Þjóðviljinn - 27.11.1964, Page 7

Þjóðviljinn - 27.11.1964, Page 7
SÍÐA 1 Föstudagur 27. nóvember 1964 M6SVI1IINN Merkir íslendingar Merkir Islendingar Nýr flokkur III. Bókfellsútgáfan 1964. Þegar Bókfellsútgáfan hóf útgáfu á Merkur.i Islendingum árið 1947, hefur vafalaust eng- an órað fyrir því, að hér yrði um jafnstórt safn að ræða og raun er á orðin. Nú eru komin út níu bindi af ævisagnasafni þessu, röskar 4000 blaðsíður með 132 ævisögum. Fjallar hin elzta þeirra um Skafta lögsögu- mann Þóroddsson, en hinar yngstu um menn, sem eru látn- ir fyrir fáeinum árum. Margar af ævisögum þessum voru áður prentaðar í And- vara, en aðrar á víð og dreif í ýmsum ritum, nokkrar sem sjálfstæðar bækur, og fáeinar birtast hér í fyrsta sinni, prentaðar eftir handritum í Landsbókasafni. Sameiginlegt er það flestum þessum ævisög- um, að þær voru orðnar tor- gætar og ekki á vegi almenn- ings. Flestar eru þær ritaðar af mönnum nákunnugum þeim, sem um er fjallað, eða að höf- undurinn segir sjálfur ævisögu sina. Gefur það mörgum ævi- sagnanna stórlega aukið gildi, þótt ekki sé því að leyna, að stundum er kostum söguhetj- anna gert fullhátt undir höfði, en fjöður dregin yfir hitt, sem miður var í fari þeirra. 1 síð- ari bindunum htefur verið gripið til nokkurra ævisagna manna frá eldri tímum, byggð- um á sögulegum rannsóknum síðari sagnaritara. Sumar þeirra eru að sjálfsögðu merki- legar, en heldur þykja mér þær gera safnrit þetta höttótt- ara. Nokkrar þeirra eru orðn- ar úreltar og eiga því lítið er- indi tií lesenda. Má þar nefna til ævisögur þeirra Skafta Þór- oddssonar og Bjöms Einarsson- ar Jórsalafara í fyrsta bindi annars flokks, sem enginn mundi nú rita á sama veg, þótt einu sinni væru góðar og gild- ar. Um bindi það af Merkum Is- lendingum, sem nú er nýkomið út, gegnir svipuðu máli og hin fyrri. Sumar ævisögumar em með ágætum og mikill fengur að hafa þær við höndina í handhægri útgáfu. Vil ég nefna til ævisögur þeirra séra Páls Bjömssonar í Selárdal eftir Hannes Þorsteinsson, Konráðs próf. Gíslasonar' eftir Björn M. Ólsen, Eiríks Briems eftir Guðmund G. Bárðarson, jarð- fræðing, og Páls Eggerts Óla- sonar eftir útgefanda safnsins, séra Jón Guðnason, fyrrver- andi skjalavörð. Aðrar em mis- jafnari, en bera þó sumar svip liðins tíma eins og ævisögur þeirra Gunnlaugs Briems, sýslumanns, og Jóns prests Þorsteinssonar frá Reykjahlfð. Sumar em raunar léttvægar og byggjast hvorki á rannsókn né persónukynnum, t.a.m. ævi- saga Hallgríms Schevings eftir Jón Þorkelsson, þjóðskjalavörð. Jón Guðnason. Scheving var svo merkur mað- ur að hann átti skilið betri ævisögu, en hún er því miður órituð ennþá. Vafalaust er ævisaga Kon- ráðs Gíslasonar forvitnilegust, þótt hún fjalli ekki fyrst og fremst um hann sjálfan, heldur jafnframt æskuvini hans, Fjölnismenn. Á minningu þeirra bregður sérstakri birtu í sögu þjóðarinnar, og allt, sem þá varðar, er og á að vera okkur hugstætt. Sú saga er hér rakin á þann hátt, að ekki hef- ur enn verið bætt um, og bíður það verkefni einhvers upprenn- andi fræðimanns. Fjölnismenn vom vorboðar íslenzks þjóðlífs. Páll í Selár- dal var fulltrúi galdrabrennu- aldarinnar. 1 ævisögu hans leiðir Hannes Þorsteinsson les- andann við hönd sér um lend- ur seytjándu aldarinnar. Páll var einhver fjöllærðasti íslend- ingur sins tíma, en ofstækis- maður og hjátrúarfullur að hætti sinnar aldar. Var hann Framhald á 9. síðu. V erðlaunagctraun 200,00, kr. verðlaun í vömút- tekt frá þeirri verzlun sem dag- skráin er fré. Sendið svarseðil- inn í Box 408 fyrir n.k. mið- vikudagskvöld, og sá er dreg- inn verður úr með rétta lausn fær senda vöruávísun á við- komandi verzlun. HVAR FÆST DAGSKRÁIN Á AKRANESI? Svar Bæklingurinn var fenginn í verzluninni: .............. Nafn ................... Heimilisfang ............. í upptalningunni um verzlan- ir sem gefa viðskiptamönnum sínum bæklinginn er ,4ausnin“ gefin. Ölafnr Jens -»n. , bref til blaösine * . Áróðurinn fyrir hernámssjónvarp Síðastliðinn laugardag 21. .nóv. fengum við með vikulegri vörupöntun okkar sendan aug- lýsingabækling með þessum titli: SJÓNVARP og fleira 23. tölublað vikan 22.—28. nóv. 1964. Ofan við titilinn er stimpill verzlunarinnar Kjöt- búðin Langholtsveg 17 sími 34585. Útgefendur þessa bækl- ings eru skráðir þeir Þorsteinn Guðlaugsson sími 41271 og Kristján Pálsspn sími 36520. Aðalefni bæklingsins er; DAG- SKRÁ SJÓNVARPSINS á Keflavíkurflugvelli vikuna 22. til 28. nóv. þ.e. kynning á andlegu fóðri vikunnar frá hernámssjónvarpinu með . lík- amlegu vikufóðri frá ofan- greindri kjötverzlun. Dagskrá- in er á amerísku og íslenzku svo farið er að þjmnast í þeim Fjölnismannablóðið, sem standa að þessu verki. í þessu fram- andlega riti er mikið af aug- lýsingum frá nokkrum verzl- unum. Meðal auglýsinganna er ein, sem hefst með þessum orðum: „Eftirtaldar verzlanir gefa viðskiptavinum sínum bækling þennan'*. Síðan eru taldar upp allmargar verzlanir sem veita viðskiptamönnum sínum þessa sérstæðu þjón- ustu, þar á meðal SÍS. Kjör- búð, Áusturstræti 10. í bækl- ingi þessum er verðlaunaget- raun, sem greinilega miðast við þá andlegu framtakssemi, sem búizt er við hiá þeim, sem að jafnaði horfa á hermanna- sjónvarpið Getraunin er svona: Ferðabók Ciafs Olavíusar Margir fræðimenn að norð- an hafa lagt leið sína til Reykjavíkur til þess að fletta upp í Olavíusi á dönsku, — þeir hafa gengið upp á Lands- bókasafn og beðið um þessa merkilegu bók, — sezt síðan niður með þennan dýrgrip, — handfjatlað hana eins og kornabarn, — tekið í nefið og dæst yfir lýsingu á heimahög- um á ofanverðri átjándu öld, — og það á dönsku. Einu sinni tók sig upp vinnu- maður norðan af Melrakka- sléttu og fór gagngert suður til þess að fletta upp í Olavf- usi, — um hávetur á þeim ár- um, þegar Vesta gamla lónaði hér í strandferðum. Þessi vinnumaður var við- urkenndur fræðimaður f sinni sveit; hafði risið upp harðvít- ug deila í sveitinni um reka- viðarmörk og engum fræðí- manni fyrir sunnan treystandi til þess að rita niður á trú- verðugan hátt lýsingu Olaví- usar á Melrakkasléttu, — það gat eitthvað skolazt til og við- kunnanlegra að senda ábyrg- an mann, sem sæi þetta með eigin augum á dönsku., Það hefur verið stór stund á sín- um tíma, þegar þessl heiðvirði vinnumaður stóð með þessa bók í vinnulúnum höndunum upp á Landsbókasafni eftir að hafa tekið sig upp af fjarsta landshorni, og það tók fimm daga að rita niður viðkomandi gögn. ★ Það er rétt að drepa á þessa iitlu staðreynd í sambandi við útkomu á fyrra bindi bókar- innar ökonomisk Reise iginn- em de nordvestlige, nordlige og nordöstlige Kanter af Is- land, sem gefin var út í Kbhn. 1780 og snarað hefur nú verið á íslenzku af Steindóri Stein- dórssyni frá Hlöðum, — ein- hverntíma hefðu það þótt stórtíðindi fyrir vestan, norð- an og austan, að þessi mæta bók skyldi koma út á íslenzku. Nefnist hún á íslenzku Ferðabók, — landshagir i norð- vestur, norður og norðaustur- sýslum Islands 1775 tii 1777, ásamt ritgepðum Ole Henckels, um brennistein og brennl- steinsnám og Christian Zieners um surtarbrand. Bókin hefst fyrst á formála eftir þýðanda og er þar rakin nokkuð ýtarlega ævisaga Ól- afs Ólafssonar frá Eyri í Seyð- isfirði vestra, en hann latfni- seraði nafn sitt að lærðra manna sið og kallaðist Olav- ius. Ólafur var fæddur vestra árið 1741 og var kominn af dugandi bænda- og prestaættum og út- skrifaðist frá Skálholtsskóla^' Þá verður að teljast líklegt, að Jón Eiríksson hafi verið helzti hvatamaður að þessari reisu og talað um fyrir fjár- málamönnunum í Vestur Ind- iska ráðuneytinu. Enda lagði Olavius upp ó freigátunni Jægersborg í fyrstu reisu sína til Islands. ★ 1 þessu fyrsta bindi eru skráðar athuganir Olaviusar á Isafjarðarsýslum, Strandasýslu, Húnavatnssýslu og Skagafjarð- arsýslu. Þetta hafa verið langar og strangar ferðir á sjó og landi og samanstanda af þrem ferð- um með viðdvöl í Kaupmanna- höfn á millum. Olavius lagði upp í fyrstu ferð sína 3. júní 1775 og lenti 16. júlí í Dýrafirði og hélt þaðan Gemlufellsheiði og Breiðadalsheiði norður alla Vestfirði og Homstrandir til Steingrímsfjarðar. Þaðan fer hann stytztu leið yfir Gjörvi- dalsheiði til þess að skoða höfnina í Flatey á Breiðafirði og tekur síðan skip I Dýra- firði og kemur til Kaupmanna- hafnar aftur 29. október. Þá leggur hann aftur upp árið 1776 og kemur um vorið til Húsavíkur og ferðast þá um Melrakkasléttu og Langanes fil Vopnafjarðar og þaðan um Fljótsdalshérað og síðan niður á alla firðina suður að Lóns- heiði, — tók þá Berufjarðar- skip 7. október og kom til Kaupmannahafnar 6. nóvem- ber. Þá leggur hann upp þriðjn sumarið og kemur til Húsa- víkur eftir fjörutíu daga útivist og ferðast þaðan um Norður- land allar götur til Steingríms- fjarðar. Olavius segir að aðalmark- mið farar sinnar hafi verið að kanna ásigkomulag sjávar- útvegsins og þræða þannig hverja vík og vog og fara með ströndum fram og geta þannig lagt fram svör, sem með tím- anum gætu orðið til þess aö bæta kjör sjómanna og einnig til þess að kanna áður óþekkt skipalægi til eflingar verzlun landsmanna. En víða ber Olavius niður i athugnum sínum og er honum fátt óviðkomandi; virðast þess- ar athuganir furðu traustar og vísindalega unnar á þeim tím- um. Þannig hefur hann til dæmis áhyggjur af sandfoki í önundarfirði og leggur til að bændur þar hefti það með melrækt og einnig leggur hann til að þar sé eytt mýrlendi með því að hagnýta sér Pater- Nýjar skáldsögur eftir tvær konur árið 1765. Síðan hélt hann til náms í Kaupmannahöfn og lagði þar einkum stund á náttúrufræði og hagnýta búfræði við hó- skólann þar ó einum mestu niðurlægingartímum þjóðarinn- ar, þegar einokunarverzlun lá sem mara á þjóðinni og fólks- fjöldi komst niður í 37 þúsund íbúa. Ólafur lauk ævi sinni sem tollvörður á Jótlandi árið 1788. Þá er í þessari merku bók ýtarleg ritgerð eftir Jón Ei- ríksson konferensróð, er hafði mikil völd um málefni Islands i stjómardeildinni i Kaup- mannahöfn á órunum 1770 til 1781. Er ritgerðin einskonar ald- arspegill átjándu aldar og rit- uð í anda fræðslustefnunnar. Þá voru flutt hreindýr til landsins og lögð áherzla á þúfnasléttun og túngarða- hleðslu og mælt með hvers- konar tilraunum er varða kornrækt. skógrækt og garð- yrkju. Eru þetta árroðablettir með soltinni þjóð í móðuharðind- um. Ekkert er óviðkomandi hag- nýtum vísindum á Islandi og fjallar til dæmis einn kaflinn um stjömufræðiathuganir, og þá var skipaður stjömumeist- ari að Stsðastað og lagt til að reist yrði þar rannsóknarstöð. Tvær konur eru meðal inn- lendra höfunda nýrra skáld- sagna. sem ísafold gefur út á þessu hausti, þær Gufirún A. Jónsdóttir og Þorbjörg Áma- dóttir. „Taminn til kosta“ er nafnið á skáldsögu Guðrúnar A. Jóns- dóttur, bók upp á nær 300 blaðsíður. Þetta er önnur skáldsaga höfundar sem út kemur; fyrir nokkrum 'árum gaf Norðri út söguna „Helgu Hákonardóttur" eftir Guð- rúnu. Á kápusiðu hinnar nýji: bókar segir m.a. um höfund- inn: — „Guðrún A. Jónsdóttir er fædd 10. október 1908 á Ás- bjarnarstöðum, Stafholtstun.s- um .... Tæplega ársgömu’ fluttist Guðrún með foreldruir -ínum og systkinum að Sel- haga, nýbýli er faði. hennar hafði reist í hluta Ásbjarnar- staðalands. En vorið 1914 tók fjölskyldan sig upp og flutti nostertæki, ausuhjól og vatns- snigla. Þá lýsir hann nokkuð bænd- um i önundarfirði, Dýrafirði og Súgandafirði og telur þá láta sér vaxa skegg umfram aðra landsmenn og þeir gangi i gamaldags klæðum með ó- breyttu sniði frá ofanverðri seytjándu öld. Þá eru þessir bændur allsérlundaðir. Þeir gifta sjaldan dætur sínar ut- ansóknarmönnum eða taka sér koriur af ókunnum ættum og beir eru hæglátir og geöstilltir. Meðferð þeirra á mat og drykk er óbrotin og sæmilega hrein- leg og þeir standa nábúum sínum efnalega jafnfætis. Þeir nota að mestu steinbítsroð i skó og slíta femum pörum yfir daginn. Daglegt viðurværi þeirra er mjólkurmatur ásamt steinbít og rauðmaga, og ull- arvinna er stunduð af kappi af karlmönnum á vetrum. ★ Ferðalýsing Olaviusar er að- allega atvinnulegar og hag- fræðilegar upplýsingar um landshóttu til sjávar og sveit- ar á sínum tima. Þessar upplýsingar virðasi nákvæmar og traustar og aí heiðvirðum toga spunnar með trausti ó danskan kóng. Þær hafa líka hlotið verð- ugan sess í hugum fræðimanna í tvö hundruð ár og hafa nánast verið helgur stafur. Fáir hafa orðið til þess að rengja þessa bók og hversdags- legar athugasemdir varpað fram á sínum tíma orðnar dýr- mætur arfur. Mikið mætti Hagstofa ls- lands prísa sig sæla eítir önn- ur tvö hundruð ár, ef hún nyti svipaðrar virðingar þá eins og þessi merka bók £ dag meðal þjóðarinnar. Mér hefur sagt starfsmaður hjá þessari virðulegu stofnun, sem áður var getið, að allar upplýsingar og rannsóknir hagfræðilegs efnis séu meira og minna véfengjanlegar nema helzt manntalið. Þá er talið, að hagfræðingar í þjónustu borg- arastéttarinnar gangi sér til húðar á þrem árum og trúir þá enginn orðum þeirra. Er það stutt starfsskeið i einu landi með dýra menntun að baki. Þessi fallega og merka bók ætti að vgra leiðarvísir í þeim efnum og er útkoma hennar merkur viðburður. Það er þó kaldhæðni örlag- anna, að hagfræðingur skuii kosta útgáfu hennar og er batnandi mönnum bezt að lifa. Bókfellsútgáfan gefur þessa bók út. — g. m. búferlum til Borgamess, þar sem foreldrar Guðrúnar bjuggu síðan .... Síðastliðna hálfa öld hefur lögheimili hennar ávallt verið í Borgamesi og þar býr hún nú búi sínu ásamt manni sínum". Saga Þorbjargar Árnadóttur ber heitið „Signý” og undirtit- ilinn Hjúkrunarnemi í fram- andi landi. Hefst sagan í Reykjavík þegar spænska veik- in geisaði hér og Signý gerist sjálfboðaliði við hjúkrunar- starfið í Miðbæjarskólanum, en síðan heldur hún til Dan- merkur til hjúkrunarnáms. Segir á kápusíðu bókarinnar að sagan sé byggð á sönnum at- 'iurðum í aðalatriðum. Eftir Þorbjörgu Ámadóttur 'iafa komið út fjórar bækur: Sveitin okkar. þjóðlífssaga 0949), Draumur dalastúlkunn- ar, leikrit (1950.V Móðir og bam, heilsufræði (1951) og Pílagrimsför og ferðaþættir (1959).

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.