Þjóðviljinn - 26.01.1965, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 26.01.1965, Qupperneq 5
Þriðjudagur 26. janúar 1-965 HÖÐVILIINN SlÐA 3 □ Það kom nokkuð á óvart hversu Fram gekk illa að ná tökum á liðinu í fyrstu deild sem ekki hefur hlotið stig ennþá, þ.e. Haukum. Langtím- um saman í fyrri hálfleik höfðu Haukar for- ustuna og í hálfleik voru þeir með eitt mark yfir, 12:11. Handknattleiksmótið: Islandsmeistararnir áttu í erfiðleikum með Hauka en sigruðu þó 25:20 Það var ekki fyrr en á 22. mínútu að Fram tókst að kom- ast yfir, 8:7, en sem fyrr var sagt tapaði Fram forustuimi aftur. Loks í síðari hálfleik tekst Fram að ná forustunni, og lengi vel var hún á engan hátt örugg, því að oft munaði aðeins einu til tveim mörk- um, og á 16:16 tókst Haukum enn að jafna. Það er ekki fyrr en undir lokin sem Framarar geta talizt öruggir með sigur- inn. Fram gekk afar illa að kom- ast í gegn um vörn Hauka; Framarar fundu ekki á því lagið að smjúga inn á miiii varnarlínanna og ógna þaðan. Leikur þeirra var líka held- ur hægur og ekki tilþrifamik- ill. Markmaður Fram var líka nokkuð óheppinn í vörn sinni, og enn bættist það við að Guðjón var óvenju óheppinn með skotin, skaut hvað eftir annað án þess að skora. Haukar léku oft af miklum hraða og tókst furðuoft að opna vörn Fram og skora. Markmaður þeirra varði yfir- leitt vel, en þá gerðu þeir þá villu að taka hann úr markinu, og ungur, nýr maður kom í staðinn, sem ekki dugði eins vel. Frá leik Fram og Hauka á sunnudaginn. (Ljósm. Bjarnleifur). -<$> Leikir í 2. og 3. il. S. 1. laugardagskvöld fóru fram sex leikir í 2. og 3. flokki í Handknattleiksmeist- aramóti Islands. I þriðja fl. urðu úrslit þau, að Víkingur sigraði Fram með 10 mörk- um gegn 6, ÍR vann Kefla- vík með 17 mörkum gegn 7 og Valur sigraði Hauka með 25 mörkum gegn 4. I öðrum flokki urðu úrslit þessi: IR sigraði Keflavík með 17 mörkum gegn 14, KR vann FH með 18 mörkum gegn 14 og Valur vann Þrótt með 16 mörkum gegn 10. Umsögn Frímans um leik- ina birtist hér á síðunni á morgun. Fram lék nokkuð undir því sem liðið getur bezt, og var sem það tæki þetta ekki veru- lega álvarlega. Beztu menn liðsins voru Sigurður Einars- son, Gunnlaugur, og enda Hilmnr óg Gylfi Jóhánnsson. . Haukar berjast með mikl- um áhuga og náðu oft góðum leik, sem alveg ruglaði fyrir Islandsmeistunmum. Beztir þeirra voru Matthías, sem varla nokkurn tíma hefur ver- ið betri. Viðar var og ágætur, en hann á til að skjóta of mik- ið yfir markið. Þá er Þórður mjög vaxandi maður f liðinu, og átti ágætan leik og skotviss í vaxandi mæli. Þeir sem skoruðu fyrir Fram voru Gunnlaugur 8, Sigurður Einarsson 6, Gylfi Hjálmars- son og Hilmar 3 hvor, Gylfi Jóhannsson og Tómas 2 hvor og Guðjón 1. Fyrir Hauka skoruðu: Matt- hías 6. Viðar og Þórður 5 hvor, Ásgeir 2, Hörður og Sig- urður Jóakimsson 1 hvor. Ðómari var Karl Jóhanns- son og dæmdi yfirleitt mjög vel. Ármennlngar réðu ekki við hina hörfhi Víkinga og töp- uðu 20:27. Flestir munu hafa gert ráð fyrir því að þetta myndi verða mjög jafn leikur, þar sem bar- izt yrði til hinztu stundar um óviss úrslit. En þetta varð nú öðru nær. Víkingar voru harð- ari viðureignar en flestir munu hafa gert ráð fyrir. Til að byrja með virtist sem Ármann ætlaði að standa sig vel. Þeir jafna á 1:1 og taka forustuna og komast í 3:1, en Víkingar jafna á 4:4, og taka forust- una. Ármann jafnar og síðan ekki söguna meir. Víkingar auka stöðugt bilið, og um skeið standa leikar 10:5 fyrir Víking, en fyrri hálfleikur endar 13:8 fyrir Víking. 1 lok fyrri hálfleiks verða þeir Þór- arinn og Helgi í markinu að yfirgefa 'Völlinn vegna meiðsla, en það er eins og það fái ekkert á Víkinga, þeir gefa ekkert eftir. Þetta fer greini- lega í skapið á þeim Ármenn- ingum, sem ekki geta einbeitt sér sem dugar. Þorsteinn í markinu var ekki vel upplagður og varði ekki eins og oft áður, og fengu Vík- ingar ..ódýr” mörk til að byrja með. Hitt var svo einnig að vera má að Víkingar hafi „kreist” úr þeim kjarkinn, er þeir komu upp að vítateigi þeirra. Þá voru sóknarmenn teknir og þeim haldið og þeir ------------------------— -------<%> $ALT CEREBOS í HANDHÆGU BLÁU DÓSUNUM HElMSpEKKT GÆÐAVARA Mrssre. Kriujai) O. Skagfjord Limnc4i r»t Box 411, REYKJAVIK, lcrl.od. kreistir hvernig sem á stóð, og var sama hvað þetta gerðist oft og það af sama . manni, þeim leiðst þetta; aðeins dæmt aukakast. Dómarinn var því langt of vægur við Víkinga; þetta var oft ekki handknatt- leikur í vörn þeirra, það voru fangbrögð af hörðustu tegund, og vonandi á þetta ekki eftir að innleiðast í handknattleik- inn hjá okkur. En Víkingarn- ir léku „að blístrunni”, og það er alkunn regla líka. Þegar líða tók á leikinn reyndu Ármenningar að leika „maður á mann” og þar höfðu Víkingar einnig betur. Gekk þetta stundum allfjörlega og t. d. eitt sinn þegar hver Ár- menningur hafði síns manns að gæta, gerði Brynjar mark- maður Víkings sér lítið fyrir og yfirgaf mark sitt, fékk knöttinn og rakti hann einn og óáreittur upp að vítateig „koli- ega” síns, hinir voru allir önn- um kafnir með sinn mann, og Brynjar sýndi enga miskunn og skorar! Víkingar virtust hafa mun meiri kraft og sigurvilja, en Ármann eins og fyrr segir. léku þá grátt og unnu örugg- an sigur. Víkingar gerðu sem þeir gátu til að hindra Hörð í að skora, því að það virtist vera nóg til að setja Ármann útaf laginu. Honum tókst þó að skora 12 mörk, en það dugði ekki til. Hinir í liði Ármanns gátu ekki verið nógu vel með. Ármanns-liðið náði ekki þeim hraða, sem t.d. í fyrra ein- kenndi liðið svo mjög, það hafði naumast sigurvilja eða baráttuvilja. Lið sem hefur þessi einkenni, vekur á sér grun um að það sé ekki í góðri þjálfun og ætti þó ekki til þess að koma. Lúðvfk og Árni hafa t.d. ekki komið eins sterkir í leikjunum undanfarið og t.d. í fyrra. Það er eins og Ármann hafi ekki náð sér upp síðan það vann Fram fyrsta kvöldið í móti þessu. Það er greinilegt að Ármann verður að taka sig saman „í andlitinu” eins og það er stundum svo faglega orðað, og það á að geta tekizt með þann efnivið sem liðið hefur. Beziu menn Vfkinas voru: Framhaid á 9. síðu. Stór ÚTSALA Svo eitthvað sé nefnt: Fyrir konur : Telpukápur KR. 295.— Kvenblússur Unglinga-stretchbuxur FRÁ KR 98.— KR. 350.— margar tegundir. Drengjaskyrtur Peysur KR 35.— KR. 95.— Goiftreyjur KR. 275.— K a r 1 m e n n : Ullargolftreyjur Stuttar nærbuxur KR. 325.— KR 35.— Sloppar Hlírabolir KR. 145.— KR 35.— Nælonsokkar Vinnuskyrtur KR. 15.— KR. 160.— Kvensportbuxur Sportskyrtur KR. 140.— KR. 175.— Iítil númer. Karlmannasokkar Slæður KR. 25.— KR. 45.— Vinnusloppar Kápur KR. 325 — KR. 250.— Vattfóðraðir jakkar margar tegundir. KR. 150.— m •• Röndóttar skyrtur rs o r n : KR. 150.— Svuntukjólar Hvitar skyrtur KR. 45 — KR. 125.— Smekkbuxur Nankinsgallabuxur KR. 95.— KR. 145.— Barnapeysur Sportbuxur, litil númer KR 35.— KR. 175.— Drengjaúlpur Mislitir bolir m 295.- , KR. 55.— Mikið af nýjum vörum bætist við á útsöl- una í dag. Stærsta útsalan ávallt hjá okkur. Allt selst fyrir ótrúlega lágt verð. Austurstræti 9. Nýkomin þýzk dralon gluggatjaldaefni Fjölbreytt litaúrval. — Hagstætt verð. Gardínubúðin Ingólfsstræti. A ðstoðar/æknisstaða Staða aðstoðarlasknis II við Kleppsspítalann er laus til umsóknar. Staðan veitist til 2ja ára. Laun samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna Umsóknir með upnlýsingum um aldur, námsferil og fyrri störf sendist til stjórnarnefndar ríkisspit- alanna. Klapparstíg 29 fvrir 1. marz n.k. Reykjavík, 25. janúar 1965. SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA. Auglýs'ð i Þjóðviljanum i

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.