Þjóðviljinn - 10.06.1965, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 10.06.1965, Qupperneq 12
X „Hversvegna allt þetta röfl?" ■ Verkfall skellur senniléga á á miðnætti í nótt hjá matreiðslumönnum, þemum og framreiðslumönnum á íslenzka kaupskipaflotanum. ■ Enginn árangur varð á sáttafundi í gærdag og var þá rifizt um helgidaga í landi og fór allur tíminn í þref um þá hluti og sýndist mönnum það tylliástæða á | þessum sáttafundi. ■ Klukkan þrjú í dag verður svo fundur milli samn- ! ingsaðila í húsakynnum Vinnuveitendasambandsins og | verður þar gerð lokatilraun til sátta. i ■ Þá hafði Félag starfsfólks í veitingahúsum boðað i verkfall á morgun og hefur þeirri verkfallsboðun ver- ið frestað til fyrsta júlí að sögn forsvarsmanns þess | félags. ■ Aðeins eitt skip var í höfninni í gærkvöld og reyndist það vera hið fræga skip Jarlinn og sýndi lít- ið fararsnið. j ■ Gullfoss er væntanlegur til Reykjavíkur í dag og er ætlunin að flýta brottför skipsins fyrir miðnætti í nótt. ■ Við ræðum við nokkra sem boðað hafa verkfall. Tíkall af farþega Hún heitir Sigríður Gunn- arsdóttir og er skipsjómfrú á fyrsta farrými á Esju og lét i skipið úr höfn klukkan fimm í gærdag austur um land. i Sigríður átti í erfiðleikum með hárið á sér og gekk treg til myndatöku eftir að hafa greitt sér linnulaust í fimm mínútur og má sjá árangur- inn á myndinni og er eftir vonum. Hún er á föstu mánaðar- kaupi og ber úr býtum fjög- ur þúsund krónur á mánuði Sigríður Gunnarsdóttir — þerna á 1. farrými Hólfríður Friðsteinsdóttir — þema á 2. farrými og fær þar að auki koju- gjald fyrir hvern farþega og er það um tíu krónur á sól- arhring. Og hvað tekur fyrsta far- rými marga farþega? Ætli það £é ekki um átta- tíu og fjóra farþega og er þá lítið um hvíldina. Mér finnst þetta lágt kaup þetta er lélegt kaup, ■— alltaf blönk, — við gerum núna kröfu til þess að fá lægsta taxta hjá hreingemingakon- um í landi. Þetta er svona lélega borg- að til sjós. Surtseyjwkvikmyndin seld á Ameríkumarkað Hinn 27. maí s.l. var undirrit- aður samningur milli Osvalds Surtseyiarkwik- mynd ðsvðlds sýnd át! á landi Hinar nýju litkvikmyndir Os- valds Knudsens, sem sýndar voru við mikla aðsókn í Reykjavík í vor, verða sýndar úti á landi á næstunni. Myndirnar eru þrjár: ,Surtur fer sunnan“, ,,Sveitin milli sanda“, sem fjallar um hina fögru Öræfajveit og „Svipmynd- ir“ úr lífi ýmissa þjóðkunnra ís- lendinga. Lag Magnúsar Blöndals Jó- hannssonar í Öræfakvikmynd- inn.i, sem Ellý Vilhjálms söng, vakti mikla athygli, og er komið út á plötu á vegum Svars Gests og nefnist: „Sveitin milli sanda . Sýningar myndanna úti á landy hefjast á Eyrarbakka á fjmmtudagskvöld. Knudsens og bandaríska félags- ins North Shore News Co. Inc. um afnot og dreifingu á Surts- eyjarkvikmynd Ósvalds í Banda- ríkjunum, Kanada, Mexico og Puerto Rico. Ráðgert er, að framleidd verði fyrst í stað um 2.500 eintök af kvikmyndinni til sýningar sem fræðslumynd í ofangreindum löndum. Jafnframt skuldbindur North Shore Co. Inc. sig til að vinna að sölu og dreifingu kvik- myndarinnar á heimsmarkaði. Af hálfu hins bandaríska fé- lags undirritaði samninginn nrófessor Bauer, sem kunnur er hér á landi í sambandi við rann- sóknir á Surtsey. Auk Ósvalds og prófessors Bauers unnu að samningsgerð- inni þeir Steingrímur Her- mannsson, frkv.stj. Rannsóknar- ráðs ríkisins og hæstaréttarlög- mennirnir Þorvaldur Þórarins- son og Sigurður Reynir Péturs- son. Ósvald Knudsen hefur sent Surtseyjarkvikmynd sína á kvikmyndahátíð sem * haldin verður í Moskvu í byrjun júlí og í því sambandi látið setja rússneskt tal við myndina. Þekkir messalífið Hún heitir Hólmfríður Frið- steinsdóttir og er gkipsjóm- frú á öðru farrými Esju og er farþegafjöldi þar fimmtíu og átta talsins. Hólmfríður hefur hækkað í tigri með árunum og var hún áður messi á skipinu og þekkir messalífið. Á sumrum er meira um ferðamannastraum en á vetr- um og táknar það meiri tekj- ur ’ fyrir okkur og hef ég sömu kjör og skipsjómfrú á fyrsta farrými en það eru færri á öðru farrými. Mé finngt þetta lágt kaup og hvað ætli flugfreyjurnar segðu við þessum kjörum okkar. Annars líkar mér vel á sjónum og siglum við ein- göngu á landsbyggðina í sum- ar. Hversvegna þarf allt þetta röfl út af sómasamlegu kaupi? Þetta eru öll ósköpin Hann heitir Gústaf Kristj- ánsson og er fyrsti matsveinn á Esju. Þetta er fyrsti túrinn sem slíkur, — var áður ann- ar matsveinn og hefur nú verið ráðinn kjötiðnaðarmað- Ur sem annar matsveinn á Esju. Kaupið er lágt og erfitt að fá vana matreiðslumenn á skipin. Gústaf segi?t hafa ríflega átta þúsund krónur á mán- uði og séu kröfur þeirra að fá sama kaup og matreiðslu- menn í landi. Þannig hefur yfirmatsveinn í landi ríflega ellefu þúsund krónur og þetta eru nú öll ósköpin, sem bar- izt er um þessa stundma. Þá kemur stundum eftir- vinna og fer eftir farþega- fjölda, — verða tekjurnar þannig meiri á sumrum. Yfirleitt eru kröfur okkar á skipunum miðaðar við að fá sömu kjör og starfsbræður okkar í landi eins og skips- jómfrúr, framreiðslumenn og matreiðslumenn og sýnist það vera sanngimismál. Verkfall fyrsta júlí Hún heitir Hulda Magnús- dóttir og er matráðskona í Gildaskálanum í Aðalstræti og náðum við stut'tu spjalli af henni í gær. Myndir og texti G. M. Gústaf Kristjánsson — 1. matsveinn Félag Starfsfólks í veitinga- húsum hefur bo.ðað verkfall tólfta þessa mánaðar og enn- þá hefur því verig frestað til fyrsta júlí. Matráðskonur á veitinga- húsum hafa fcr. 8450,00 á mánuði og er vinnutími okk- ar í vöktum og er fyrri vakt- in frá klukkan átta á morgn- ana til klukkan tvö að deg- inum og seinni vaktin frá þeim tíma til klukkan tólf á miðnætti. Meginkröfur núna er tutt- ugu prósent kauphækkun og þrjátíu og þrjú prósent á vaktavinnu eftir klukkan fimm á daginn. Þá er farið fram á 44 st. vinnuviku og stofnun á sjúkrasjóði, — fríar heim- i keyrslur á nóttum utan við strætisvagnatíma. Þetta er í stuttu máli á döf- inni hjá starfsfólki á veit- ingahúsum. $ Hulda Magnúsdóttir —vinnur á Gildaskálanum Frú Stana Tomasevic sendiherra og Guömundur 1. Guðmundsson utanríkisráðherra undirrita samninginn. — (Ljósm. P. Thomsen). Vföskiptasamningur við Júgóslavíu undirritoður Miðvikudaginn 9. júní 1965 var undirritaður í Reykjavík við- skiptasamningur milli íslands og Júgóslavíu. I samningnum eru beztu kjara- ákvæði að því er varðar tolla, innflutningsgjöld og siglingar. Greiðslur skulu fara fram í sterlingspundum eða öðrum frjálsum gjaldeyri. Gjldistaka samningsins er náð fullgildingu en hann gildir síðan til eins árs og framlengist sjálf- krafa um eitt ár í einu sé hon- um ekki sagt upp með þriggja mánaða fyrirvara miðað við 31. desember ár hvert. Erlander fer lil Sovétríkjanna STOKKHÓLMI 9/6 — Á morg- un, fimmtudag, daginn eftir að Gerhardsen, forsætisráðherra Noregs, lauk heimsókn sinni í Sovétríkjunum, leggur Tage Er- landir, forsætisráðherra Svíþjóð- ar, upp í átta daga ferðalag þangað. ( | tS- *r- M0RG VITNIAD LANDGÖNGUNNI □ Síðastliðinn þriðjudag lagði varðskipið Þór leið sína að nýju eynni við Surt og hafði jarð- fræðinga, fréttamenn, ráðherra og fleiri gesti inn- anborðs. Tilefni þessarar ferðar var það að þegar Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur vaknar, kl. 10 að morgni þriðjudaginn 8. júní sl. finnst honum tími til kominn að fara og líta á hið nýja gos við Surtsey, En nóttina áður liöfðu þeir nafnar, hann og Sig. Stefánsson, jarðfræðingur, sem einnig var með nú, komið úr Vatnajökulsleiðangri en hyggja nú á rannsóknir á öllu heitari stað. Undirbúningur ferðarinnar tók ekki lengri tima en það að þeir sem þátt tóku í henni áttu að vera mættir á flugvellinum kl. 10.30 og tókst það 'með góðri aðstoð Landhelgisgæzlunnar. Strax og lagt var af stað með flugvél frá Flugsýn laust fyrir kl. 11.00 var sýnt að ekki var á betra veður kosið, stafalogn og sólskin. Þegar komig var yfir Reykja- nesskagann sást hvar hvítur 'gufumökkur steig hátt í loft upp skammt fyrir suðaustan Surts- ey og er vélin nálgaðist og flaug í kringum gosið mátti sjá, að örlitil eyja úr svörtum vikri var að skjóta upp koliinum og enn tvísýnt um hvort hún héldi velli. Menn, sem þama höfðu verið nóttina áður, sögðu, að þá hafi hún horfið um tíma en nú væri meiri kraftur í gosinu. Stöðugt flæddi sjór í gíginn jafnóðum og hverri sprengingu var lokið, en með þeim ruddist upp svart- ur vikur og grjót. Frá flugvellinum í Eyjum var haldið rakleiðis um borð í varð- skiþið Þór. sem beið þess að flytja jarðfræðingana á gos- svæðið. En þá hafði borizt orð- sending til Þórsmanna að koma til Þorlákshafnar og sækja þangað Bjarna Benediktsson for- sætisráðherra og Guðmund-* í. Guðmundsson utanríkisráðherra ásamt föruneyti, sem einnig hugðist nota veðurblíðuna til-að sjá gosið. Á gosstöðvamar var komið á sjöunda tímanum um kvöldið. Þetta nýja gos er í um 500 m. fjarlægð frá Surtsey og var mjög tilkomumikið að sjá í logn- inu, hvernig gufubólstramir þeyttust upp í loftið hver af öðrum með 15 sek. og upp í einnar min. millibili við spreng- ingamar í gígnum og ekki fjarri lagi að ætla að þeir hafi náð um eða yfir 2900 m. hæð en sandsúlan og grjót mun lægra og féll það niður í sjóinn allt í kring. Gosið var greinilega orðið mun öflugra en fyrr um daginn en þó á engan hátt sambærilegt við það þegar Surtur var að rísa úr sæ en hann mun jafn- gamall hafa verið búinn að ná á annað hundrað metra hæð og orðinn 900 metra langur. Þessi Framhald á 9. síðu. Viðtal við Pál Helgason á 2. síðu V

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.