Þjóðviljinn - 08.03.1966, Page 12
Erlent auifélag má ekki ná tangar-
haldi á atvinnurekstri á íslandi
□ Á aðalfundi Verkamanna-^
félagsins Dagsbrúnar sem
haldinn var sl. sunnudag
var eftirfarandi samþykkt
gerð með samhljóða at-
kvæðum:
□ „Aðalfundur Verka-
mannafélagsins Dagsbrúnar
haldinn 6. marz 1966, lýsir
yfir fullum stuðningi við á-
lyktun miðstjómar Alþýðu-
sambands íslands varðandi
fyrirhugaða alúmínverk-
smiðju í Straumsvík.
□ Fundurinn skorar á alla
alþýðu að snúast einhuga
gegn því að erlent auðfélag
nái tangarhaldi á atvinnu-
rekstri á fslandi.“
TUlagan var borin fram af
stjóm Dagsbrúnar og lýsti Guð-
mundur J. Guðmundsson tillög-
unni og las jafnframt upp á-
lyktun miðstjórrlar ASl. All-
miklar umrasður urðu um málið
og tóku margir til máls. Aðeins
einn ræðumanna, Sigurjón
Bjarnason, hélt uppi andmælum
gegn tillpgunni, en fundarmönn-
um þótti einn verkamanna, Bald-
ur Bjamason, hitta naglann á
höfuðið í örstuttri ræðu er hann
flutti og fer hún hér á eftir:
„Dagsbrúnarmenn. Það hefur
löngum verið sagt, að sjávarút-
vegur og landbúnaður væru þær
burðarstoðir sem bæru uppi ís-
lenzkan þjóðarlíkama. Þess
vegna vildi ég segja í sambandi
við þetta alúmínmál, að við ætt-
um að minnast viðskipta Boge-
sens og Beinteins í Króknum í
sögu Halldórs Kiljans Laxness.
Nú segja okkur íslenzk stjórn-
arvöld, að landbúnaður og sjáv-
árútvegur séu brauðfætur, er
ekki beri uppi þennan þjóðar-
líkama, og nauðsynlegt sé að
skrúfa undir hann alúmínlöpp,
a.m.k. öðru megin, — það sé
lágmarkið.
En nú skulum við taka við-
skipti Bogesens og Beinteins í
Króknum til athugunar. Nú fór
aumingja Beinteinn að hafa aðr-
ar skoðanir en Bogesen. Hann
taldi sér skoðanir hans hættu-
legar. En þá kom í Jjós, að
Beinteinn auminginn átti ekki
löppina þegar til kom, svo að
Bogesen hann gerði sér bara lít-
ið fyrir og iét skrúfa hana und-
an honum.
Ef við ekki eigum þær lapp-
ir sem við göngum á og eigand-
inn getur skrúfað þær undan,
þegar við höfum ekki rétta
skoðun, þá erum við komnir út
á hættulega braut. Og ég held,
að þetta sé aðalatriðið í þessu
alúmínmáli, að við þurfum að
eiga þær lappir sem við göng-
um á, en eigandinn geti ekki
skrúfað þær undan þegar hon-
um sýnist svo.“
GrásJeppuveiði eins 09 guilæði á Hásuvik
HÚSAVÍK, 1/3 — Hér ætla margir að verSa ríkir á grásleppuveiði í vor og er helzt að likja
þessu við gullæði. Jafnvel fastráðnir starfsmenn taka sumarfrí sitt til veiðanna og flestar sjó-
færar fleytur eru nú dregnar fram. Mennimir á myndinni eru að huga að netum sínum. K. E. J.
Ágætur sigur lista vinstri
manna í Trésmiðafélaginu
□ Stjórnarkosningin í Tré-
smiðafélagi Reykjavíkur
varð ágætur sigur vinstri
manna í félaginu. Hlaut A-
listinn 319 atkvæði og alla
kjörna, en B-listinn fékk
183 atkvæði. Alls voru 640
á kjörskrá en 508 kusu.
Auðir seölar voru 5 og 1 ó-
gildur. Stjómin er þannig
skipuð: Jón Snorri Þorleifs-
son, formaður, Benedikt
Davíðsson varaformaður,
Sigurjón Pétursson ritari,
Páll R. Magnússon vararit-
Verkumannufíokknum brezka
er spáð yfírhurðasigri
LONDON 7/3 — Brezka íhalds-
blaðið „Daily Express“ birti í
dag niðurstöður skoðanakönnun-
ar á því hvernig kjósendur muni
ÆFH
Fimmtudaginn 10. marz
kl. 9 í Góðtemplarahúsinu
í Hafnarfirði flytur Gunn-
ar S. Magnússon listmál-
ari erindi um MYNDLIST
og sýnir skuggamyndir
máli sínu til skýringar.
ÆFH.
greiða atkvæði í þingkosningun-
um 31. marz n.k. og gefa þær
til kynna að Verkamannaflokk-
urinn muni sigra með miklum
yfirburðunV
Samkvæmt skoðanakönmminni
hefur Verkamannaflokkurinn nú
13 prósentum meira fylgi meðal
kjósenda en fhaldsflokkurinn og
haldist það hlutfall fram á kjör-
dag myndi hann fá um 200 þing-
sæta meirihluta. Meirihluti hans
nú er aðeins þrjú þingsæti.
Þessar niðurstöður koma mjög
heim við aðrar sem birtar hafa
verið að undanfömu, en á það
er þó bent að enn sáu margir
kjósendur óráðnir og geti afstaða
þeirra breytí hlutfallmu talsvert.
ari og Magnús Guðlaugsson
gjaldkeri.
í síðustu stjórnarkosningum í
Trésmiðafélagi Reykjavíkur,
1964, voru 629 á kjörskrá og 539
greiddu atkvæði. Þá hlaut A-
Jón Snorri Þorleifsson
listinn, listi vinstri manna, 316
atkvæði en B-listi 216 atkvæði.
Sjö seðlar voru auðir.
Úrslitin í kosningunum nú um
helgina eru hæsta atkvæðatala
sem vinstri menn í Trésmið.i-
félaginu hafa fengið í stjórnar-
kosningum og bilið milli list-
anna hefur heldur aldrei verið
meira en nú við slíkar kosning-
ar.
Með þessum úrslitum hafa
trésmiðirnir í Reykjavík sýnt
svo ekki verður um villzt að
þeir standa traustan vörð um
einingu félags síns, og þeir hafa
líka svarað eftirminnilega
þeirri rógsherferð sem beint var
að Jóni Snorra, formanni félags-
ins og samstarfsmönnum hans
við stjórnarstörfin á undanförn-
um arum.
40 sveitir taka
þátt í Skák-
keppni stofnana
í gærkvöld hófst Skákkeppni
stofnana að Hótel Sögu, súlna-
salnum, og taka að þessu sinni
þátt í henni 40 sveitir og er
þeim skipt í tvo flokka. Verða
tefldar 6 umferðir í hvorum
flokki eftir Monradkerfi og eru
tefldar tvær umferðir á hverju
kvöldi. Er þetta nýtt fyrirkomu-
lag á keppninni en hún er nú
háð í sjöunda sinn og hefur
þátttaka jafnan verið mjög mik-
il. Er þetta fjöhnennasta skák-
mót sem haldið er hér á landi,
t.d. eru keppendur í mótinu nú
160 að tölu auk varamanna, sem
munu vera fast að því jafn-
margir. Skákstjóri er Gísli Pét-
ursson.
Hafnarverkfall
HELSINKI 7/3 — Vinna lá nær
' alveg niðri í dag í öllum höfn-
um í Finnlandi vegna verkfalls.
Það eru um 600 verkstjórar sem
eru í verkfalli, en almennir
verkamenn lögðu einnig flestir
! niður vinnu. 68 skip bíða ferm-
ingar eða affermingar vegna
verkfallsins, 22 í Helsinki, 16 í
Kotka, 6 í Hangö, 1 í Raumo og
' 23 í Abo.
Þriðjudagur 8. marz 1966 — 31. árgangur — 55. tölublað.
Útsvör á Húsavík
rúmar 9 milj. kr.
Bæjarstjórn Húsavíkur sam-
þykkti á fundi sínum 2. marz
sl. fjárhagsáætlun bæjarsjóðs
fyrir árið 1966. Niðurstöðutölur
á greiðsluyfirliti eru kr. 16 milj.
940 þús. sem er 14% hækkun frá
í fyrra.
Útsvör eru áætluð 9 milj. 373
þús. kr. og hækka um 18%. Að-
stöðugjöld eru áætluð kr. 2 milj.
650 þús. og hækka um 15%. Aðr-
ar tekjur hækka um 18%.
Rekstrargjöld eru áætluð 13
miljónir 365 þús. kr. og hækka
um 2 milj. 521 þús. kr., þar af
er hækkun til verklegra fram-
kvæmda 817 þús. kr. Alls er
varið til verklegra framkvæmda
og eignaaukninga 7.6 milj. kr.
Helztu gjaldaliðir eru sem hér
segir: Félagsmál og tryggingar
kr. 3 milj. 417 þús., skóla- og
menningarmál kr. 2 milj. 212
þús., götur, ræsi; og skipulagsmál
kr. 3 milj. 571 þús., heilbrigðis-
og hreinlætismál 1 milj. 080 þús..
kr., afborganir lána og vextir
kr. 1 milj. 993 þús., eignaaukn-
ingar kr. 1 milj. 993 þús.
| Á sama fundi voru einnig af-
| greiddar fjárhagsáætlanir bæjar-
I fyrirtækja og eru ráðgerðar
i verklegar framkvæmdir á vegum
j þeirra fyrir kr. 5.7 milj. Alls eru
! því verklegar framkvæmdir á
vegum bæjarsjóðs og fyrirtækja
hans á árinu 1966 áætlaðar kr.
13.2 miljónir. — K.E.J.
INNBR0TI
ÞINGHÓL
I fyrrinótt var brotizt inn í
Féjagsheimili Æskulýðsfylkingar-
innar í Kópavogi, Þinghól. Var
þar í salnum eitthvað af kvik-
myndasýningavélum og var tek-
inn kassi með einni vél, hann
borinn út fyrir og opnaður, en
skilinn eftir fyrir utan með vél-
inni. Hefur þjófurinn sennilega
ekki haft áhuga á vélinni eða
haldið að hann gæti ekki komið
henni í peninga.
Sjáfíkjörið i stjórn Snótar
Aðalfundur Verkakvennafé-
lagsins Snótar í Vestmannaeyj-
um var haldinn 27. febrúar sl.
Stjórn félagsins var öll endur-
kjörin en hana skipa: Guðmunda
Gunnarsdóttir formaður, Vilborg
Guðmunda Gunnarsdóttir
Sigurðardóttir varaformaður,
Kristín Pétursdóttir ritari, Lóa
Sigurðardóttir gjaldkeri og Anna
Erlendsdóttir meðstjórnandi.
1 varastjórn voru kjörnar Dag-
mey Einarsdóttir, Ágústa Sveins-
dóttir og Ragna Vilhjálmsdóttir.
Endurskoðendur: Margrét Þor-
geirsdóttir og Margrét Ólafsdótt-
ir.
Hagur félagsins er góður, og
hefur verið ákveðið að fpst,a
UmræSur um þing-
mál í gærdag
Gísli Guðmundsson mælti í
neðri deild fyrir frumvarpi er
hann flytur um hafnargerðir. Þá
talaði dómsmálaráðherra fyr-
ir frv. um kosningar til alþing-
is, sem sætt hefur meðferð efri
deildar. 1 efri deild voru þrjú
mál á dagskrá; Gylfi Þ. Gíslason
mælti fyrir iðnfræðslufrumvarp-
inu, sem neðri deild hefur af-
greitt og tók Helgi Bergs til
máls. Þá mælti Jóhann Hafstein
fyrir frumvarpinu um eigna-
afnotarétt fasteigna og ennfrem-
ur var frumvarp um sölu eyði-
jarða samþykkt sem lög.
kaup á húsi í ölfusborgum þeg-
ar frekari byggingarframkvæmd-
ir verða þar. 33 nýjar félags-
konur bættust við á aðalfund-
Ráðinn starfs-
maður til kosn-
ingaundirbuaings
Kjördæmisráð Alþýðubanda-
lagsins í Vesturlandskjördæmi
hefur nú ráðið starfsmann tíl
þriggja mánaða og mun hann
einkum vinna að undirbúningi
bæjar- og sveitarstjórnakosning-
anna í vor. Sá sem ráðinn hef-
ur verið til starfans er Bryn-
jólfur Vilhjálmsson, Brekkubraut
13 á Akranesi.
3. umferð í kvöld
Sl. sunnudag var tefld 2. um-
ferð úrslitakeppninnar í meist-
araflokki skákþings Reykjavík-
ur. Jón Þór vann Bjarna Magn-
ússon, og Jóhann Sigurjónsson
og Bragi Kristjánsson gerðu
jafntefli en skák Jóns Kristins-
sonar og Jóns Hálfdánarsonar
fór í bið. 3. umferð verður tefld
í kvöld.
Tvöföldun fram-
lags til Bjarg-
ráðasjóðs sam-
þykkt sem lög
Frumvarpið um hækkun
á framlagi sveitarfélaganna
og ríkissjóffs til Bjargráffa-
sjóffs var í gær samþykkt
sem lög frá alþingi. Munu
framlög þessara affila því
hækka um 100%. Eru þess-
ar ráffstafanir gerffar vegna
þess aff í Ijós kom, er veita
átti fé vegna kalskemmd-
anna á Austurlandi sl. sum-
ar, aff fé hans var allsendis
ónóg til aff mæta slíkuin
óhöppum.