Þjóðviljinn - 29.11.1964, Side 3
Sunnudagur 29. nóvember 1964
ÞJÓÐViniNN
SlÐA
Höfundur greinar-
innar, Ásgeir Svan-
bergsson, lauk stúd-
entsprófi árið 1952,
en hefur búið að
Þúfum í Reykja-
fjarðarhreppi, Norð-
ur-ísafjarðarsýslu, j
um það bil áratug.
ÁSGEIR SVANBERGSSON:
ALÞJOÐLEG
BÆNDA-
RÁÐSTEFNA
Rannsókna - og
fræðslustörf
Rannsóknarstarfsemi er um-
fangsmikil. Sérstök áherzla er
lögð á jarðvegsrannsóknir, en
viða er jarðvegur frekar léleg-
ur, sandjörð og leirborin jörð.
Virðast bændurnir hafa furðu-
góða yfirsýn yfir ástand jarð-
vegsins. Á hverju búi hanga
uppi kort af landareigninni,
venjulega fjögur, og sýna þau
hvert fyrir sig ástand jarðvegs-
ins hvað snertir áburðarefni og
kalk. Yfirleitt eru víðtækari
jarðvegsrannsóknir gerðar á
hverju búi á þriggja ára fresti
og kostar hver jarðvegsprufa
3 DM (39 ísl. krónur). En i
landinu eru fimm rannsóknar-
stofnanir, sem sinna þessum
verkefnum. Auk rannsókna,
sem fara fram á búunum, eru
ýmiskonar tilraunir gerðar á
sérstökum tilraunastöðvum
viðs vegar um landið. Til dæm-
is er nú verið að byggja tvö
þúsund kúa fjós, annað bása-
fjós með rörmjaltakerfi eins og
algengast er, hitt hjarðfjós með
hringekju-mjaltakerfi. Það er
ætlunin að ganga með þessu úr
skugga um hvort kerfið sé
betra, hagkvæmara.
Fjölmargar jurta- og búfjár-
kynbótastöðvar vinna að kyn-
bótum, sem beinast að sjálf-
sögðu að þvi að finna betri og
hæfari stofna, bæta afköst og
hreysti þeirra sem fyrir eru,
og gera afurðir þeirra betri
neyzluvarning. Kynbótagildi
gripa er metið eftir afkasta-
getu móður og afkomenda föð-
ur og eftir niðurstöðum af-
kvæmarannsókna. Kynbóta-
gripir hafa verið fluttir inn frá
Danmörku og Englandi til að
bæta landkynin sem fyrir eru.
Ýmsir jurtastofnar eru fengnir
víðsvegar að
Búnaðarfræðsla er almenn og
vel skipúlögð Hin almenna
búnaðarfræðsla fer fram á bún-
aðarskólum og geta nemendur
valið þar um 24 sérgreinar og
tekið sérpróf í hverri þeirra.
Námið er bæði bóklegt og verk-
legt að jöfnum hlutum. Verk-
lega námið fer fram á búum í
nágrenni skólanna. Þama
tengjast fræðikenning og starf.
Þá eru og að sjálfsögðu land-
búnaðardeildir við hina ýmsu
háskóla landsins, þar sem hægt
er að afla sér æðri og sérbæfð-
ari þekkingar. Árlega taka
2500 nemendur búnaðarskól-
anna til starfa við landbúnað-
inn. Árið 1963 störfuðu 16600
manns með háskólapróf við
landbúnað og 97000 höfðu próf
i einhverri sérgrein. Þá hafa
verið stofnaðir einskonar
kvöldskólar (Doirfakademien)
í þorpunum Þangað leita þeir,
sem vilja afla sér aukinnar
þekkingar, til dæmis eldra
fólkið. Ennfremur hefur verið
komið á sérstökum sjónvarps-
námskeiðum fyrir sveitafólk.
Þessi námskeið standa yfir
hálfan eða heilan vetur og
fjalla hvert um sig um eitt-
hvert ákveðið efni til dæmis
kálfaeldi, og geta þeir sem
vilja tekið próf í námsskeiðs-
lok. Rétt er að geta þess hér,
að geysimikil- áherzla er lögð
á hvers konar menntun í DDR.
Þar er nú 10 ára skólaskylda
en fæstir láta sér það nægja,
en sækja fagskóla eða kvöld-
skóla, ef þeir fara þá ekki i
háskólanám, í lýðveldinu koma
160 stúdentar á hverja tíu þús-
und íbúa.
Mörg vandamál
Hér hefur verið drepið á
ýms atriði úr viðræðum við
þýzka bændur í norðurhéruð-
um Þýzka alþýðulýðveldisins.
Þeir búa flestir í þorpum frá
fornu fari, og búa frá 20 til 60
fjölskyldur í hverju þorpi. Hús
bændanna standa þar í röðum
við eina eða tvær götur og í
miðju þorpi er venjulega stór-
hýsi, sem var bústaður fyrr-
verandi jarðeiganda (junkara).
Þessir stórjarðeigendur „áttu
plássið“ og leigðu bændum
land og hús gegn afarkostum
og arðrændu þá miskunnar-
laust. Margir samvinnubænd-
anna muna þá tíma vel. Nú
eru stórtiýsi junkaranna orðin
að félagsheimilum eða menn-
ingarmiðstöðvum þorpsins. Það
er kannski engin tilviljun, að
norðurhéruðin (Rostock, Schw-
erin) þar sem veldi og harð-
SÍÐARI
HLUTI
stjórn stórbændanna var mest,
höfðu íorustu um nýsköpunina
í landbúnaðinum.
Við spurðum bændurna
hvernig þessi stórfellda bylt-
ing hefði mátt verða á svo
skömmum tíma. Þeir sögðu, að
fyrst hefði jarðvegurinn verið
undirbúinn með fortölum og á-
róðri fyrir aukinni framleiðslu
og bættum lífskjörum. Það var
hlúð að nýgræðingnum, sam-
vinnu og samhjálp bændanna,
með rekstri vélastöðva, sem
önnuðust jarðyrkju með fyllstu
tækni. Rekstur vélastöðvanna
sýndi bændunum fram á yfir-
burði vélvæðingar, en þeir sáu
líka, að vélbúnaðurinn varð
ekki fullnýttur á hinum dreifðu
og sundurslitnu skákum þeirra.
Fyrstu samvinnubúin sýndu
fljótlega yfirburði í betri af-
komu og minni þrældómi. Upp-
skeran varð svo hinn vélvæddi
samvinnubúskapur, sem nú ein-
kqnnir landbúnað DDR.
Auðvitað er við mörg og ill
Ur
mynda
bök
læknis
Höfundur segir í formála m.a. „Ýmislegt merkilegt hefur á
daga mína drifið, sem afkomendum mínum kynni að þykja
nokkur slægur í að þekkja samkvæmt minni eigin sögusögn.
Bernsku mína lifði ég f sveit, þar sem þjóðlífið féll að mörgu
leyti enn f þær skorður, sem höfðu markað rás þess öldum
saman. Ég kom til Reykjavíkur rétt áður en vatnsveita, hafn-
argerð, gas og rafmagn tóku að breyta ásýnd höfuðstaðarins.
Þæknisstarf mitt stundaði ég á annan áratug i stærstu verstöð
landsins og siðan f rúman aldarfjórðung i einu af stærstu
sveitahéruðum þess. Á báðum þessum stöðum tók ég veruleg-
an þátt i almennum málum og sat ekki alltaf á friðarstóli. Ég
hef þvf oft haft allgóð skilyrði til að fylgjast með þeirri fram-
þróun, scm orðið hefur hér á landi siðustu hálfa öldina, auk
þess sem ég hef kynnzt miklum f jölda manna með ólíku sinni og
skinni, en maðurinn sjáifur, líkami hans, sál og andi, hættir hans,
eðli og örlög. hefur ávallt verið mér hugleikið viðfangsefni“
■ ? ■ -
FREYaUGATA 14 SlMI 17667
vandamál að glíma í starfi
bændanna. Þcít segja meðal
annars, að þá vanti meiri til—
búinn áburð. Það vantar líka
fleiri tæknifræðinga og búfræð-
inga. Ennþá er talsvert mis-
ræmi milli þorps og borgar.
Þorpið er enn vanþróað, menn-
ingarlega og teeknilega. En
bændurnir voru þess líka full-
vísir, að þessir ágaliar yrðu yf-
irunnir inan fárra ára. Nokkuð
ber á þvi, að unga fólkið tolli
ekki i sveitunum og meðalaldur
sveitafólksins er því tiltölulega
hár. Borginn heillar ungling-
ana og iðnaðarstörf í þéttbýl-
inu bjóða að mörgu leyti betri
aðstöðu, bæði hvað snertir
vinnu og nám og tómstunda-
störf. Enda er hinn sívaxandi
iðnaður í mikilli þörf fyrir
vinnuafl, og þetta ýtir á hinn
bóginn undir enn aukna vél-
væðingu í sveitunum. Hér má
bæta því við, að vegna mann-
fallsins í stríðinu og fækkunar
fæðinga um og eftir stríðslok
er aldursskipting íbúanna tals-
vert óeðlileg,t þannig, að af
hverjum 100 íbúum eru að-
eins 59 á vinnufærum aldri.
Hugarfar fólksins breytist
heldur ekki á einni nóttu. Það
er stórt bil á milli „mitt“ og
„okkar“, á miili einkaeignar
og sameignar. Þótt bylting í at-
vinnuháttum verði á skömmum
tíma, eru hugsunarvenjur leng-
ur að breytast í samræmi við
þróunina og það getur tekið
langan tíma að semja sig til
fulls að hinu nýja.
Bændurnir voru djarfmann-
legir Og frjálslegir í tali og
framgöngu Þeir ræddu hik-
laust og opinskátt um allt sem
bar á góma og virtust ekki
reyna að draga fjöður yfir
neitt. Þeir voru að vonum
hreyknir af árangri þeim, er
þeir hafa náð, og framtíðar-
áform þeirra mótast af kjarki
og sigurvissu. Þeir finna nú,
hvar í fiokki sem þeir standa,
að þeir sjálfir eru herrar
landsins, sem þeir yrkja. Hin
sósialistíska nýskipan landbún-
aðarins hefði líka verið óhugs-
, andi og dauðadæmd án frum-
kvæðis og samstarfs frá hendi
-. bændanna sjálfra.
Sósíalismi og friður
Hvar sem komið er i Þýzka
alþýðulýðveldinu, ekki sizt í
sveitunum, er jafnan byrjað
og endað á því að undirstrika,
að friður er grundvallarfor-
senda allrar uppbyggingar og
betra lífs. Inntak sveitalífsins
er friðsamleg vinna og bónd-
anum fer betur að vinna með
plógi en að beita sverði. Slik
orð voru jafnan mælt af mlk-
illi alvöru. Sár stríðsins eru
enn ekki fullgróin. Það er enn
verið að byggja úr rústum.
Þesi þjóð, sem byggir upp og
berst fyrir friði, hefur séð, að
sósíalismi og friður eru eitt.
Á öllum ferðalögum um
DDR var okkur tekið með ein-
stakri gestrisni og höfðings-
skap. Gestgjafar okkar lögðu
sig í framkróka um að gera
okkur dvölina sem ánægjuleg-
asta i hvívetna. Jafnan voru
fslendingarnir í för með Norð-
mönnum, frændum vorum.
Var sú samvera hin ánægju-
legasta. Báðum hópunum
fylgdu túlkar og leiðsögumenn,
sem voru kunnugir landbún-
aði. Auk þess að heimsækja
bú af mismunandi stærðum og
gerðum, voru heimsóttar ýms-
ar landbúnaðarstofnanir, svo
sem jurtakynbðtastöð. búfjár-
ræktarstöð. mjólkurbú, búnað-
arskólar og vélastöðvar. Yrði
of langt mál að rekja hér allt
sem fyrir augu bar á þeim
stöðum.
Hinni alþjóðlegu bændaráð.
stefnu var slitið í menningar-
höll verkamanna í Rostock, að
viðstöddum öllum þátttakend-
um og fiölda blaðamanna Allt
sem fram fór var jafnóðum
túlkað á sjö tungumál. Þá var
og sjónvarpað frá fundinum.
Fundurinn stóð allan daginn
Og þar tóku til máls fulltrúar
allra þátttökuþióðanna og
nokkrir fleiri af hálfu heima-
manna Gestirnir luku lofsorði
á móttökur og fyrirgreiðslu.
Ræðumenn drápu á vandamál
landbúnaðarins í heimalöndum
sínum. Margir þeirra gátu
Framhald á 9. síðu.
I
HERBERGI
ÓSKAST STRAX!
Uppl. í síma 24-931
Málverkasýning
í BOGASALNUM
myndir Benedikts Guðmundssonar. —*
Síðasti sýningardagur.
AUCL YSING
til símnotenda í Reykjavík, Kópavogi og
Hafnarfirði.
Vegna útgáfu nýrrar símaskrár eru símnotendur
i Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði beðnir að
senda fyrir 10- desember n.k. breytingar við
nafna- eða atvinnuskrá, ef einhverjar eru frá þvi
sem er í símaskránni frá 1964.
Breytingar, sem koma eftir þann tíma, má búast
við að verði ekki hægt að taka til greina.
Athygli skal vakin á nýjum flokkum í atvinnuskrá:
VARAHLUTAVERZLANIR: Þar geta fyrirtæki,
sem verzla með varahluti í bifreiðar, báta- og
skipavélar, vinnuvélar og þvi um líkt, fengið nöfn
sín prentuð.
UMBOÐ, ERLEND: Þar geta símnotendur, sem
umboð hafa fyrir erlend fyrirtæki fengið nöfn fyr-
irtækjanna prentuð.
í nafnaskrá verða aðeins prentuð nöfn fyrirtækja,
sem skrásett eru á íslandi.
Allar nánari upplýsingar fást í síma 11000 og her-
bergi nr. 206 á II. hæð í landssímahúsinu Thorvald-
senstræti 4. Breytingar sem sendar verða, skal
auðkenna: „SÍMASKRÁ“.
Reykjavík, 28. nóvember 1964.
Bæjarsími Reykjavíkur.
Herrafrakkar með spæl
Stakirjakkar
Klæðaverzlunin
Klapparstíg 40 — Sími 14415.
Kvenfélag Ásprestakalls heldur bazar í anddyri
Langholtsskólans þriðjudaginn 1. des. kl. 2 e.h.
Margir góðir, ódýrir munir.
Sjáið útstillinguna í dag. sunnudag, að Lang-
holtsvegi 82-
GLÆSILEGT HAPPDRÆTTI.
Stjórnin.