Þjóðviljinn - 28.11.1964, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 28.11.1964, Blaðsíða 12
„Þeir í Jerúsalem hugsa, þeir í Tel Aviv skemmta sér, þeir í Haifa vinna" Um fimmleytið í gær- morgun komu fjórir af þátttakendum okkar í Ol- ympíuskákmótinu í Tel Aviv aftur til landsins, en hinir þrír voru vænt- anlegir í morgun. Eins og öllum er kunnugt stóðu þeir sig mjög vel í mót- inu, urðu hæstir í C-riðli og 29. í röðinni af 50 þjóð- um, þrátt fyrir að sumir af okkar beztu mönnum væru ekki með. Við náðum tali af ein- um ferðalanginum Magn- úsi Sólmundarsyni og fengum hann til að segja okkur örlítið frá dvölinni í Landinu helga. — Viðtökur og allur aðbún- aður okkar skákmannanna var eins og bezt verður á kosið. Við bjuggum á fyrsta flokks hóteli í Tel Aviv. Sheaton hóteli og þar fór mótið einnig fram. Matur var góður, þó vorum við famir að sakna fisksins, fengum aldrei annað en kjöt og mik- ið af ávöxtum. Á mótinu sjálftu var ágætt skipulag. Við tefldum í einum gríðarstórum sal. Þar var að vísu takmarkað svæði fyrir áhorfendur, því hinar 50 þjóðir eða réttara sagt hinir Magnús Sólmundarson 200 skákmenn þeirra tóku að sjálfsögðu nokkurt rúm, en áhorfendum var bætt það upp, með þvl að sjónvarpa innanhúss öllum helztu skák- unum; svo var salur þar sem skákimar voru sýndar á sýn- ingarborðum. — Hvern telur þú ánægjuleg- asta eða eftirminnanlegasta atburð mótsins? — Ánægjulegasta atburð- inn? Tvímælalaust, sigur okk- ar yfir Svisslendingum, við bjuggumst alls ekki við að vinna þá, álitum þá sterkustu þjóðina í okkar flokki, en unnum þá svo með þrem vinningum gegn einum. En eftirminnanlegast er tap Rússa fyrir V-Þjóðverjum. Það er næstum óþekktur viðburður i landskeppni i skák að Rúss- ar tapi. Og þó V-Þjóðverjar séu sterkir og hafi komið mjög á óvart í mótinu, þá álít ég þetta vera algera til- viljun og einn möguleika á móti hundrað eða meir að slíkt komi aftur fyrir. — En þið gerðuð ýmislegt annað en að tefla í ísrael, fómð þið ekki á fund Bjama, þegar hann var staddur í Jerúsalem? — Jú, þangað komum við og ferðuðumst líka víðar. Við fórum til Galileu, til Nazaret og Haifa. Við fórum í klukkustundarsiglingu um Genesaretvatn, og á einu ferðalaginu heimsóttum við samyrkjubú, þar sem logð er stund á ávaxtarækt. Af hin- um þrem borgum, Jerúsalem, Tel Aviv og Haifa, er mér Jerúsalem langminnisstæðust. Þar mætast gamli og nýi tíminn i byggingarlist, og við komum þar sem landamæri Jórdaníu og Israel skipta borginni í tvennt, og há gaddavírsgirðingin og her- menn gráir fyrir jámum, sem stóðu þar sitt hvorum megin, komu okkar íslendingunum allkynlega fyrir sjónir. Ann- ars segja ísraelsbúar sjálfir að þeir í Jerúsalem hugsi, þeir í Tel Aviv skemmti sér og þeir í Haifa vinni. — Hvað viltu svo segja að lokum? — Ég er ánægður með ár- angur þann er við náðum, enda er hann betri, en bú- ast mátti við þegar þrjá af okkar beztu mönnum vantar í liðið. Er þrátt fyrir góðar viðtökur ísraelsmanna og á- nægjulega dvöl í landi þeirra, var ég alveg búinn að fá nóg og er feginn að vera kom- inn heim. — M. Kr. T Framtölin liggja fyrir og því er endurálagning meí öllu vandalaus Lúðvík Jósepsson. tók til máls við umræðu um frum- varp Alþýðubandalagsins um endurálagningu skatta í gær. Sagði hann það enga frágangssok að fara út 1 að fram- kvæma endurálagningu þar sem Alþýðubandalagsmenn hefðu á reiðum höndum grundvallarviðmiðun í frumvarp- inu og öll framtöl lægju fyrir. því. Allir væru sammála um sleppa svo auðveldlega frá þess- að lækkun yrði að koma til um málum, sem hún virtist ætla og ríkisstjórnin mundi ekki Framhald á 3. síðu. Jólasöfnun Mæðra- styrksnefndar hafin 1 fyrradag var í neðri deild framhaldið umræðum um frum- varp Alþýðubandalagsins um endurálagningu útsvars og tekju- skatts fyrir árið 1964. Við þá um- ræðu tók Eðvarð Sigurðsson til máls og skýrði frá sinnuleysi ríkisstjómarinnar og þumbara- hasfti varðandi hugsanlega samninga við launþegasamtökin um eftirgjöf álagðra gjalda, þetta ár. Frá þessu var skýrt f Þjóðviljanum í gær. Er umræðunni um endurá- lagninguna var framhaldið tók Einar Ágústsson (F) fyrstur til máls. Sagði hann, að Fram- sóknarmenn hefðu flutt frum- varp til lækkunar fyrr, sem nú hefði legið í nefnd í þrjár vikur og ekkert bólaði á því að rikisstjórnarliðið hefði áhuga á að taka þessi mál til frekari endurskoðunar. Þá sagði hann, að frumvarp Alþýðubandalagsins vær; allt of erfitt í framkvæmd en hins veg- ar væri „auðvelt fyrir hvern sveitarstjórnarmann" eins og hann orðaði það, að framfylgia því, sem frumvarp Framsóknar fehir f sér. En það er í stuttu máli að allur tekjuskattur 1964 verði lækkaður um 7000 kr., og öll útsvör um 20%. Síðan bar Einar saman út- komur beggja frumvarpanna og miðaði þar við Reykjavík og komst að þeirri niðurstöðu að um svipaða upphæð til lækk- unar mundi vera að ræða í báðum tilfellum. I.úðvík Jósepsson sagði að hann væri sammála Framsókn- armönnum um að lækkun yrði að eiga sér stað. Hins vegar væri viss ágreiningur þar á milli um leiðir til að framkvæma lækkunina. Hann sagði það afar einfalt, að reikna út skv. tillögum AI- þýðubandalagsmanna, þegar óll framtölin lægju fyrir og grund- vallarreglurnar væru fyrir hendi. Agreiningurinn væri einkum fólginn í því að Framsóknar- menn vildu lækka öli útsvör um 20% hvar sem væri en það væri ekki sanngjarnt þar sem misjafnlega mikill afsláttur hefði verið gefinn á útsvarsstig- anum og sums staðar hefði hann meira að segja verið hækkaður um fáeina hundraðs- bluta. Þess vegna væri ekki unnt að bera útkomur frumvarpanna saman miðað við Reykjavík eina þar sem aðeins var veittur 9% afsláttur frá stiga. Loks sagði Lúðvík að Fram- sóknarmenn hefðu áður flutt frumvarp svipaðs eðlis og frum- varp Alþýðubandlagsins nú er og hlytu því að vera sammáía Hinn árlega jólasöfnun Mæðrastyrksnefndar er nú að hefjast og verður henni hagað eins og undanfarin ár. Peninga- gjöfum og fatnaði verður veitt móttaka í skrifstofu nefndarinn- ar að Njálsgötu 3. Skrifstofan verður opnuð n.k. miðvikudag, 2. desember og verður opin frá kl. 6 til 10. Óþarfi ætti að vera að kynna starf Mæðrastyrksnefndar fyrir lesendum en þó sakar ekki afí geta þess að þeir sem aðstoðar hennar njóta eru gamlar konur, ekkjur eða fráskildar konur sem hafa fyrir börnum að sjá og sjúklingar. Einnig aðstoðar nefndin heimili, þar sem heimil- isfaðirinn af einhverjum ástæð- um er ekki fær um að sjá fyr- ir fjölskyldunni. í fyrra úthlutaði Mæðrastyrks- nefnd rúmlega 350 þús. krónum í 7—800 staði. Mæðrastyrksnefnd heitir á Reykvíkinga að bregð- ast vel við nú sem endranær og gefa til söfnunarinnar. Hér sjást tvær af kápunum frá Guðrúnarbúð og herrafatnaður frá P.O. Þau sem sýna eru, tal- in frá vinstri; Edda Ólafsdóttir, Emil Guðjónsson og Unnur Arngrímsdóttir. — (Ljósm. G.M.). Laugardagur 28. nóvember 1964 — 29. árgangur — 263. tölublað. FullveUisfagnaður hernámsandstæð- inga að Sögu Ási í Bæ Jónas ★ Það er annað kvöld, sunnudag, sem Samtök hernámsandstæð- inga efna til fullveldisfagnaðar í Súlnasal Hótel Sögu. Þar flytja ávörp þeir Júníus Kristinsson og Loftur Guttormsson. Karl Guðmundsson leikari fer með gamanþátt og Ási í Bæ glettist við alvöru aldarinnar. Jónas Árnason stjórnar fjölda- söng og flutt verður samfelld dagskrá úr atburðasögu full- veldisársins, tekin saman af Þorsteini frá Hamri. ★ Þá leikur Savannatríóið og syngur íslenzk þjóðlög og loks leikur hljómsveit Svavars Gests fyrir dansi. ★ Aðgöngumiðar eru seldir í bókabúðum KRON í Bankastræti og Máls og menningar að Laugavegi 18, og í skrifstofu Sam- taka hernámsandstæðinga, Mjóstræti 3. Skrifstofan er opin í dag og á morgun kl. 4.30—6.30 síðdegis. Tákusýning tíl ágóðn fyrir drengjaheimiHB í Breiðuvik ■ Næstkomandi mánudag efna verzlunin Dimmalimm verzlunin Hjá Báru, Guðrúnarbúð, Hattaverzlun Soffíu Pálmadóttur og verzlunin P.Ó. til tízkusýningar á Hótel Sögu. Rennur allur ágóðinn í sérstakan sjóð til styrktar efnilegum drengjum á vistheimilinu í Breiðuvík. Sjóður þessi er stofnaður af Soroptimistaklúbb íslands, sem ■®er alþjóðaklúbbur og fæst við ýmis konar góðgerðastarfsemi. Flóttamannahjálp er sameigin- legt verkefni alþjóðahreyfingar- innar, en hver klúbbur um sig velur sér sérstakt verkefni þar að auki. Þegar Soroptimistaklúbburinn var stofnaður hér á landi af 22 konum úr mismunandi starfs- greinum, (en til að fá inngöngu í félagið gilda svipaðar reglur og í Rotaryhreyfingunni), kusu konurnar sem sitt sérstaka við- fangsefni að styðja vistheimilið í Breiðuvík Hafa þær sent drengjunum á jólum og páskum góðar gjafir, einnig senda þær þeim föt og bækur í bókasafn heimilisins. Nýlega ákváðu konurnar að stofna sjóð til þess að styrkja efnilega drengi á heimilinu eft- ir að þeir koma þaðan. Verða styrkir þessir veittir sem lán, og eru þau afturkræf, þannig að þeir geta ef þeir vilja greitt styrkinn aftur, þegar þeir eru þess megnugir Hafa konurnar nú þegar safnað nokkurri fjár- upphæð í sjóðinn, en til þess að auka hann verulega sneru þær sér til fyrrgreindra verzlana og ákváðu eigendur þeirra að ganga í lið með konunum og styrkja ( þetta góða málefni, Geta má þess að eigandi Guðrúnarbúðar, frú Guðrún Stefánsdóttir, er fyrrverandi formaður Soroptim- istaklúbbsins og var blaðamönn- um skýrt svo frá á blaðamanna- fundi í gær, að hún væri einn helzti hvatamaður að sýningu þessari. Á tízkusýningu þessari verða sýndir finnskir dagkjólar „Mari Mekko“ frá Dimmalimm, nýjasta tízka í samkvæmiskjólum frá Báru (en hún er nýkomin frá New York), dömuhattar frá Hattabúð Soffíu Pálma, herra- fatnaður frá P. Ó. og kápur frá Guðrúnarbúð. Frú Þuríður Pálsdóttir söng- kona mun bjóða gesti velkomna. Kynnir kvöldsins verður Her- mann Ragnars og danspar frá honum sýnir nýjustu dansana. Einnig koma fram leikaramir Árni Tryggvason og Klemenz Jónsson með skemmtiþátt. Aðgöngumiðar eru tölusettir og gilda sem happdrætfismiðar. Meðal vinninga eru herraföt frá P- Ó.. kápa frá Guðrúnarbúð, hattur frá Hattabúð Soffíu Pálma, kjóll frá Dimmalimm og Sindrastóll. Miðarnir verða seld- ir í Guðrúnarbúð á Klappar- stig á laugardag, mánudag og við innganginn. Eins og fyrr greinir rennur I a,lur ágóði til vistheimilis drengjanna i Breiðuvík.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.