Þjóðviljinn - 16.03.1966, Page 4

Þjóðviljinn - 16.03.1966, Page 4
4 SlÐA — ÞJÖÐVILJINN — Miðvikudagur 16. marz 1966. Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokk- urinn. Ritstjórar: ívar H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson. Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson. Auglýsingastj.: Þorvaldur Jé’iannesson. Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja Skólavörðust. 19. Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 95.00 á mánuði. Eining og stórhuga stefua rJ'lalsvert hefur verið ritað og rætt í tilefni af fimm- tíu ára afmæli Alþýðusambandsins og Alþýðu- flokksins. Ekki er ólíklegt að síðar meir verði eitt hið forvitnilegasta af þeim greinum talin löng tímaritsgrein eftir Einar Olgeirsson sem birt er í nýútkomnu hefti tímaritsins Réttar. Höfundur nefn- ir hana „Hugleiðing um hálfrar aldar reynslu ís- lenzkrar verkalýðshreyfingar á nokkrum sviðum”. Fyrstu tveir kaflarnir voru birtir í afmælisblaði Þjóðviljans. í framhaldinu fjallar Einar um „átökin um fagleg og pólitísk skipulagsmál verkalýðsins" um „verkalýðshreyfinguna og þjóðfrelsið", og um „aflgjafann í rismesta skáldskapartímabilinu.” | kaflanum um skipulagsmál verkalýðshreyfingar- innar rekur Einar í aðaldráttum hvernig skipu- lagi Alþýðusambandsins var breytt, en bætir við að „eftir 1942 hafa hins vegar hin pólitísku skipu- lagsmál verkalýðshreyfingarinnar ekki fundið neina endanlega lausn", og rifjar upp að ýmsar tilraunir til samstöðu Alþýðuflokksins og Sósíalista- flokksins á þessu skeiði hafi mistekizt. Þó telur höfundur að það ástand þurfi ekki að standa um alla framtíð, og segir m.a. um skipulagsmálin: J]inar segir þar: „Eftir 1963 er þetta ástand hins vegar allt að gerbreytast. Samtímis því sem kalda stríðinu linnir erlendis, hefur hættan á borg- aralegu tvíflokkakerfi á íslandi, sem Framsókn tók auðsjáanlega að stefna að eftir kosningarnar 1963, vakið marga menn í verkalýðsflokkunum til um- hugsunar um nauðsyn pólitísks samstarfs og ein- ingar í verkalýðshreyfingunni. Samtímis hefur og hjaðningavígum í verkalýðshreyfingunni slotað nokkuð og grundvöllur til samstarfs verkalýðsflokk- anna skapazt þar. Og í hörðum átökum við at- vinnurekendur 1963—1965 hafa báðir verkalýðs- flokkarnir hvað eftir annað staðið saman. Reynsla íslenzks verkalýðs í pólitískum skipulagsmálum sínum ætti að sanna öllum sem honum vilja vel hve vandasöm þau mál eru meðferðar. Líklegt þyk- ir mér að heppilecrast form pólitísks samstarfs alls verkalýðs og sósíalista á íslandi yrði fyrst um sinn, — eftir að samstaða hefur fengizt um málefnin, sem auðvitað er undirstaðan, — svipað og brezki Verkamannaflokkurinn, Labour Party, hefur: heild- arflokkur í formi kosningabandalags, sem hefur innan sinna vébanda flokksfélög og heila flokka, en er sameinaður þingflokkur er veitir meðlimum sínum víðtækt frelsi til skiptra skoðana, hópmynd- ana og blaoa- eða tímaritsútgáfu, en sameinar þó stéttarhreyfinguna að mjög miklu leyti pólitískt. JJöfundur tekur fram um greinina að hún sé aðeins persónulegar hugleiðinaar sínar „sem þátttak- anda í þessari hreyfingu í 45 ár, síður en svo þaul- hugsaðar, þaðan af síður ræddar við aðra". 0o hann lýkur grein sinni með því að í ár sé bað „fyrst og fremst kall nútímans, hróp hinnar !íð- andi stundar, sem samtök alþýðunnar þurfa að heyra, krafa tímans um einingu albvðunnar, um stórhuga steínu hennar um forystu hennar fyrir þjóðinni". Og þau verði að læra af reynslunni, eigi þau að rata leiðina til framtíðarinnar. — s Rá&uneyti gerir grein fyrir innflutningi á fóðurbæti Viðskiptamálaráðuneytið hef- ur sent frá sér svofellda grein- argerð um innflutning á fóður- bæti: Síðan árið 1957 hefur ríkis- stjórnin gert árlega samningvið stjórn Bandaríkjanna um kaup á umframbirgðum af landbún- aðarafurðum, aðallega kornvör- um, tóbaki, smjörlíkisolíum og hrísgrjónum. Aðalkostur við þessa samninga frá sjónarmiði Islendinga er, að andvirði af- urðanna er að miklu leyti veitt sem lán með hagkvæmum kjör- um og hefur því verið endur- lánað til ýmissa mikilvægra framkvæmda í þágu landbúnað- arins, til hitaveitu Reykjavíkur, rafvæðingar, hafnargerða, iðn- aðar og fiskimjölsverksmiðja. Við setningu Búnaðarþings, gagnrýndi formaður Búnaðarfé- lagsins, Þorsteinn Sigurðsson, þennan samning og vörukaupin samkvæmt honum og sagði m. a.: „Vitað er, að samningur sá, sem um langt tímabil hefur Ráðstafanir gegn óhreinkun sjávar Bannsvæðfö umhverfís ísland stækki úr 50 i 100 mí/ur verið gerður við Bandarikin um innflutning fóðurmjöls þaðan, er bændum óhagstæður, bæði hvað gæði og verðlag snertir“. Fóðurbætiskaup eru algjör- lega í höndum innflytjenda, en í samvinnu við þá hafa inn- flutningsyfirvöldin beint inn- kaupum á fóðurbæti einkum til Bandaríkjanna til að hægt sé að standa við skuldbinding- ar fyrrnefnds samnings. Sam- kvæmt honum eru keypt árlega um 10000 tonn af ómöluðum maís eða maísmjöli, en verð og gæði er það sama og á hin- um frjálsa -markaði á hverjum tíma. Auk þess er gert ráð fyrir, að um 15000 tonn af bandarískum . fóðurbæti séu keypt á venjulegan hátt og er það ekki bundið við ákveðnar tegundir. Afstaða innflutningsyfirvald- anna til þessara viðskipta hef- ur verið, að fóðurbætiskaupin yrðu að vera á allan háttsam- bærileg og jafn hagstæð og ó- samningsbundin fóðurbætis- kaup og hafa innflytjendur yf- irleitt talið, að svo væri. Visst óhagræði er þó fyrir innflytj- endur, að geta aðeins keypt þær tegundir fóðurbætis sam- kvæmt samningnum, sem eru til umframbirgðir af, en þetta hafa þeir ekki talið næga á- stæðu til að fara fram á, að hætt verði við þessi viðskipti, sem hafa þegar á allt er litið verið mjög hagkvæm. Hefur því nýr samningur verið gerð- ur fyrir árið 1966 í samráði við innflytjendur. Minnzt hefur verið á aðend- urbæta þurfi flutningsfyrir- Island, Norður-Atlantshafssvæðið og 50 mílna svæði umhverfis Grænland. í fyrradag kom fram á al- þingi frumvarp til laga um heimild fyrir ríkisstjómina til að staðfestá fyrr Islands hönd breytingar frá 1962 á alþjóða- samþykkt frá 12. maí 1954 um . vamir gegn óhreinkun sjávar af völdum. olíu cg setja reglur um frekari varnir gegn slikri óhreinkun sjávarins. I athuga- semd með frumvarpinu segir að þær breytingar sem frum- varpið gerir ráð fyrir á samn- ingnum frá 1954 gengi allar í þá átt að komið verði í veg fyrir óhreinkun sjávarins af völdum olíu frekar en unnt er skv. gildandi reglum. Er ráð fyrir því gert að stækka bann- svæðið við Island úr 50 í 100 mílur og er miðað við vega- lengd þaðan, sem stytzt er til lands meðfram strönd íslands. En með „bannsvseði“ er átt við svæði þar sem sérstakar reglur verður að hafa til hliðsjónar við losun og lestun olíu. Þá er í frumvarpinu gert ráð fyrir að eftirleiðis nægi að auglýsa breytingar á samningn- um í C-deild stjómartíðinda. — Samningurinn er prentaður sem fylgiskjal með frumvarp- StohaSur verðilána- sjóður sveitarfélaga Fram hefur komið frá ríkis- stjórninni frumvarp til laga um lánasjóð sveitarfélaga, en frum- varp að mestu samhljóða þessu var flutt í fyrra en náði ekki þinglegri afgreiðslu. Skv. grein- argerð frumvarpsins er aðal- breytingin í því fólgin að í þessu frumvarpi er ekki gert ráð fyrir ákveðnu framlagi til lánasjóðsins úr ríkissjóði, en í frumvarpinu í fyrra var gert ráð fyrir 15 milj. kr. árlegu framlagi úr ríkissjóði. í þessu frumvarpi er gert ráð fyrir að framlögin verði ákveðin á fjár- lögum hverju sinni. Ýmsar fleiri breytingar hafa verið gerðar á frumvárpinu frá í fyrra. f 2. grein frumvarpsins segir að hlutverk sjóðsins skuli vera: 1. Að veita sveitarfélögum stofnlán til nauðsynlegra fram- kvæmda eða fjárfestingar, sem eru svo kostnaðarsamar, að fjár til þeirra verði ekki aflað af tekjum sveitarfélagsins, nema á löngum tíma. Ennfremur að að- stoða sveitarfélög við öflun stofnlána og hafa milligöngu um töku þeirra. — 2. Að annast samninga við lánastofnanir um bætt lánakjör sveitarfélaga, sem búa, við óhagstæð lánakjör og óska aðstoðar sjóðsins í þessu skyni, eða veita þeim, eftir því sem fært er, lán til greiðslu ó- hagstæðra lána, ef samningar takast ekki um bætt lánakjör við hlutaðeigandi lánastofnanir. — 3. Að aðstoða sveitarfélög við útvegun nauðsynlegra rekstrar- lána hjá bönkum og sparisjóð- um. — 4. Að stuðla að því að sveitarfélögin verði traustir oe skilvísir lántakendur, sem þurfi ekki að setja tryggingar fyrir lánum, sem þeim eru veitt, nema sérstaklega standi á. komulag á fóðurkorni til lands- ins og dreifingu þess innan- lands. En hinn margnefndi samningur útilokar ekki slíka endurbót, af því að heimilt er að kaupa samkvæmt honum ó- malaðan maís engu síður en maísmjöl. Ummæli Þorsteins Sigurðsson- ar virðast byggð á upplýsingum nýs innflytjanda um fóðurbæt- iskaup frá Hollandi, því að hann segir: „Það er staðreynd nú, að væri um frjálsa fóður- bætisverzlun að ræða, væri hægt að kaupa 1. fl. fóður- blöndu frá Vestur-Evrópu fyr- ir 1500 kr. lægra verð hvert tonn, heldur en fóðurblandan kostar hér. Mun sýnishorn hafa komið til landsins, en sá inn- flutningur stöðvaður, vegna hins bandaríska samnings.“ Hér er átt við kaup á 300 tonnum af fóðurbæti, sem keyptur var nýlega frá Hol- landi án heimildar innflutn- ingsyfirvaldanna. Það eð fóð- urbætirinn var kominn til landsins óskuðu innflutningsyf- irvöldin þess, að stærstu inn- flytjendurnir yfirtækju pöntun- ina og önnuðust sölu hennar. Hefur Samband fsl. sam- vinnufélaga og Mjólkurfélag Reykjavíkur tilkynnt viðskipta- ráðuneytinu, að þau vilji ekki taka að sér sölu á þessum fóð- urbæti, því að hann reyndist vera talsvert dýrari en fóður- bætir sá, sem fyrirtækin hafa á boðstólum. . Nákvæmur ‘ út- reikningur sýndi, að heildsölu- verð hollenzka fóðurbætisins yrði 7138 krónur tonnið en til samanburðar má geta þess, að sambærileg kúafóðurblanda er nú seld í Reykjavík á kr. 6372 krónur tonnið. Vegna flutn- ingskostnaðar frá Reykjavík og til ýmissa hafna úti á landi er verðmunúrinn samt minni þar. En þessar tölur sýna, að staðhæfingar Þorsteins Sig- urðssonar um fóðurbætisvið- skiptin eru rangar og ekki á rökum reistar. * BILLINN Rent an Icecar Sími 1 8 8 3 3 Utbob Óskað er tilboða í framkvæmdir við lagningu vatnsveitu í Hnífsdal á komandi sumri. Útboðsgagna má vitja á skrifstofu vora, Borgar- túni 7, Reykjavík, gegn kr. 2000,00 skilatryggingu. ánnkaupastofnun ríkisins.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.