Þjóðviljinn - 03.02.1966, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 03.02.1966, Qupperneq 10
Reykjavíkurbréfið var bág lesning Enginn Reykjavskurbótur leggur línu í sjó Eldspýturnar komnar aftur Að undanfömu hefur nokkuð borið á skorti á eldspýtum í verzlunmn borgarinnar, en þær eru nú aftur komnar á markað- inn. ÞjóSviliinn átti í gær tal við starfsmann Tóbakseinkasöl- unnar og sagði hann blaðinnj að dráttur hefði orðið á af- greiðslu eldspýtnanna erlendis fráj þannig að sending sem koma átti í desember kom ekki fyrr en eftir miðjan janúar og af þvi stöfuðu vandræðin. Skýrsla slökkvistöðv- arínnar um starfíð 1965 Slökkvistöðin í Reykjavík hef- ur sent frá sér skýrslu um út- köll og eldsvoða í Reykjavík ár- ið 1965 og kemur þar fram, að alls hefur verið kallað á Slökkvi Iiðið 534 sinnum á árinu. Oftast var það kvatt út í janúar og í desember, yfir 60 sinnum og rólegast hefur verið í september- mánuði, 27 kvaðningar. I Reykjavík sjálfri voru kvaðningar 487, en auk þess var kallað á slökkviliðið 31 sinni til Kópavogs, 11 sinnum á Seltjam- ames, tvisvar í Garðahrepp og í Mosfellshrepp, Kja'lames hrepp og Kjósarhrepp einu sinni á hvem stað. Um eld var að ræða i 367 skipti, en 167 kvaðningar voru án elds, var þá oftast' um grun að ræða en auk þes® var slökkviliðið narrað 57 sinnum — innan Reykjavíkur. Mikið tjón af eldi varð fimm sinnum, þrisvar í Reykjavík, einu sinni í Kópavogi og einu sinni í Garðahreppi. Talsvert tjón telst hafa orðið 43 sinnum bar af 35 sinnum í Reykjavík, fjórum sinnum í Kópavogi og einu sinni á hverjum, hinna stað- anna nema í Garðahreppi. Lítið tjón varð 159 sinnum og ekkert 160 sinnum. Oftast var um eld i íbúðarhús- um að ræða eða 93 sinnum, því næst í útihúsum, vertostæðum og bifreiðum. Fimmtán sinnum kviknaði í um borð í skipum. Orsök eldsvoða er langsamlega oftast talin íkveikja, en algeng orsök er einnig íkviknun út frá rafmagnstækjum, olfúkynditækj- um og eldfærum. Ókunnugt er um orsök eldsvoða í 72 skipti, Síminn hefur mest verið not- aður til að lcalla á slökkviliðið, 454 sinnum eu brunaboðar 72 sinnum og átta sinnum hafa sendiboðar kallað. Sjúkra- og slysaflutningar urðu 7202 á árinu þar af 176 ut- anbæjar. Um slys var að ræða I ! ! ! ! * ! ! Engínn reykvískur bátur getur stundað línuvcrtíð f vetur af þeirri einföldn á- stæðu, að við getum ekki haldið bátunum úti vegna reksturskostnaðar í verðbólg- unni, — sjómenn vilja heldur ekki ráða sig á bátana vegna þeirra fyrirsjáanlegu kjara, sem nýja fiskverðið frá ára- mótunum skammtar þeim, sagði Andrés Finnbogason, formaður tJtvegsmannafélags Reykjavíkwr í viðtali við Þjóðviljann í gær. Hér í Reykjavík eru fjöru- tíu til fimmtíu bátar til staðar og bíða þeir flestir eftir netavertíö og hugsa sér að skrimta á þeim veiðum. Hvemig útkoman verður í vor er kvíðvænlegt og lenda flestir undir hamrinum hjá borgarfógeta og þá er slíkri útgerð lokið- hér í Reykja- vík. I fyrravetur stunduðu hér í Reykjavík nálægt sextíu bát- ar fiskveiðar og var hluti af þeirri tölu aðkomubátar, — og núna í vetur halda fisk- salar hér i bænum út ein- um eða tveimur bátum á línu- veiðar ,til þess að veiða í soð- ið fyrir borgarbúa, en mörg fiskiðjuver hér í borginni eru að dragast upp á verk- efnaskorti. Hér er fyrst og ffemst um heimatilbúin vandræði að ræða og eru beinlínis sök stjómarvalda, — mér er ó- mögulegt að fela það sem gamall Sjálfstæðismaður og tryggur þeim stjómmálaflokki í áravís. Ég hef áður sagt á þessa leið. Það hefur verið sagt að fálkinn skildi ekki skyldleika sinn við rjúpuna fyrr en hann kæmi að hjartanu. Svipað virðist hafa skeð hjá þeim, sem við stýri þjóðarskútunn- ar hafa setið og hyggjast farga fjárfestingunni í sjávar- útveginum á altari hernáms- framkvæmda í Hvalfirði og leyfa erlenda fjárfestingu i alúmínverksmiðju við Straum. Hörmulegast er að horfa upp á þessa hálfvirku nýtingu á atvinnutækjunum og láta þau veslast upp af fjárskorti eins og nú er að gerast. Ég vil gjarnan spyrja Jón- as Haralz, hagfræðing um þá hagfræðilegu lausn á málun- um, sem felst í fiskverðinu frá áramótunum fyrir þjóð- arbúið, — er rétt að spara til Andrés Finnbogason dæmis eina krónu og fleygja tíu krónum í staðinn eins og raunin verður á þess- ari ýertíð, — skammta fisk- verðið al'lt of lágt og láta fjárfestinguna í bátum og fiskiðjuverum gufa upp af verkefnaskorti. Nei, — hér er verið að drepa íslenzkt framtak í höf- uðatvinnuvegi, — er ætlunin að gerast þrælar erlendrar fjárfestingar, — það eru hörmuleg endalok. Það var bágt að lesa Reykjavíkurbréf Morgunblaðs- ins síðastliðinn sunnudag fyr- ir reykvískan útgerðarmann og sjá þá uppgjöf á fram- taki í sjávarútveginum, sem skein út úr þeim skrifum. í 563 skipti. Sjúkra- og slysa- flutningar skiptast nokkuð jafnt á mánuðina, en urðu þó mestir í desember. „Tíu litlir negrastrákar" Laus hverfí Óðinsgata Eaufásvegur Hverfisgata cfri Skipholt Múlahverfi Sog3,mýri Heiðargerði. Þjóðviljinn sími 17500 Sýnir í kvöld í Kópavogi cnzar Jónssonar, en hann sctti ; tvær kvikmyndir verið gerðar einnig á svið leikritið Músagildr- eftir þessu leikriti og var önn- una eftir sama höfund, scm ur þeirra sýnd hér fyrir mörg- Leikfclag Kópavogs sýndi fyr- um árum en sú nýrri verður ir nokkrum árum. í kvöld frumsýnir Leikfclag Kópavogs leikritið Tíu litlir negrastrákar eftir Agötu Christ- ie, hafa æfingar staðið yfir undanfarið undir stjórn Kiem- Kviknaði í skóla Hjálpræðishersins Eldur kom upp í einu her- bergi í skólahúsnæði Hjálpræð- ishersins úti á Seltjarnamesi og tókst að ráða niðurlögum elds- ins fljótt og vel. Skólastúlkumar voru ennþá á ferli og samankomnar uppi á annarri hæð hússins og reynd- ust stilltar og hægar meðan eld- urinn var slökktur. Leikrit þetta er að sjálfsögðu sakamálaleikrit og er mjög spennandi. Þýðinguna hefur Hild- ur Kalman leikkona gert en leiktjöld gerði Gunnar Bjarna- son. Leikendur eru ellefu að tölu, allir úr Kópavogi nema tveir, og koma þarna fram all- ir helztu kraftar Leikfélag-; Kópa- vogs. Eins og nafnið bendir til er hið gamalkunna kvæði um negra- strákana 10 mottó leiksins og eins og negrastrákarnir týna persónur leikfins smám saman tölunni á dularfullan hátt. Hafa synd hér síðar í vetur. Myndin var tekin á æfingu og sjást á henni Magnús Krist- insson, Leifur Ivarsson og Guð- mundur Gíslason í hlutverkum sínum. Skákþing Reykja- víkur að hefjast 'Skákþing Reykjavíkur hefst á sunnudaginn kemur klukkan tvö að Freyjugötu 27. Innritun þátt- fcakenda fer fram á sama stað klukkan átta í kvöld fimmtudag. Fknmtudagur 3. febrúar 1966 — 31. árgangur — 27. tölublað. Hósnsæiur þreyttnr ó knrtöflusmælkínu Húsmæður kvarta sáran undan kartöflusmælkinu, sem er það eina, sem nú fæst í verzlunum borgarinnar. Þetta eru II, flokks kartöflur og ekki annað að fá. Er þetta mjög til trafala við matrciðsluna, ekki sízt á niann- mörgum heimilum, og fyrstu kartöflurnar úr pottinum löngu orðnar kaldar þegar loks er Iok- ið við að afhýða þær seinustu. Þjóðviljinn átti í gær smávegis tal um þetta vandamál við for- stjóra Grænmetisverzlunar rík- isins og staðfesti hann, að ekki væri nú annað á boðstólum en þessar annars flokks kartöflur. Kvað hann ástæðuna fyrst og fremst vera þá, að a.m.k. helm- ingur framleiðslunnar á Islandi næði ekki þeirri stærð sem kraf- izt er fyrir I. flokk, en þessar kartöflur væru samt ta'ldar of góðar til að henda þeim og þar því settar í II. flokk. Minnsta stærð sem krafizt er í fyrsta fl. er 35 mm í þvermál. Grænmetisverzl. hefur fengið framleiðendur til að hafa I. fl. kartöflur á boðstólum fram yfir hátíðar, en nú sitja þeir eftir með II. flokks birgðirnar og komast ekki að því, sem eftir er af I. flokks kartöflum í geymsl- unum fyrr en búið er að flytja hinar burt. Þessar II. flokks kartöflur eru í sjálfu sér jafngóðar til matar, en svo miklu munar á vinnunni við matreiðsluna, að verðmunur er á. Nú munar ekki meiru á flokkunum en rúmri krónu á kílóið. Hugga má þó þreyttar hús- mæður með því, að von er á I. flokks kartöflum aftur eftir næstu helgi. Þær áttu að koma á markaðinn fyrir helgina, en vegna óveðursins og slæmrar færðar tefst flutningurinn. Nóg til af kartöflum og öðr- um jarðávöxtum Nóg er nú til af íslenzkum kartöflum fyrir veturinn og al- veg fram í júní, ef ekkert ó- vænt kemur fyrir svo þær skemmist. Övenju mikiar þirgðir er til af rófum þetta árið, en ís- lenzkar gulrætur eru um það bil á þrotum. Verða erlendar gul- rætur sennilega fluttar inn bráðlega, en dálitlir erfiðleikar eru á innflutningi grænmetis um þessar mundir vegna gin- og klaufaveikinnar og innílutn- ingurinn bundinn við viss lönd. íslenzkt hvítkál er nú uppur- ið, en ágætis kál hollenzkt kom- ið í staðinn. Sama er að segja um rauðkál. Þá er til nóg af rauðrófum og lauki. Fiskiþing, hii 28. i roðinm er nafið 1 fyrradag var 28. Fiskiþing sett í byggingu Rannsóknastofn- ana sjávarútvegsins við Skúla- götu. Tii þingsins hafði verið boðað s.l. laugardag, cn vegna samgönguerfiðlcika voru marg- ir fulltrúanna þá ekki komnir til þings og var því setningu þingsins frcstað þar til á þriðju- dag. Davíð Ólafsson, fiskimálastjóri setti þingið með stuttri ræðu og bauð fu'Htrúa velkomna teil þings. Minntist hann tveggja fyrrv. fiskiþingsfulltrúa, sem höfðu látizt frá því þingið sat síðast, þeirra Helga Pálssonar frá Ak- ureyri og Haraldar Guðmunds- sonar frá Isafirði. Ennfremur minntist fiskimálastj. sjómanna, sem látizt höfðu við skyldustörf- in á hafinu á þessu tímabili en þeir eru 49 að tölu. Risu þing- fulltrúar úr sætum sínum í virð- ingu við hina látnu. 1 setningarræðu sinni vakti fiskimálastjóri athygli á ýmsum málum sem fyrir þinginu lægju og snertu hagsmuni sjávarútvegs- ins á einn eða annan hátt, en lagði jafnframt áherzlu nauð- syn þess, að kröftunum yrði einbeitt að þeim málum, sem telja mætti að hefðu grundvall- arþýðingu, ekki aðeins á líðandi stund eða í næstu framtíð held- ur um alla tíð. I þeim flokki mála taldi hann fyrst og fremst vera allt það, sem snertir sjálfa fiskistofnana, viðgang þeirra og viðhald, og þá einnig nýtingu þeirra. Vissulega væri ánægjulegt að sjá hversu fiskaflinn hefði auk- izt ár frá ári og sýndi það eitt með öðru hugkvæmni og dugnað íslenzkra fiskimanna. En á þess- ari þróun væri líka önnur hlið, sem gefa yrði gætur en það væri sú staðreynd að þorskafl- inn f.æri ekki vaxandi heldur hefði hann minnkað á s.l. ári og jafnvel þótt síldveiðin sé betri en nokkru sinni fyrr væri ekki hyggilegt að loka augunum fyrir því að þar gætu einnig orðið breytingar. Sú ábyrgð hvíldi á okkur, sagði fiskimálastjóri, að ekkert það væri gert af okkar hálfu, sem teljast msetti til tjóns fyrir fiskistofnana, að við ekki hagnýtum þá þannig í dag, að verði til tjóns fyrir framtíðinu, en einnig sú skylda að hagnýta, á skynsamlegan hátt þau auð- æfi, sem hafið umhverfis landið hefur upp á að bjóða þannig, að ti'l sem mests gagns verði fyrir sem flesta. Fundir í gær Á fundi Fiskiþings í gær fóru fram kosningar fundastjóra og fundaritara og varamanna þeirra. Fundarstjóri var kjörinn Níels Ingvarsson frá Neskaupstað og varafundarstjóri Einar Guðfinns- son frá Bolungarvík. Fundarritari var kjörinn Margeir Jónsson frá Keflavík og varafundarritari Hólmsteinn Helgason frá Rauf- arhötn. Síðan flutti fiskimálastjóri skýrslu sína. Að loknu hádegis- hléi flutti Jón Jónsson forstöðu- maður Hafrannsóknastofnunar- innar mjög ýtarlegt og fróðlegt erindi um fiskistofnana og nýt- ingu þeirra. Þá voru lagðir fram reikningar Fiskifélagsins og fjár- hagsáætlun fyrir árið 1966. Fundur var boðaður á ný kl. 10 í dag, fimmtud. 3 febrúar.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.