldum á árinu 1964“.
Nú tók ríkisstjómin sér nokk-
urn „umþóftunartfma“ að vanda
meðan hún athugaði tillögur
ASI og BSRB. Barst samtökun-
um bréf um mánaðamótin okt.
nóv. frá ríkissjóminni þar sem
hún lýsir sig fúsa til að veita í
mönnum lán til tveggja ára til
að greiða hin opinberu gjöld en
ekki var hún til viðræðu um
neina lækkun.
Er launþegasamtökin fengu
þessar upplýsingar í hendur
lögðu þær fram lokatilboð dag-
sett 6. nóv. 1964 og er það birt
annars staðar á síðunni.
Síðan þetta lokatilboð var
lagt fram hefur ekkert borizt
frá stjórninni viðvíkjandi þessu
brýna verkefni og það er ekki
ástæða til að fara dult með það
lengur að héma hefur ríkis-
stjómin gert sig bera að hinni
örgustu sýndarmennsku, sem um
getur.
Mikill fjöldi launþega bjóst
við einhverjum leiðréttingum
vegna loforða stjórnarinnar en
það hefur algerlega brugðizt og
er það raunar ekki í fyrsta
sinn, sem þessi ríkisstjóm geng-
ur á bak orða sinna og gerir
sig bera að 'skeytingarleysi um
velferð allrar alþýðu.
LOKATILBOÐ SENT 6. 1
NÓY. EKKERT SVAR 1
■
■
Reykjavík, 6. nóv. 1964.
„Á viðræðufundi fulltrúa A.S.Í. og B.S.R.B. með full-
trúum ríkisstjómar, 5. þ.m., var kröfu launþegasamtak- ■
anna um lækkun tekjuskatts og útsvara á árinu 1964 |
hafnað.
Jafnframt kom fram í skriflegu svari ríkisstjómarinnar, 5
að hún væri fús til að gera ráðstafanir til að draga úr [
erfiðleikum skattgreiðenda á þessu ári með lánveitingum [
í samræmi við tillögu starfsnefndar aðila.
Nefndir A.S.f. og B.S.R.B. telja leið þessa alls ófullnægj-
andi en vilja þó eigi hafna aðild að henni, ef eftirfarandi ;
skilyrðum fæst fullnægt;
..... , ■
1. Lánin verði vaxtalaus og án vísitölubind- [
ingar.
2. Lánstími verði 3 ár.
3. Lánveitandi verði ríki og7eða sveitarfé- [
lög.
4. Lánin séu talin jafngilda greiðslu á út- [
svari fyrir áramót og því frádráttarbær [
á næsta ári.“ \
m
m
íj
Virðingarfyllst,
HANNIBAL VALDIMARSSON
KRISTJÁN THORLACIUS.
l g
■
S JÓ N VARPSÁRÓÐURIN N
..........
|'\ náv.1%4
Aróðurs- og auglýsingabæklingi fyrir bandariska hemámssjón-
varpið á Islandi er nú dreift í fjölmörgum verzlunum í Reykjavík
og víðar. — Er að þessu vikið á 7. síðu blaðsins í dag.
Ennþá er barizt um Stanleyville
Uppreisnarmenn sagðir hafa
ráðizt á ný inn í borgina
NAIROBI 26/11 — Dagblaðið „East Africa Stan-
dard“ í Nairobi skýrir svo frá í dag, að uppreisn-
armenn í Kongó, sem hraktir voru út úr Stanley-
ville af fallhlífarherliði Belga og Bandaríkja-
manna, hafi í dag hafið gagnsókn og tekið aftur
nokkurn hluta borgarinnar.
Frá Kaíró berast þær fréttir,
að upplýsingaskrifstofa Banda-
ríkjanna þar í borg hafi verið
gjöreyðilögð er mannfjöldi rudd-
ist þar inn til að mótmæla að-
gerðum Bandaríkjamanna í
Kongó. í ýmsum löndum Afríku-
og kQmmúnistaríkja hafa orðið
svipaðar óeirðir, en engar eins
miklar og hér
Gebenye heill á húfi
í Nairobi er ennfremur frá
því skýrt að Christope Gebenye,
leiðtogi uppreisnarmanna, sé
heill á húfi, og er það Thomas
Kanza, utanríkisráðherra upp-
reisnarmanna, sem borinn er
fyrir þeirri frétt. Kanza kvaðst
hafa fengið skeyti frá Gebenye
þar sem hann seri. pfl aðrir leið-
Framhald á 3. síðu.