Þjóðviljinn - 16.03.1966, Qupperneq 1
Pungar áhyggjur Natoríkja
vegna ákvarSana Frakklands
— Sjá síðu ©
Svara Austfirðingar með forgangsrétti heimabáta á síldarvertíðinni?
Misrétti, óstjórn og klíku-
skapur við loðnulöndunina
Eftirtekja tollgæzlunnar á tvéim dögum:
1700 fíöskur og 94
þúsund sígurettur
• Vlð tollleit í RANGÁ í fyrradag fundust um 400 flöskur
af smygluðu áfengi og 54 þúsund stykki af sígarettum,.
Hafði smyglgóssið verið falið í tómum vatnstanki aftast
í skipinu.
Þjóðviljipn átti í gær tal við Unnstein Beck tollgæzlu-
stjóra og skýrði hann blaðinu svo frá að við leitina í
Rangá hefðu tollþjónarnir fundið 348 flöskur af genever,
24 flöskur af vodka, 12 flöskur af gini og 12 flöskur af
whiskí. Einnig fundu þeir 50 þúsund stykki af Camelsíga-
rettum og fjögur þúsund stykki af Kentsígarettum.
Rangá var að koma frá HoIIandi, Þýzkalandi og Bret-
landi. Mál þetta var í rannsókn hjá tollgæzlunnj í gær en
Unnsteinn bjóst við að senda það til sakadómara síðdegis
í gær eða í dagi. Kvað hann það enn ekki Ijóst hverjir af
skipverjum ættu smyglvarning þcnnan.
Þá sagði Unnsteinn að tollgæzlan væri búin að afgreiða
smyglmál Marzmanna til sakadómara og hafa fimm skip-
verjar játað á sig að vera eigendur smyglgóssins. Sagði
Unnsteinn að öll áhöfnin á togaranum nema skipstjórinn
hefði verið búin að segja upp í mótmælaskyni við nýju
tollareglugerðina, yfirmennirnir skriflega en hásetamir
munnlega.
f þessum tveim skipum hefur tollgæzlan fundið sam-
tals um 1700 flöskur af áfengi og 94 þúsund stykki af siga-
rettum.
Fyrírspurn frá Birni Jóns-
syni á þingi um verðlagsmál
□ Sjómenn af loðnubátum hafa komið að máli við Þjóðviljann og deilt
fast á skipulagsleysi, klíkuskap og mismunun við löndun á loðnu hér suð-
vestanlands. Telja þeir að óstjóm og misrétti í löndunarmálunum hafi haft
mikið veiðitap í för með sér, og löndunarreglur verksmiðjanna geti bitnað
á síldarbátum úr þremur landsfjórðungum sem sækja munu til Austurlands
á komandi síldarvertíð og landa á Austfjarðahöfnum.
Fram er komin á alþingj svo-
tfelld fyrirspurn um verðlags-
mál til viðskiptamálaráðherra
og er fyrirspumin flutt af
Bimi Jónssyni:
1 \ Hvaða flokkar ' vöru og
ÍJ þjónustu hafa frá 1.
marz 1960 og þar til nú verið
leystjj. undan verðlagsákvæð-
um?
Á hvaða flokkum vöru
“/ og þjónustu hafa á-
kvæði um álagningu í heild-
Fylgt eftir olíubanni
MALGASÍA — Madagaskar)
hefur leyft Bretum að hafa flug-
stöð á eynni til að fylgjast með
bönnuðum olíuflutningum til
Ródesíu um Mozambique.
sölu og smásölu verið rýmk-
uð frá 1. marz 1960 og þar
til nú. og hverjar eru breyt-
ingarnar í hverjum flokki?
Á hvaða flokkum vöru
u) og þjónustu hafa á-
kvæði um álagningu í heild-
sölu og smásölu verig þrengd
frá 1. marz 1960 og þar til nú,
og hverjar eru breytingarnar
í hverjum flokki?
Æ \ Hvert er áætlað heýld-
uc) söluverðmæti til neyt-
enda, miðað við sömu flokka
o-g áður er spurt um;
a) Þei,rrar vöru og þjónustu,
sem leyst hefur verið und-
an verðliagsákvæðum ?
b) Þeirrar vöru og þjónustu,
sem verðlag'S'á'kviæði hiafa
verið þrengd é?
Vitað var löngu fyrir vertíð
að fleiri bátar yrðu gerðir út
á loðnu en nokkru sinni fyrr og
allar horfur á að meira magn
myndi berast á land en áður. Til
þess er þróarrými á Suðvestur-
landi alltof lítið og hlaut að
koma til vandræða.
Þegar loðnuveiðin komst vel
í gang var mikilli loðnu landað
í Reykjavík, og það eins af að-
komubátum, svo sem bátum frá
Akranesi og Vestmannaeyjum, og
fór brátt svo að allt þróarrými
í Reykjavík var notað. Þá gátu
aðkomubátarnir haldið áfram af
fullum krafti því þeir áttu þró-
arrými ónotað heima fyrir og
lokuðu nú að langmestu leyti á
aðkomubáta þangað, svo sem á
Akranesi og í Vestmannaeyjum,
nema nokkra sem virðast hvar-
vetna í sérstakri náð fyrir ein-
hvern klíkuskap útgerðarmanna
þeirra og verksmiðjanna.
Forgangsréttur að löndun
Þannig var það dagana þrjá
sem mokfiskaðist á Vestmanna-
eyjamiðum. Heimabátar í Vest-
mannaeyjum áttu tveggja tima
stím inn með sína veiði, en bát-
ar annars staðar að urðu að gera
svo vel og sigla á Faxaflóahafn-
ir. Eins má heita að lokað hafi
verið á aðkomubáta á Akranesi
nema einstaka klíkubát, enda
þótt Akranesbátar hafi óspart
landað í Reykjavík.
Þessar aðgerðir vöktu mikla
óánægju á Reykjavíkurbátunum
og öðrum aðkomubátum og varð
það loks til þess að Síldarverk-
smiðjan á Kletti gaf út þá yfir-
lýsingu að Reykjavíkurbátar
skyldu hafa forgangsrétt að lönd-
un í Reykjavík svo og bátar sem
landa vertíðarfiski í Reykjavík,
þó skráðir séu annars staðar.
Þetta hefur þó virzt eitthvað
bila í framkvæmdinni og óá-
nægjan haldið áfram.
36 Hvað gera Austfirðingar
næsta sumar?
Sjómennirnir sem áttu tal við
Þjóðviljann sögðu að svipað hefði
komið fyrir fyrir tveimur árum
á Austfjörðum, að tryggja hefði
átt heimabátum forgangsrétt til
löndunar. En það hefði vakið svo
mikla óánægju, að því hefði ver-
ið hætt. Undanfarið hafi það
verið regla um alla Austfirði á
síldarvertíðinni að hver sá bát-
ur sem meldar sig við bryggju
fær löndun, og bátar eru af-
greiddir í þeirri röð sem þeir
koma.
Þetta er alger’ andstaða við
þann hátt sem hér hefur verið
hafður á loðnulönduninni. Þó að
bátur tilkynni komu sína á hann
ekki víst að fá löndun, og getur
jafnvel orðið að snúa burt, eða
þá að hætt er löndun upp úr
bát í miðju kafi eins og komið
hefur- fyrir. Og hvers konar
klíkuskapur virðist ráða með það
í hverri röð bátar eru teknir.
Menn þurfa að liggja í tal-
stöðvunum og biðja og dekstra
verksmiðjuherrana um löndun,
eins og verið sé að biðja um
einhvern stórgreiða.
Nú eru sex stórir Austfjarða-
bátar á loðnuveiðum hér við
Suðvesturland og hafa þeir meira
og minna orðið fyrir barðinu á
þessu misrétti og klíkuskap með
löndunina. Telja sjómenn ekki ó-
líklegt að Austfirðingar svari að
einhverju leyti í sömu mynt
næsta sumar á síldarvertíðinni
og gæti þá klíkuskapurinn og
misréttið hér hefnt sín á að-
komubátunum sem sækja til
austurmiða hundruðum saman
Framhald á 7. síðu.
og sýnir hluta af loðnuaflanum.
Nýstjórn
íBe/gíu
BRUSSEL 15/3 — TVeir stærstu
borgaraflokarnir í Bel'gíu á-
kváðu í dag að mynda sam-
steypustjórn Off er b&r með iok-
ið 34 daga stjómarkreppu. —
Flokkamir tveir eiga 125 full-
trúa á þingj af 225 — Krjstilegi
sósíali flokkurinn 77 og Frjáls-
lyndir 48.
Kristilegir voru áður í stjórn
með sósíalistum, og er í flokkn-
um lítil hrifning með hina nýju
samstarfsmenn einkum eru
vinstrimenn innan hanis óánægð-
ir. Formaður kristilegra. Paul
van den Boeynants, sem verður
forsætisráðherra hinnar nýju
stjómar, sagði í dag að enginn
sinna manna væri sérlega hrif-
inn an landið þyrfti stjóm og
betrj lausn hefði ekki fundizt.
AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA/
Hitaveitustokkur í Smá-
löndum opinn á annað ár
jkj Það er nú liðið á annað
ár síðan kviknaði í einangr-
unarefni í hitaveitustokknum,
sem liggur um Smálönd og
kom Slökkviliðið á vettvang
á sínum tíma og varð þá að
rífa nokkrar af hinum steyptu
plötum ofan af stokknum.
■jtr! Síðan hafa hitaveiturörin
staðið þama ber á nokkuð
löngum kafla og gætir þess
aðallega á tveim stöðum og
vitaskuld orsakað óþarfa hita-
táp, til dæmis í frostaköflun-
um I vetur.
Þá sækja krakkar þarna
0
Svona hafa hitaveiturörin
staðið ber í allan vetur og
enginn fæst til þess að kippa
hlutunum I lag.
nokkuð og voru til dæmis
þriggja, fjögurra og fimm ára
krakkar að skriða ofan í
stokknum skömmu eftir há-
degi í gær og hverfa langt
inn í stokkinn og geta orðið
sér að skaða.
■Jr! Við höfðum tal af konu
nokkurri, sem býr þarna við
Urðarbraut og kvað hún
marga íbúa í nærliggjandi
húsum hafa hringt á liðnu
ári ýmist til Hitaveitunnar,
Slökkviliðsins eða lögreglunn-
ar og auk þess haft tal af
ýmsum borgarstarfsmönnum.
*! Allir vísa frá sér og eng-
inn virðist vera ábyrgur fyrir
lagfæringum og eru margir
orðnir langþreyttir á þessum
seinagangj og hvernig þetta
er látið drabbast niður i
hirðuleysi.
'• - \W\VWV'VVWWWWWWV\'V\WW\WVW\WVV\W\\WVVWWWW\V\'V\.WWVVVVV\ wwwwv
Þessi mynd er tekin, í gærdag við Faxaverksmiðj una í Örfirisey
sem hefur borizt á Iand síðustu daga. — (Ljósm. Þjóðv. G. M.).