Þjóðviljinn - 23.12.1964, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 23.12.1964, Blaðsíða 12
 Síðasti fundur Alþingis fyrir jól Kosið var í bankaráðin, úthlut- unarnefnd listamannalauna o.fl. Útsvör í Kópavogi áætluð 34.5 milj. Miðvikudagur 23. de&ember 1964 — 29. árgangur —281. tölublað. Nýmæli hér á iandi Fjarhitunarstðð reist í Kópavogi Síðastliðinn laugardag var vígð ný kyndistöð í Kópa- vogi með fjarhitun í svonefnt Sigvaldahverfi milli Digranesvegar og Hlíðarvegar og er þetta nýmæli hér á landi og lækkar verulega hitakostnað. | | Er ráðist í þessa framkvæmd með tilliti til hitaveitu í Kópavogi eftir tiu ár og verður þá enginn kostnað- ur við breytinguna. I | Bæjarstjórinn í Kópavogi hleypti vatninu á hverfið og haldnar voru tvær ræður við þetta tækifæri af Ólafi Jenssyni, bæjarverkfræðingi og Karli Ómari, fram. kvæmdastj. Fjarhitunar s.f., sem sá um framkvæmdir. Síðasta verk Alþingis fyr- ir jól var að kjósa í ýmis' bankaráð, úthlutunarnefnd listamannalauna o.fl. Alþýðu- bandalagið hlaut mann í öll fimm manna ráðin nema bankaráð Búnaðarbankans og Norðurlandaráð. Þá var Ein- ar Laxness kjörinn af lista Alþýðubandalagsins í úthlut- unarnefnd listamannalauna. Við kosningarnar í fimm manna ráðin komu fram þrír • listar, A-listi, frá stjórnar- liðinu, B-listi frá Framsókn- arflokknum og C-listi frá Al- þýðubandala ginu. I stað Vilhjálms Þór í stjóm Aburðarverksmiðjunnar h.f. var Steingrímur Hermannsson sjálf- kjörinn. Norðurlandaráð Fram komu þrír listar. A-listi með Sigurði Bjamasyni, Magn- úsi Jónssyni og Sigurði Ingi- mundarsyni, B-listi með Ólafi Jóhannessyni og Ásgeiri Bjarna- syni og C-listi með Einari OI- geirssyni. Úrslit urðu þau, að A-listi hlaut 32 atkv. og alla kjörna, B-listi hlaut 19 og báða kjörna og C-listi hlaut 9 atkv. og eng- an kjörinn. Varamenn í Norðurlandaráð voru kjömir af A-lista Matthías Á. Mathiesen, Ólafur Björnsson og Birgir Finnsson og af B- lista Helgi Bergs og Jón Skafta- son. Yfirskoðunarmenn ríkísreikn- inganna voru sjálfkjörnir þeir Sigurður Ó. Ólafsson og Harald- ur Sigurðsson af A-lista og Halldór E. Sigurðsson af B- lista. Sementsverksmiðjan Á A-lista, sem hlaut 31 at,- kvæði og alla kjöma voru Ás- geir Pétursson, Pétur Ottesen og Guðmundur Sveinbjömsson, á B-lista sem hlaut 19 atkvæði var Helgi Þorsteinsson kjörinn, en auk hans var á listanum Daníei Ágústínusson. C-listi, hlaut 10 atkv. og Inga R. Helga- son kjörinn. \ Síldarverksm. ríkisins Á A-lista, sem hlaut 31 at- kvæði en alla kjörna voru Sveinn Benediktsson, Sigurður Ágústsson og Jóhann Möller, B- listinn hlaut 19 atkv. og einn mann kjörinn. Eystein Jónsson. en auk hans var Jón Kjartan*s- Frumvarp að fjárhagsáætlun fyrir Bæjarsjóð Kópavogs og önnur fyrirtæki bæjarins var Xagt fram til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar 18. þ.m. Niðurstöðutölur áætlunarinnar eru kr. 64,8 milj. en voru á áætl- un fyrir árið 1964 kr. 41.850.000. 00. Á áætlun næsta árs koma áætluð gatnagerðargjöld ekki inn í tekjulið, en eru færð til frá- dráttar á gatna- og holræsalið. Sé tekið tillit til þessarar breyt- ingar hækkar áætlunarupphæðin um 23,65%. Útsvör auk 5-10% álags fyrir vanhöldum eru áætluð 34,5 milj. en voru áætluð á þessu ári 28,5 milj. Hækkunin nemur 21 . af hundraði. Aðstöðugjöld áætlast 2 milj. Framlag úr jöfnunarsjóði 7,8 milj. Fasteignagjöld áætlast 2,2 milj. Hæstu gjaldaliðir eru. Til gatna- -og holræsagerðar kr. 10.255.000,— auk áætlaðs gatnagerðargjalds kr. 2,5 milj. Til félagsmála: kr. 9.678.000,— 1) rekstur kr. 6.375.000,— 2) skólabyggingar 4.250.000,— Samtals 10.625.000.00 Tveir menn teknir vi8 söln á „kínverjum" Nú eru strákarnir farnir að æfa sig fyrir gamlárskvöld, sprengingaherferðin er hafin. Og ekki stendur á fuliorðna fólk- inu að reyna að græða fé á þessari hættulegu skemmtun. Samkvæmt upplýsingum Hafn- arfjarðarlögreglunnar voru tekn- ir þar, í bæ í fyrrakvöld tveir fullorðnir menn úr Kópavogi, er voru að selja „kínverja" úr bif- reið. Höfðu þeir, er lögreglan náði þeim þegar selt eina fimm- tíu og var farið að gæta þess FUGLA- OG FISKABÚÐ ★ Fyrir nokkrum dögum var opnuð ný verzlun hér í ná- grenni okkar á Þjóðviljanum. ★ Er það fugla- og fiskabúðin að Klapparstíg 37 en þar var áður til húsa fornbókaverzlun. ★ Eigendur hinnar nýju verzl- unar eru ung hjón, Hjördís Hjörleifsdóttir og Kristinn Antonsson og er ætlun þeirra að hafa þarna á boðstólum úrval af fiskum og fuglum sem mikið er nú í tízku að fólk hafi í búrum á heimil- um sínum. Sést eitt af fiska- kerunum í búðinni hér á myndinni. — ★ TLjósm. Þjóðv. A. K.). Sama stjórn í ísrael JERÚSALEM 22/12 — Levi Esk- hol birti ráðherralistann í hinni nýju stjórn sinni í dag, og eru ráðherrar hinir sömu og í stjórn þeirri er lét af völdum fyrir viku vegna deilu, sem upp kom milli Eskhols og Ben Gurions, forseta landsins. Þingið vottaði hinní nýju stjórn traust með 59 atkvæðum gegn 36, en 9 meðlim- ir Mapai-flokksins greiddu ekki Sigvaldahverfi var skipulagt á sínum tíma af Sigvalda heitnum Thordarsyni, arkitekt og er kjami þess fimmtíu keðjuhús, sem öll eru byggð eftir sömu teikningu. Þá eru allmörg önnur hús í byggingu í þessu hverfi á- samt nokkrum gömlum húsum og eru þetta samtals nítíu hús í hverfinu. Fjarhitunin nær til sjötíu húsa og er aðalæðin lögð ofanjarðar á lóðamörkum og er lengd 450 metrar. Orkuverð er áætlað 80% af kostnaðarverði við kyndistöð sem þessari er hægt að brenna þungri og ó- dýrri olíu, sem ekki er hægt að nota í litlum kötlum. Auk þess notast hitagildi olíunnar um 80% borið saman við 60% í litl- um kötlum. Tengigjald er kr. 30 þúsund af hverju keðjuhúsi eða 47,50 á rúmmetrar og gildir sama gjald fyri:r önnur hús í hverfinu. Hitaveita er í uppsiglingu í Kópavogi og kemst kannski í framkvæmd eftir _ tíu ár í kaup- staðnum og verður sáralitiíí breytingarkostnaður við þá fram- kvæmd í þessu hverfi með þessú fyrirkomulagi auk hagkvæmn- innar fyrir líðandi stund. Það kom fyrst til tals, að húseigendur i hverfinu stofn- uðu með sér félagsskap til þess að reka þessa kyndisstöð, en það varð ofan á, að bæjar- félagið tæki á sig reksturinn og tekin ákvörðun um það á fundi bæjar.ráðs 19. febrúar 1962 sam- kvæmt frumkvæði og ábendingu frá skipulagsnefnd Kópavogs. Gjaldskrá hefur verið sam- þykkt fyrir kerfið og er kr. tíu fyrir hvem rúmmetra af vatni auk fastagjalds kr. 0.40 á mán- uði miðað við rúmmeter. Kostaði 2,2 milj. kr. 1 kyndistöðinni er nú einn ketill frá A/S Dansk Stoker & Varmekedel Kompagni og afkast- ar 1250 þúsund hitaeiningum á klst., — er hann með sjálfvirk- um hverfibrennara ásamt stjórn- Rökkurstundir Rökkurstundir heitir nýút- komin Ijóðabók eftir Hjálmar Þorsteinsson á Hofi. Þetta er fjórða bók Hjálmars, en hann er nú 79 ára en yrkir enn og mun kunnastur fyrir vísnagerð sína, en margar af vísum hans hafa farið víða. Bókin er 144 blaðsíður. ' Rauða blaðran Út er komin barnabókin Rauða blaðran en hún ber undirtitil- inn: Sagan af honum Pascal litla. Bókin er gerð eftir gull- fallegri kvikmynd sem ber sama heiti og hefur verið sýnd hérlendis við miklar vinsældir. Teikningar í bókina hefur Balt- asar gert og Unnur Eiríksdóttir annaðist þýðingu. Bókin er prentuð hjá Leiftri. og öryggistækjum og afkastar upphitun fyrir sjötíu hús í hverfinu. Kyndistöðvarhúsið er þó byggt fyrir tvo slíka katla og ná af- köst þeirra samanlagt út fyrir hverfið. Kyndistöðvarhúsið teiknaði Sigvaldi Thorda.rson, arkitekt og byggingameistarar voru Ingvi Loftsson og Sigurður Sigurðsson. Kostnaður við kerfið var bók- færður um síðustu mánaðamót kr. 1890 þúsund, en allur kostn- aður er áætlaður kr. 2,2 miljónir. Brunabótafélag Islands hefur lánað hálfa miljón til fram- kvæmdanna og Skeljungur kr. tvö hundruð þúsund. Þannig hefur verið hægt að veita gjald- frest á þriðja hluta tengigjald-. anna. DEILDA- KEPPNIN DREGIÐ í KVÖLD — OPIÐ TIL KL. 11 f KVÖLD Við höfum ekki langt mál um þetta að þessu sinni. Það verður dregið í kvöld og nú er hver síðastur að skila, ætH hann að vera með í drættin- um. Fyrsta deildin, 5. deild, er nú komin yfir markið, en aðrar deildir mjög nálægt því, og Austurland er langt kom- ið einnig. Nú er aðeins eftir lokaspretturinn, — og hann verðum við að taka í dag. Allir fram til starfa. Björgum hallarekstri Þjóðviljans. 1. 5. deild Norðurmýri 101% 2. Austurland . 89% 3. 1. deild Vesturbær 85% 4. 3.a deild Þingholt 84% 5. 8.a deild Teigar 82% 6. 14. deild Kringlumýri 77% 7. 4.b deild Skuggahv. 75% 8. 3. deild Hlíðar 75% 9. 3.- deild Skerjafj. 74% 10. 9. deild Kleppsholt 74% 11. 2. deild Skjólin 70% 12. 11. deild Háaleiti 65% 13. 15. deild Selás 6§% 14. 7. deild Rauðarárholt 62% 15. lO.b deild Vogar 62% 16. 10.a deild Heimar 60% 17. 13. deild Blesugróf 56% 18. 8.b deild Lækir 53% 19. 12. deild Sogamýri 43% 20. Suðurland 40% 21. Reykjanes 3»% 22. Vesturland 30% 23. Kópavogur 29% 24. Norðurland vestra 29% 25. Vestfirðir 20% 26. Norðurland eystra 18% Framhald á 9 .síðu. Til fræðslumála: í bænum. atkvæði. Lærið að nota rétt ak- reinarnar á Miklatorgi Takmörkun á umferð, sem lögreglustjórinn í Reykjavík hefur auglýst vegna hinnar miklu jólaumferðar fellur úr gildi á morgun, aðfangadag Beinist þá umferðin einkum að Miklatorgi og stærri um- ferðaræðum borgarinnar. vegna mikillar umferðar fólks milli hverfa. Einnig mun lög- reglan gera sérstakar ráð- stafanir vegna umferðar að Fossvogskirkjugarði. Umferðarlögreglan telur sérstaka ástæðu til þess að vekja athygli fólks á akstri um Miklatorg. Nauðsynlegt er að ökumenn athugi að raða ökutækjum sínum á báðar akreinar torgsins, þann- ig að „nýting“ þess verði meiri. Þeir ökumenn sem t.d. koma akandi Hringbraut að vestan og ætla að aka inn Miklubraut fari hvora ak- reinina sem er, en þeir sem koma Hringbraut, að vestan og ætla að aka Reykjanes- braut fari í hægri akrein. Á sama hátt geta þeir bílstjór- ar, sem koma Reykjanesbraut og ætla vestur Hringbraut farið óngu síður í vinstri ak- rein, en þá hægri. Hinsveg- ar þeir ökumenn, sem ætla að fara niður Snorrabraut fari í hægri akrein (innri hring). Þó er sérstök ástæða til þess að þeir ökumenn, sem aka á ytri akrein í hringtorginu sýni sérstaka varúð. Lögreglan mun gera ráðstafanir við Miklatorg m.a. með umferðarstjórn á götum sem liggja að torg- inu. Búast má við að mikii! fjöldi fólks leggi leið sína í Fossvogskirkjugarð á að- fangadag og vill lögreglan beina þeim tilmælum til ökumanna að nota vel bif- reiðastæðin við kirkjugarð- inn og leggja bifreiðum sín- um þar skipulega. Fyrrihluta aðfangadags verður mi'kil umferð á öll- um stærri umferðaræðum borgarinnar. Er þá mikilvægt. að ökumenn haldi ökutækj- um sinum á vinstri vega- brún, þannig. að eðlilegur framúrakstur geti átt sér stað. Að gefnu tilefni: ökumenn, hafið gott útsýni úr bifréið- um ykkar. Útilokið dögg ' á rúðum með því að hafa hlið- arrúður hæfilega onnar þannig að móðu taki af. Jólaumferðin í ár hefur gengið vel og er sýnt að almenningur hefur tekið höndum saman við lögregl- una við að gera jólaumferð- ina sem greiðasta. Vonar lögreglan að svo verði einnig bennan síðasta dae sem tak- mörkun á umferð gildir á þessu ári. (Frá Iögreglunni). Á V *

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.