Þjóðviljinn - 09.01.1965, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 09.01.1965, Blaðsíða 2
2 SÍÐA ÞIÖÐVILIINN % Laugardagur 9. janúar 1965 Verkalýðs- og sjómannafélag Hnífsdælinga fjörutíu ára Frekari ofbeldisaðgerðir. Atvmnurekendum þótti þó vissara að fylgja máli sínu enn betur eftir. Einn þeirra sagði sex fjölskyldum upp leiguhúsnæði, sem þær árum saman höfðu haft á leigu hjá fyrirtæki hans. Allar þessar ráðstafanir at- vinnurekenda dugðu samt ekki til að sundra félaginu, sem undir forustu Ingimars Bjarnasonar hélt stöðugt vörð um samtök sín og gætti þe.ss vandlega, að engum verkfalls- brotum yröi við komið. 1 blaðinu Pkutli birtist grein um kaupdeiluna í Hnífsdal, sem jafnaðarmannafélagi nr. 3 skrifar, og segir þar m.a.: „Hnífsdælipgar! Það er ekki ofsögum sagt, að nú reyni á þolrifin í ykkur. Enn hefur ekki hér á landi í kaupdeilu verið beitt slíku valdi sem gegn yður. Af Islandsbanka gat maður búist við öllu, en af Landsbankanum, þar sem sáttasemjari ríkisins á sæti, hefði mátt eiga á öðru von. Ykkur átti að svelta; það mæltist illa fyrir og var hætt við það, sennilega þó vegna sviðans í buddunni, þegar þið bjuggust til að verzla við ann- að hérað. Eignum ykkar átti að halda fyrir ykkur. Það á að reka ykkur út á gaddinn, svona til hátíðabrigðis, skír- dagur er 14. apríl. Ykkur hef- ur verið hótað Óðni og ríkis- her, byssum og bareflum. í- hald og auðvald er allsstaðar samt við sig.” Lokun sölubúða og íshúss stóð frá því um miðjan dag þann 1. apríl til morguns þess 5. apríl. Sáttatilraunir Nýr maður kemur nú við sögu í þessari deilu, en það er séra Sigurgeir Sigurðsson, sóknarprestur, síðar biskup. Séra Sigurgeir gerir ítrekað- ar tilraunir til að miþla mál- um, og tekur að sér sáttasemj- arastarf. En honum verður lít- ið ágengt, því að á tímabilinu 4.—7. apríl neita atvinnurek- endur öllum viðræðum um samningagerðir við Verkalýðs- félagið. Þeir ætla sér — hvað sem það kostar — að sundra Ver'kalýðsfélaginu, og þeir erj ekki enn orðnir úrkula vonar um að það takist. En stofnendur verkalýðsfé- lagsins sýna nú atvinnurek- endum vald sitt, samtakamátt- inn. Gegn því sterka afli geta atvinnurekendur ekki veitt viðnám, eins og þeir héldu. Samtaka sem einn maður stöðvar verkafólk útskipun á fiski í Goðafoss. Uppskipun á vörum sömuleiðis. Samningar takast — verkfalli aflýst. Atvinnurekendur sáu brátt sitt óvænna og tjáðu sig reiðu- búna til viðtals við félagið um kaupgjaldssamninga. — Samn- ingar takast 12. s.m. Verkfall- inu aflýst. Fyrsti kaupgjaldssamningurinn. ...w ».-• k'J* rtn , «.». -ój tffi. *»••» Mv j Kaup karla: Dagvinna frá kl. 7 árd. til kl. 7 síðd........ . Eftirvinng, frá kl.-7 -síðd. til kl. 10 síðd........ Næturvinna frá kl. 10 síðd. til kl. 7 árd.... Sunnudagavinna allan sólarhringinn ........... Kr. 0.85 , 1.00 1.25 1.25 Hömlur gegn lánleysi Mikið er talað um frelsi í viðskiptum um þessar mund- ir. Engu að síður eru við- ' skiptahömlur enn í fullu gildi, aðeins með nýju fyrirkomu- lagi. Þannig skýrði Einar Sig- urðsson útgerðarmaður frá því í útvarpinu á mánudaginn var að ríkisstjómin hefði í rauninni bannað innflutning á fiskibátum með fyrirmælum sínum um það, að sá sem vill kaupa bát verði að leggja inn í banka sem tryggingu nærri þriðjungs andvirðisins ári áð- ur en báturinn kemur til landsins, en sú upphaéð nem- um 4—5 miljónum króna miðað við þá báta sem nú eru í mestum metum. Ástæðan er auðvitað sú að eftir því sem afli lands- manna vex og hærra verð fæst fyrir hann erlendis magnast hið „óskaplega lán- leysi” viðreisnarinnar eins og Morgunblaðið orðaði það. Við- reisnarfrelsi Viðskiptahömlur þær sem ríkisstjómin setur hafa þann tilgang að fjötra þá sem afla gjaldeyris; hins vegar eru þeir, sem eyða honum, ekki látnir una þvílíkum hömlum. Heildsalarnir geta fagnáð miklu frelsi, þótt þeir séu naumast nógu hugkvæmir við að nota frelsi'sitt. Hvers vegna flytja þeir til dæmis ekki inn íslenzkt smjör frá útlöndum þar sem það er selt á rúmar 30 krónur kilóið, samkvæmt hinni vísdómslegu viðreisnar- stefnu ríkisstjómarinnar? Og hvers vegna flytja þeir ekki inn íslenzkt saltkjöt frá Nor- egi þar sem það er selt á miklu lægra verði en íslenzk- ir neytendur verða að greiða? Ef heildsalamir bæta ekki ráð sitt á þessu sviði mega þeir vara sig á framtaki ann- arra einstaklinga. Sagt er að íslenzkt smjör sé að verða ein af þeim vörutegundum sem smyglað er til landsins. Hver veit nema eitthvað af þeim innflutningi sé svo selt til útlanda á nýjan leik með margföldum upp- bótum úr ríkissjóði, líkt og þegar bændur keyptu kartöfl- ur í verzlunum og seldu þær grænmetiseinkasölunni marg- sinnis en stungu ríkisframlag- inu í eigin vasa. — Austri. ........................... ..................... ................ , Jens Hjörleiísson, núverandi formaður, siöan 1959. Gjaia- keri 1955—1958. -<?> Útskipun á fiski, upp- skipun á salti og kolum 1.25 Kaup kvenna: 'Bagvinná 'frá ’kL 7 árd. til kl. 7 síðd.......... 0,55 Eftirvinna frá kl. 7 síðd. tií‘:kl. 10 síðd.... 0,75 Næturvthna frá kl. 10 sfðd. til kl. 7 árd.... 0.85 Sunnudagavinna allan sólarhringinn .......... 0.85 Akvæðisvinna: Fiskþvottur á 1 skpd. stórfisks .............. 1.30 Fiskþvottur á 1 skpt. labra 0.95 Ofanritaður samningur var þannig samþykktur í verka- lýðsfélaginu 12. apríl 1927. Á fundi voru mættir 75 meðlim- ir félagsins. Mikill fjöldi þeirra lét álit sitt í ljós um samning- inn. Einróma álit allra var að samþykkja bæri samninginn; ekki vegna þess að kaupgjalds- ákveðin væru svo hagstæð heldur vegna þess að með und- irskrift atvinnurekenda viður- kenndu þeir félagið sem samn- ingsaðila. í raun og veru var um það barizt, og allar ráð- stafanir atvinnurekenda mið-®. uðu að því að sundra félaginu. En félagið hélt velli, og má tefja það þrekvirki við slíkar aðstæður. Lægra kaupgjald en á Isafirði. Kaupgjaldið í Hnífsdal var á þessum tíma mun lægra en á Isafirði. — Verkalýðsfélagið Baldur gerði nýjan samning, sem tók gildi 28. apríl 1927, eða 16 dögum eftir að samið var í Hnífsdal. Samkvæmt þeim samningi er dagvinnu- kaup karla f skipavinnu kr. 1.10 og í annarri vinnu kr. 1.00 á klst. Dagvinnukaup kvenna f skipavinnu er kr. 0.70 á klst. og í annarri vinnu kr. 0.62 á klst. Fyrir fiskþvott er greitt á Isafirði kr. 1.35 á hver 160 kg af afturúrflöttum fiski, en kr. 1.10 á hver 160 kg. af labra. Við samanburð á kauptöxtum þessara félaga sést, að Verka- lýðsfélag Hnífsdælinga hefur orðið að falla frá frumkröfu sinni, sem var jafnt kaup og á ísafirði. Einnig að nokkru frá auglýstum og samþykktum taxta. Það hefur þvf bæði kost- að fómir og átök aö fá verka- Verzlunarmannafélag Reykjavíkur Framboðsfrestur lýðsfélagið viðurkennt sem samningsaðila. En það er eftir- tektarvert, hvað almennur skilningur verkafól'ks er mikill fyrir því, að fyrsta skrefið i kaupgjaldsbaráttunni sé að fá atvinnurekendur til að viður- kenna félagið sem samnings- aðila. Óg nú hrósaði verkafólkið sigri yfir rammasta afturhaldi, sem þorað hefur að sýna sig gegn nokkru verkalýðsfélagi. Verkalýðsfélag Hnífsdælinga hafði fengið sína eldsfkírn. Það var orðinn veruleiki. t fundargerð 15. janúar 1929 er svofelld bókun: „Þá talaði formaður félags- ins (Ingimar Biarnason) um að '’élagið væri nú að komast á betri rekspöl, vegna þess m.a., að kaupmenn teldu sér hag í að semja um kaup og fleira. Mundi það nú fara að eiga hægara um vik með það, sem það vildi fá framgengt, einung- is ef fólk héldi vel saman og vanrækti eigi félagsskyldu sina.“ Ekki er að efa, að mestan þátt í að skapa þessi sterku s,amtök átti sá mikli ágætis- maður Ingimar Bjarnason. Með framkomu sinni vakti hann traust félagsmanna sinna á málstað þeirra, einkum með dæmafárri rósemi sinni og rök- festu. Fyrir kostum þessa manns og krafti samtakanna biðu atvinnurekendur algeran ósigur. Sitthvað fleira um félagið Ég hef hér að framan rakið í stórum dráttum sögu fyrstu kaupgjaldsbaráttu félagsins eins og hún er skráð í fundar- gerðabók. Það, sem...hér .hfifur.. vcrið sagt, er þó ekki nákvæm lýsing á einstökum atburðum, en vissulega er nauðsynlegt, að frásagnir af þeim verði skráð- ar, á meðan hægt er að fá þátttakendur þeirra til að lýsa þeim. Vonandi verða þær frá- sagnir skráðar í heildarsögu félagsins, sem nú er unnið að. Verkalýðsfélagið hefir starf- að óslitið síðan þetta gerðist að margþættri félagsmálastarf- semi. Félagið tók þátt í stofnun Verkalýðssambands Vestfjarða árið 1927 og hefur starfað inn- an Alþýðusambands Vestfjarða síðan það var stofnað. Þann 20. febrúar 1931 er samþykkt að óska inngöngu í Alþýðusamband íslands, og hefur félagið jafnan tekið þátt í störfum heildarsamtakanna. Sjúkrasjóður tók til starfa 3. janúar 1930 og starfar enn. Framhald á 9 síðu. —— ---------------------f------ Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherj aratkvæða- greiðslu um kjör stjórnar, trúnaðarmannaráðs og endurskoðenda í Verzlunarmannafélagi Reykja- víkur. Listum eða tillögum skal skila í skrifstofu V.R. eigi síðar en kl. 12 á hádegi þriðjudaginn 12. janúar n.k. Verzlunarmannafélag; Reykjavíkur | B ■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■«■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■i 1 á ^ ' Fortíð mætir fram- m ■ í;. ■ tíð. Hvað. ?etur ár- ið 1965 fært okkur? ■ O. J. Olse.n talar um of- angreint efni í Aðventkirkjunni sunnu- daginn 10. jali kl. 8,30 mmm eftir hádegi. Allir velkomnir. Ath; Að samkoman er HHHHHI kl. 8,30. BÚTASALA hefst í dag. GARDÍNUBÚÐIN Ingólfsstræti. i ■ . - " V ' tT 'r v Auglýsið í Þjóðviljanum CONSUL CORTINA bllaleiga magnúsap skipholfl 21 símap.* 21190-21185 IHlaukur (Fjuðmunctóóon HEIMASÍMI 21037 Dansskófí Heiðars Ástvaldssonar Innritun nýrra nemenda. Reykjavík Innritun í dag og á morgun frá kl. 2 — 7 í síma 2-0-3-4-5 og 10-11-8. Athugið að ekki er hægt að ábyrgjast að allir komist að sem vilja. Kópavogur Innritun barna fer fram í síma 10-11-8 frá 10 —12 f.h- og 7 — 9 e.h- laugardag og sunnudag. Hafnarfjörður Ekki hægt að bæta við byrjendum. Keflavík Innritun laugardag síma 2097. og sunnudag frá 3 — 7 í M i á

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.