Þjóðviljinn - 09.11.1965, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 09.11.1965, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 9. nóvember 1965 — 30. árgangur — 254. tölublað Orðsemfíng frá Kvenfélagi sósíafísta Kvenfélag sósíalista héldur fund að Tjamargötu 20 miö- vifcudaginn 10. nóvember nJc. kl. 20.30. Dagskrá: 1. Anna Sigurðardóttir flytur erindx er hún nefnir: Nýir þjóðfélags- hættir og fjölskyldulífið. 2. Kvikxnyndir: íslenzkar myndir. 3. Félagsmál. Stjóm félagsins vill ennfrem- ur skora á félaga og velunnara félagsins að gera basarinn sem haldirm verður n.k. sunnudag sem glassilegastan, þar sem fé- laginu er sérstök þörf á fjár- öflunað þessu sinni. Næstu daga verða birt í dagbók Þjóðviljans nöfn og símanúmer þeirra sem veita basarmununum viðtöku. Stjórnin. SildveíSin um helgina 160 þús. /77. Mjög góð síldveiði var um helgina. Frá laugar- dagsmorgni til sunnudags- morguns fengu 84 skip samtals 87.010 mál og tunnur og er það einhver rhesti sólarhringsafli á ver- tíðinni. Frá sunnudags- morgni til í gærmorgun fengu 65 skip samtals 72.894 mál' og tunnur. Er heildaraflinn yfir helgina því samtals 159.904 mál og tunnur. Fer aflinn svo til einvörðungu í bræðslu en eitthvað þó í frystingu en söltun mun nú vera hætt á flestum eða öllum stöð- um. Meðalafli á skip var yfir 1000 mál um helgina og eru mörg skipanna með mjög góða veiði báða dag- ana. Er skýrslan yfir helg- araflann birt á 4. síðu blaðsins í dag. Banaslys í Ólafsvík Ólafsxdk, 8/11 — Á laugardags- morgun um kl. 11 varð það hörmulega slys í Ólafsvík, að fiögurra ára drengur, Jökull Tómasson, varð fyrir bifreið og beið bana nær samstundis. For- eldrar drengsins heita Tómas Guðmundsson. rafvirkjameistari og Halldóra Óskarsdóttir. Málið er í rannsókn. Sósíalistar Akranesi Muníð félagsfundinn í Rein annað kvöld, miðvikudag, kl. 8.30. Félagar fjölmennið. ískyggilega mörg bifreiöaslys Kona beið bana og 6 slösuðust mikið^ □ Óhugnanlega var um slys í Reykjavík og nágrenni undanfama tvo sólarhringa, dauðaslys og fjögur önnur stórslys. Göm- ul kona beið bana og sex manns slösuðust meira og minna í bifreiðaárekstrum og ákeyrslum. Dauðaslys á Hringbraut Banaslysið skeði rétt fyrir kl. 9 í gærmorgun á móts við hús nr. 90 vig Hringbraut. Var þar gömul kona á leið norður yfir götuna þegar Moskvitsj-bif- reið á leið austur eftir ók á hana. Konan lentj framan á bílnum og kastaðist í götuna. Voru sýnilegir áverkar á höfði hennar og missti hún þegar með- vitund. Konan var strax flutt á Slysavarðstofuna og þaðan á Landakotsspítala, en komst aldrei til meðvitundar og lézt skömmu fyrir hádegið. Konan hét Vigdís Jónasdóttir, var 78 ára gömul, til heimilis að Hringbraut 115. Ekið á tvo menn á veginum. Um kl. 3 aðfaranótt sunnu- dagsins var ekið á tvo menn á Suðurlandsbraut skammt neðan við Geitháls og slösuðust báðir. Höfðu menn þessir farið ásamt fleira fólki í bíl upp að Geit- hálsi, en er þangað kom lagði annar þeirra af stað fótgang- andi í bæinn. Sneri þá bifreið-' in vig á eftir honum og fór félagi hans út að tala við hann. Stóðu þeir báðir á veginum og töluðu saman er bíl bar Þar að á austurleið og ók hann á þá. Kastaðist annar maðurinn yf- ir bílinn endilangan og féll aft- Framhald á 3. síðu. Kjaramáíin og atvinnumál aíalverkefni þings ASN j □ Alþýðusamband Norðurlands hélt 9. þing' sitt á Ak- ureyri dagana 30. og 31. október s.l. Þingið sátu 33 full- trúar frá sambandsfélögunum, en þau eru 22 með rúmlega 4000 félagsmenn. □ Á þinginu voru ýtarlega rædd kjaramál verkalýðs- ins á sambandssvæðinu og samþykkt var ályktun þings- ins um kjaramál. Einnig voru atvinnumál og aðgerðir til útrýmingar atvinnuleysi á Norðurlandi rædd og gerð álykt- un um það efni. Nokkur fleiri mál voru rædd á þinginu s.s. um orlofsheimil- isbyggingu á Norðurlandi og gerð um það sérstök ályktun, þar Auglýst eítír umsóknum um 54 leiguíbúðir borgarinnar íbúðirnar eru byggðar til þess að útrýma heilsuspillandi húsnæði í borginni □ Sl. laugardag voru auglýstar til leigu 54 íbúðir sem byggingasjóður Reykjavíkurborgar á í þrem ný'j- um húsum að Kleppsvegi 66—76 og sérstaklega eru byggðar til útrýmingar heilsúspillandi húsnæðis. Þurfa umsóknir um íbúðirnar að hafa borizt til húsnæðis- fulltrúa skrifstofu félags- og framfærslumála, Póst- hússtræti 9, fyrir 15. þ.m. íbúðirnar eru í þrem nýj- um húsum sem borgin á í byggingu við Kleppsveg og verða tvö húsanna tilbúin til íbúðar 1. desember n.k. en eitt nokfcru síðar. fbúðimar eru aUs 54. þar af 18 tveggja herbengja. 18 þriggja herb. og 18 fjögurra herbergja. í auglýsingunhj segir að þeir umsækjendur verðj að öðru jöfnu látnir ganga fyrir við úthlutunina sem búa í heilsuspillandj húsnæði. Skulu umsækjendur vera heimilis- fastir í Reykjavík og hafa átt hér heima sl. 5 ár, þó er heimilt að gera frá þessu undantékningu ef umsækj- andi hefur um stundarsakir flutt í nágrenni Reykjavíkur á umræddu tímabili vegna húsnæðisvandræða. Barnafjölskyldur ganga fyr- ir vig úthlutunina og er lág- marksfjölskyldustærð sem hér segir: 2 lierbergja íbúð: 3 manna fjölskylda þar af 2 börn, 3 herbergja íbúð: 6 manna fjölskylda þar af 3 böm, 4 herbergja íbúð: 7 manna fjölskylda. þar af 4 börn. Eigendur íbúða koma ekki ti'l greina nema þær séu al- gerlega óíbúðarhæfar. Leigu- máli verður gerður til tveggja ára í senn og skuldbinda væntanlegir leigjendur sig til að rýma íbúðimar. ef þeir uppfylla ekki Iengur þær reglur sem í gildi verða um leigurétt. Húsaleiga verður reiknuð eftir gildandi reglum um há- markshúsaleigu. Þá verða settar reglur um umgen.gni og reglusemi í íbúðum þessum og verður haft strangt eftir- lit með því að þeim sé hlýtt I I b I I I I ! sem talið er tímabært að nú þegar sé hafinn undirbúningur að stofnun og byggingu orlofs- heimilis verkalýðsins á Norður- landi og framkvæmdir í því máli eigi að vera í höndum sam- bandsins og þeirra verkalýðsfé- laga á sambandssvæðinu sem á- kveða að taka fjárhagslegan þátt í byggingu heimilisins. Var miðstjóm sambandsins falið að leita . eftir heppilegu landsvæði fyrir orlofsheimilið. Tekin voru fyrir vandamál iðnaðarins og samþykkt ályktun þingsins um það efni. i í miðstjóm Alþýðusambands Norðurlands til næstu tveggja ára voru kjömir: Forseti: Tryggvi Helgason, varaforseti: Björn Jónsson, rit- ari: Jón Ingimarsson, með- stjórnendur: Freyja Eiríksdóttir og Jón Helgason öll frá Akur- eyri. Varamenn £ miðstjórn: Þorsteinn Jónatansson Akur- eyri, Amfinnur Amfinnsson Ak- ureyri, og Jón Pálsson Dalvík. í sambandsstjórn auk mið- stjómar voru kjörin Óskar Gari- baldason Siglufirði, Guðrún AI- bertsdóttir Siglufirði, Hulda Sig- urbjömsdóttir Sauðárkróki, Líney Jónasdóttir Ólafsfirði, Guðrún Sigfúsdóttir Húsavík, Kristján Framhald á 3. síðu 6/ðröð v/ð skatfheimfu- skýlicS Jk Á sunnudag var mfkll um- ferð um Keflavikurveginn í sambandi við íþróttakappleik, sem fór fram í íþróttahúsi bandaríska hersfns á Vellin- um. ★ Hin mikla bílaös olli löngnm töfum við innheimtu vega- skattsins hjá Straumi. Var þar aðeins einn maður á vakt og stöðvuðust bílamir brátt og mynduðu mikla bið- röð, sem varð um táma eánn kílómetri á lengd. ,-lrl Fróðir menn telja, að þaö hafi tekið um 25 mínútur að fá sig afgreiddan eða álíka tíma og tók að aka veginn hér áður fyrr. ★ A vaktinni frá því kl. 12 um daginn til kl. 7 um kvöldið voru ríflega 800 bílar skatt- lagðir og komu í kassann rúmlega 40 þúsxmd krónur og eru þær nú komnar í Spari- sjóð Hafnarfjarðar til vörzlxi. *■ Eftir hálfan mánuð kemst nýja skattskýlið upp og er þá ætlunin að skapa hraðari vinnubrögð, — þannig tjáði okkur maður í skýlinu í gaer. Húsnæðismál og félagsmál rædd á Dagsbrúnarfundi ■ Á fundi í Verkamanna- félaginu Dagsbrún í Lindar- bæ á sunnudaginn ræddi varaformaður félagsins, Guð- mundur J. Guðmundsson, vtarlega framkvæmd samn- inga um húsnæðismál, og rakti það sem samið var um í júnísamkomulaginu og í >amningunum í sumar í beim málum. Lagði hann á- herzlu á nauðsyn þess að allt það sem samið hefði verið um kæmi til fram- kvæmda; tryggja yrði fé- lagslega lausn húsnæðismál- anna, einna mestu hags- munamála vinnandi manna. Húsnæðismálin voru síðast á dagskrá fundarins. Fyrst voru rædd félagsmál og skýrt frá sér- samningum þeim sem gerðir hafa verið frá þvi aðalsamningarnir voru gerðir í saimar. Nú eru ekki nema tvennir sérsamning- anna eftir. Samningur við Áburð- arverksmiðjuna og er sú kjara- deila nú komin í hendur sátta- semjara og loks samningur við eigendur þungavinnuvéla, en þar standa samningsumleitanir enn yfir og var í gær haldinn lang- ur samningafundur í þeirri deilu. Kosnir voru tveir menn í upp- stillingamefnd félagsins og tveir til vara. Kosinn var "einn maðtir í kjörstjórn og einn til vara. Þá voru kosnir 17 fulltrúar og 17 til vara á þing Verkamanna- sambands Islands sem er í þann veginn að hefjast. Verða nöfnin á þeim birt í blaðinu á morgun. Eigandi málverks- ins kominn fram Happdrættismálverkið af Kjar- valssýningunni. Taktu í hom á geitinni, er nú gengið út og var afhent eiganda sínum á sunnu- daginn. Sú sem hreppt; hnoss- ið var frú Brynfríður Halldórs- dóttir. handhafi miða nr. 5810..

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.