Þjóðviljinn - 26.01.1965, Qupperneq 12
I
I
í
■ Fyrir einu ári var Francisco Lazaro óþekkt-
ur 'starfsmaður plastverksmiðju einnar 1
Barcelona á Spáni; nú er hann talinn í hópi
hinna fremstu yngri tenórsöngvara heims,
ferðast land úr landi og heldur söngskemmtan-
ir og syngur við óperusýningar. Hann kom um
helgina hingað til Reykjavíkur ásamt umboðs-
manni sínum H. R. Rothenberg og í kvöld og
á fimmtudagskvöldið heldur hann tónleika
með Árna Kristjánssyni fyrir styrktarfélaga
Tónlistarfélagsins í Austurbæjarbíói.
Afengi, tóbak og kvenfélk
á bannlista tenórsöngvara!
Það hefur verið haft eftir
Rothenberg f blaðaviðtölum
erlendis, að Lazaro eigi ekki
skjótan frama frábærri rödd
sinni einni að þakka. Og
þetta kosti ekki aðeins vinnu,
vinnu og aftur vinnu, heldur
krefjist líka mikilla fóma.
Söngvari, segir Rothenberg,
verður að lifa einna helzt
eins og munkur eigi hann að
halda til frambúðar sæti sínu
á hátindinum, og umfram alla
aðra verði tenórsöngvarar að
fylgja ströngum meinlæta-
reglum. Þeir mega ekki reyna
um of á sig, segir Rothen-
berg; íþróttir eru þeim t.d.
eins og forboðinn ávöxtur,
líka áfengi, reykingar og
kvenfólk — allt getur þetta
haft slæm áhrif á röddina.
Að þessu og ýmsu fleiru
var vikið í gær, er blaðamenn
ræddu við þá Lazaro og Rot-
henberg, einkum þó hinn síð-
amefnda sem er maður ákaf-
lega mælskur — söngvarinn
hins vegar hlédrægur.
Francisco Lazaro heldur
sem fyrr segir fyrri söng-
skemmtun sína fyrir styrktar-
félaga Tónlistarfélagsins í
Austurbæjarbíói kl. 7 í kvöld,
en síðari tónleikamir verða
á sama tíma á fimmtudaginn.
Ámi Kristjánsson aðstoðar
söngvarann á píanó bæði
skiptin. Á söngskránni eru
eingöngu óperuaríur, margar
af hinum frægustu tenórarí-
um tónbókmenntanna: Addio
alla mamma, úr Cavalleria
rusticana, eftir Mascagni, Cel-
este Aida, úr Aidu og Questa
o quella, úr Rigoletto eftir
Verdi, aríur úr Carmen eftir
Bizet, Turandot og Tosca eftir
Puccini, Andrea Chenier eftir
Giordano, Gioconda eftir
Ponchielli og I Pagliacci eftir
Leoncavallo.
!
Verkfall bandarískra
hafnarverkamanna
-<s>
fc/VWA/WWWWWWVWWWWWWWVWWVVA
Sjó&bullandi
lækir niður
Klapparstíg
■ Dm 10 Ieytið í gær-
kvöld sprakk hitaveituæð
á gatnamótum Skólavörðu-
stígs og Týsgötu og
streymdi snarpheitt vatnið
í bullandi iækjum undan
brekkunni niður Klappar-
stíg og Skólavörðustíg
góða stund áður en við-
gerðarmenn hitaveitunnar
komu á vettvang og skrúf-
uðu fyrir. Strax þá um
nóttina var hafizt handa
um viðgerð en ekki vitað
hvenær henni yrði lokið
né hversu alvarleg bilunin
væri.
Hér mun vera um all-
stóra götuæð að ræða og
snertir bilunin þvi stórt
bæjarhverfi. í gærkvöld
var ekki kunnugt um að
vatnsflaumurinn hefði vald-
ið skemmdum í nærliggj-
andi húsum. í
*VWWWWVWWWWVWWWWWWWWW\A
......................
STAL ÚRUM
FYRIR UM
20 ÞÚS. KR.
Um kl. 6 á sunnudags-
morgun varð vaktmaður í
Verzlunarbankanum þess
var að verið var að fremja
innbrot í skartgripaverzl-
un Búa Jóhannssonar í
Þingholtsstræti 1, gerði
hann lögreglunni aðvart
en þjófurinn hafði forðað
sér er hún kom á vettvang.
-k Þjófurinn hafði brotið
rúðu í sýningarglugga
verzlunarinnar og tekið 6
eða 7 úr sem í glugganum
voru. Voru það karlmanns-
úr af gerðunum Certina og
Pierpont. Nemur verð-
mæti þýfisins sennilega
um 20 þúsund krónum en
rannsóknarlögreglan vissi
ekki nákvæmlega um verð
úranna er Þjóðviljinn átti
tal við hana í gær.
NEW YORK 25/1 — 1 dag
hófst þriðja vika verkfalls hafn-
arverkamanna, sem hefur lamað
hafnir á austurströnd Banda-
ríkjanna og við Mexicoflóa að
undanförnu og enn er ekki út-
lit fyrir lausn á deilunni, sem
talið er að kosti bandarískt at-
vinnulíf 25 miljón dollara á dag.
Fulltrúar skipaeigenda og
verkfallsmanna héldu í gær
fundi með sér í New Orleans,
Baltimore, Philadelphia og Gal-
vestone, en hvorugur aðili lét
það upp á fundum þessum að
þeir væru reiðubúnir að fallast
á málamiðlunarlausn.
En í Boston samþykktu verka-
menn að fallast á sömu kjör og
hafnarverkamenn í bfew York
samþykktu á fimmtudaginn var.
En vinna verður hvorki hafin
aftur 1 New York eða Boston
fyrr en verkamenn sem eru i
öðrum hafnarborgum hafa náð
samkomulagi við vinnuveitendur
á hverjum stað.
Á sunnudag var næstum eng-
in hreyfing í höfninrri í New
York, þar sem ella er æfinlega
mikið um að vera. 97 skip lágu
f höfn, en það var ekkert unnið
í þeim.
Almennt er talið að verkfall-
inu ljúki ekki fyrr en í fyrsta
lagi í næstu viku.
Samkvæmt síðustu tíðindum er
350 skip stopp vegna verkfalls-
ins.
Thor Thors minnzt é þingi SÞ
A fundi Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna er haidinn var 18.
þ.m. var Thors Thors ambassadors og formanns íslenzku sendi-
nefndarinnar á þinginu minnzt. Forseti þingsins ávarpaði þingheim
og minntist Thors og fyrrverandi forsætisráðherra Burundi, Pierre
Ngendandumwe, og bað menn votta minningu þeirra virðingu sína
með einna.r mínútu þögn. Hannes Kjartansson aðalræðismaður þakk-
aði þinghelmi virðingarvottinn fyrir hönd ísl. sendinefndarinnar
og er myndin tekin af honum við það tækifæri.
Sex slösuðust
í hörðum bif-
reiðaárekstri
Um tíu leytið síðastliðið laug-
ardagskvöld lentu tvær bifreiðir
úr Reykjavík í hörðum árekstri
á Reykjanesbraut sunnan Hval-
eyrarholts. 6 manna fólksbifreið
var ekið norður Reykjanesbraut-
ina og ætlaði .ökumaður að
hemla skyndilega, en sökum
fljúgandi hálku sem var þama
á steypta veginum tóku heml-
amir ekki jafnt í og urðu afleið-
ingamar þær að bifreiðin lenti
af miklum krafti á vörubifreið
sem ekið var suður Reykjanes-
braut. 1 fólksbifreiðinni var 6
manns og var fólkið allt flutt
á Slysavarðstofuna. Bílstjóra og
farþega vörubifreiðarinnar sak-
aði ekki. Báðir bílamir voru ó-
ökuhæfir eftir áreksturinn.
Osvaldur Knudsen kjör-
inn heiiursfélagi Fl
Þriðjudagur 26. janúar 1965 — 30. árgangur — 20. tölublað.
Jazzkynning: L. Armstrong
Á sfðasta skemmtifundi F.l.
var tilkynnt, að félagsstjóm-
in hefði kjörið Ósvald Knudsen
málarameistara, heiðursfélaga í
Ferðafélagi fslands. Svo sem
kunnugt er, hefur Ósvaldur gert
margar merkilegar kvikmyndir
af landi og þjóð og með þeim
bæði kynnt fjölda manna feg-
urð og mikilleik íslenzks lands-
lags og náttúru, og ekki síður
bjargað miklum fróðleik um lífs-
kjör fólks og forna atvinnuhætti,
sem nú eru sem óðast að hverfa.
f því sambandi má minna á
•kvikmyndir hans frá Horn-
ströndum, Ullarband og Jurta-
litun, Vorið er komið, Tjöld í
skógi, Sogið, um Heklugos og
Öskjugos og nú síðast Sveitin
milli sanda, auk fjölda annarra
kvikmynda Þetta landkynning-
arstarf inn á við er mjög í anda
stefnuskrár Ferðafélassins. og
auk þess hefur Ósvaldur alla tíð
verið mikill vinur félagsins og
leyft því að frumsýna flestar
myndir sínar.
Ferðafélag fslands hefur áð-
ur kjörið 7 heiðursfélaga, þá Ög-
mund Sigurðsson skólastjóra,
Daniel Bruun höfuðsmann, Vil-
hjálm Stefánsson landkönnuð,
Björn Ólafsson fyrrv. ráðherra,
Skúla Skúlason ritstjóra, próf-
essor N. E. Nörlund og Þorstein
Þorsteinsson sýslumann.
B í kvöld kl. 20,30 verður Jazz-kvöld á vegum
Æskulýðsfylkingarinnar. Þar mun Vernharður
Linnet kynna listamanninn Louis Armstrong
og leika plötur með honum.
® Eins og kunnugt er kemur hinn heimskunni
trompetleikari hingað til lands í tónleikaför
innan skamms. Æskulýðsfylkingin gefur því
jazz-áhugamönnum hér með einstakt tækifæri
til að kynnast lífi hans og list.
■ Jazzkynningin verður uppi í félagsheimili
ÆFR.
■ Jazzáhugamenn fjölmennið. — ÆFR.
Úr hugarheimi - ný
bók um sálarfræbi
H Nýlega er komið út hjá Heimskringlu nýtt íslenzkt
rit um sálfræði: Úr hugarheimi, þættir um afbrigðilega
og klíníska sálarfræði, eftir Sigurjón Bjömsson sálfræðing.
Forseti íslands, sem nú er
staddur í London, hefur sent eft-
irfarandi samúðarskeyti til Lady
Churchill vegna andláts Sir
Winston Churchill.
„f tilefni af andláti Sir
Winston Churchill sendi ég inni-
'egar samúðarkveðjur frá ís-
'enzkú þjóðinni-, sem eins og svo
margar aðrar þjóðir á honum
nðikla þakkarskuld að gjalda.”
(Frá skrifstofu forseta fslands)
1 formála fyrir bókinni segir
höfundur m.a. svo um efni henn-
ar:
„Afbrigðileg sálarfræði (abnorm-
al psychology) er sú grein sál-
fræðilegra vísinda, sem fjallar
um sálarlif andlega vanheils eða
afbrigðilegs fólks. Hún reynir að
finna fræðilegan grundvöll, sem
hægt sé að styðjast við í hag-
nýtu starfi. Hagnýting afbrigði-
legrar sálarfræði er venjulega
nefnd klínísk sálarfræði (clinical
psychology).
Riti þessu er ætlað að reifa
þessar tvær greinar sálarfræð-
innar að nokkru.
Þótt margt hafi verið ritað
sálfræðilegs efnis á íslenzku á
síðustu áratugum, er enn þá
engin bók til, sem algjörlega er
helguð þessum fræðum. Vilji
menn kynna sér þessar greinar,
verða þeir að tína efnið saman
úr mörgum ritum, sumum nokk-
uð úreltum. Margt er það einnig,
sem hvergi er að finna.
Á seinni árum hefur áhugi
manna á sálarfræði aukizt til
mikilla muna. Menn spyrja:
Hvað getur sálarfræðin kennt
um andlega vanheilsu? Hvaða
ráð kann hún til úrbóta? Á
hvaða forsendum reisir hún ráð'
stafanir sínar? Hversu traust er
hún sem fræðigrein?
Það er ekki nema sanngjamt
að ætlast til þess, að sálfræð-
ingar leggi spilin á borðið og
segi: „Svona eru fræði okkar.
Þetta er grundvöllurinn, sem
við reisum störf okkar á.” Það
er ekki nema sanngjamt, en það
ætti auk þess að geta orðið til
gagns fyrir sálfræðingana og þá,
sem þjónustu þeirra njóta, því
að einnig ætti að koma f ljós
við hve.rs konar aðstæður sál-
fræðileg vísindi og sálfræðileg
þjónusta getur skilað beztum ár-
angri. Það getur orðið áhrifa-
mönnum hvatning til að bæta úr
því sem ábótavant er.
Af þeim sökum taldi ég tíma-
bært að efna til þessa yfirlits-
rits.”
Bókin skiptist í sex kafla sem
nefnast Yfirlit, Rannsóknarað-
ferðir, Kenningar, Sálsýki, Sál-
lækningar og Geðvemd en auk
þess fylgir henni heimildaskrá,
orðaskýringar, nafna- og atrið-
isorðaskrá og er það fremur ó-
venjulegt að íslenzkar bækur séu
svo vel úr garði gerðar en slíkt
er að sjálfsögðu mjög til hag-
ræðis fyrir lesendur. Einnig eru
í henni nokkrar myndir til skýr-
ingar efninu og frágangur bók-
arinnar að öðru leyti allur hinn
vandaðasti.
Er hún prentuð í Hólum.
Bók þessi fjallar um merkilegt
og mikilvægt rannsóknarefni og
er mikill fengur að henni fyrir
bá sem áhuga hafa á sálarfræði.
Er ástæða til þess að fagna því
að höfundurinn sem er ungur og
efnilegur fræðimaður á þessu
sviði skuli hafa „lagt spilin á
borðið“ með samningu bókar-
innar.
Trésmiðir á
• i
e
Trésmiðafélag Reykjavíkur
heldur félagsfund í Breiðfirð-
ingabxíð í kvöld, þriðjudag. Á
dagskrá fundarins er samkomu-
lag það við meistara, til sam-
þykktar eða synjunar, sem tókst
fvrir miliieöneu sáttasemiara á
samninirafundinum sl. laugar-
dagsmorgun.