Þjóðviljinn - 09.03.1966, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 09.03.1966, Blaðsíða 4
^ SÍÐA — ÞJÓÐVILJTNN — Miðvikudagur 9. marz 1966 Útgefandi: Sásíalistaflbkk- Sameiningarflokkur alþýðu urinn. Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson, . Sigurður Guðmundsson. Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson. Auglýsingastj.: Þorvaldur Jóhannesson. Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja Skólavörðust. 19. Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 95.00 á mánuði. Alþýðusamtökin mra við Qtjórn Alþýðusambands íslands, heildarsamtaka ^ íslenzkrar verkalýðshreyfingar, hefur nú skýrt og afdráttarlaust mótmælt alúmínsamningum rík- isstjómarflokkarma og lýst yfir eindreginni and- stöðu við þá. í samþykkt sem miðstjórnin hefur birt segir að „hugsanleg samþykkt á fyrirhuguð- um samningi íslenzka ríkisins og Swiss Alumini- um og stofnun alúmínverksmiðju hér á landi mundi marka nýja og hættulega stefnu í íslenzk- um atvinnumálum, þar sem horfið yrði í ríkum mæli frá þeim skráðu og óskráðu lögmálum sem fylgt hefur verið fram til þessa — að íslenzk at- vinnufyrirtæki væru byggð á íslenzku framtaki, fjármagni í eign íslendinga eða undir þeirra ráð- stöfunarvaldi og að öllu á íslenzkum lagagrund- velli — en horfið að því að veita erlendum aðilum óskoruð yfirráð yfir stórfyrirtækjum á íslenzkri grund og gera útlendinga þannig að sterkum á- hrifaaðila í atvinnulífi þjóðarinnar og efnahags- þróun landsins og veita þessum aðilum að auki margs konar og mikilvæg forréttindi umfram ís- lenzka atvinnurekendur og jafnvel undanþiggja þá f' mikilvægum greinum íslenzkri logsögu". jl/fiðstjórn Alþýðusambandsins beinir „sterkum aðvörunarorðum sínum til allrar alþýðu, til þjóðarinnar og til löggjafarvaldsins gegn þessari grundvallarstefnubreytingu í atvinnu- og efna- hagsmálum þjóðarinnar og lýsir eindreginni and- stöðu gegn henni“, eins og segir í ályktuninni. Leidd eru rök að því að „fyrirhugaður samningur um erlenda stóriðju sé hvort tveggja í senn: and- stæður hagsmunum íslenzkrar alþýðu og íslenzku þjóðarinnar, og gangi í berhögg við þá megin- stefnu hennar að byggja lífskjör sín og efnahags- legar framfarir á framtaki þjóðarinnar sjálfrar og því fjármagni, sem hún sjálf skapar, eða er fær um að afla sér, án annarlegra og óaðgengi- legra skilmála, og sé því þjóðinni bæði óhag- kvæmur og ósæmandi. I>ví skorar miðstjómin á öll þjóðholl öfl í landinu að snúa bökum saman gegn hinum fyrirhugaða stóriðjusamningi og hindra framgang hans“. • • /"kflugasta verkamannafélag landsins, Dagsbrún, ”hefur lýst fullum stuðningi við þessa samþykkt miðstjórnar Alþýðusambandsins. Aðalfundur fé- lagsins sl. sunnudag skoraði á „alla alþýðu að snú- ast einhuga gegn því að erlent auðfélag nái tang- arhaldi á atvinnurekstri á íslandi“. Verkalýðs- samband Norðurlands hafði áður lýst yfir and- stöðu sinni. Má teljast með ólíkindum að ríkis- stjórnarflokkarnir láti slíkar aðvaranir verka- lýðssamtakanna sem vind um eyrun þjóta. Eng- in ríkisstjórn getur framkvæmt fyrirætlun eins og að koma upp alúmínverksmiðiu ef alþýða landsins og verkalýðssamtök vilja oe: V gegn henni með því valdi sem þeim er tiltækt. Þegar öll stjórnarandstaðan á Alþingi er auk þess and- víg málinu, mundu flestir telja að stefnt væri í algera ófæru með því að ætla að berja málið 1 gegn engu að síður. Það hlyti að hefna sín og væri hér um bil það óskynsamlegasta sem nokkur rík- isstjóm álpaðist út í. — s. Samanburiur á norsku og íslenzku nýfiskverii á vetrarvertíiinni FISKIMÁL éfflir Jíöfianrs J. Eú Kúidí Hér á skrifborðinu fyrir framan mig hef ég blaðið „Fiskaren1* með gildandi verði á nýjum fiski í Noregi til vinpslu nú á yfirstandandi ver- tíð. Þá hef ég einnig hér rit Fiskifélags í^lands, Ægi með íslenzku nýfiskverði til vinnslu eins og Verðlagsráð sjávarút- vegsins gekk frá því í janúar s.l. Ég vil hér leitast við aðgera samanburð á verði á nýjum þorski og þá miða við stór- fiskverð í báðum löndum. Hér á íslandi er þetta verð miðað við að fiskurinn nái 57 cm lengd, sé maelt eftir miðlínu fisksins frá haustrjónu aftur að sporðblöðku. Norðmenn miða hinsvegar sitt stórfiskverð við venjulega saltfiskmælingu, frá efri hluta klumbubeinsins, eða föstum hnakka, aftur að sporð- blöðku. Samkvæmt þeirra a- kvörðun skal fiskurinn ná 43 cm, lengd, með þessari mæl- ingu til að ná stórfiskverði. Norðmenn miða sölu við haus- aðan fisk og þessvegna er þeirra mæling miðuð við það. Hér er fiskur undantekningar-' laust hinsvegar seldur með haus. Ef að er gáð, mun varla bera nokkuð teljandi á milli um stærð þegar tekið er tillit til þessa. Þá er rétt að geta þess, að Norðmenn hafa 9 föst verðlags- svæði fyrir vinnslu fisks, sem ná 'eftir strandlegjunni allt frá landamærum Sovétríkjanna og suður um Norðmæri. Flest ár- in er svo 10. verðlagssvæðinu bætt við á vetrarvertíð og nær það yfir yztu strandlegju Ló- fóts og eyjar, en það er gam- alkunnugt að á þessu svæði kemur bezti þorskurinn í Nor- egi á land á vetrarvertíð Frá þessu svæði kemur hvert ár bezta Italíuskreiðin, ásamt bezta verkaða s.altfiskinum sem^. er eftirsótt gæðavara á heims- markaði. Þá eru það talin mik- il verðmæti með frosnum fiski á markaði ef það er sannan- legt, að hann sé veiddur í Ló- fótmiðunum á vetrarvertíð. Vegna þessarar sérstöðu hefur þótt rétt að flokka Lófót-þorsk- inn til verðs nýjan hærra en allan annan þorsk, sem veiddur er við Noreg. Hér á Islandi er nýi fisk- urinn flo’kkaður til verðs í þrjá gæðaflokka, og annast fersk- fiskeftirlitið þá flokkun. I Nor- egi er fiskurinn flokkaður til verðs eftir því í hvaða verkun hann telst hæfur. Það mun láta nærri að við getum flokkað hér 1. fl. A og l.fl.B undir það að þessi fiskur sé hæfur til að ísast í kassa til útflutn- ings, til frystingar, söltunar og niðursuðu og unphengingar fyr- ir Ítalíu, að talsverðu leyti. En ,2. flokkur sé hinsvesar aðeins hæfur í Afríkuskreið mnnn- eldis. Ég held að her1-.- sé ekki fjarri hinu rétta Hér á eftir mun ég því nota verðflokkunina til vinnslu við verðsamanburðinn. og miða við stórþorskverð. bví að bað á að get.a verið snegiimvnd af verð- mismuninum á Islandi annars vegar og í Noregi hins v.egar nins og bað er i dag. Ég breyti hér norskum krónum í íslenzk- ar og miða við 6 króna gengi norskrar krónu gagnvart ís- lenzkri. Þá miða ég verðið i báðum löndunum við að fiskur- inn sé seldur slægður með haus eins og hér er föst venja. NOREGUR Lófótsvæðið kr. 6,62 fyrir kg jafnt til allrar vinnslu. Norðmæri: Til söltunar kr. 6,48 fyrir kg. Til ísunar, niðursuðu og frystingar kr. 6,38 f. kg. Til upphengingar kr.. 5,52 f. kg. Tvö nyrztu og lægstu verðlags- svæðin sem ná austan frá Tana, Varanger og Vardö og yfir Hammerfest og Alta-syæð- in. Til ísunar, söltunar, fryst- ingar og niðursuðu kr. 6,24 fyrir kg. Til upphengingar kr. 4,90 fyrir kg. Þess má geta til viðbótar, að á öllum 6 nyrztu verðlagssvæðunum er verð það sama til ísunar, frystingar, sölt- unar og niðursuðu, en fer hins- vegar smáhækkandi á fiski til upphengingar; þannig er sama verð til upphengingar kr. 5,52 á fimm verðlagssvæðum talið sunnan frá norðureftir. uppbóta utan Lófótsvæðisins og hæsta íslenzkt verð án uppbóta þá verður mismunurinn sem Norðmenn greiða hærra fyrir hvert kg af stórþorski kr. 1,81 á hvert kg. Það munar um minna. Þá vil ég bendá sérstaklegá á það, að lægsta verð á stór- þorski í Noregi sem hæfur er til upphengingar er kr. 4,90 án uppbóta, en á Islandi fyrir sam- bærilegan fisk kr. 3,14 fyrir kg. Þama er mismunurinn kr. 1,76 á kg okkur í óhag. Norska lægsta upphengingarverðið er á mestu frostasvæðum Norégs, þar sem oft eru að vetrinum á upphengingartímanum 20 — 30 gráðu frost svo vikum skipt- ir. Fiskur sem hengdur er upp við slík skilyrði getur aldrei orðið annað en vara fyrir Afr- íkumarkað, enda léttist skreið- in óeðlilega mikið við Slík þurrkunarskilyrði. Mér þykir rétt að upplýsa þetta, svofólk , haldi ekki að verðmismunur á hráefni geti flokkazt uridir betri aðstæður í Noregi, hél'd- ur en hér, hvað skreið viðkem- ur. Þetta er ekki hægt langur ISLAND l.fl. A: kr. 4,67 — 1. fl.B kr. 4,03 fyrir kg. Það ber að á- ætla að báðir þessir flokkar séu hæfir til ísunar, frystingar, söltunar og niðursuðu, ef rétt er flokkað og þá einnig að talsverðu leyti til góðfiskfram- leiðslu til upphengingar fyrir Italíumarkað. 2. fl. hæfur til upphengingar fyrir Afríku- skreið kr. 3.14 fyrir kg. Verðuppbætur hér á línufisk 25 aurar á kg úr ríkissjóði ,ívg 25 aurar frá kaupanda, Með verðuppbótum kæmist þannig línufiskur sem við verðum að' flokka undir 1. fl. A upp í kr. 5,17 fyrir kg. Norska fiskverðið sem ég hef talið upp hér að framan er verð án allra uppbóta frá rík- inu, hinsvegar greiðir norska ríkið eða hefur greitt 34 aura á hvert kg, miðað við fisk slægðan með haus og ber að leggja þetta við hina ýmsu verðflokka til að fá út það verð sem sjómenn og útgerðarmenn bera úr býtum. Með uppbótum verður þannig Lófótverðið kr. 6,96 fyrir kg, sem er kr. 1,79 fyrir ofan íslenzkt verð á línu- fiski með uppbótum. En sé miðað við hæsta norskt verð án Til viðbótar því að allt ný- fiskverð er miklu hærra í Nor- egi heldur en hér, eins ogverð- tölur hér að framan bera ó- rækt vitni um, þá eru útgerð- arvörur á sama tima, svo sem veiðarfæri og olia, talsvert dýr- ari hér heldur en í Noregi. 1 Noregi væri ógjörningur að gera út eina einustu fleytu til fisk- veiða með því hráefnisverði og verði á útgerðarvörum, sem hér gildir. Það er aðeins met- afli síðustu ára hér og þó sér- stakléga síldaraflinn, sem hef- ur fleytt þessu áfram frá ver- tíð til vertíðar. Okkur er það nauðsyr. að fiskiflotinn sé end- urnýjaður með nýjum og full- komnari skipum, og okkur ber að fagr.a hverju nýju skipi sem bætist f okkar fiskveiðiflota. En g. okkur ber jafnhliða skylda til að sjá svo um að útgerðar- grundvöllurinn sé á hverjum tíma þannig, að meðalaflinn í meðalveiðiári geti staðið undir útgerðarkostnaði og jafnframt séð ,sjórnönn.um fýrir. þeimkjör um sem eru heldur hærri en greidd eru fyrir ónauðsynlegri störf á sama tíma í landi. Þetta er mergurinn málsins þegar einn helzti undirstöðuat- vinnuvegur þjóðarinnar á í hlut. Alþingi þarf að . skipa rannsóknarnefnd , sem leggur á borðið rökin fyrir því, hvers vegna svo mikill mismunur er á hráefnisverði hér og í Noregi. Þegar þetta hefur verið gert undanbragðalaust, þá verður að leggja grundvöll útgerðar- innar að nýju og miða hann við meðaláfla í meðalári, önnur fær leið er ekki til, sem miðar fram á við. Að gera ekki neitt í þessum málum, það er að svíkja sjálfan sig, og undan af- leiðingum slíkra svika verður ekki komizt. SERVIETTU- PRENTUN , SÍM.U2-^ ÚTB0Ð Tilboð óskast í að byggja tvo vatnsgeyma úr stáli, 9000 rúmmetra hvom, í Öskjuhlíð hér í borg, fyrir Hitaveitu Reykjavíkur. Útboðsgögn eru afhent í skrifstofu vorri Vonar- stræti 8, gegn 3000 króna skilatryggingu. Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar. Bótagreiðslur almannatrygginganna í Reykjavík. ' - v* Greiðslur bóta almannatrygginganna hefjast í marz sem hér segir:.* Fimmtudaginn 10. og föstudaginn 11. marz verður eingöngu greidd- ur ellilífeyrir. Til þess að forðast þrengsli, er mælzt til þess, að þeir, sem bera nöfn með upphafsstöfunum K—Ö, og því fá við komið, vitji lífeyris síns ekki fyrr én 11. marz. Greiðsla örorkubóta hefst laugardaginri 12. marz. — Greiðsla ann- arra bóta, þó ekki fjölskyldubóta, hefst mánudaginn 14. marz. Greiðsla fjölskyldubóta (3 börn eða fleiri í fjölskyldu) hefst þriðju- daginn 15. marz. — Greiðsla fjölskyldubóta (1—2 börn í fjöl- skyldu) hefst föstudaginn 18. marz. Bætur greiðast gegn framvísun N\FNSKÍRTEINIS bótaþega, sem gefið er út af Hagstofunni, og verður svo framvegis, en útgáfa sér- stakra bótaskírteina er hætt. Þess er eindregið óskað. að allir, ?em bví fá við komið. vitji bóta eigi síðar en Iaugardaginn 26. marz, þar sem óhjákvæmilegt er að hefja undirbúning útborgunar aprílbóta fyrr en venjulega vegna páskahátíðarinnar. TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.