Þjóðviljinn - 09.01.1965, Side 3

Þjóðviljinn - 09.01.1965, Side 3
taugardagur 9. janúar 1965 ÞlðÐVILIINN StÐA ® Stjórnarkreppan í Saígon er nú loks sögð vera leyst Krabbameinsstofn- un verði komið á fót PARÍS 8 1 — Ríkisstjórn- ir fimm landa, Bandaríkj- anna, Bretlands, V.-Þýzka- lands, ítalíu og Frakklands, hafa ákveðið aðkomasam- eiginlega á fót alþjóða- stofnun sem fáist við krabbameinsrannsóknir. I»að var de Gaulle, Frakklands- forseti, sem upprunalega átti b«ssa hugmynd, og franska stjórnin hefur þeg- ar ákveðíð að veita eina miljón franka í þessu skyni. Gífurleg fjársvik NEW YORK 8/1 — Banda- riski verzlunarmaðurinn Anthony de Angelis, sem ákserður er fyrir gífurleg fjársvik er samtals nema 4.200 miljónum íslenzkra króna, játaði sig í dag sekan um þrjá liði af þeim átján, sem hann er ákærð- ut fyrir. Áður hafði hann neitað sekt sinni með öllu. Njósnari dæmdur JERÚSALEM 8/1 — Iðn- rekandi nokkur, Samuel Baruck að nafni, fæddur í ísrael, var á föstudag sek- ur fundinn um njósnir í þágu Egyptalands og var hann dæmdur til 18 ára fangelsisvistar. Hann ját- aði sig sekan. Baruck er fertugur að aldri. Stolinn gimsteinn kemur í leitirnar NEW YORK 8/1 — Banda- riska lögreglan hefur nú fundið gimsteininn Star of India, en honum var stol- ið úr safni í New York í október í fyrra. Gimsteinn- inn, sem er safír og gifur- Iega verðmætur, lá í geymsluhólfi á bílastöð einni í Miami í Florida. Þrír menn eru grunaðir um að hafa rænt gimstein- inum, lögreglan hafði einn þeirra með sér til Florida og er sennilegt talið að hann hafi skýrt frá felu- staðnum í von um mildari ðóm. Kratafundur SALZBURG 8/1 — Flokks- formenn sósíaldemókrata víðsvegar að úr heiminum streyma nú til Salzburg, en þar munu þeir eiga iund með sér um helgina. Viðræðumar hefjast á laugardagskvöld og fara fram fyrir luktum dyrum. Hlébarði reynir að ræna banka JAMNAGAR 8/1 — Helj- arstór hlébarði, hálfur þriðji metri á lengd, var skotinn í Okha í Norðvest- ur-Indlandi en áður hafði dýrið brotizt inn f banka nokkurn og sært þrjá bankastarfsmenn. Atvinnuleysi rénar WASHINGTON 8/1 — At- vinnuleysingjum í Banda- ríkjunum fækkaði í desem- ber niður í tæpar 5 milj- ónir og hefur tala þeirpa aldrei orðið svo lág síð- ustu fimm ár. Frá þessu var skýrt í Washington á fimmtudag. SAIGON 8/1 — Á föstudag efndu um eitt þúsund stúdentar í bænum Nhatrang, 320 km norðaust- ur af Saigon, til mótmælafundar gegn stjóminni. Sveit úr stjómarhernum dreifði mannfjöldanum, einn stúdent var handtekinn en látinn laus síð- ar um daginn. í Saigon var það tilkynnt, að geng- ið hefði verið frá opinberri tilkynningu þar sem því væri lýst, að hin þriggja vikna stjórnarkreppa í íandinu væri nú leyst. Þessi tilkynning yrði birt þegar yfirmaður hersins, Nguyen Khanh, hefði undirritað hana. Khanh hershöfðingi dvelst um þessar mundir ásamt nokkrum starfsfélögum sínum í bænum Dalalat, 240 km norðaustur af höfuðborginni. Það er haft eftir góðum heimildum í Saigon, að í hinni opinberu tilkynningu verði því slegið föstu, að hemaðaryf- irvöld í landinu séu undir hir borgaralegu gefin., Málamiðlun Helztu atriði í því samkomu lagi, sem bandarískir embsettis menn hafa komizt að við stjórr ina og helztu hershöfðingjp landsins, eru að sögn frétta- manna þrjú: Þeir meðlimir Þjóð- arráðsins, sem setið hafa í fang- V^n Huong forsætisrádherra Ráogert að stofna NAIROBI 8/1 — Það var til- kynnt á föstudag, aö fyrirhugað sé að ráða 100.000 sjálfboðaliða til að berjast með uppreisnar- mönnum í Kongó gegn herjum Tsjombes. Það er James Ochw- atta, fyrrum yfirmaður Kairó- skrifstofu Afríkanska þjóðar- sambandsins, sem er stjórnar- flokkur í Kenya, sem frá þessu skýrir. Ochwatta sagði, að fyrsta tak- markið væri að ráða fyrrver- andi meðlimi Mau-Mau sem gætu hjálpað uppreisnarmönn- um í baráttu þeirra. Þessa til- raun til þess að mynda afrík- anskan sjálfboðaher gegn herj- um Tsjombes kvað hann vera gerða vegna afstöðu evrópskra fasista til afríkanskrar þjóðem- isstefnu og vegna aukins fjölda hvítra málaliða í Kongó. , f London er svo frá skýrt, að bandaríski varautanríkisráðherr- ann, Averell Harriman, hafi haldið í dag til Washington eft- ir að hafa m.a. rætt KongómáL ið við enska stjórnmálaleiðtoga, en sem kunnugt er ræddi Harri- mann þetta mál í París við Natóleiðtogana án þess að kom- izt væri að niðurstöðu um nokkra sameiginlega afstöðu í málinu. elsi frá 20. des. sl. verði látnir lausir, hemaðaryfirvöld verði sem fyrr segir undi’r borgaraleg gefin og að útnefndir verði eða kosnir fulltrúar í ráð sem fyrst um sinn gegni hlutverki löggjaf- arsamkundun. Öánægja Áður en þetta samkomulag næðist hafði Maxwell Taylor og aðstoðarmenn hans átt stöðuga fundi við ráðamenn í Saigon. Norska fréttastofan NTB skýrir svo frá, að ýmislegt bendi til þess, að nokkrir hershöfðingi- anna séu ekki sem ánægðastir með þessa málamiðiun. Rólegt í Hue I bænum Hue um miðbik 'andsins var allt með kyrrum kjörum á föstudag, en daginn áður var bærinn sem lamaður af allsherjarverkfalli. Frá þvi hefur verið skýrt, að um það bil 50 skæruliðar hafi verið felldir í útjaðri bæjarins. í Saigon var einnig allt með kyrrum kjörum, en búizt er við nýjum mótmæla- fundi þar á sunnudag. Margréti Breta- prinsessu mætt % með sprengingu ABBEYLEIX 8/1 — Mikd sprenging varð í nótt í bænum Abbeyleix á írlandi. Margrét Bretaprinsessa og eiginmaður hennar, Snowdon lávarður, áður Anthony Armstrong Jones, höföu komið til bæjarins um kvöldið, í heimsókn til nokkurra ættingja lávarðarins. Sprengingin olii ekki teljandi tjóni. Lögreglan telur að það rrrnni hafa verið með- límir í írska Iýðveldishemum, IRA eða Irish Republican Army, sem staðið hafi að baki þessari sprengingu. Ógnarstiórn í algleymingi Þessi mynd sýnir betur en margt annað hvílíkt ástand ríkir á Spáni undir fasistastjórn Francos. Lögregluþjónninn hefur brugð- ið kylfu sinni og gerir sig líklegan til þess að lemja stúdent sem mótmælt hefur ógnarstjórninni í landinu. Nazistaóspektir á kosningafundi Gordons Walker LONDON 8/1 — Meðlimir í enska nazistaflokknum efndu í gær til óspekta í sambandi við Skæruliðar Indónesa ganga enn á land á Malayaskaga KUALA LUMPUR 8/1 — Indónesar settu í dag lið á land í Malaya, 14 skæruliða. Foringi skæruliðanna lét svo um mælt við fiskimann einn er hann tók til fanga en sleppti síðan, að eitt þúsund manna lið myndi koma á eftir. Mal- asíustjórn hefur skýrt svo frá, að fimm þessara fjórtán manna, hafi verið handteknir, og herlið leiti hinna níu. Þetta er þriðja landganga Indónesa í Malaya frá því um áramót. Enski hermálaráðherrann, Fred Mulley, sem staddur er í Singa- pore, lét svo um mælt við fréttamenn, að hverri árás é Dáleiddur morðingi senn látinn laus KAUPMANNAHOFN, 8/1 — Yfirvöld í Danmörku ákváðu það á föstudag að stefna fyrir hæstarétt þeim úrskurði, að morðinginn Palle Hardrup verði látinn laus. Hardrup þessi drap árið 1951 tvo bankastarfsmenn, er hann reyndi að ræna banka á Nöraebro. Hann var úrskurð- aður í geðrannsókn og nú hefur réttur í Kaupmannahöfn ákveð- ið, ab hann skuli látinn laus til reynslu. Þeim úrskurði áfrýja yfirvöldin. Mál þetta vakti á sínum tíma mikla athygli vegna þess, að annar maður, Nielsen að nafni, var dæmdur í æfilangt fangelsi fyrir að hafa dáleitt Hardrup til þess að fremja glæpinn. Nielsen hefur hvað eft- ir annað reynt að fá þeim dómi b^eytt, en án árangurs. Nýlega hefur hann sótt um náðun, og er sú umsókn nú til afgreiðslu. Malasíu yrði mæti með öllum tiltækum ráðum. Mulley kemur til Malasíu til þess að skoða enskar herstöðvar í ríkinu. Ekki vildi hann segja neitt um það, hvort til greina kæmu gagmárás- ir á Indónesíu. i vasanum á Kínverjum! Frá Washington berast þær fréttir, að embættismenn þar lýsi það skoðun bandarísku stjórnar- innar, að Indónesía hafi smátt og smátt orðið undir æ meiri áhrifum Kínverska alþýðulýð- veldisins, og að úrsögnin úr Sameinuðu þjóðunum sé bezta dæmið um þetta. Hafi banda- rískir ráðamenn af þessu miklar áhyggjur, enda sé Indónesía eitt fjölmennasta ríki heims með gífurlegar náttúruauðlindir, sem geti haft ómetanlega þýðingu fyrir Kínverja. Frumkvæðið frá Kíuverjum Þá telja bandarísk blöð, að það hafi verið kínverska stióm- Súkarnó in sem átt hafi upptökin að þeirri ákvörðun Súkarnos að segja Indónesíu úr SÞ. Hafi það verið kínverski utanríkisráð- herrann, Chen Yi, sem ráðlagt hafi Súkarno að stíga þetta skref er hann heimsótti Dja- karta 27.v nóv. sl. Hinsvegar kveðast bandarískir embættis- menn ekkert um það vita hvort Kínverjar hafi þvingað Súkarno til þessara aðgerða. kosningabaráttu Patrick Gordon Walker, utanríkisráðh. í stjóm Verkamannaflokksins. Walker býður sig fram tii þings við aukakosningar í Lundúnakjör- dæminu Leyton. Lögreglau neyddist til þess að fjarlægja óróaseggina, og var flokksfor- ingjanum, Colin Jordan, ásamt félögum sínum, hent út úr fund. arsal þar sem Walker hélt ræðu. Áður en til þess kæmi höfðú nazistamrr í um það bii hálfá klukkustund yfirgnæft Gordon W alker með hrópum eins og „Kynþáttasvikari“ „Burt með svertingjana" og „Hvar era niggaramir?“ Walker, sem ekki er neinn ræðuskörungur talinn, reyndi hvað hann gat að hálda sig við ræðuhandritið og fá hljóð, en ekki heyrðist mannsins mál fyrir ólátum. Síðar lýstí ut- anríkisráðherrann þvi yfir, að þessar aðgerðir hefðu verið greinilega nazistískar. Hann kvaðst vel geta trúað þeim orð- rómi, að fjölmargir óróaseggj- anna hefðu fengið greitt fé fyr- ’r að efna til óspekta, en Oolín Jordan hefur lýst því yfir, að hann muni gera sitt ítrasta til "’ð hindra það, að Gordon Walk- °r nái kosningu. Eins og menn ""una féll Walker í kjördæmi ”'nu við þingkosningar nú fyrir kömmu og var því kennt um, 5 mótframbjoðandi hans hefði ■ otfært sér kynþáttahatur í kjör- dæminu, en þar er margt inn- fluttra manna þeldökkra. Utan- ríkisráðherrann bætti því við, að hann væri sannfaerður um bað, að íhaldsflokkurinn hefði hvergi nærri þessum óspektum komið. LONDON 8/1 — Gullverð hélt áfram að hækka í London og París á föstudag, og jafnframt hóf Englandsbanki styrktarkaup til þess að hindra það að gengi sterlingspundsins minnki enn í kauphöllinni í London.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.