Þjóðviljinn - 21.02.1965, Side 12

Þjóðviljinn - 21.02.1965, Side 12
Efnilegir nemendur reyna krafta sína og gleðilegir tónar fylltu hinn litla sal Tón- listarskólans uppi í Skipholti. Upphafiö á E-moll fiðlukon- sert Mendelssohns. Það var leikið af léttleik og ákveðni: tvær ungar stúlkur, önnur sautján ára, hin átján voru að æfa sig fyrir tónleika, sem haldnir verða í dag. Þessir tónleikar eru nokkuð sérstæðir, sagði Bjöm Ólafs- son, sem helzt ber ábyrgð á uppeldi ungra fiðlara í skól- anum. Við höldum alltaf nemendatónleika á vorin, þar sem beztu nemendurnir úr hverri deild koma fram, svo og skólahljómsveitin. En nú á sunnudaginn (þ.e. í dag) kl. fjögur koma þessar ungu stúlkur fram á tónleikum, sem eru þeir fyrstu í þessu formi. Tónleikar þar sem mjög efnilegum nemendum gefst færi á að reyna krafta - y*> •* r Guðný Guðmundsdóttir Anna Aslaug Ragnarsdóttir. sína, og skólanum gefst tæki- færi á að minna á tilveru sína. Þeir eru haldnir fyrir nemendur og kennara og allir tónlistarunnendur eru þar að auki velkomnir meðan okkar húsrými leyfir. Sú sem mun einkum bera hita og þunga dagsins er Guðný Guðmundsdóttir fiðlu- leikari en með henni kemur fram Anna Áslaug Ragnars- dóttir píanóleikari. Anna mun halda sjálfstæða tónleika í byrjun marz. Báðar eru stúlkumar frá tónlistarheimilum — Guðný dóttir Guðmundar Matthías- sonar og Anna dóttir Ragn- ars H. Ragnars á ísafirði. Guðný tók fyrst á fiðlu sjö ára gömul og hefur lært hjá Birni síðan hún var átta ára. Þessi vetur er sá fyrsti sem hún getur gefið sig að fiðl- unni eingöngu — stóð í lands- prófsstórræðum í fyrra. Og þrátt fyrir tónlistamám og almenna skólagöngu, hefur henni einnig gefizt tími til að leika með sinfóníuhljómsveit- inni í meira en ár. Aðspurð um framtíðaráform vill hún sem fæstu svara. En Bjöm kveðst vona að hún verði sem lengst í skólanum. Þó játar hann, að öðru tilefni að þau verkefni sem Guðný glímir við á þessum tónleik- um séu fyllilega jafnerfið og þau sem lögð eru fyrir nem- endur á burtfararprófi. En þau eru, auk konserts Mend- elssohns, sem áður var nefnd- ur, sónata nr. 6 í E-dúr eftir Bach, rondo í G-dúr eftir Mozart og smámunir eftir Gluck og Tartini-Kreisler. Það er, sem fyrr segir, verið að reyna kraftana. Núna eru um 30—40 fiðlu- nemendur í skólanum og mik- ill byr í seglum og mikill á- hugi hjá fólkinu, segir Bjöm að lokum og er bjartsýnn sem endranær .... Sunnudagur 21. febrúar 1965 — 30. árgangur — 43. tölublað. Nýr bátur hleypur af stokkunum í Stykkishólmi SJALFKJORIÐ I SJÓMANNAFÉLAGI HAFNARFJARDAR Sjómannafélag Hafnarfjarðar hélt aðalfund sl. miðvikudag. Fóru fram venjuleg aðalfundar- störf. Stjórnin var endurkjörin, og kom einungis fram einn listi fEFB Félagar! — Næstkomandi þriðjudagskvöld kl. 9 ræðir Geir Gunnarsson alþingismað- ■ur þingmál í Góðtemplarahús- inu uppi. — Mæt ð vel og stundvíslega. — Stjórnin. Kvikmyndasýning verður ur í dag eins og aðra sunnudaga að Tjarnargötu 20 fyrir böm félaga í flokki og fylkingu. Hefst hún klukkan 2 og verða sýndar margar skemmtilegar mynd ir. STARFSNEFND. um kjör stjórnar og trúnaðar- mannaráðs., . Stjórn ' Sjómanafélags Hafn- rf jarðstf' skipa þessir menn: Fprmaður Kristján Jónsson Varaformaður Jónas Sigurðsson Ritari Ólafur Brandsson Gjaldkeri Guðmundur Ragnars- son. Varagjaldk. Óskar Vigfússon Varastjórn: Ingimar Kristjáns- son og Ólafur Ólafsson. Auk stjórnar eiga sæti í trún- aðarmannaráði félagsins þessir menn: Eyjólfur Kristjánsson, Hilmar Arnórsson, Eyjólfur Marteinsson, Þorlákur Sigurðs- son, Eysteinn Illugason, Ólafur Sigurgeirsson Varamenn i trúnaðarmanna- ráð: Sigfús Svavarsson, Sigurður Eiðsson, Eysteinn Guðlaugsson, Aðalsteinn Guðmundsson, Karel Karelsson, Sigurður Pétursson. Norðmenn veiða vel 1 gærmorgun höfðu Norð- menn veitt sína fyrstu miljón hektólítra af stórsíld á þessari vetrarvertíð. Kl. 12 á föstudagse- nótt höfðu borizt á land 964.- 345 hl. af stórsíld, en á sama tíma í fyrri ekki nema 186.000 hl. Veiðarnar hófust fyrr í fyrra en nú, en gengu mjög illa fram- an af vegna illrar veðráttu. Dagsafli var á föstudag 358.000 hektólítrar og er það nýtt met. Um klukkan 4 s.I. fimmtudag varð það slys í Keflavík að 6 ára telpa, Ása Ingþórsdóttir að nafni, varð fyrir stórum vöru- bíl og slasaðist svo mikið að KRISTJAN JÓNSSON hún lézt í sjúkrahúsi Keflavík- formaður Sjómannafélags Hafn- ur af afleiðingum slyssins í arfjarðar. I fyrradag. Þrír Svíar keppa á sundmóti A og KR n Sýning Veturliða Gunnarsson- ar í Listamannaskálanum stend- ur til kl. 10 í kvöld. Aðsókn hefur verið mjög góð og 27 myndir hafa selzt. Allra síðasta tækifæri er því fyrir fólk að sjá sýninguna í dag. Þymirós framsýnd Á föstudagskvöld fór fram í, Háskólabíó íslenzk frumsýning á | sovézku ballettmyndinni Þyrni- ! rós. Meðal viðstaddra voru for- seti íslands, forsætisráðherra og menntamálaráðherra. Áður en sýning hæfist fluttu þeir ávörp sendiherra Sovétríkj- anna Nikolaj Túpitsín og Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráð- i herra. Sendiherrann kynnti áhorfendum þau Öllu Sízovu og Júrí Solovjof, sem dansa aðal- hlutverkin í myndinni. Sízova mælti nokkur orð, lýsti ánægju sinni með ferðina hingað og kvaðst vona, að ballettflokkur söngleikahússins í Leníngrad, sem þau Solovjof starfa við, ætti eftir að koma hingað og sýna hér list sína. Menntamálaráð- herra lýsti ánægju sinni yfir hingaðkomu merkrar kvikmynd- ar og góðra gesta og kvaðst vona að hvorttveggja yrði til þess að treysta enn ágætan vin- skap milli íslenzkrar og sov- ézkrar þjóðar. ★ Sýningargestir tóku myndinni ágætlega og hylitu dansfólkið innilega að henni lokinni. Tveir piltar og ein stúlka úr hópi hinna efnilegu yngri sundmanna í Svíþjóð eru væntanleg hingað til Reykja- víkur í dag, en á þriðjudags- og miðvikudagskvöld taka bau þátt í sundmóti KR og Ármanns sem háð verður í ^"ndhöll Reykjavíkur. Hinir sænsku gestir KR og Ármanns eru þau Claes-Göran Anderson frá Gautaborg. Thn- mas Johnson frá Skövde og Eva Ferm frá Borás. Andersson keppir i skriðsundi og flug- sundi, en hann hefur nú synt 100 metra skriðsund á 57,6 sek. og 100 m. flugsund á 1.02,0 mín. Johnson er bringusundsmaður og hefur náð tímanum 2.41,0 mín. á 200 metrunum, en Eva Ferm er jafnvíg á bringusund og skriðsund. I 100 m bringu- sundi á hún beztan tíma 1.26,0 mín og í 100 metra skriðsundi 1.09.0 mín. Af framansögðu er ljóst að búast má við jafnri og spennand: keppnj milli sænsku gestanna og beztu tslendinganna í Sundhöllinni á þriðjudag og miðvikudag. pyrri dag mótsins verður keppt í þessum greinum: 100 metra skriðsundi karla, 200 m. bringusundi karla, 200 metra fjórsundi karla, 100 m. bringu sundi kvenna, 100. metra skrið- sundi kvenna, 100 metra skrið- sundi drengja, sem fæddir eru 1949 og síðar, 100 metra bringu- sundi sveina (f. 1951 og síðar) 50 metra baksundi stúlkna, sem fæddar eru 1949 og síðar. Enn- fremur í tveim boðsundum: 3x100 metra þrísundi karla og 4x50 metra skriðsundi kvenna. Keppnisgreinar síðari móts- daginn eru þessar: 200 m. skrið- sund karla, 100 metra bringu- sund karla, 100 metra flugsund karla, 100 metra baksund karla, 200 m. bringusund kvenna, 50 metra flugsund kvenna, 100 m. skriðsund sveina (f. 1951 og síð- ar), 50 metra skriðsund telpna (f. 1951 og síðar), 4x50 metra skr ðsund karla og 4x50 metra bringusund kvenna. STYKKISHÓLMUR 20/2 — í dag var hleypt hér af stokkun- um tæplega 70 tonna vélbát hjá skipasmíðastöffinni Skipavík h/f, þetta er fyrsti vélbáturinn er stöðin smíðar og jafnframt sá stærsti, sem hefur verið smíð- aður hér á staðnum. Þetta er tréskip meff 20 hest- afla Kelvin diesel-aðalvél og ijósavél er sömuleiðis frá Kelv- in. Báturinn verður afhentur cigendum, sem er hlutafélagiff Rán um mánaðamát marz — apríl og hefur þá tekið 10Vt mánuð að smíða hann. Báturinn verður gerður út frá Stykkishólmi og skipstjóri á honum verffur Jóhannes Guð- varffarson. Leikfélag Flateyringa sýnir Bieder- mann og brennuvargana Leikfélag Flateyrar æfir nú af kappi leikritið „Biedermann og brennuvargarnir” eftir sviss- neska höfundinn Max Frisch. En leik þennan sýndi leikfé- lagið Gríma í Tjamarbæ í R- vík fyrir tveim árum. Frumsýn- ingin á Flateyri er fyrirhuguð í byrjun marz. Leikstjóri var fenginn frá Reykjavík, Erling- ur E. Halldórsson og hefur hann dvalizt á Flateyri að undanförnu við æfingar á leikritinu. Með aðalhlutverk fara: Kristján Guð- mundsson, bakari, sem jafn- framt er formaður leikfélagsins, Eysteinn Gíslason og Einar Odd- ur Hjartarson. Nokkur smærri hlutverk eru í leiknum og enn- fremur syngur kvartett slökkvi- liðsmanna; söngstjóri er Emil Hjartarson. 1 fyrra gerði Leik- félag Flateyringa víðreist um Vestfirði með leikrit sem það hafði þá á takteinunum; sýndi það 14 sinnum og er búizt við að sýningar á Biedermann verði ekki færri. Björgun h.f. eignast Susan Reith RAUFARHÖFN 18/2 — Eigenda- skipti hafa nú orðið á Susan Reith, og fékk Björgun h.f. skipið gegn því að láta af öllum kröfum um björgunarlaun. Skipið situr enn fast á skerinu,ogundanfarna daga hefur verið unnið að því í blankalogni og blíðu að bjarga 1 land ýmsum verðmætum úr því. Skipið er mjög illa farið og er talið að miðhluti þess sé gjörónýtur, og er talið fullvíst að það verði ekki hreyft í heilu lagi. Heyrzt hefur hér að hinir nýju eigendur hafi fullan hug á að láta smíða nýjan miðpart í skipið og koma því |i flot. Norðurlandsborinn að Laugarhól AKUREYRI 18/2 — Fyrirhugað er að næsta verkefni Norður- landsborsins verði v:ð Laugar- hól sunnan Glerár. Um þessar mundir er unnið að því að lag- færa veginn sem liggur að bor- stæðinu við Laugarhól, svo tak- ast megi að koma bornum þang- að. Síðast var unnið með bor- inn á Laugalandi í Þelamörk og var þar boruð 1088 metra djúp hola sem gefur 12 sekúndu- lítra af 89 stiga heitu vatni. Mestur hiti mældist vera á um 500 metra dýpi, ,eða 92 stig, en fór heldur lækkandi eftir því sem neðar dró. Borinn verður tekinn sundur við Laugaland og fluttur á borstæðið við Laugar- hól. Vinna við flutninga og sam- setningu borsins mun taka nokk- urn tíma og er óvíst hvenær framkvæmdir hefjast við Laug- arhól. Þjófur á Raufarhöfn Kongéstjórn Kongóstjóm hefur vísað úr landi sautján kennurum, sem störfuðu í landinu á vegum UN- ESCO. Var þeim gefið að sök að hafa í frammi undirróður í landinu. Flestir voru kennararnir Eg- yptar. RAUFARHÖFN 20/2 — Þyrill kom hingað til Raufarhafnar í fyrradag til að taka lýsi. Ein- um skipverja nægði þó ekki lýs- ið heldur brauzt inn í skrifstof- uhús Síldarverksmiðjunnar. Þar komst hann inn í auða í- búð, sem er uppi á lofti. Ekki náöi hann í neitt fémætt, en braut þess í stað tvær hurðir, sem metnar eru á þúsund krón- ur. Eftir að hafa heimsótt síldar- verksmiðjuna vippaði hann sér yfir götuna og brauzt inn í kjallara pósts og síma. Ekkert fann hann þar utan tvœr máln- ingardósir. Víkur þá sögunni að Valtý Hólmgeirssyni póst- og sfm- stöðvarstjóra, er býr í sama húsi. Vaknar hann við mikinn hávaða neðan úr kjallara og fer niður. Er niður kemur hefur fyrrnefnd- ur skipsverji af Þyrli tekið sér málningardollurnar í hönd og hamast nú við að hella máln- ingu á gólfið. Urðu miklar rysk- ingar milli Valtýs og skipverj- ans og flýði sá síðarnefndi að lokum. Hafði Valtý tekizt að ata hann málningu áður, svo að hann þekktist aftur. Safnaði Valtýr liði og leit hófst að pTtinum, fannst hann eftir nokkra leit um borð í skipi sínu, þar sem skipsfélag- ar hans höfðu sett hann í járn. Kom upp úr kafinu, að með honum í för var félagi hans, en talið er að sá hafi ekki átt hlut- deild í innbrotunum, en fylgt honum eftir, í von um að af- stýra vandræðum. Var pilturinn geymdur um borð í Þyrli um nóttina, en síð- an sendur til sýslumanns:ns á Húsavík með m/s Heklu. Ekki er talið að hann hafi framið innbrot þessi af ráðnum hug, heldur hafi hér einungis verið um að ræða fylleríisóra. Verður reist síld^n'^rksmiðja á Hornafirði HÖFN, Hornafirði 18/2 — Hér á Hornafirð' er mjög mikill og almennur áhugi ríkjandi fyrir byggingu síldarverksmiðju á staðnum og er það ekki að undra því Hornafjörður liggur vel við síldarmiðunum á vissum tíma árs. Það var hreppsnefndin sem fyrst hreyfði þessu máli ca var strax hafizt handa um að koma þessu máli fram. Kaup- félagsstjórinn okkar er í Reykja- vík þessa dagana til að athuga mögule'kana á þessu og næstu daga er von á manni frá Rvík til að athuga allar aðstæður hér fyrir síldarverksmiðju. Líklegt er talið að síldarsölt- unarstöð taki til starfa hér á hrekku í Mióafirði í s.umar og eru bað aðkomumenn sem ið þeim framkvæmdum standa.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.