Þjóðviljinn - 24.12.1964, Page 3
ÞIÖBVILJINN
SlÐA 3
Fímmtudagur 24. desember 1964 ' 1
ÞJÓÐVILJINN býður lesendum sínum að spreyta sig á verðlauna-
getraun um þessi jól, eins og oft áður, og væntir þess að menn
hafi gaman að, jafnframt þvi sem til nokkurra verðlauna er að
vinna.
GETRAUNIN er fólgin í því, að lesendur eiga að þekkja og nafn-
greina þá útlendinga, lifandi og látna, sem teikningamar hér
á síðunni eru af.
ÝMSUM KANN að þykja getraun þessi einhæf og skirskota til
of fámenns hóps, sem fylgist með á erlendum vettvangi, en í
þvi sambandi má benda á eftirfarandi:
I FYRSTA LAGI er þetta getraun fyrir alla fjölskylduna, þama
þurfa fleiri en einn heimilismanna að bera saman bækur sínar:
þeir sem áhuga hafa á íþróttum, bókmenntum, tónlist, alþjóða-
málum o.s.frv.
I ANNAN STAÐ eru birtir hér neðan undir 8 PUNKTAR til
leiðbeiningar og eiga þeir að hjálpa mönnum við ráðningu á
getrauninni.
1 ÞRIÐJA LAGI hafa nöfn allra þeirra manna, sem teikningamar
eru af, birzt á síðum ÞJÓÐVILJANS á undanfömum áruna.
VERÐLAUN verða veitt fyrir réttar ráðningar á getrauninni,
þannig áð dregið verður um þau úr ÖLLUM lausnum sem ber-
ast og reiknast 50 krónur fyrir hvert rétt nafn sem skrifað er
á lausnarseðilinn. Ef upp kemur við útdráttinn t.d. seðill með
20 réttum nöfnum hlýtur sendandinn 1000 krónur, séu réttu
nöfnin 10 fær sendandinn 500 krónur og svo framvegis. — Skila-
frestur er til 15. janúar n.k. en ráðningar þarf að færa inn á
reitina neðst á þessari síðu.
Til leiðbeiningar
o
0
0
o
©
©
0
©
ÁTTA bera nöfn með upphafsstöfunum S og R
og L.
SJÖ eru tónskáld og tónlistarmenn — í lifenda
tölu og dauðra.
SEX úr hópnum eru frá Sovétríkjunum — tveir
látnir, fjórir á lífi.
FIMM skáld og rithöfu^dar — einn beirra þó við
fleiri listgreinar riðinn.
FJÓRIR íþróttamenn sem létu að sér kveða á ol-
ympíuleikunum í Tokíó í októbermánuði sl.
ÞRlR skera síg úr — nöfn þeirra í alþjóðafréttum
dag hvem.
TVEIR iátnir tónsmiðir af ítalíu — kunnir meðal
tónlistarunnenda hér á landi m.a. vegna flutnings
Sinfóníusveitar Islands á verkum þeirra.
EINN kann flestum öðrum betur að stýra tafl-
mönnum á skákborði.
r. .
2. .
3. .
4. .
5. .
6. .
7. .
8. .
9. .
10. .
11. .
12. .
13. .
14. .
15. .
16. .
17. .
18. .
19. .
20. .
Nafn sendanda, heimilisfang.
rAAV\AAAAAAVWAAAAAAAAAAAAAAVWVWV\VWWWVVWWWWVWVWWV\AAAVVVVWWVWWVWAVWVVVVVWVVVVVVVWWVWWVVVVVWVVWWWVWVWWVWVVVWWVW\VWVVAVW\VV\AAV
I