Þjóðviljinn - 09.11.1965, Qupperneq 5
isasiif
Beizkur ósigur KR-inga í körfu-
bolta gegn sænsku meisturunum
ALVIK sigraSi KR 60-48 i frekar daufum leik
jfi faS-W ÍMÖÐVIEJmW — SIÐA g
□ 'Á sunnudag íór íram íyrri leikur í Evr-
ópukeppni meis'taraliða í körfuknattleik milli ís-
landsmeistara KR og sænsku meistaranna Alvik.
Leikurinn fór fram í íþróttahúsinu að Keflavík-
urflugvelli, og var húsið fullskipað áhorfendum.
Sýnir þetta ljóslega hve vinsældir körfuknatt-
leiksins fara stöðugt vaxandi hér á landi sem
annarsstaðar.
Gangur leiksins: KR-ingar
náðu að skora fyrstu körfuna
og var þar Einar Bollason að
vérki. Svíar jafna, en Kristinn
nær forystu á nýjan leik með
fallegri körfu. Ennþá jafna
Svíar, en fyrr en varir er
Gunnar búinn að læða einu af
sínum skemmtilegu langskot-
um í körfuna og er nú áhorf-
endum skemmt í ríkum mæli.
Þessar fyrstu mínútur leiks-
ins voru vel leiknar áf KR-inga
hálfu, þar sem Kristinn hirti
hvert frákastið á fætur öðru.
Leikurinn breytist
Staðan er orðin 11—8 KR í
vil, en þá byrjar „sorgarleik-
urinn“. KR-liðið virðist alger-
lega missa allt tempo, þeir
verða fálmandi og taugaó-
styrkir, leitast við að setja upp
ákveðna leikaðferð en þegar
hún bregst og hittnin sömu-
leiðis fer allt í handaskolum.
Hið hraða spil sem KR-ingar
eru einmitt frægir fyrir sést
ekki lengur og Svíarnir byrja
að saxa á forskotið.
Svíarnir skora 10—11 og 12
—11 og við lok hálfleiksins er
staðan orðin 26—16 Svíum í
vil, og höfðu þeir þannig skor-
að 18 stig á móti 5 stigum KR-
inga. Maður hefði nú getað
haldið, að sterkt lið eins og
KR gæti skorað meira en 16
stig í einum hálfleik, en ein-
hvern veginn tókst það nú
ekki. Aðalorsök þess held ég
að hafi verið taugaóstyrikur
leikmanna og var sem enginn
þyrði að skjóta nema með
hálfum huga og urðu skottil-
raunirnar þar af leiðandi mjög
fálmkenndar og hikandi. Var
þetta sérstaklega áberandi hjá
Gunnari, sem annars er mjög
góð skytta og stökkskot frá
Guttormj sáust ekki ; öllum
hálfleiknum.
Af Svíanna hálfu var Örjan
Sviden áberandi beztur enda
þrautreyndur landsliðsmaður
með um það bil 30 landsleiki
að baki. Hafði hann frábæran
stökkkraft, jafnvígur á vinstri
og hægrj handar sveifLuskot á-
gætur í stökkskotum, en mest
bar þó á sérstakri lagni hans
við að blaka knettinum í körf-
una í fráköstum. Skoraði hann
8—10 stig á þennan hátt í
leiknum. Réði Kristinn mið-
herji ekkert við hann enda
hefur varnarleikurinn verið hin
veika hlið Kristins, enda þótt
hann hafi sýnt talsverðar
framfarir á því svið frá því í
fyrra.
Síðari hálfleikur
í seinni hálfleiknum byrj-
uðu KR-ingar töluvert ákveðn-
ari og minnkaði forskotið nið-
ur í sjö stig, og um miðjan
hálfleikinn skildu aðeins 5 stig
á milli, og er 6 mínútur voru ^
til leiksloka var munurinn 6
stig. Hjörtur Hansson hafði nú
komið inná og var jákvæður
að því leyti, að hann var ó-
ragur við að skjóta, enda þótt
hann hefði mátt hitta eilítið
betur. Spenningur var all-
miklu meiri í þessum hálfleik
en í hinum fyrri, og var hann
mun betur leikinn af hálfu
KR-inga þótt manni virtist
alltaf sem eitthvað vantaði
upp á. Einar Bollason var
drýgstur við að skora og einn-
ig skoraði Gunnar tvær körfur
úr langskotum. Er 5 mínútur
voru til leiksloka varKolbeinn
rekinn út af fyrir 5 villur og
skömmu síðar Kristinn. Fengu
þeir á sig nokkrar óþarfa vill-
ur, og áttuðu sig ekki á því
að dómarar á meginlandinu
dæma töluvert öðruvísi en ís-
lenzkir kollegar þeirra. Stækk-
uðu Svíar þá bilið enn meir
og lyktaði leiknum með 60—
48. Sanngjarn sigur, en eilítið
beizkur fyrir KR-inga, þar
sem maður veit að þeir geta
gert allmiklu betur en þeir
sýndu á sunnudag.
Liðin:
í sænska liðinu bar Sviden,
höfuð og herðar yfir aðra leik-
menn liðsins og var hann
jafnframt bezti maður á vell-
inum og skoraði 28 stig. Not-
aði hann stökkkraft sinn mjög
vel, því enda þótt hann sé
svipaður á hæð og bæði Einar
og Kristinn var hann oftast
með lófann fyrir ofan þá í
fráköstum. Af öðrum má nefna
Grönlund. sem skoraði 10 stig
og bræðurna Egon og Kaj
Hakanson sem eru mjög leik-
andi leikmenn.
KR-liðið var eins og fýrr
segir allt í molum. hratt spil
sást ekki í fyrri hálfleik og
körfuskot voru óvenjulega
fálmkennd og ónákvæm. Einar
Bollason var stigahæstur með
19 stig, en virtist ekki hafa
eins mikla hittni og oft áður,
t.d. í vítaköstum. Gæti manni
virzt sem KR-ingar hefðu lagt
of mikla áherzlu á kerfisbund-
inn leik á æfingum en van-
rækt að halda hittninni við.
Gunnar Gunnarsson var næst-
stigahæstur með 8 stig. Hann
átti þokkalegan seinni hálf-
leik, en var afleitur í þeim
fyrri. Kristinn byrjaði vel
bæði í sókn og vörn, en „týnd-
ist“ næstum alveg þegar á
leið leiknn. Hann verður að
gæta Sviden miklu betur um
næstu helgi, því ef það tekst
að halda honum í 10—15 stig-
um, þá er leikurinn unninn.
Kolbeinn hefur löngum átt
betri leiki og Guttormur
reyndi aldrei körfuskot af færi
en reyndi hinsvegar örfá
gegnumbrot, sem mistókust ut-
an eitt. Hjörtur var sá eini
sem skilaði sínu og var hann
óragur við að skjóta og harð-
ur í fráköstum. Jón Otti kom
inn á síðustu mínúturnar og
stóð vel fyrir sínu þennan
stutta tíma.
Nú halda KR-ingar utan og
spila við Alvik n.k. laugardag.
Er ég í engum vafa um það,
að þeir geti sigrað Svíana, því
að í næsta leik ætti tauga-
óstyrkurinn að vera farinn úr
þeim og þeir hafa allt að
vinna. Sem sagt, KR-ingar
geta vel unnið næsta leik ef
þeir leika með venjulegum
styrkleika, en ósagt skal látið
með hvað miklum mun. Þeir
þurfa að vinna með 13 stigum
til þess að halda áfram í
ke’ppninni, og fá þá rétt til
þess að spila við sjálfa Ev-
rópumeistarana Real Madrid.
Enskur og belgískur dómari
dæmdu leikinn af festu, en
riokkurs misræmis virðist gæta
í túlkun þeirra og íslenzkra
dómara um það hve strangt
skuli dæma skref og villur.
Tvær fyrstu skákirnar
Tal og Spasskí jafn-
ir eftír 3 skákir
Mikla athygli skákunnenda
vekur um þessar mundir ein-
vígi stórmeistaranna Boris
Spasskí og Mikhaíls Tals, sem
nú fer fram í Tblísi. Þjóðvilj-
inn mun leitast við að gefa
lesendum sínum tækifæri til
að kynna sér skákir einvígis-
ins jafnóðum og þær berast.
FYRSTA SKÁK
Hvítt: Tal. — Svart: Spasskí.
SPÆNSK VÖRN
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6
KR-ingar eru med knöttinn, Sviamir verjast. — (Ljósm. Bjarnleifur Bjarnleifsson)
4. Ba4 Rf6 5. 0—0 Be7 6. Hel
b5 7. Bb3 0—0 8. c3 d5 9. exd
Rxd5 10. Rxe5 Rxe5 11. Hxe5
c6 12. d4 Bd6 13. Hel Dh4 14.
g3 Dh3 15. Be3 Bg4 16. Dd3 Hae8
17. Rd2 He6 18. a4 Dh5 19. axb
axb 20. e4 bxc 21. Rxc4 Bb4 22.
Hecl Be2 '23. Bdl Dxh2f 24.
Kxh2 Bxd3 25. Re5 Bb5 26.
Bb3 Hd8 27. Ha7 f6 28. Rxc6
Bxc6 29. Ha6 Kf8 30. Haxe6
Hxc6 31. Hxc6 Rxe3 32. fxe
Bd2 33. Bc4 Bxc3 34. d5 Bd2
35. Hb6 Ke7 36. He6f Kf8 37.
g4 — Eftir fimm mínútna um-
hugsun bauð svartur jafntefli,
sem hvítur þáði.
ÖNNUR SKÁK
Hvítt: Spasskí. — Svart: Tal.
SIKILEYJARVÖRN
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd
4. Rxd4 a6 5. Rc3 Dc7 6. Bd3
Rc6 7. Be3 Rf8 8. 0—0 b5 9.
Rb3 Be7 10. f4 d6 11. Df3 0—0
12. a4 b4 13. Re2 e5 14. f5 d5
15. Rg3 Ra5 16. exd Bb7 17.
Re4 Rc4 18.Bg5 Rxb2 19. d6
Dxd6 20. Rxd6 Bxf3 21. Hxf3
Bxd6 22. Bxf6 gxf 23. Be4
Hac8 24. a5 Bb8 25. g3 Hfd8
26. Hel Ba7f Kg2 Hd6 28 Hffl
Rc4 29. Kh3 Re3 30. Hf3 Rxc2
31. Hcl Hc4 32. Hd3 Bd4 33.
Hxc2 Hxc2 34. Hxd4 exd '35.
Bxc2 d3 36. Bdl Hd5 37. Kg4
He5 38. Kf4 He2 39. h4 h5 40.
Rc5 Hel. — Hér fór skákin í
bið, en morguninn eftir játaði
Spasskí sig sigraðan. Eftir
aðra skák stóðu því leikar 1,5
gegn 0,5 vinn. Tal í vil.
1 þriðju skák, sem tefld var
á laugardag. hafði Tal náð
betri stöðu, en lék gróflega af
sér í 38. leik og játaði sig
sigraðan skömmu síðar. Stór-
meistararnir eru því jafnir
eftir þrjár skákir.
Þaraa eru Svíamir ágengir við körfu KR-inga.
Hörplötur — Spónaplötur
Nýkotmðb
HörplötuE: 8" * —• 16—
1® —20—- 22-— 25 «rm,
Spóuaplötur; 12—s
1«—22
V ÖRU AFGREIÐSL A
VH> SHELLVEG.
SÍMI 24459.
Gaboon; 16—ie—«22
—» 25 mm.
Palex; 15-—18—»2|' man,
Harðtex; 1/8”.
Trtétéx 1/2”.
Hestamenn — Kópavogur
Stofnfundur hestamannafélags í Kópavogi
verður haldinn í félagsheimilí Kópavogs firrantu-
daginn 11. þ.m. kl. 20,30.
Þeir sem áhuga hafa á að gerast félagar eru hvatt-
ir til að mæta.
Undirbúningsnefnd.
Starfsstú/kur
óskast að Vistheimilinu Arnarholti. — Upp-
lýsingar að Amarhol'ti í síma um Brúar-
land.
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur.
«
í