Þjóðviljinn - 28.08.1965, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 28.08.1965, Qupperneq 5
'V I ÉaagSBiagmf 28. igösí M6S = ÞJÖÐVStJINN — SlÐA § Kennslustund I gamanmyndagerð Pierre Étaix segir hug sinn um skop og gamanleikara fyrr og nu Ur mörgurn stað má heyra andvörp þeirra sem sakna „gullaldar gamanmyndanna“ og það er spurt um það, hvenær kvikmyndir nútímans, sem virðast geta leyst öll tæknileg vandamál fyrirhafnarlítið, eignist menn á borð við Chap- lin, Keaton, Harold Lloyd. — Ýmsir eru að vísu til nefndir, og þá ekki sízt tveir Frakkar, Jacques Tati, sem óþarft. er að kyrina, og ungur maður að nafni Pierre Étaix, er töluvert nafn hefur hlotið fyrir mynd sína „Mæðumaður“, Étaix hefur um allangt skeið unnið að nýrri mynd er nefnist „Yoyo“, og er reyndar komin á markað nú, og fer hér á eft- ir stytt þýðing á viðtali við hann um það verk og gaman- myndagerð yfirleitt. Ég hóf feril minn, segir Étaiex, sem leiktjaldamálari og bókateiknari. Þessu næst gerðist ég sirkustrúður o.g þaðan lá leið mín til samstarfs við Jacques Tati, einmitt þeg- ar hann var að vinna að mynd. inni „Frændi minn“. Ekkj leið á löngu áður en ég gat gert mínar eigin myndir og leikið í þeim sjálfur og 1962 gerði ég fyrstu mynd mína af fullri lengd „Mæðumaðurinn". Síðan þá hef ég unnig að „Yoyo“. ★ 'r'. Iþessari mynd langar mig til að sýna að persónuleg ham- ingja og efnahagsleg velsæld eru sitt hvað. Sögð er saga miljónamærings, sem er orð- inn leiður á einveru sinni í glæsilegri höll. Hann snýr aft- ur til stúlkunnar sem hann elskaði fyrir margt löngu, en hún vinnur í umferðarsirkus, og barns þeirra. f þessu flökkulífi íinur hann gæfu sína. Tíu ár líða. Heimsstyrj- öldin hefur slitið Yoyo (en svo var sonur þeirra nefndur í sirkussamfélaginu) frá foreldr- um sínum Árið 1945 tekur hann að brjóta sér leifl i kvik- myndum og síðan sjónvarpi í því augnamið; einu að verða ríkur og kaupa aftur höllina sem faðir hans átti fyrr. En þegar þessu þráða marki er Tsjúkhræ staðfesti írægð sína í „Heiður hiniinn". Þar fóru þau Drobisjéva og Úrbanskí með aðalhlutvcrk. Ný kvikmynd eftir Tsjúkhræ HVERSDAGSLEGIR HARM- LMIR SOVÉTFÓLKS Grigori Tsjúkhræ er nú ein- hver þekktasti kvikmyndaleik- stjóri Sovétríkjanna, þót-t enn sé hann ungur að árum. Við- kunnar hafa orðið myndir hans „Fertugasti og fyrsti“ (pólitísk ástarsaga úr borgara- styrjöldinni), „Kvæðið um hermanninn" (látlaus. heiðar- leg og eftirminnileg mynd um venjulegt. fólk í styrjöld), „Heiður himinn“ (uppgjör við Stalínstímann). Og hafa flest- ir lofað Tsjúkhræ nema Kín- verjar, sem kalla hann end- urskoðunarmann og óstéttvís- an Nú hefur Tsjúkhræ lokið við nýja mynd, en hann hefur látið lítið til sín heyra nú um hríð: sagt var að hann vildi ekki gera kvikmynd nema hann værj fullkomlega ánægð- ur meg Kvikmyndahandritið. Mynd þessj heitir „Einu sinni var piltur og stúlka“ Á bakka eins hinna miklu rússn- esku fljóta býr gamall sveita- læknir, Grigorí og kona hans Natalja, og er lif þeirra gott og friðsælt En svo brennur ofan af þeim. og þau halda norður 1 land til dóttur sinn- ar, Nínu. sem býr í námu- verkamannabæ fyrjr norðan heimskautsbaug. Þar hitta þau tengdason sinn, Valentín, sem segir þeim að Nina hafi hlaupizt á brott með öðrum manni, og að ung stúlka úr næsta húsi hjálpi sér við uppeldi dóttur þeirra Nínu. Gömlu hjónin ákveða að setjast ag í húsj Valent- íns til að annast dóttur-dótt- urina og Valentin, sem er far- inn að drekka svo sem til að gleyma sorgum sínum. Dag nokkurn kemur Nina aftur heim og hefur ástmað- ur hennar yfirgefið hana. Val- entin er reiðubúinn að fyrir- gefa henni allt. En Grígórí gamli getur ekki fyrirgefjð dóttur sinni og hún verður að fara Lífið heldur áfram og Valentin skilst smám saman, að hann kann bezt við sig ef Galja er einhversstaðar ná- læg... Því er efni þessarar mynd- ar rakið hér, að það gefur nokkra hugmynd um ákveðna þróun i sovézkri kvikmynda- gerð og bókmenntum. Þróun tengda efnisvali; þag ber nú orðið töluvert á hinum hvers- dagslegri harmleikjum, stórum og smáum. sem eru þá gjarna ekki settir á svið einhverra glæsilegra nýbygginga heldur gerast i kyrrlátara. óbliðara, fátæklegra umhverfi: í út- hverfj ctórrar borgar, í náma- bæ við heimskautsbaug ... náð reynist hamingjan jafn langt undan. Loks tekst hon- um að finna foreldra sína Qg snúa þau öll aftur til fjölleika- hússins. Étaix leikur tvö hlutverk í þessari mynd, föður og son. í „Mæðumanni* var einkum byggt á sjónrænu skopi, sam- töl skipuðu lítinn sess. og það sem ég sá af „Yoyo“ benti til sömu aðferðar. Ég spurði Étaiex, hvort hann teldi að gullöld skopmynda hefði stað- ið á timurp þöglu myndanna, og hvað hann héldi um þær fullyrðingar að hann mjnnti sjálfur mjög á Buster Keaton. — Ég held það sé rangt að ég stæli Keaton. Hitt væri sönnu nær, að við ættum báð- ir rætur í sömu hefð — í hefð fjölleikahússins. Þöglu mynd- imar eru mér gullöld skop- mynda sumpart vegna snill- inga eins og Chaplins og Keat- ons, og sumart vegna sjálfrar náttúru þöglu myndanna. Ég á ekki aðeins vjð það, að þögnin neyddi þá til að ein- beita sér að svipbrigðum, lát- bragði, hreyfingum af þeim þrótti sem dugði til ágæts ár- angurs — þögnjn hjálpaði þeim beinlínis; hún brá yfir alla aðferð þeirra furðulegri f águn og léttleika. Hugsum okk- ur hve göngulag Chaplins hefði mikils misst ef við hefðum getað heyrt fótatak hans. í einnj mynda Marcs Sennet kemur fyrjr svofellt atvik: Fatti stendur á ströndu og Ijósmyndar fegurðardís sem laugar sig í öldum hafsins. Allt í einu kemur bifreig aft- an að honum og hrindir hon- um í sjóinn. Þetta bragð hefði mjsheppnazt hefðum við heyrt bílinn nálgast. ★ Hinsvegar vil ég ekkj halda því fram, að tónar og tal geti í sjálfu sér orðið til skaða. Mér finnst aðeins ag nú hljóti gamanig að verða annars eðl- is. Og það er ekki sem verst, því þá verðum við að gera tilraunjr. Ég hef mikla and- styggð á því yfirborðskennda og innantóma orðagríni, sem okkur er svo oft boðið upp á á pöllum, þegar tveir spaug- arar ausa bröndurum hver yf- ir annan í svosem fimm min- útur. Ekki svo að skilj a að orðheppni verði ekki notuð með góðum árangri í kvik- mynd — vjð skulum minnast Marxbræðra sem tókst ag sam- eina öll brögð. Mörg dæmi má finna um frumlega notkun hljóðsins í fyrri myndum Tati. Honum tekst t.il dæmis að íullnýta þau spaugilegu áhrif sem kqma fram við misræmj milli hljóðs og myndar. í „Hátiðisdagur" sjáum við póstþjón á reið- hjóli, og leggur hann óvæntar lykkjur á leið sina og vindur ogsnýrsinn kropp mjög furðu- lega. Nokkru síðar heyrum við suð í stórri broddflugu og hlæjum af því við skiljum nú hvers vegna hann hagar sér Svo undarlega. En þetta er að- eins aðdragandi þessa skop- bragðs. Næst sjáum við bónda á akri, hann hættir vinnu sinni til að furða sig á at- hæfi póstmannsins. Hann heyr- ir enn ekki til broddflugunn- ar, fremur en við fyrst, en nú erum við klókari en hann — og hlæjum. Þetta er þróun bragðsins, staðfesting þess. Þá hefst „lausnin“; bóndinn fer aftur að vinna og veltir enn vöngum forviða, og nú heyrum við aftur í broddflugunni og sjáum, að nú er Það bóndinn, sem tekur að baða út höndum fáránlega. Uppbygging slíkra bragða er reyndar altaf eins: aðdrag- andi, staðfesting, lausn. Érfið- ust er staðfesting þess, því hún er einatt sízt forvitnileg en um leið þýðingarmesti liðurinn. Því má aldrei gleyma þeg- ar reynt ér að tengja þessa hluti saman, að áhorfendur eru fullkomlega miskunnarlausir í garð skopmyndarinnar og þola ekki atburði sem aðeins fleyta áfram frásögninni, eru ekki skoplegir. Þag er óhjákvæmi- legt að leita uppi það nákvæm- asta form, að jafna skopbrögð- um nákvæmlega niður. And- stætt því sem margir halda verður að gerhugsa hvert at- riði skopmyndar áður en kvik- myndatakan sjálf hefst. Tati vinnur venjulega i þrjú ár að undirbúningi næstu myndar sinnar. Ég „impróvi'séra“ aldrej fyrir framan kvikmyndavélina, heldur hef ég áður en mynda- taka hefst gert mér fastmót- aða hugmynd um það sem ég vil fá fram — og vinn síðan að því beinlínis. Auðvitað geta óvænt skopleg atriði komið til skjalanna í starfinu sjálfu og máske er það einmitt þess- vegna svo heillandi að vinna að gamanmynd. En menn þurfa að vera mjög varkárir, því þag sem gat virzt ágæt hugmynd og var það ef til vill í raun og veru — getur farið fullkom- lega forgörðum við skeytingu myndarinnar. Ég veit aldre; hvers vegna mér datt eitthvert tiltekið bragð í hug, hvaðan það er komið. Mér persónulega hef- ur það hjálpað mikig að ég var teiknr.ri að atvinnu — sú reynsla skerpir athyglisgáf- una. Og þegar líður að mynda- töku hefst flókin vinna og erf- ið: að velja og hafna úr mikl- um fjölda hugmynda og smá- atriða. Því forskrift eða ávís- un á húmor er ekki til Og mikið eru þeir gagnrýnendur viðbjóðslegir, sem þylja í sí- fellu sína gömlu þulu um „ó- breytanlegt eðli skopsins". Gamanmynd INC■ MARS BERCMANS Margir góðir menn hafa lagt á sig talsverðar setur við rit- vél tjl að skilgreina. gagnrýna, ráðast á kvikmynd Ingmars Bergmans, „Þögnina“. Hins- vegar hefur minna farið fyrir skrifum um gamanmynd sem þessi sænski meistari gerði skömmu síðar og heitir „Svo ekki sé talað um allar þessar konur“. Peter Cowie í „Films and Filming“ segir, að þvi sterk- ari sem persónulegur stíll og lífsviðhorf kvikmyndamanns séu, þeim mun erfiðara veitist okkur að taka við tilraunum hans með aðrar gerðir kvik- mynda en þær sem hann hef- ur skapað sér nafn fyrir. Og Ingmar Bergman hefur festst í vitund okkar sem svo strang- ur og miskunnarlaus og al- varlegur dómari, ag við hljót- Um ósjálfrátt að hrökkva und- an þegar hann reynir að sanna snilld sína á sviði gaman- mynda. í stuttri endursögn; hér seg- ir frá tónlistargagnrýni einum. sem heimsækir sumarbústað frægs sellóleikara þeirra erinda að skrifa ævisögu hans. Og lendir í miðjum flokki ást- kvenna snillingsins, lætur fyrst hrífast af þeim, en hlýtur að lokum að þola mikla auðmýk- ingu af þeirra hálfu. Mér virð- ist, segir Cowie, að þessi mynd sé öll ein persónuleg skrýtla og sögð fyrst og fremst til að gefa Bergman og kvik- myndara hans, Sven Nykvist, tækifæri á að gera tilraunir með liti. Þag tekst þeim ágæt- lega. Myndin er — af ásettu ráði — byggð upp á svipaðan hátt og leikhúsverk, og hin þunga rókokkoumgjörð bendir einnig til leikhúss. Mig grunar að höfuðgaillar þessarar gaman- myndar séu fólgnir í því. að kvikmyndahandritið sé gert af heldur litlu andríki, við sökn. um fyndinna athugasemda og tilsvara Það er einkennandi ag bezta atriði myndarinnar (miklar ' flugeldasprengingar) byggist einungis á sjónrænni spennu og snerpu. Engu að síður vill gagnrýn- andinn endilega fá menn til að sjá þessa mynd, þó ekki væri nema fyrir þær sakir, hve hún sé í litlum tengslum við allan listamannsferil Ingmars Berg- mans. Verðlaun til Kubrícks Kvikmynd Stanley Kubricks „Dr. Strangelove“ hefur verið valin bezta brezka mynd árs- ins 1964, og er það Brézka kvikmyndaakademían sem ber ábyrgð á þessu vali. Hinsvegar hafa bandarísk rithöfundasamtök tilnefnt sömu kvikmynd „bezt skrifuðu bandaríska gamanmynd“ fyrra árs. Myndin var tekin j Bret- landi, en Columbia var sfcráð fyrir framleiðslunnj. Ég er andstæða Clarks Gable Marcello Mastroianni er sá italskur kvikmyndaleikarj sem einna mest ber á um þessar mundir, eins og allir vita. Hann verður einkum talinn á- byrgur fyrir túlkun á nýrri gerð karlkynspersóna: manna sem eru fullkomlega lausir við hetjuskap. Og hann álítur að þessir menn, sem hann leikur, séu í raun réttri nútímamað- urinn; því að konan leggi und- ir sig æ fleiri varnarvirki karl- manna meðan þeir gerist æ vesælli. Þetta kemur m,a. fram í nýlegu viðtali Mastroianni við timaritið „Playboy". Um hetjur íarast leikaran- um orð á þessa leið; — Sé ég eitthvað þá er ég anti-Gable. Glark Gable og ýmsir aðrir reyndar líka, léku sterka menn, fulla með dyggð- ir og mannlegan virðuleika. En eins og Antonioni segir: „Hver er hetja innan um kjarna- sprervgjur?“ f dag viðurkenn- um vig veikleika okkar, eða að minnsta kostj þá ringulreið sem sálarlíf okkar er í f hlut- verkum mínum kem ég aðeins upp um þá staðreynd að ég er manneskja. Gable lék helgi- sögn — helgisögn sem var trú- anleg í gær, en ekki i dag. Um leikaðferð sína segir Mastrbianni: — f sannlefka sagt er ég ekki leikari „af eðlisávísun“. Enda er það ekki hægt. Ég verð að skipuleggja allt fyrir- fram, smátt og stórt. Þegar ég hafði fengið hlutverk mitt i „Hið ljúfa líf“ leit ég í speg- il og saífði við sjálfan mig: Þú átt aðeins vissan árafjölda ó- lifaðan. Héðan af tekur þú aðeins að þér þau hlutverk sem koma þér beinlínis við sem manneskju. sem skipta málj fyrir þig sjálfan og fólk- ið í kringum þig. Ég leik ekki beinlínis sjálf- an mig. fremur mætti segja ag ég leitaði að sjálfum mér í hlutverkunum. Um leið og ég hef lesið handritið og ein- angrað þá persónu sem ég á að leika —, byrjar hún að vaxa inni í mér eins og sníkju- jurt. Smám saman aðhæfir hún sig mér — eða ég henni. En ekki vegna náms eða at- hugana. Ef ég ætti til dæmis ag leika vitskertan mann, þá fer ég ekki á geðveikraspítala til að virða fyrir mér sjúk- lingana. Úr því yrði ekki ann- að en eftirlíking. Ég les handritið nokkrum sinnum og hugsa dálítið um það. Svo hendi ég þv," og finn það aldrei aftur. Síðar, þegar allt er komið í eindaga, er ég vís til að spyrja aðstoðarmann leikstjórans: „Hvernig er nú þetta tilsvar mitt?“ En ég segi aldrei nákvæm- lega það sama og stóð í hand- ritinu. Ef hlutverkið hefur náð að skjóta rótum í mér sjálf- um, þá koma orðin af sjálfu sér. Um stjórnmál: — Ég er verkamannssonur. Ég er ekki í neinum flokki og tek ekk; virkan þátt í stjóm- málabaráttu þv; þá þyrfti ég að gangast undir málamiðl- anir. Þess vegna stend ég við gluggann og virði fyrir mér þag sem gerist, en ég greiði atkvæði með sósíalistum. . » - t

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.