Þjóðviljinn - 30.04.1966, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 30.04.1966, Qupperneq 5
Laugardagur 30. apríl 1966 — ÞJÓÐVILJINN — SlÐA g Hótel Loftleiðir tekur til starfa samkvæmt áætlun tJr einu af stóru herbergjunum. veggir voru smíðaðir í eining- um af belgíska fyrirtækinu Chamebel, og voru veggeiningar þessar fluttar frá Bélgíu með fullbúnum gluggum og ísettu gleri. Annad belgískt fyrirtæki, De Coene, smíðaði alla innveggi í hótelhæðir, hurðir og skápa. Bretar gerðu flísar og skreyt- ingar í sundlaug. Teppi voru ■“innig ofin af Bretum. Svíar brenndu flísar í eldhúsdeildir og gerðu hreinlætistseki. Þjóð- verjar smíðuðu lyftur, innrétt- ingar og öll tæki í eldhús. Danir framleiddu loftin í veit- ingasali og hótelgang^. Frakkar skáru spón á harðviðarinnrétt- ingar, Finnar gerðu gufuböð, Bandaríkjamenn smíðuðu loft- ræstingatæki og vélar þeirra, og þannig mætti lengi telja. Mörg íslenzk fyrirtæki hafa unnið að ýmis konar verk- smiðjuframleiðslu við innrétt- ingar, svo sem þiljur, vínstúku- borð, húsgögn, hurðir, skápa o.fl., en helzt þeirra eru: Gamla Kompaníið, Trésmíðaverkstæði Jónasar Sólmundssonar, Tré- smiðjan hf., Valbjörk hf., Stál- húsgögn hf., og Sólóhúsgögn hf. Samstarf Oft var miklum vandkvæð- um bundið að afla efnis, utan- lands og innan, og koma því á réttum tima til byggingarinn- ar, en sá vandi var stundum leystur með því að flytja það flugleiðis, einkum smærri tæki í leiðslukerfi hússins Þá- varð vegna fannkyngis að flytja nokkra flugfarma af húsgögnum frá Valbjörk á Akureyri til þess að unnt væri að koma þeim fyrir í tæka tíð, -og má þannig segja að margt hafi verið í mótun utanlands og innan, fram á síðustu stund. Á byggingastaðnum varð Eins eða skipulag framkvæmda á marg- an hátt sérstætt, því að enda þótt íslenzkir iðnaðarmenn bæru hita og þunga dagsins undir stjórn innlendra verkfræðinga og meistara, þá var þar jafnan allmargt útlendinga, sem leita varð til, bæði vegna manneklu í byggingaiðnaðinum og sér- þekkingar þeirra á ýmsum sviðum. Þannig unnu norskir múrarar mikinn hluta múr- verksins. Svíar lögðu allar flís- ar í eldhúsdeildir, Belgíumenn reistu útveggi og innveggi, hót- elhæðanna, Þjóðverjar settu niður öll eldhúsgögn og tæki í þvottahús, en Danir settu upp loft í veitingasölum. Fjölmörg íslenzk fyrirtæki hafa, auk þess sem að framan er greint, lagt íram lið sitt til þess að koma upp húsinu, bæði með vinnu í því sjálfu og verksmiðjum. Samvinna hinna mörgu aðila, sem í húsinu unnu, >hefur verið hin ákjósanlegasta, segja Loft- leiðamenn, og öllum til mikill- ar sæmdar, einkum þegar þess er gætt, að þar voru oft sam- tímis að verki um 130—140 manns af ýmsum þjóðernum, sem allir þurftu að ljúka á til- skildum tíma þeim sérstöku störfum, sem þeir höfðu á- byrgzt að vinna, án þess að téfja framkvæmdir annarra hópa eða einstaklinga, sem einnig voru að verki. Nýja hótelið Húsið er 1600 fermetrar að grunnfleti og stærð þess alls um 23500 rúmmetrar. I kjallara hússins er aðal- eldhús hótelsins, sem er sagt eitt fullkomnasta sinnar teg- undar í Norðurálfu. Þar er einnig mjög fullkomið bakarí. Tilheyrandi eldhúsinu eru ým- is konar matvælageymslur og forvinnsluherbergi fyrir mat- vaeli, frysti- og kæligeymsluf; vínkjallari o.fl. 1 kjallara eru einnig ýmis konar þægindifyr- ir starfslið hótelsins, svo sem búningsherbergi, snyrtiherbergi með böðum o.fl., allt flisalagt í hólf og gólf. Þá eru þar stór og vönduð snyrtiherbergi karla og kvenna fyrir veitingasalina á 1. hæð hússins og önnurfyr- ir hótelafgreiðsluna. Einnig eru í kjallara afkastamikið þvotta- hús, geymslur fyrir hótelið, vörumóttaka, og salur fyrir loft- ræstingarvélar. Úr aðalanddyri hótelsins er gengið niður í sundlaugardeild- ina, sem eirinig er í kjallar- anum. 1 forstofu sundlaugar- deildar eru hárgreiðslustofur og fótsnyrtistofa. Gestalyftur ganga niður í þessa forstofu. Þar inn af taka við búningsklefar, bað- klefar, finnskar gufubaðstofur og hvíldarherbergi. Þama er einnig nuddstofa og aðstaða til ljósbaða. Sjálf sundlaugin er inn af baðdeildunum, í fagur- lega flísalögðum sal. Við enda laugarinnar er dálítil kerlaug, til heitra baða. Á 1. hæð er aðalanddyri hót- elsins með gestamóttöku og skrifstofum, Þar er einnig sölu- búð, tvö fundarherbergi og fatageymsla. Úr anddyri er gengið inn í aðalborðsal hótels- ins og vínstúku hótelgesta. Borðsalur þessi er fagurlega skreyttur blómum og rúmar um 100 manns í sæti. Þar er hljóm- sveitarpallur og dansgólf. Hót- elanddyrið og borðsalurinn er lagt með Ijósum marmara, „tavertin oriental". Veggir eru klæddir með vengivið, japanvef og íslenzku bergi. Vínstúka hótelgesta rúmar 50 manns í þægileg sæti. Þar verða borð öll úr hvítum marmara, en bardiskur í dökkum grásteini og vengivið. . Úr hótelanddyrinu er einnig gengið beint inn í flugafgreiðslu Loftleiða í Reykjavík. Þar verð- ur, auk ýmis konar þjónustu varðandi flugferðir, stór bið- salur, rakarastofa, sölubúð og upplýsingamíðstöð um flug- þjónustu félagsins. Þá er á 1. hæð veitingasalur fyrir 160 manns, með sér inn- gangi að utan, rúmgóðu and- dyri, aðalskrifstofu veitinga- stjóra og fatageymslu. Við þenn- an veitingasal er vínstúka, er rúmar 70 manns í sæti, og fundargalur. Þarna er einnig veitingasala með sjálfs- afgreiðslu, og rúmar hún um 60 manns í sæti. Þessi salarkynni eru bæði ætluð hót- el- og aðkomugestum. í aðal- sal er hljómsveitarpallur og dansgólf úr marmara. Fyrir veitingasalina eru einnig á 1. hæð eldhúsdeild fyrir uppþvott, framleiðslu í veitingasal og morgunverðareldhús. Gestaherbergin Á þrem efri hæðum hússins eru 108 hótelherbergi, með 216 rúmum. Af þeim eru 100 eins eða tveggja manna en 8 stærri og íburðarmeiri. Minni herberg- in eru öll með baðherbergjum og forstofu. Baðherbergin eru búin fullkomnum steyþíbáð- klefa, auk salemis og hand- laugar. Baðherbergi þessi eru flísalögð í hólf og gólf, og yanör að mjög til alls útbúnaðar. 1 forstofu eru tvöfaldir fataskáp- ar og töskuskemill, hvort tveggja úr harðviði. Veggir herbergjanna éru klæddir álmviði. 1 herbergjun- um eru nýtízku húsgögn úr teak og stáli. Stærri herbergin eru ýmist gerð sem hótelíbúðir með að- gangi að sérsvefnherbergi eða sem meiriháttar gestaherbergi. Með þessum herbergjum fylgja stór baðherbergi með kerlaug- um, tveimur handlaugum og steypibaði. I forstofum þessara gestaherbergja eru tveir fata- skápar og töskubekkur. Sjálf herbergin em búin vönduðum húsgögnum úr palesanderviði og stáli. Á hótelhæðunum em, auk gestaherbergjanna, vinnustofur starfsfólks, lingeymslur, búr, með beinu lyftusambandi við eldhús, til framreiðslu veitinga og morgunverðar á herbergin, skób'urstunarvélar á göngum o.fI. | Starfslið Fast starfslið hótelsins erum 100 manns. Eins og fyrr segir er Þorvaldur Guðmundsson hótelstjóri, veitingastjóri er Friðrik Gíslason, skrifstofustjóri Sveinn Guðlaugsson, sölustjóri Friðrik Theódórsson, móttöku- stjórar Geirlaug Þorvaldsdóttir og Emil Guðmundsson, aðstoð- armaður hótelstjóra Robert Goethe, yfirmatsveinn Karl Finnbogason, gjaldkeri Bertha Johannessen, yfirþjónn Bjami Guðjónsson og yfirþerna Fríður Bjarnadóttir. Hljómsveit Karls Lilliendahls leikur fyrir dansi, í stóra veit- ingasalnum, sem opinn mun al- menningi allar helgar og önnur kvöld sem hann verður ekki leigður til fjölmennra veizlu- halda. Komið verður upp föstum ferðum milli hótels og mið- borgar. tveggja manna herbergi á Hótel Loftleiðuim ■ Hótel Loftleiðir, gistihúsið nýja sem risið hefur á Reykjavíkurflugvelli á rúmu ári, verður opnað í dag, laugardag. Af þessu tilefni býður félagið fjölmörgum gestum til mannfagnaðar í húsakynnum hótelsins síðdegis í dag. ■ Hér á eftir verður nokkuð sagt frá hinu nýja hóteli, forsögu þess, byggingu og fyrirkomulagi húsakynna. Júlíusson hófu nú að teikna hótelið. Þeir teiknuðu einnig allar eldhúsinnréttingar gisti- hæðanna og flest húsgögn þeirra, stigahúsin, sundlauga- deild og innréttingar í kjallara, nema eldhús, en innréttinga- teikningar þess gerði danskur arkitekt, Ben Severin að nafnl Hann skipulagði einnig veit- ingasali, vínstúkur, anddyri og sjálfsafgreiðslu (kaffiteríu), og vann hann verk sín í samráði Séð inn í cldhús nýja hótelsins á Reykjavíkurflugvelli. Árið 1962 ákváðu Loftleiðir að. reisa byggingu fyrir aðal- • skrifstofur félagsins í Reykja- vík, og er félagið fékk lóð á Reykjavíkurflugvelli var einn- ig afráðið að byggja þar flug- stöð. Framkvæmdir voru hafn- ar haustið 1962 og fyrri hluta sumars 1964 fluttust skrifstof- ur og flugafgreiðsla í nýja byggingu ó flugvellinum. Þá var einnig búið að steypa und- irstöður og kjallara fyrirhug- aðrar flugstöðvar, þar sem ráð- gert hafði verið upphaflega að halda einnig uppi gisti- og veitingahússrekstri að takmörk- uðu leyti. 1 millitíðinni hafði sú breyting orðið á að félagið var að flytja flugrekstur sinn frá Reykjavík til Keflavíkur- flugvallar vegpa kaupa á Rolls Royce flugvélunum, sem þurftu lengri og öruggari flugbrautir én þær, sem fyrir voru í R- vík, og leiddi það til endur- skoðunar á fyrri hugmyndum um byggingaframkvæmdir. Fyrir skömmu kom hingað til lands á vegum félagsins ísland — Noregur, T. Austin, deildar- stjóri norsku skógstjórnarinnar, en það er deild úr landbúnað- arráðuneytinu þar í landi. Flutti Austin erindi í Reykja- vík og á Akureyri, á vegum fyrrnefnds félags og Skógrækt- arfélagsins. Er það að verða fastur liður í starfsemi félags- ins tsland — Noregur að fá Norðmenn hingað til lands til að halda fyrirlestra um hin á- líkustu efni. Fréttamönnum gafst á dög- unum kostur á að hitta Austin. .svo og þá Hauk Ragnarsson. formann' félagsins tsland—Nor- eeu.r, og Hákon Biarnason, vara- formann. Fyrirsjáanlegur gistihúsa- skortur höfuðborgarinnar á næstu árum, sívaxandi fjöldi ferðamanna, einkum þeirra, er tóku boði- Loftleiða um stuttar orlofsdvalir á Islandi, og trú á að auknir möguleikar til móttöku ferðamanna myndu leiða til verulegrar fjölgunar þeirra, ollu því, að stjórn Loft- leiða tók að hugleiða, hvort ekki myndi hyggilegt að reisa stórt hótel á þeim grunni, sem upphaflega var ætlað myndar- legri flugstöðvarbyggingu. Sumarið 1964 hófust undir- búningsrannsóknir vegna hinna breyttu viðhorfa. Að þeim loknum var ákvörðun tekin um að byggja þar fjórlyft hótel, sem áður var fyrirhugað að reisa flugstöð, og skyldi þar einnig verða flugafgreiðsla fé- lagsins í Reykjavík. Var strax hafinn undirbúningur þessara nýju byggingaframkvæmda. Arkitektarnir Gísli Halídórs- son, Jósef Reynis og Ólafur Sagði formaðurinn að þessi félagsskapur væri að vísu nokkuð fámennur, en hefði það ágæta markmið að viðhalda og auka menningartengsl á milli landanna tveggja. Það væri engin tilviljun að Austin hefði verið beðinn um að flytja hér erindi því aðhann hefði jafnan verið Islendingum hjálplegur í skóggræðslumálum og mættum við vafaíaust margt af erindum hans læra. Fyrirlestur Austins fjallaði um skóggræðslu Norðmanna, sem byrjað var á fyrir 100 ár- um. En erfiðleikarnir voru margvíslegir og það var fyrst' um 1950 að gerð var mikil skóggræðsluáætlun í Noregi. Eftir það hefur st irfið gengið , Framhald á 9. síðu. I við Þorvald Guðmundsson, sem ráðinn var, 1. apríl 1965, til aðstoðar um búnað, gerð og fyrstu forstjórn hótelsins. í nóvember 1964 voru fleiri sér- fræðingar valdir til starfa. Framkvæmdir Um miðjan janúar 1965 hóf- ust byggingaframkvæmdirnar. Almenna byggingafélagið hf. hafði þá tekið að sér yfirum- sjón þeirra, og eftirtaldir meist- arar verið ráðnir: Þórður Kristj- ánsson, trésmíðameistari, Þórð- ur Þórðarson, múrarameistari, Þórður Finnbogason, rafvirkja- meistari og Benóný Kristjáns- son, pípulagningameistari, og blikksmiðjan Vogur vegna loft- ræstingakerfis. Af hálfu Almenna bygginga- félagsins var 'Páll Flygénring, verkfræðingur ráðinn fram- k^æmdastjórl á staðnum, en Þorvaldur Daníelsson gerðist trúnaðarmaður Loftleiða um eftirlit með öllum bygginga- framkvæmdunum. Frá því er verkið hófst á staðnum er nú liðinn lSVz mánuður, en þá var búið að Ijúka 2Vz mánaðar vinnu í teiknistofum. Er' þetta mjög stuttur tími, einkum þegar þess er gætt, að öll hönnun (projek- tering) vai'ð að mestu að fara fram samtímis því sem byggt var, og einnig öll efniskaup. I upphafi var Ijóst, að djarft var teflt er ákveðið var að hót- elið skyldi fullbúið til opnun- ar 1. maí 1966, einkum þar sem nær allt efni varð að flytja frá útlöndum. Var því horfið til þess ráðs, að byggja sem mest úr byggingaeiningum, fran 'eiddum í verksmiðjum, og skipuleggja nákvæmlega allar íramkvæmdir þeirra, er sam- keppnisfærir reyndust1 heima og erlendis, en árangurinn hlaut að byggjast á því, að vel tæk- ist til um góða samvinnu hinna fjölmörgu innlendu og erlendu aðila, er hér þurftu að leggja margar hendur á einn plóg. Byggingariðjan hf. í Reykja- vík tók að sér framleiðslu lofta og burðarbita úr steins' iypu. Út slu í Noregi

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.