Þjóðviljinn - 08.03.1966, Síða 7

Þjóðviljinn - 08.03.1966, Síða 7
Þriðjudagur 8. marz 1966 — ÞJÓÐVTLJINN — SlÐA 'J Stöðnun i heilsuverndarmálunum í Reykjavfk 1 . * ,jj Heílbrigðismál er sá mála- flokkur, sem Alfreð Gíslason læknir, borgarfulltrúi Alþýðu- bandalagsins, hefur ekki hvað sízt látið til sín taka í borgar- stjóm Reykjavíkur á undan- förnum árum og tíu sinnum að minnsta kosti hefur hann vakið athygli á nauðsyn auk- innar heilsuverndar 1 borginni og flutt tillögur í þá átt. Á síð- asta borgarstjórnarfundi, síðast- liðinn fimmtudag, bar Alfreð enn fram tillögu um heilsu- vernd aldraðs fólks, svo sem getið hefur verið áður í fréttum blaðsins. Eins og jafnan áður sner- ist íhaldsmeirihlutinn gegn þessari rökstuddu til- lögu og samþykkti eftir nokkrar umræður að vísa tillögu Alfreðs frá með 9 atkvæðum gegn 6 atkvæðum minnihlutaflokkanna. Alfreð Gislason fylgdi tillögu sinni úr hlaði með ítarlegri ræðu. Þylcir Þjóðviljanum rétt að birta meginhluta framsögurœðunnar, svo að les- endur — borgarbúar — geti betur glöggvað sig á mikilvœgi pessa máls; um leið œtti mönnum að vera Ijósari en áður furðuleg afstaða stjórnenda heilsuverndarstöðvarinnar og borgarstjórnarmeiri- hlutans til framkominna og margítrékaðra til- lagna um bœtta heilsuvernd í borginni. Eftil Alfreð Gíslason Heilsu vernd a r stöð Reykja- víkur er til húsa i veglegri byggingu eins og sæmir hlu-t- verki hennar. Heilsuvernd er vaxandi þáttur í heilbrigðis- þjónustunni Qg verðskuldar þar æðsta sess. Bjartsýnir menn litu á það sem tímanna tákn að fyrsta heilbiigðisatofnunin, sem Reykjavíkurbær byggði sóma- s-amlega yfir. skyldi einmitt vera heilsuverndarstöð. Hinir vísu feður bæjarins horfa fram á veginn, sögðu þeir, megin- áherzluna ætla þeir ag leggja á það að varðveita heilbrigði bæjarbúa og forða þeim þann- ig frá sjúkrahúsum. Alger stöðnun Þeg-ar heilsuvemdarstöðin tók til starfa,' fengu þar inni nokkrar heilsuverndargreinar. sem áður voru ræktar í bæn- um við lélegan húsakost. En þáð átti aðeinlS að vera byrj- unin. Nýjum greinum skyldi bæfct við og starfsemin aukin, enda var húsnæðið ríflegt. Þessa væntu þeir, sem hinni nýj-u stofnun vildu vel. en reynðin var því miður önnur. Rúmur áratugur er liðinn og allt hjakkar enn að heita má i sarna farinu. Heilsuvemdar- starfið heíuir sáralítið auk- izt, en húsnæði stöðvarinnar veríð ráðstafað til annarra þarfa í stórum stíl. Stöðnun er ' það, sem einkennir sögu herinár til þessa. Þessi raunalega þróun er ýmsum orðin áhyggjuefni og menn sjá fram á, að við svo búið má ekki standa. Fyrir nokkrum árum hófst félag á- hugaraanna handa um kerfis- bundna krabbameinsleit, og nú ráðgerir ann-að félag ap taka hjartasjúkdómavarnir á sína arma. Að óbreyftu ástandi. í heilsuvemdarstöðinni myndast vafalaust fleiri hópar um heilsuvemd á næstu árum. Verkefnin eru nœg. Þetta vandamál stöðvarinnar hefur oft borið á góma á fund- um bongarstjómar þófct árang- ur hafi enginn orðið. Árið 1957 var þar flutt ti'llaga um athug- un á hvort ekki væri tímabært að auka starfisemi stöðvarinn- ar með viðbót nýrra heilsu- verndargreina. Tillagan fékk aldrei endanlega afgreiðslu og lenti í glatkistunni. Á hverju ári síðan hefur málið verið endurvakið í borgarstjórn og setíð án árangurs. í hvert sinn var því drepið á dreif og síð- an þagað í hel Það var í nóvember 1965 sem síðast var rætt um heilsu- vernd í borgarstjórn og þörfina á aukningu hennar. Engin and- mælti framborinni tillögu, henni var vísað til umsagn- ar stjómar heilsuverndarstöðv- arinnar °S siðan ekkj söguna meir, Þessi stjórnarnefnd hefur fylgt þeirri reglu að svara engu því, sem henni hefur bor- izt frá borgarstjórn um heilsu- vérnd. Reglan er. þó ekki án undantekningar. í marz 1964 barst borgarstj óranum bréf frá nefndinnj um skoðun hennar á heilsuverndarmálum. Þar var þess getið varðandi vissar heilsuvemdargreinar, að ýmist væru þær ekki tímabærar, of kostnaðarsamar eða ófram- kvæmanlegar ve-gna skorts á starfsliði. Á jákvæðum til- lögum um eflingu heisuvemd- ar örlaði ekki í þessu bréfi. í tíunda sinn í dag, 3. marz 1966, liggur enn eþiu sinni fyrir borgar- stjóm tiilaga um eflingu heilsu- vemdar. og er það líklega í tíunda sinn sem slí'k tillaga er flutt. Að þessu sjnni er til- lagan þannig orðuð: „Hinn 18. apríl 1963 gerði borgarstjómin samþykkt um velferðarmál aldraðs fólks og var Heilisuverndarstöð Reykjavíkur þar falið að ..kanna hvernig heilsugæzlu aldraðs fólks verði hagkvæm- ast fyrir komið“ Borgarstjóm- inni er ektki kunnugt um, að þessi könnun sé hafin enn. hvað þá að henni sé lokið. Slíkt seinlætj j framkvæmd gerðra samþykkta borgarstjómar ber að harma, ekki sízt þegar um mikilsverð . heilbriigðismál er að ræða. Borgarstjómin álítur, að við svo búið megi ekki standa og felur því borgarráði og: borgar- stjóra að hlutast til um að undirbúningur skipulagðrar heilsuverndar aldraðs fól'ks verði þegar hafin. Telur borg- arstjómin eðlilegt eftir atvi'k- um, að starfsemin byrji í smá- um stí'l með einum þætti þess- ar.ar heilsuvemdargreinar eða fáum, t.d. að fram fari hóp- sikoðanir ákveðinna aldurs- flokka í leit að algengum sjúk- dómum hinna efri ára. svo sem gláku, sykursýki og þvagfæra- kvillum, og að heilsuverndin verði síðar aukin eftir þörfum ög í samræmi við fengna reynslu. Heilsuvemd aldraðs fólks skál" féngið húsnæði í heilsu- verndarstöðinni jafnskjótt og siysavarðstofan, spitalinn og rannsóknastofan flytjast það- an, og verði að því stefnt, að hún geti hafizt eíðari Muta árs 1966“. f þessari tillögu er áherzla lögð á, að þegar sé hafizt handa um aukningu heilsu- vemdarstarfsemi. að borgarráð og borgarstjóri taki frumkvæð- ið um framkvæmd og að val- in verði sem ný grein heilsu- vernd aldraðs fólks. Er síð- astnefnda atriðið í fullu sam- ræmi við fyrmefnda samþykkt borgarstjómar. f tillögunni er gert ráð fyrir að byrj.að verði í smáum stíl og síðan aukið við. Þessi starf- semi er mikils virði, enda þótt hún fyrst í stað beinist aðeins að einum sjúkdómi eða fáum. Það’ er raunar ómétarilegt að finna sjúkdóm á byrjunarstigi, áður en af honum hefur hlot- izt teljandj tjón. Sykursýki er algeng á efri árum og sé hún lengi dulin leiðir af henni hættulega sköddun líkamsvefj- anna, ekki sízt æðakerfisins. Þvagfærabólgur eru einnig tíð- ar úr þvi að miðjum aldri er náð. Þær geta leynzt árum saman og í kyrrþey grafið und- an heilsunni, þótt greiningin sé auðveld. ef leitað er á ann- að borð. Sjúkdómar þeir, sem í til- lögunni ora nefndir, f-ara diægt af stað og knýj-a sjúklinginn alla jafna seint til læknis. Þessvegna er leit að þeim mik- ilsverð í heilsuverndars-kyni og tilkostnaður ekkj mikill. Alljr eru þeir algengir hér. þótt töl- ur vanti um s-uma þeirra. í Reykjavík má ætla að séu 800 sykursýkisjúklingar að minnsta kosti, oig um marga þeirra gildir, að þcir koma of seint ti'l læknis. Blinda er algengt böl. og tíð- asta orsök hennar er hægfara augnsjúkdómur, sem nefnjst gláka. Sk.al hún gerð lítillega að umtalsefni hér og tekin sem dæmi um gildi sjúkdómsvarna yfirleitt. Glákublindan í Svíþjóð kom það í Ijós við rannsókn, sem nýlega var gerð, að tíðni gláku eykst í réttu hlutfalli við aldurinn. Fannst hún hjá 1% manna á fimm- tugsaldri og hjá 8,7% þeirra sem orðnir vo.ru sjötugir. f Bandaríkjunum er talið, að 2% manna yfir fertugt hafi þenn- an sjúkdóm. Þar veikjast um það bil tuttugu sinnum fleiri menn af gláku en af berklum. Berklavarnir era þar í góðu lagi, en glákuvörn svo t.il engin, Erlendis er talið, að ef tæknimeðferð þessa sjúkdóms sé hafin í tæka tið, þá megi bjarga sjóninni í 80—85% tilfella. Hér á landi er glákublinda miklu tíðarj en erlendis' Árið 1940 taldi Kristján Sveinsson augnlæknir, að gláka- ætti sök á um 70 tfe bliridút'ilfelia í lánd- inu. Þá var hljðstæð hlut- fallstala 13,4% j Englandi, 11,6% í Bandaríkjunum og 4,5% í Noregi. Eitthvað mun þessj hundraðstala hafa lækk- að hér á seinustu áratuguan. en er þó enn vart undir 5.0%. Samkvæmt heilbrigðisskýrsl- um voru árið 1961 blindir menn 269 að tölu á öllu land- inu, og mun láta nærri, að 135 þeirra hafi mjsst sjónjna fyrjr það eitt að augnsjúkdómur þeirra uppgötvaðist ekki í tæka tíð. Tilefnið til varnar á þessu sviði er því ærið og til mikils að vinna frá hvaða sjónarhólj sem skoðað er. Hópskoðun fólks Erlendis er það engan veg- inn talið óvinnandi verk að hópskoða fólk í glákuvarnar- skyni. Ef vel er búið í hag- inn hvað snertir húsnæði, tæ-ki, starfslið og alla vinnutilhög- un. geta augnlæknar staðarins haft þetta með höndum. Kostn- aðurinn samkvæmt reynslu frá Bandaríkjunum, takmarkaðri að vísu, er 40—50 krónur á mann og er talinn samsvara því að hvert fundið glákutil- felli kosti rúmar 200Ö kr. Auð- vitað má spyrja, hvort þetta borgj sig eða hve mörgum krónum meig; verja til þess að firra þjóðfélagsþegn blindu. Auðvitað skiptir það máli í þjóðfélagslegu tjlliti, hvort kpstnaðurinn nær til allra yf- ir fertugt eða hvort miðað er við sextugsaldur, Fyrir rúmum áratug benti Guðmundur Björn-sson augnlæknir á það í Læknablaðinu, að möguleiki væri að lækka blindratölu til muna með skipulegri leit aA gláku á fólki yfir sextugt. Ef takmörk væru sett við það aldursskeið, ættj heildarkostn- aðurinn ekki að verða óvið- ráðanlegur. Sjónvemdin er einn liður í heilsuvernd aldraðs fólks, krabbameinsleit annar, hjarta- og æðavarnir þriðja, o.s.frv. Hún tekur til allra sjúkdóma, sem sérstaklega hrjá gamalt fólk, og markmið hennar er að afstýra Þjáningum og orku- missi eins lengi og unnt er. Hlutverk þessarar heilsuvernd- ar snertir velferð einstaklinga jafnt og þjóðfélagsheildar. Þeir fjármunir, sem til hennar er varið. koma aftur til skila í lækkuðum sjúkrakostnaði og hækkuðum vinnustundafjölda, Framhald á 2. síðu. i Drífa Viðar: i A sýningu Asgríms ! ! Myndin hér að ofan er af Höllu Fjalla-Eyvindar, elzta málverkinu á afmælissýningu Asgríms Jónssonar í Bogasal Þjóðminjasafnsins. Ekki ber fólki saman um, hvaðan landslagið er, segja sumir, að þetta sé við Þjórsá, en aðrir, að það komi ekki til mála vegna fjallsins í baksýn., — Myndin er máluð með olíulitum á pappa árið 1905. — (Ljósm. vh.). í bernsku þekkti ég bezt þín háu fjöll og bæi vötn og sólskin hlý og óttaðist þína Tungu-Stapa og tröll er tunglið leið á bakvið ský. í myndunum þínum máni kemur, fer og myrk er stöðugt vetrarnótt en næst svo bjart er allt sem augað sér, svo ört og hlýtt og streymir ótt. Ég heyri nið og gleðst í litaleik er lýsir mosaþemba stein og undrast það hve enn er hríslan keik svo áveðurs og hlífðarlaus og ein. í slíkum myndum margur þekkir, sér, mildi síns lands og þess hrjóstur og vinalegu bændabýlin hér og bláfjöll sem okkur tóku í fóstur, sanda, jökla, svörðinn grafinn örum og svimavíddir, þráðarmjóa braut, smáa menn er þeysa á þolnum mörum þekka byggð um mýri holt og laut. En þessi dumba veröld vofu og storins og veðragnýs á li'tlu blaði mun blífa þegar bein vor kennd til orms á botni grafar eiga staði. I !

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.