Þjóðviljinn - 10.06.1965, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 10.06.1965, Blaðsíða 3
Flmmtudagur 10. júní 1965 ÞlðÐVILJINN SIÐA San Domingo Fulltrúar Frakka o öndverðum meið á Franski fulltrúinn, Seydoux, krefst rannsóknar á ofbeldisverkum þar, Stevenson á móti NBW YORK 9/6 — Fulltrúum Frakklands og Bandaríkj- anna, Roger Seydoux og Adlai Stevenson, lenti saman á fundi Öryggisráðsins í dag, en hann var haldinn að beiðni sovézka fulltrúans, Fedorenko, til að ræða ástandið í San Domingo. Liu allraharðasta og mannskæðasta orusta stríðsins í Suður-Víetnam var háð við hafnarbæinn Quang Ngai í norðurhluta Iandsins I síðustu viku. Myndin er tekin á vígvellin.um þar. Bandarísk herþyrla hefur komið með liðsauka. I valnum lágu 75 hermenn Saigonstjórnarinnar og tveir bandarískir. Sóknarlotu skæruliða í Vietnam linnir ekki Rusk utanríkisráðherra gerir ráð viðureignum Bandaríkjahers við SAIGON og WASHINGTON 9/6 — Skæruliðar þjóðfrels- ishersins í Suður-Vietnam herða enn sókn sína og voru háðar tvær harðar orustur frá því í gærkvöld þangað til í dag. Höfðu þá 100 hermenn Saigonstjórnarinnar verið felldir..Rusk, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag að búast mætti við að bandaríski herinn í Suður-Vietnam myndi á næstunni lenda í hörðum átökum við skæruliða þar. fyrir hörðum þá á næstunni arbauginn sem skiptir Vietnam. Bandaríkjamenn segja að allar Framhald á 9. síðu. í frétt frá Saigon segir að í gærkvöld hafi 500—700 skæru- liðar hafið harða skothríð á virki stjórnarhersins um 150 km yrir suðvestan höfuðborgina og hafi þar verið barizt fram eftir nóttu. Samkvæmt síðustu frétt- um voru þarna felldir 60 stjóm- arhermenn, 95 særðust og 18 er saknað. Sagt er að skærulið- ar hafi misst 150 menn, en 34 hafi verið teknir höndum. í annarri viðureign. 80 km fyrir norðan Saigon, voru tveir bandarískir hermenn drepnir og bandarískur liðsforingi særðist, þegar skæruliðar réðust á eina þjálfunarstöð Saigonhersins. Bandarískur liðsforingi sagði að 50 stjórnarhermenn hefðu fallið, 24 særzt, en 10 væri saknað. Þá réðust skæruliðar á brú eina norður í landinu, en sagt er að áhlaupinu hafi verið hrundið og 60 skæruliðar verið felldir. Loftárásir Bandarískar flugvélar héldu áfram loftárásum sínum á Norð- ur-Vietnam í dag og fóru í þrettán árásarferðir, Flestar á- rásirnar voru gerðar á skot- mörk í námunda við 17. þreidd- Seydoux, sem áður hefur farið hörðum orðum um íhlutun Bandaríkjanna í Domingo-lýð- veldinu, fór í dag fram á að fulltrúum Sameinuðu þjóðanna þar yrði falið að rannsaka of- beldisverk, ólögmæfar handtök- ur og frelsissviptingar sem þar hefðu átt sér stað. Hann bað Ú Þant framkvæmdastjóra að segja álit sitt á slíkri rannsókn, sem myndi hafa í för með sér að fulltrúum SÞ í Santo Dom- ingo yrði fengið sérstakt umboð og veittar aðstæður til að fram- kvæma rannsóknina. Ú Þant kvaðst myndu íhuga gaumgæfilega þessa tillögu Sey- doux og skýra Öryggisráðinu frá niðurstöðum sínum næst þegar ráðið kæmi saman. Stevenson gagnrýndi tillögu franska fulltrúans og réðst gegn öllum þeim sem vefengdu rétt Bandalags Ameríkuríkja (OAS) til að leita lausnar á deilunni í Domingo-lýðveldinu og væru því andvígir að OAS væri svo mikið sem nefnt á nafn í þeim samþykktum sem Öryggisráðið gerði í þessu máli. Bandaríski fulltrúinn var al- gerlega andvígur tillögunni um rannsókn á brotum gegn mann- Mesta loft- og geimferða- sýning opnuð / dag í París PARÍS 9/6 — Mesta loft- og geimfferðasýning sem nokkru sinni hefur verið haldin verður oi. nuð í París á morgun, fimmtu- dag. Mönnum leikur einna mest forvitni á að kynnast sovézku sýningardeildmni, en þar mun þeim í fyrsta sinn gefast kostur á að sjá líkan af nýrri flugvsla- tegund. Túpoléf-144. Sögur hafa farið af þessari nýju sovézku farþegaþotu og telja sumir að þar sé um að ræða flugvél sem fer hraðar en hljóðið. Rejmist það rétt væri það staðfestmg þess gruns að Sovétríkin séu komin vel á veg með að smiða farþegaþotu af slíkri gerð og vera þannig á undan bæði Bandaríkjamönnum og Bretum og Frökkum sem hafa samvmnu um smíði „Concord“-þotunnar. réttindaskrá SÞ sem framin hafa verið í Domingo-lýðveldinu og kvað slíka rannsókn myndu krefjast svo mikils mannafla að Öryggisráðið hefði hann ekki tiltækan. Slíkri rannsókn væri betur borgið í höndum OAS en SÞ. Sovézki fulltrúinn, Fedorenko, lýsti hins vegar stuðningi sín- um við frönsku tillöguna og fór enn hörðum orðum um íhlutun Bandaríkjanna sem reynt sé að dulbúa sem aðgerð á vegum OAS. Þá aðferð, ef ekki væri að gert, mætti nota til frekari í- hlutunar í innanlandsmál hvaða ríkis sem væri í rómönsku Ame- ríku. Öryggisráðinu ber að binda endi á þessa íhlutun svo að dominíska þjóðin geti sjálf fengið að ráða málum sínum, sagði Fedorenko. ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■*■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■»■■■■■■■• Mótmælaganga i New York gegn stríðinu í Vietnam NEW YORK 9/6. Einn af kunnustu þingmönnum í öldunga- deild Bandarikjanna, Wayne Morse frá Oregon, gekk í far- arbroddi fyrir um 2.000 manns úr 30 félagssamtökum sem fóru fylktu liði í dag um götur New York borgar til að mótmæla stríðinu í Víetnam. Fyrir gönguna hafði verið haldinn fundur í Madison Square Garden. Naiistaforinginn Lundaht var látinn laus / gær STOKKHOLMI 9/6 — Sænski nazistaforinginn Bjöm Lundahl, sem setið hefur í varðhaldi und- anfarinn mánuð, grunaður um að hafa undirbúið vopnaða upp- reisn, var i dag látinn laus. Borgardómari í Stokkhólmi hafn- aði kröfu saksóknarans um að varðhald hans yrði framlengt. Þessi úrskurður dómarans kemur nokkuð á óvart og er talinn gefa til kynna að rann- sókn hafi leitt í ljós að athæfi Lundahls hafi ekki verið jaín alvarlegt og áður hafði verið talið. Fréttaritari NTB i Stokk- hólmi segir að túlka megi úr- skurð dómarans þannig að Lun- dahl verði ekki ákærður fyrir undirbúning vopnaðrar uppreisn- ar, en minnstu viðurlög við því eru sex ára fangelsi. ■ "' Lundahl var handtekinn fyrir mánuði eftir að blaðið „Express en“ hafði látið lögreglunni í té gögn sem sönnuðu að Lundahl hafði forystu fyrir samtökum nýnazista. Sex aðrir félagar hans voru teknir höndum með hon- um, en voru allir látnir lausir eftir nokkra daga. Gögn þau sem lögreglan fékk hjá „Ex- pressen“ gáfu til kynna að Lundahl og félagar hefðu æft sig í vopnaburði, undirbúið morð á gyðingum og einnig stundað njósnir í þágu Egyptalands. Eftir heimsókn Gerhardsens verzlun og samvinna og Sovétríkjanna Stjórnir þeirra hlynntar athugun á tillögum um að takmarka vopnabúnað á vissum svæðum í Evrópu LENINGRAD 9/6 — Að lokinni heimsókn Einars Gerhard- sens, forsætisráðherra Noregs, til Sovétríkjanna, en hann fór heim til Oslóar flugleiðis frá Leníngrad í dag, var birt tilkynning þar sem m.a. segir að viðræður hans og sovézkra leiðtoga hafi leitt 1 ljós að auka megi enn við- skipti landanna og hvers konar menningarsamvinnu. búnað á vissum svæðum í Ev- rópu í því skyni að treysta ör- yggi evrópskra þjóða, svo fremi sem framkvæmd þess byggist á gagnkvæmúm tilslökunum. Lýst er yfir fullum stuðningi við alla viðleitni sem miðar að al- gerri og almennri afvopnun og lögð sérstök áherzla á nauðsyn Viðræður Gerhardsens við sovézka leiðtoga í Moskvu eru sagðar hafa treyst vináttuböndin milli þjóða Sovétríkjanna og Norðmanna. Stjórnir þeggja landanna reyndust sammála um að at- huga bæri tillögur sem komið hafa fram um að takmarka víg- þess að hindruð sé frekari út- breiðsla kjarnavopnanna. Lýst er áhyggjum beggja ríkisstjórnanna út af versnandi ástandi á alþjóðavettvangi, eink- um á vissum stöðum í heimin- um, og er þar að sjálfsögðu fyrst og fremst átt við stríðið í Vietnam, þótt það sé ekki bein- línis tekið fram. Algert samkomulag var um að leysa beri allar deilur milli ríkja á friðsamlegan hátt og að friðsamleg sambúð og samvinna ríkja sem hafa ólíkt stjórnarfar sé grundvallarnauðsyn ef tryggja á friðinn í heiminum. VINUM^OKKAR Á AÐ GERA PANTANIR SÍNAR SEM ALLRA FYRST. Við bjoðum yður vandaða þjónustu. Lótið okkur skipuleggja ferðir yðar — hvert sem farið er. PAV AMERICAN Aðglumboð á íslandi: G. Helgason & Melsted hf. Hafnarstrœti 19 Símar 10275 11644

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.