Þjóðviljinn - 28.11.1964, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 28.11.1964, Blaðsíða 4
II t 4 SlÐA HÓDVILIINN Laugardagur 28. nóvember 13£4 Ályktun aðalfundar Bandalags kvenn a í Reykjavík: Otgetandi: SameinlngarDoltkur alþýöu — SósiaUstafLokk- urinn. — Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb), Magnús Kjartansson, Siguröur Suðmundsson. Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason. Fréttaritstjóri: Sigurður V Priöþjófsson. Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust. 19. Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kl 90,00 á mánuði AB þakka fyrír sig JJíkisstjórn íhalds og Alþýðuflokksins hefur haft mörg orð um samstarfsvilja sinn við verkalýðs- hreyfinguna og önnur launþegasamtök í landinu. Þessum yfirlýsingum fjölgaði svo mjög eftir sam- komulagið í júní, að einstaka alþýðumaður kann að hafa tekið þær trúanlegar og lagt of mikið upp úr þeim. Þegar álögurnar dundu yfir í sumar og stjórnarflokkarnir fundu reiðiöldu almenningsj skella á sér og ríkisstjórninni, gugnuðu stjórnar- blöðin og ráðherrar svo að hafin voru skrif og við- urkennt að fólki hefði verið íþyngt um of. í einu stjómarblaðanna var meira að segja hamazt dag eftir dag gegn álögunum. Og þegar launþegasam- tökin, Alþýðusamband íslands og Bandalag starfs- manna ríkis og bæja mótmæltu álögunum og fóru fram á viðræður við ríkisstjómina um leiðir til úr- bóta, tók ríkisstjórnin því með mörgum orðum um samstarfsvilja sinn að lausn vandans. Jjað kom fram á Alþingi í fyrradag, að ríkisstjóm- in hyggst ekki gera neitt til þess að létta hin- ;ar.„óheyrilegu álögur sem nú þjaka alþýðuheimil- in. Það er komið í ljós að orð ríkisstjórnarinnar um samstarfsvilja og skrifin í blöðum íhaldsins og Alþýðuflokksins í súmar voru tóm blekkingar- skrif, birt í þeim tilgangi einum að afstýra því að reiðialda almennings skylli af öllum þunga á þeim sem áttu það skilið, ríkisstjórninni og stjórn- arflokkunum. Þessi staðreynd er lærdómsrík fyrir þá alþýðumenn, sem halda að íhaldsstjórn sé treystandi í hagsmunamálum almennings. Hún er þung áminning fyrir verkalýðsfélögin að láta mál eins og þessi til sín taka sjálf, gefa samningavið- ræðum eins og þeim sem stjórnir Alþýðusam- bandsins og BSRB hafa átt í við ríkisstjórnina það baksvið, að fólkið sjálft í hverju einasta verka- lýðsfélagi og launþegafélagi sé með í baráttunni og láti það koma fram, svo skýrt að ekki verði um villzt, að yfirtroðslur sem þessar verði ekki látnar viðgangast. Framkoma ríkisstjórnarinnar í þessu skattamáli er fyrir neðan allar hellur, að hefja samningaviðræður við launþegasamtökin, draga þær á langinn mánuðum saman og ætla loks að neita um nokkra viðunandi lausn vandans. Jjn eins og fyrr segir, þessi framkoma ríkisstjórn- ar íhaldsins er lærdómsrík þeim sem kunna að hafa verið í einhverjum vafa um eðli fhalds- stjórna. Eðvarð Sigurðsson, form. Verkamanna- félagsins Dagsbrúnar og Verkamannasambands íslands, minnti sterklega á þá staðreynd í lok ræðu sinnar urr skattamálin á Alþingi í fyrradag. Hann lýsti með hvössum orðum ástandinu á alþýðuheim- ilunum sem þyngst verða fyrir álögunum, og bætti við: „Á því var enginn efi að úrbóta var þörf. Launbegasamtökin voru ekkert að leika sér að því að fara þessa bónarferð til ríkisstjórnarinnar. En við höfum gengið bónleiðir til búðar með þetta erindi og ég hygg, að þó síðar verði, eigi margur launþeginn eftir að þakka fyrir sig á annan hátí“. ENDURSKOÐA VERÐUR SK0LA- KERFIÐ 0G SKIPULEGGJA í HEILD ■ Til viðbótar þeim álykt- unum aðalfundar Banda- lags kvenna í Reykjavík, sem þegar hefur verið get- ið hér í blaðinu, verður nú birtur meginhluti sam- þykktar fundarins um skólamál. 1. Fundurinn fagnar því, að komið er fram nýtt frumvarp til laga um vernd barna og ungmenna. Fundurinn vonar, að frumvarpig hljóti góða af- greiðslu á Alþingi og verði sem fyrst að lögum. (Síðan er gerð grein . fyrjr ýmsum . athuga- semdum við frumvarpið). 2. Fundurinn beinir þeim ein- dregnu tilmaeium til fræðslu- ráðs og fræðslustjóra Reykja- víkur, að stefnt sé að því, að fella skyldunám bama í eina heild. Bamapróf í núverandi mynd falli niður. 3. Fundurinn telur æskilegt, að treggáfuðum bömum sé, ef unnt er veitt sú hjálp, sem þeim nægir til að ná loka- prófi í hagnýtum greinum skáldunámsins, svo sem ís- lenzku og reikningi, og einnig sé þeim veitt aukin verkleg kennsla. í stað Þes sé dregið úr kröfum um nám þeirra í öðrum greinum, sem ekki hafa eins mikla þýðingu, þegar sótt er um vinnu eða inngöngu í skóla. Próf það, sem þessi börn kynnu að ljúka, myndi að sjálf- sögðu veita þeim heimild tii inngöngu í aðra skóla, ef þau reyndust til- þess hæf. Greinargerð: Það er stað- reynd að margur maður er góður verkmaður og jafnvel snillingur í höndum, þótt hann sé lítt fær til bóknáms. Það er áreiðanlega kærleiksverk að hjálpa slíku fólki að finna sjálft sig í starfi, sem er við þess hæfi í staðinn fyrir að pína það yfir viðfangsefnum, sem það ekki ræður við. 4. Fundurinn vill taka undir samþykktir og ályktanir, sem gerðar voru á þingi bamakenn- arasamtakanna s.l. sumar, um bráða nauðsyn þess, að endur- skoða og skipuleggja í heild MJALLHVÍT í 35. SINN Barnalcikritiö „M.iallhvít" verður sýnt í 35. sinn n.k. sunnudag i Þjóðleikhúsinu. Aðsókn hefur verið mjög góð að leiknum og hefur verið uppsclt á flestar sýningar. Leikurinn verður á næst- unni sýndur kl. 3 síðdegis á sunnudögum. Myndin er af Helgu Valtýsdóttur í hlutverki vondu drottningarinnar. Ný skáldsaga Bín- borgar Lárusdóttur „Valt er vcraldar gengið” er nafnið á nýjustu skáldsögu Elínborgar Lárusdóttur. Þetta er fjórða bindið i sagnaflokknum „Horfnar kyn- slóðir”, en áður eru út komn- ar í þeim flokki þessar sögur: „Sól í hádegisstað" (1960), „Dag skal að kveldi lofa” (1062) og „Eigi mó sköpum renna”, sem út kom £ fyrra. Sagan „Valt er veraldar gengið” gerist á fyrsta þriðj- ungi 19. aldar og er þar enn sögð saga Dalsættarinnar, einkum þó sona þeirra Dals- hjóna sem áður er sagt frá í fyrri bindum. Inn í frásögn- ina er ofið aldarfars- og þjóð- lífslýsingum og sögum, sem lifaó hafa á vörum fólksins. öókin er 276 bls. Útgefandi er Lkuggsjá. skólakerfið með tilliti til breyttra þjóðfélagshátta. Lögð sé rik áherzla á það, að hver einstaklingur fái tækifæri til þess að ná sem beztum pér- sónulegum þroska. Vorpróf séu t.d. fyrr að vorinu og fyrirskip- aður lexíulestur falli þá niður, en nemendur fái þá undir leið- sögu kennara að velja sér við- fangsefni að einhverju leyti. Greinargerð: Námsskrá sú, sem lögð er til grundvallar skólanáms í dag, er langt frá því að veita einstaklingum per- sónuþroska. Til þess er hún alt of skorðuð við að komast yfir ákveðið efni til þess að standast yfirheyrslur og próf. Nokkuð mun bera á þeirri skoðun meðal foreldra og ann- arra, sem umsjón hafa með börnum og unglingum í skyldu- námi, að kennsla langt fram eftir vori sé fremur neikvæð en jákvæð. Prófin myndu sýna betri námsárangur, ef þeim væri lokið fyrr á vorin, áður en þessi leiði og þreyta á kyrr- setunum nær valdi yfir nem- endum, eins og drepið er á að framan. 5. Fundurinn beinir þeim til- mælum til menntamálaráð- herra og fræðsluráðs Reykja- víkur, að sem fyrst verði hrundið í framkvæmd tillög- tim þeim, sem Stéttarfélag barnakennara i Reykjavík hef- ur gert um kennslu afbrigði- legra bama. Vill fundurinn einkum benda á nauðsyn þess, að lestregum börnum sé þegar á fyrstu árum skólavistarinnar veitt öll nauðsynleg aðstoð svo að lestregða hamli ekkl námi þeirra fram eftir öllum aldri. f öðru lagi vill fundurinn vekja athygli á nauðsyn þess, að vangefnum börnum sé séð fyr- ir þeirri kennslu, sem hæfir greindarþroska þeirra, og að skólaskylda þeirra verði lengd a.m.k. til 18 ára aldurs eins 0:g ráð er fyrir gert í tillögum stéttarfélagsins. Til samanburð- ar má benda á, að í Danmörku eru vangefin börn skólaskyld til 21 árs. ; 6. Fundurinn tekur undir' Þá ályktun Sambands a-skaft- fellskra kvenna, að beita sér gegn því, að framleidd séu og sejd barnaleikföng sem ,eru efltirlíkingar af drápstækjum s.s. byssum, sverðum o.þ.u.l. Fundurinn skorar hér með á alla þá, sem með uppeldi eða fræðslumál fást, og hvern þann, sem lætur sér annt um framtíð íslenzkrar æsku, að beita sér eindregið gegn fram- leiðslu, sölu og kaupum slíkra leikfanga. 7. Fundurinn beinir þeirri áskorun til æskulýðsráðs Reykjavíkur, æskulýðsfulltrúa Framhald á 9. síðu. Björn Jóhannesson, fyrrum bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, var jarðscttur í gær frá Fossvogs- kirkju, en hann lézt snögglega 22. þ.m. þar sem hann var að störfum á fundi í Dýravernd- unarsambandi Islands. Bjöm var Húnvetningur að ætt, fæddur 28. marz 1895, en fluttist til Hafnarfjarðar 1906. Hann tók snemma þátt í bar- áttu verkamanna, átti sæti í stjórn Hlífar og var formaður þess félags. Einnig var hann einn af stofnendum Sjómanna- félags Hafanarfjarðar og fyrsti formaður þess. Jafnframt var Bjöm einn af forystumönnum Alþýðuflokksins í Hafnarfirði, átti sæti i bæjarstjóm 1926— 1950 og var lengi forseti bæj- arstjómar. Hann tók mikinn þátt í stofnun bæjarútgerðar Hafnarfjarðar, fyrstu bæjarút- gerðar á landinu, og átti lengi sæti í útgerðarráði. rítar æviminningar Guðm. J. Einarsson, bóndi á Brjánslæk á Barðaströnd, hefur ritað endurminningar sínar otr eru þær komnar út í bókarformi á forlagi Sgugg- sjár í Hafnarfirði. Guðmundur nefnir bók sína „Kalt er við kórbak” og undir- titill er — Æívisaga og aldar- farsíýslng. Bókin er um 260 blaðsíður og skiptist í þrjá meginhluta: I. hluti — Bernsku- dagar og unglingsár. II. hluti — í framandi löndum. III, 'iluti — Heim er ég kominn. 1 inngangsorðum segir höf- undur m. a.: „ ... Þar sem ég hef nú svo lítið af sjálfum mér, að segja, þá býst ég við að þessi blöð snúist meira um að lýsa þeim, sem á vegi mínum hafa orðið, og verði því eins mikið minn- ingaþættir um ýmsa samferða- menn og frásagnir um ævi mína og ævistarf, sem bæði hefur verið fábrotið og lítið og alls ekki frásagnarvert að fiestu leyti. Það 'sem ég kann að segja ... um lífsferil minn mun að sjálfsögðu bera mik- inn keim af byggðarlagi því, sem ég ólst upp í, en það er sunnan á Vestfja'rðnkinikanum við norðanverðán Breiða- fjörð...” Skntggsjá gefur bökina út. i v

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.