Þjóðviljinn - 15.06.1965, Blaðsíða 10
10 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 15. júni' 1965
kastalinn
EFTIR HARRY
HERVEY
eldabuskuna Zabette. Þau voru
bæði kolsvartir eyjarbúar og
bæði frábærlega vel limuð. Al-
fons söng og dansaði við örvandi
hljóðfall frá kastanjettum, með-
an Zabette vaggaði og ruggaði
fagursköpuðum likama sínum í
eggjandi rumbu. Þetta var eng-
in uppgerðarkynóradans, eíns
og sést svo oft á skemtistöðun-
um; þetta var hinn ósvikni upp-
runalegl dans. Faðir Damon
hugsaði með sér að hann hefði
sjaldan séð neitt eins eðlilegt
og tilgerðarlaust og þessi tvö.
Þegar dansinum var lokið, var
Zabette að sjálfsögðu dauðupp-
gefin og í svitabaði — en jafn-
vel faðir Damon var dálítið
máttlaus í hnjánum.
Þegar greifinn og hann voru
aftur orðnir einir, sagði hann:
Aldrei hef ég verið viðstaddur
eins ánægjulega skemmtun.
— Og vitið þér hvers vegna?
spurði greifinn. Það er ekki að-
eins vegna þess að hún var ó-
undirbúin — eða vegna þess að
Ijftfamennimir voru óspilltari;
heldur vegna þess að þeir komu
fram — ekki til að skemmta
býsbónda sínum eða gesti hans
— heldur sjálfum sér til ánægju,
til að fá útrás fyrir eðlilegan
lífsþorsta sinn.
Hárgreiðslan
Hárgreiðslu og snyrtistofa
Steinu og Dódó
Laugavegi 18 III. hæð (lyfta)
SÍMI: 24-6-16
P E R M A
Hárgreiðslu- og snyrtistofa.
Garðsenda 21 SÍMI: 33-9-68
D Ö M U R
Hárgreiðila við allra hæfi
TJARNARSTOFAN
Tjamargötu 10, Vonarstrætis-
megin. — Sími 14-6-62.
Hárgreiðslustofa
Austurbæjar
María Guðmundsdóttir,
Laugavegi 13 sími 14-6-58
Nuddstofan er á sama stað.
Það var komið talsvert fram
yfir miðnætti, þegar faðir Dam-
on kvaddi með eftirsjá; og þeg-
ar hann lagði af stað fótgang-
andi niður ójafnan, grýttan
stíginn og hann hafði ekki tek-
ið í mál að fara akandi — fann
hann hjá sér nær óviðráðanlega
löngun til að dansa og fagna.
I stað þess að hegða sér svo ó-
viðurkvæmilega, lét hann sér
7
hins vegar nægja að taka sma-
hopp öðru hverju og sparka
lausum steinum úr götu sinni.
3
Afleiðingamar af boði greif-
ans urðu býsna undarlegar fyr-
ir föður Damon og stöðu hans
í San Liguori: hann varð í senn
virtur og fyrirlitinn. 1 vissan hop
þar sem ekki var ævinlega far-
ið fínt í að fullnægja forvitn-
inni, var það vegið og metið,
hvort prfesturinn væri ekki einn
þeirra manna sem leggja bæri
rækt við;' éri' þár . sém ' þeftá
sama fólk var í eðli sínu mjög
íhaldssamt þrátt fyrir allt, skorti
það hugrekki til þess og ákvað
að bíða enn um stund og sjá
til hvernig þessu reiddi af öllu
saman.
Og því reiddi af á máta, sem
var einkennandi fyrir hinn óút-
reiknanlega Girghiz greifa. Þegar
greifinn hafði sýnt að hann var
óháður og gaf svo að segja allri
San Liguori langt nef, varð hann
mjög alúðlegur og fór að halda
hverja matarveizluna af ann-
arri fyrir sérlega útvalda gesti.
Reyndar gerðist eitthvað í öllum
veizlunum sem hefði hæglega
getað komið einhverjum á þá
skoðun að greifinn væri dálítið
kvikindislegur, en á hinn bóginn
— hann var ókunnugur öllum
staðháttum og ekki hægt að æíl-
ast til þess að hann vissi sam-
stundis deili á öllum hlutum.
Eins og nú til dæmis þegar
hann hélt boð fyrir landstjórann
og frú hans og — hvort sem
það var nú af vangá eða vit-
andi vits — bauð madame
Quenin í veizluna og vísaði
til sætis við borðið beint and-
spænis ektavífi hans hágöfgi.
Eða þá þegar haldin var matar-
veizla til heiðurs biskupnum og
prelátum hans og hann hafði
látið leggja á borð í rómverska
baðklefanum og hverjum gest-
anna var fengin purpuralit
skikkja. I fyrstu var biskupinn
dálítið ringlaður og undrandi, en
þegar hann fór að hugsa nánar
um litinn sem valinn var, tók
hann þessa tilhögun sem per-
sónulegan heiðursvott og var
mjög upp með sér — þangað til
hann heyrði um allar þær slúð-
ursögur sem urðu til eftir þessa
saklausu veizlu.
Greifinn viðurkenndi fyrir föð-
ur Damon. að allt þetta sam-
kvæmislíf, — að undanteknum
svona smáuppátækjum — væri
honum skelfilega hvimleitt; en
hann viðurkenndi líka, að hann
fyndi einhverja ónáttúrlega full-
nægingu í því að láta sér leið-
ast. Það voru andlegar sjálfs-
pyndingar og auk þess verkaði
það á hann eins og deyjandi iyf
og kom í veg fyrir að skiln ng-
arvitin örvuðust um of.
Girghiz greifi kunni vel að
meta samvistirnar við föður
Damon, vegna þess að kurteisi
prestsins kom aldrei fram i auð-
mýkt og vegna þess að hann
gat verið félag'. án þess að verða
of kumpánlegur. Af þessu leiddi
að faðir Damon varð tíður gestur
í kastalanum. Oft og iðulega
sátu hann og greifinn saman yf-
ir einni eða tveimur flöskum af
gömlu víni alveg fram í dögun
og greifinn lék Stravinsky og
Beethoven, eða þeir gáfu sig á
vald þe;m þunglyndislega nug-
blæ sem varð til við kynieg,
nafnlaus tónverk sem greifinn
knúði fram úr hljóðfærinu með
þróttmiklum áslætti; eða þeir
fóru niður í baðklefana og með-
an Alfons neri kroppa þeirra,
sökktu þeir sér niður í heim-
speki Schopenhauers, Thoreaus
og Aristotelesar....
Næturdrykkjur þessara tveggja
óguðlegu piparsveina gáfu hin-
um ótrúlegustu slúðursögum byr
undir báða vængi í San Liguori.
Að vísu hafði enginn hugmynd
um hvað þama átti sér stað i
raun og veru; en sögusmiðir
staðarins höfðu enga þöri fyrir
staðreyndir: hið frjálsa hugar-
flug ■ þeirrá brá upp myndum af
ofboðslegum svallveizlum. Hið
eina sem greifanum var álasað
fyrir, var að hann léti tælast
svo auðveldlega; það var faðír
Damon sem var ódæðismaðurinn
— freistarinn sem leiddi hinn
vellríka aðkomumann á glap-
stigu. Faðir Damon var hinn ílli
andi; greifinn var — vegna þess
að hann var auðugur — aðeins
samsekur sérvitringur. —
Um það leyti sem greifinn
hafði verið upp undir ár í San
Liguori, varð landsstjórinn ófor-
varandis til þess að leggja sinn
skerf til hinna frjóu sögusagna
sem gengu um kastalann. Hans
hágöfgi var sem sé smám saman
kominn á það stig að honum
var ómögulegt að finna upp á
fleiri frambærilegum afsök-
unum fyrir kvöldunum sem
hann dvaldist hjá Madame
Quenin. Hann vissi satt að segja
ekki s!tt rjúkandi ráð, fyrr en
honum varð allt í einu hugsað
til baðhvelfinga greifans. Þá fór
hann að finna upp skýringar,
sem kona hans tók gildar —
um tíma að minnsta kosti —
og San Liguori hafði mikla
skemmtun af. Ur hinum sakleys-
islegu smálygum landsstjórans
um aðskiljanleg böð í kastalan-
um, spruttu meðal almennings
frásagnir sem hneyksluðu jafn-
vel greifann, þegar honum bár-
ust þær til eyrna. I fyrstu varð
hann fokreiður landsstjóranum.
En þegar hann hafði gert sér
ljóst hve tilgangslaust það var,
sigraði kímnigáfa hans og hann
skemmti sér yfir hinni óbeinu
þátttöku sinni í hliðarhoppum
hans hágöfg’.
En það var kaldhæðni örlag-
anna, að hann skyldi að lokum
verða aðild að sögunum sem
virkur — að vísu ófús — þátt-
takandi.
Það vildi nefnilega þannig til,
að nótt eina, þegar landstjónnn
skildi við Madame Quenin ógn
fyrr og ögn ölvaðri en vanalega
að hann gekk af stað í öfuga átl
og mætti Girghiz greifa sem var
í smágönguferð. Þegar greifinn
sá hvernig landstjórinn var á
sig kominn, bauð hann honum
hressandi tyrkneskt bað. Hans
hágöfgi sem hafði logið svo oft,
að hann var sjálfur farinn að
trúa á lygar sínar, tók boðinu
eins og ekkert væri sjálfsagðara,
og slapp þannig — fyrir tilstilli
forsjónarinnar og greifans — við
mikla auðmýkingu. Þvi að ein-
mitt þessa nótt — það frétti
hann síðar — var kona hans,
gagntekin afbrýði og tortryggni,
á le!ð til húss Madame Quemn.
Þegar hún ruddist þangað inn
að óvörum, sá hún það sem hún
taldi vera óræka sönnun —sem
sé bara Qkklana á karlmanni sem
var að taka sér steypibað; en
þegar hún svipti henginu frá,
fann hún þar ekki sér nákunn-
ugan karlmann, heldur blasti þar
við henni landbúnaðarfulltrúinn í
Adamsklæðum.
Eftir þetta vandræðalega at-
vik, varð skelfileg ringulre'ð.
Madame Quenin, sem var full
af heilagri vandlætingu og full-
yrti að mannorð hennar væri
eyðilagt, rak landbúnaðarfulltrú-
ann á dyr með miklu bramboiti.
Eiginkona landsstjórans, sem var
í fyrstu glöð og fegin yfir því að
hafa sannað að madame Quenin
væri lauslætisdrós og eiginmað-
ur hennar hefði alsaklaus orðið
fyrir barðinu á slúðursögusmið-
unum, flýtti sér heim og kom
EYJAFLUG
MEÐ HELGAFELLI NJÓTIÐ ÞÉR
ÚTSÝNIS, FLJÓTRA
OG ÁNÆGJULEGRA FLUGFERÐA.
AFGREIÐSLURNAR
OPNAR ALLA DAGA.
REYKJAVÍKURFLUGVELLI 22120
Snittur
Smurt brauð
vig Óðinstorg.
Sími 20-4-90.
4547 __ kom brátt í ljós að Antonio hafði vanmet^ð yfir- ,»f stutt'u máli sagt sogir gamli Svcrs að, lokum ,»þcir gerðu
völdin, þau vissu fullvcl hvað hafði verið að gerast við Samba sér það ljóst, að ég gæti haft vcrra af, cf ég hypjaði m g ekki
og viðtaliö varð brátt að yfirheyrslu. strax frá Borneo. Og ég fylgdi ráði þeirra .
SKIPATRYGGINGAR
Tryggingar
á vörum í flutnlngi
á eigum skipverja
Heimistpyggingi hentar yður
Abyrgðar
Veiöarfa
Aflatryggingar
TRYGGINGAFELAGIÐ HEIMIR"
LINDARGATA 9 REYKJAVlK SlMI 21260 SlMNEFNI :SURETY
%
©O
I
FLOGIÐ STRAX%
FARGJALD //
GREITT SÍÐAR%
| DANMORK 06
ÍA-ÞÝZKAUND '
'ssss** Verð um 9.500 krónur fyrir 17 daga
ýys/SA
y/. Fararstjóri; TRYGGVI SIGURBJARNARSON.
!
/y í Rostock-héraði hittast árlega á Eystrasaltsviku
% hópar frá öllum Jlöndum, er liggja að Eystrasalti,
Hin árlega 'Eystrasaltsvika verður haldin dagana
4.—11. júli í Rostockhéraði. Við skipuleggjum.
ferð þangað sem hér segir:
I. júlí: Flogið til Kaupmannahafnar.
3. júlí: Farið til Warnemunde.
4.—11. júlí: Dvalízt á Eystrasaltsvikunni,
12.—16. júlí: Ferð í langferðabíl um Austur-
Þýzkaland, komið í Berlín.
16. júlí: Farið frá Berlín til Kaupmannahafnar.
17. júlí: Flogið til íslands.
og fræðslu-
I
auk Noregs og Islands.
Þar fer fram allskonar skemmti-
starfsemi.
Baðstrendur ágætar. Loftslag milt og þægilegt.
Þátttaka er takmörkuð við ákveðinn hóp.
Hafið samband við okkur sem fyrst.
L A N DSy N