Þjóðviljinn - 30.04.1966, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 30.04.1966, Qupperneq 12
Krafan um þjóðaratkvæðagreiðslu einnig flutt í efri deild # Norðmenn vöruðu við for- dæmi ulúmíns umningunnu ■ Frumvarpið um að veita alúmínsamningimum laga-^ gildi kom til 2. umræðu í efri deild Alþingis í gær. Leggja fulltrúar Alþýðubandalagsins og Framsóknarflokks- ins í „álbræðslunefnd11 til að frumvarpið verði fellt, en fulltrúi Alþýðubandalagsins, Gils Guðmundsson, flytur jafnframt tillögu um að þjóðaratkvæði skuli fara fram um málið áður en lögin taki gildi, verði frumvarpið sam- þykkt. B Komið hefur fram { umræðunum að Norðmenn vör- uðu íslendinga við því að alúmínsamningurinn hlyti að verða fordæmi fyrir öðrum skyldum í framtíðinni. Sveinn Guðmundsson hafði framsögu af hálfu meirihluta nefndarinnar, og taldi hann samningana hina mestu blessun fyrir land og þjóð. Helgi Bergs flutti framsöguræðu af hálfu Framsóknar og stóð ræða hans fram að kvöldmat. Gils Guð- mundsson flutti sína framsögu- rasðu á kvöldfundi í gærkvöld. Umræður stóðu enn er blaðið fór í prentun. í nefndaráliti segir Gils Guð- mundsson m.a.: „Frumvarp þetta boðar algera stefnubreytingu að því er varð- ar hagnýtingu erlends fjármagns og áhrifavald þess í íslenzku at- vinnu- og efnahagslífi. Með um- fangsmiklum samningum, sem ætlunin er að lögfesta, eru er- lendu auðfélagi veitt margvís- leg sérréttindi og víðtækar und- anþágur frá íslenzkum lögum og því á þann hátt tryggður allt annar og meiri réttur en ís- lenzkir þegnar njóta. f þessum efnum er um. svo .im ný- mæli að ræða, að málið verður ekki metið réttiiega með þeini hætti einum að líta á það sem einangrað fyrirbæri, ■ er enga hliðstæðu kunni að eignast á komandi tímum. Það verður að meta út frá þeirri forsendu, að um sé að ræða stefnumarkandi ákvörðun, er skapi fordæmi fyr- ir öðrum samningum af svip- uðum toga. ★ Það er einnig hafið yfir allan vafa, að með samningi þeim, sem hér liggur fyrir, er skapað fordæmi um framkvæmd hinnar nýju stefnu, að því er varðar þátttöku erlendra auðfélaga í íslenzku atvinnulífi. I nóvember- mánuði sl. fór Steingrímur Her- mannsson, framkvæmdastjóri Rannsóknaráðs ríkisins, til Nor- egs á vegum iðnaðarmálaráð- herra og stóriðjunefndar til þess að kynna sér norsk viðhorf og reynslu í sambandi við erlent fjármagn og alúmínverksmiðjur. f skýrslu, sem hann gerði um för sína, segir svo m.a.: „Að- spurðir áttu menn eðlilega erfitt með að gera sér grein fyrir þvi, hvort hér væri um æskilega framkvæmd fyrir okkur íslend- inga að ræða. Flestir lögðu þó áherzlu á, að mikilvægt væri að fá slíkan iðnað inn i landið. Það væri ómetanlegt fyrir framtíðina. Hins vegar vöruðu þessir sömu aðilar við því, að sá samningur, sem nú er gcröur, hlyti að verða fordæmi fyrir ððrum skyldum í framtíðinni‘‘. Hér fer ekki á milli mála sú skoðun hinna norsku sérfræðinga, að með slíkum samningi sé ekki aðeins um einangraða aðgerð að ræða, heldur sé verið að móta stefnu að því er varðar erlenda fjárfestingu t landinu, hvaða al- mennum skilmálum hún eigi að lúta, hvaða stöðu hún eigi að öðlast í fjárjnála- og atvinnulífi þess. Og ekki er ólíklegt, að að- varanir þeirra hafi mótazt af þeirri vitneskju, að hér var ver- ið að gera samning á allt öðr- um grundvelli en þeiip, sem gild- ir um erlenda fjárfestingu í Nor- egi. Þar lúta slík félög norsk- um lögum og búa ekki við nein forréttíndi eða fríðindi umfram norska atvinnurekendur. Samningurinn milli íslenzlo rikisstjórnarinnar og Swiss Alu- minium er með allt öðrum hætti. Segja má, að hann sé að mjög verulegu leyti upptalning á fríð- indum, forréttindum umfram íslenzk fyrirtæki og undanþág- um frá íslenzkum lögum, sem hinn svissneski auðhringur og dótturfélag hans eiga að njóta um 45 ára skeið, eða nokkuð fram á næstu öld. Nokkur hinna samningsbundnu fríðinda auðhringsins eru þessi: 1) Algert tollfrelsi á hvers konar innfluttum efnum, vélum og búnaði, sem til byggingar verksmiðjunnar þarf. 2) Algert tollfrelsi á öllum inn- flutningi, sem með þarf til rekstr- ar verksmiðjunnar út samnings- tímabilið, í 45 ár. 3) Algert frelsi um ráðstöfun alls hins mikla gjaldeyris, sem verksmiðjureksturinn skápar, með þeirri takmörkun einni, að geymt skal í íslenzkum bönkum fé, sem svarar til rekstrarkostn- aðar fyrirtækisins í þrjá mánuði. 4) Algert frelsi til að flytja úr landi allan hagnað og and- virði íyrningarafskrifta. 5) Trygging fyrir hagstæðara gengi en íslenzkir atvinnuvegir njóta, ef um gengisbreytingar verður að ræða. 6) Réttur til að hafa í þjón- ustu sinni erlent starfslið. 7) Undanþágur frá ákvæðum íslenzkra laga um hlutafélög. 8) Undanþágúr frá ákvæðum íslenzkra skattalaga, þar á meðal framtalsskyldu. 9) Trygging fyrir nokkum veg- inn óbreyttu raforkuverði í 25 ár, hvað sem líður breytingum á kostnaðarverði raforku frá Landsvirkiun allt það tímabil. Framhald á 3. síðu. Erlingur Pálsson og tvær dætradætur hans, Guðfinna Hclgadóttir og Sigríður Ida tílfarsdóttir, vígðu sundlaugina sem er í kjallara hótelsins. — (Ljósm. Þjóðv. A. K.>. Fyrstu gestir Loftleiðahótelsins nýja á Reykjavíkurflugvelli voru Norðmaðurinn major Bjöm Steenstrup og kona hans, Marie- Louise. Steenstrup er umboðsmaður Loftleiða í Svíþjóð og starf- ar í Gautaborg. Alls var 34 útlendingum boðið að vera við opn- un hótelsins og eru þcir allir umboðsmenn Loftleiða nema tveir. HÓTEL LOFTLEIÐIR opnur • B Fyrstu gestir Loftleiðahótelsins nýja á Reykjavíkur- flugvelli komu þangað í gærdag, um fimm leytið — í dag, laugardag, verður gistihúsið formlega opnað og hafa for- ráðamenn félagsins boðið til mikils mannfagnaðar þar síð- degis af því tilefni. Á 5. síðu blaðsins í dag er sagt ýtar- lega frá hinu %nýj a hóteli, en hér fyrir ofan eru tvær í gærdag. hinu fnýja myndir teknar í hótelbyggingunni Miklir f járhagserf i ðleikar hiá Norðurstjörnunni hf. B Niðursuðuverksmiðjan Norðurstjarnan h.f. í Hafnar- firði á um þessar mundir við mikla xfjárhagsörðugleika að stríða, en fyrirtækið hefur ekki verið starfrækt nú um mánaðarskeið vegna hráefnisskorts. Var í gærmorgun lok- að fyrir rafmagn til fyrirtækisins vegna skulda þess við rafveituna í Hafnarfirði. Þjóðviljinn átti í gær tal við framkvæmdastjóra Norðurstjörn- unnar, Andrés Pétursson, og stað- festi hann, að það væri rétt að lokað hefði verið fyrir Ijósaraf- magn til verksmiðjunnar í gær- NF í Kópavogi Norræna félagið í Kópavogi heldur aðalfund sinn kl. 3 síð- degis í dag, Iaugardag. Þar fara fram venjuleg aðalfundarstörf en einnig ræðir Magnús Gíslason störf norrænu félaganna á fund- inum. Tvöfaldur kvartett Kópa- vogsbúa syngur. Auður Guð- muridsdóttir segir frá vinabæja- ferð til Norðurlanda. Fundurinn verður haldinn í Félagsheimili Kópavogs. morgun vegna vangoldinna raf- magnsreikinga. Kvað hann fyrir- tækið eiga í miklum fjárhags- örðugleikum um þessar mundir, enda hefði framleiðsla þess legið niðri nú um mónaðarskeið vegna hráefnisskorts. Sagði hann að þrátt fyrir stöðvunina væru 10—15 manns á föstum launum hjá verksmiðjunni en fram að þessu hefði þó tekizt að greiða starfs- fólkinu kaup sitt reglulega. Einnig kvaðst hann eiga von á pening- um eftir helgina til þess að greiða skuldina við rafveituna svo að aftur yrði opnað fyrir rafmagnið. Framkvæmdastjórinn sagði að síldin hefði brugðizt algei'lega undanfarið, en nú væru Akranes- bátar eitthvað famir að veiða hana aftur og vonandi rættist þá úr þessu. Norðurstjarnan hefur þó ekki fengið neina síld ennþá og sagðist forstjórinn ekki vita, hve feit sú síld væri sem til Akraness hefði borizt, en síldin má ekki vera undir 8% feit til þess að verksmiðjan geti unnið úr henni. ; Áttundu | Jofnteflið m m j MOSKVA 29/4 Níundu skák- ■ inni í einvígi Petrosjans og • ■ Spasskis um heimsmeistara- j 1 titilinn lauk í dag með jafn- j • tefli eftir 26 leiki. Spasskí lék ■ ■ hvítum og fóru keppinautarn- • i ir mjög troðnar leiðir í skók- j ■ inni og náði hvorugur neinum • yfirburðum.. i Þá hafa allar skákir einvíg- I isins orðið jafntefli nema ein. ■ sem Petrosjan Vann. ■ ■■■■■■■■■■■■>■■■■■• ■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■«■■■■■! Píunótónleikur M. Fruger / Þjóðleikhúsinu 9. moí n.k. Hinn kunni bandaríski píanóleik- ari Malcolm Frager er nú vænt- anlegur til fslands og mun halda tónlcika í Þjóðleikhúsinu xnánu- daginn 9. maí kl. 20.30. Verk á cfnisskránni eru eftir Mozart, Chopin og Mussorgský. Malcolm Frager er íslenzkum tónlistarunnendum að góðu kunnur hann kom hingað vorið 1964, en þá hélt hann tvenna tónleika í Reykjavík með sov- ézka píanóleikaranum Asjkenazí og einn einleikskonsert og ferð- aðist síðan um landiðog lékm.a. með Asjkenazí á Akureyri og hélt tónleika á Norðfirði. Þá lék hann einnig á Arnarhóli á þjóðhátíðardaginn. Að þessu sinni heldur Frager aðeins þessa einu tónleika og leikur á þeim Sónötu í D dúr eftir Mozart, sónötu í h moll eftir Chopin og Myndir á 'sýnr ingu eftir Mussorgský. Hann er hér á vegum Péturs Péturssonar og verða aðgöngumiðar á tón- leikana seldir í Þjóðleikhúsinu frá og með. þriðjud. 3. mai. Krístján Davíðsson sýnir / Bogasalnum Kristján Davíðsson listmálari ætlar ekki að gera það enda- sleppt þetta vorið, hefur nú tvær sýningar í gangi í einu, aðra í Unuhúsi og hina í Bogasal Þjóð- minjasafnsins og verffur sú síð- arnefnda opnuð í dag kl. 4. Eins og áður hefur verið sagt tfrá hér í Þjóðviljanum eru mynd- irnar í Unuhúsi bæði gamlar og nýlegar, en allar myndimar á sýningunni í Bogasalnum eru nýjar, málaðar érin 1965 og ’66. Gefst því gott tækifæri nú til að virða fyrir sér þróun málar- ans undanfarið, en hann segir sjálfur, að sýningin í Bogasaln- um sé í beinu framhaldi af hinni í Unuhúsi. Á sýningunni í Bogasalnum eru alls 19 stór málverk og hef- ur Kristján ekki gefið þeim nafn hverju um sig, heldur kallar sýn- inguna í heild „Birtan í fjör- unni“, og segist mikið fást við birtu yfir vatni og jörð um þess- ar mundir. Kristján Davíðsson listmálari. Sýningin verður opin í tíu daga, kl. 3—10 daglega. Verz/un KRON við Stukko- hlíð væntunl. opnuð í huust Miklar framkvæmdir eru á döfinni hjá KRON og hefur fé- lagið nú í smíðum verzlunarhús við Stakkahlíð sem á að verða Iokið í haust og hefur sótt um Ióð í Kópavogi undir vörúmark- aff og byggingarvöruverzlun. Þetta kom fram í skýrslu for- manns félagsstjómar, Ragnars Ólafssonar á aðalfundi KRON, sem haldinn var 23. þ.m. Urðu miklar umræður á fundinurri um framtíðarverkefni félagsins og einhugur um áframhaldandi sókn í samvinnumólum höfuðstaðarins. Kaupfélagsstjórinn, Ingólfur Ólafsson, flutti skýrslu um rekst- ur og reikninga félagsins og sagði m.a. að vörusala félagsins hefði aukizt árið 1965 um 8%i frá árinu áður og varð rekstur félagsins heldur hagstæðari þrátt fyrir mikla hækkun rekstur- kostnaðar. Úr stjórn félagsins áttu að ganga Guðrún Guðjónsdóttir, Ólafur Jónsson og Guðmundur Finnbogason, en voru öll endur- kjörin. Auk þeirra eru í stjórn KRON: Ragnar Ólafsson, Þor- lákur Ottesen, Hallgrímur Sig- tryggsson, Sveinn Gamalíelsson og Friðfinnur Ólafsson. FH íslunds- meisturi í hundknuttleik FH varð íslandsmeistari í handknattleik karla 1966, sigraði Fram í úrslitaleik í gærkvöld með 21 marki gegn 15. Leikurinn var mjög skemmti- legur og afartvísýnn og jafn í fyrrihálfleik, en þá skoruðu bæði liðin 8 mörk. 1 síðari hálf- leiknum sýndu BTI-ingar mjög skemmtilegan og góðan leik sem Framarar réðu ekkert við og lauk leiknum með 21:15 sigri Hafnfirðinganna. Urslitaleikurinn í 2. deild fór þannig að Víkingar sigruðu Þrótt með miklum yfirburðum, 27 mörkum gegn 15. Átök í háskólanam í Róm í ?ær RÓM 29/4 — ítalskir þingmenn hrópuðu hver aff öðrum ókvæð- isorð á þiri'gi í dag, og urðu verðir að ganga á millj svo þingheimur berðjst ekkj Ástæð- an var umræða um stúdentaó- eirðir í Róm á dögunum milli nýfasista og vinistri stúdenta og var ungur sósíalisti drepinn í þeim átökum og dóttur þekkts kommúnistaleiðtoga misþyrmt.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.