Þjóðviljinn - 03.02.1966, Side 3

Þjóðviljinn - 03.02.1966, Side 3
Fimmtudagur 3. febrúar 1966 — ÞJÓÐVIUINN SfÐA 3 De GauIIe forseti: Loftárásir USA á Norður-Vietnam spilla fyrir málstað friðarins PARÍS 2/2 — De Gaulle Frakklandsforseti lýsti því yfir í dag að hann harmaði að Bandaríkjamenn skyldu hafa tekið upp aftur loftárásir sínar á Norður-Vietnam ,og kvað þá ákvörðun Johnsons forseta hafa spillt friðarhorfum. 1 yfirlýsingu sem gefin var út eftir ráðuneytisfund í París í dag og undirrituð var af forset- anum sjálfum var sagt að loft- árásirnar á Norður-Vietnam væru þrándur í götu friðarum- leitana í Vietnam-málinu, auk þeirra hörmunga sem þær leiddu yfir vietnömsku þjóðina. Franska stjómin teldi enn sem áður að Sameinuðu þjóðimarséu ekki rétti vettvangurinn fyrir viðræður um Vietnam, þar sem Kína ætti þar ekki sæti. Viet- nam-málið mætti aðeins leysa á grundvelli Genfarsamninganna frá 1954 um Indókína og af þeim ríkisstjómum sem hefðu haft að- ild að þeim. Enn segir í yfirlýsingu frönsku stjómarinnar að Frakkar séu reiðubúnir að leggja sig alla fram til þess að koma á við- ræðum deiluaðila. Þetta er í fyrsta sinn í langair tíma sem franska stjórnin gefur út sérstaka yfirlýsingu um Viet- nam-málið en greinilegt er að de Gaulle forseti hefur samið hana sjálfur. Fulltrúa hans í'ör- yggisráði SÞ, Seydoux, hafði verið falið að lýsa andstöðu Vígstaðan i Vietnam Frakka við stefnu Bandaríkj- anna, en það þykir sæta tíðind- um að de Gaulle sjálfur lýsi svo afdráttarlaust yfir sinni and- stöðu við hana. Á dagskrá Öryggisráðið sem í gær hafði hlýtt á fuiltrúa Sovétríkjanna og Frakklands lýsa andstöðu sinni við það að Vietnam-málið yrði tekið á dagskrá samþykkti í dag að orðið skyldi við tilmælum Bandaríkjanna um það. Þar sem um var að ræða dagskráratriði gilti ekki neitunarvald stórveld- anna og tilmælin voru þvi sam- þykkt gegn atkvæðum fulltrúa Sovétríkjanna og Búlgaríu, en fulltrúar Frakklands og afrísku lýðveldanna Mali, Nígeríu og Ugandi sátu hjá. Bandaríkjun- um fylgdu að málum fulltrúar Formósustjómar, Bretlands, Hol- lands, Japans, Nýja-Sjálands, Argentínu, Uruguay og Jórdans. Örari hagvöxtnr í Sðvétríkjunum MOSKVA 2/2 Iðnaðarframleiðsla Sovétríkjanna jókst meir í fyrra en á síðustu þrem árum þar á undan, en aukning þjóðarfram- leiðslunnar ekki að sama skapi, vegna slæmrar landbúnaðarupp- skera. Hagstofa ríkisins segir, að sov- ézk iðnaðarframleiðsla hafi auk- izt um fimm af hundraði um- fram það sem gert var ráð fyr- ir í sjö ára áætlunarinnar, sem lauk um síðustu áramót. í fyrra óx iðnaðarframleiðslan um 8,6% en um 7;1 % árið 1964. En í land- búnaði nam framleiðsluaukning- in aðeins 1% (en 12% árið 1964) I og er svo lélegur árangur út- i skýrður með þvi, að alvarlegir þurrkar í austurhéruðum lands- ins hefðu spillt mjög kornfram- leiðslunni. Sæimlir frönskum heiðursmerkjum Þjóðviljanum hefur borizt eft- irfarandi fréttatilkynning frá franska sendiráðinu: Ríkisstjórn Frakklands hefur sæmt Þorbjöm Sigurgeirsson prófessor franska heiðursmerk- inu Croix d’Officier de la Légion d’Honneur, Níels P. Sigurðsson, deildarstjóra í Utanríkisráðu- neytinu heiðursmerkinu Croix d’Officier du Mérite, Einar Oddsson, sýslumann í Vík i Mýr- dal og dr. Ágúst Valfells fyrr- verandi forstöðumann Almanna- varna heiðursmerkinu Croix de Chevalier du Mérite í viður- kenningarskyni fyrir veitta að- stoð við vísindatilraunir, sem franska Geimrannsóknastofnun- in vann að á Islandi árið 1964. Blaðad reif ing Unglingar óskast til blaðburðar í eftirtalin hverfi: Óðinsgata — Laufásvegur — Hverfisgata efri — Skipholt — Múlahverfi — Soga- mýri — Heiðargerði. ÞJÓÐVILJINN sími 17-500. Tónlistarskóli Hafnarfjarðar Kortið sem er af Suður-Vietnam sýnir þau héruð sem voru á valdl Þjóðfrelsisfylkingarinnar * ágúst s.I. (grár litur), eða þar sem skæruliðar hennar réðu (hvítt), en svarti liturinn sýnir þau héruð sem Saigonstjómin réð yfir. Til samanburðar er kort af vigstöðunnj 1961. Halldór Haraldsson heldur píanótónleíka í Bæjar- bíói, Hafnarfirði föstudaginn 4. febrúar. Verkefni eftir: Beethoven, Schumann, Bartok, Ravel og List. ^Tónleikamir hefjast kl. 7 síðdegis. Aðgöngumiðar á staðnum. Mótmæli á Times-torgi NEW YORK 2/2 — Á aðal- torgi Manhattan í New York urðu í gær hörð átök milli lögreglu og fólks sem vildi mótmæla loftárásunum á N- Vietnam. Mótmaalendur sem skiptu hundraðum settustnið- ur á göturnar sem fram hjá torginu liggja og stöðvuðu umferðina Snjóbomsur Skóhlífar Kvenbomsur * Gúmmískór með hvítum sóla. * Gúmmístígvél á konur, karlmenn og börn. VORUTRYGGINGAR HEIMIR TRYGGIR VORUR UM ALLAN HEIM TRYGGINGAFÉLAGIÐ HEIMIRE LINDARGÖTU 9 • REYKJAVHC • StMI 22122 — 21260 Getum bætt við nokkrum NEMUM í plötusmíði og rennismíði. Þeir sem heíðu áhuga á námi, vinsamlega snúi sér til yfir- verkstjóra. LANDSSMIÐJAN Útsala • Utsala • Utsala • Utsala Stórkosfleg verÓlœkkun á karlmanna- fötum, sfökum }ökkum og herraföfum Gefjun - löunn, Kirkjustræti

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.