Þjóðviljinn - 15.05.1966, Side 5

Þjóðviljinn - 15.05.1966, Side 5
Sunrrudagur 15. maí 1966 — ÞJÖÐVILJINN SlÐA CJ 5ÍLD VEIÐAR FYRR OG NÚ Saga síldveiða íslendinga er ekki löng og þó má fullvíst telja að síldin hafi verið nytja- fiskur manna víða um heim frá ómuna tíð. Þannig rfiunu menjar hafa fu'ndizt um síld- véiðar á Norðuröndum á stein- öld og fyrir Islandsbyggð voni síldveiðar og síldarverzlun nor- Þórólfur Kveldúlfsson hafi sent menn sína til síldveiða og Skalla-Grímur bróðir hans fór oft í síldfiski á lagnarskútu að vetrarlagi. Nokkur ömefni benda til þess, að síldveiðar kunni að hafa verið slundaðar liér við land áður fyrr, en þó virðist síldin ekki hafa orðið feitiri síld, sem seld var til Svíþjóðar fyrir 40 kr, tunnan, og þótti það ævintýralegt verð á þeim tíma. Samkvæmt þessu telja menn árið 1868 upphafsár síldarútflutnings frá Islandi, þrátt íyrir þann óverulega út- flutning sem áður var drepið á. Olto Wathne frá Mandal var sambandi má geta þess að árið 1912 stunduðu rúmlega 20 ís- lenzk skip síldveiðar. en 1917 voru þau orðin 110. Togari er fyrst sendur til síldveiöa 1908 en á fyrri heims- styrjaldarárunum lögðu um eða yfir 20 togarar stund á síldveiðar árlega. Þetta voru 300—350 lesta skip, flest, tals- vert stærri skip en línuveið- ararnir sem einnig voru við síldveiðar ásamt minni vélbát- um. Veiðarfærin Síldarsöltun á Siglufirði fyrir 30 til 40 árum. Síldarsöltun í Ncskaupstað á síðaslliðnu suntri. rænna manna allumfangsmikil atvinnugrein. í Jlgils sögu segir frá því, að ----------------------^ Frímerkjasýning S.Þ. á hjólum ‘ f sumár kemur frímerkja- sýning á hjólum til Norður- landa. í júnílok leggur sér- staklega búinn langferðabíll upp frá Genf með eintök af öllum frímerkjum sem Samein- ! uðu þjóðirnar hafa gefið út. Á þremur mánuðum verða þau sýnd og seld á 23 stöðum í 17 Evrópulöndum, fyrst í Suður- Évrópu, síðan Austur-Evrópu, þar næst Norðurlöndum og loks í Vestur-Evrópu. (S.Þ.). Umsátursástand í Guatemala GUATEMALABORG 11/5 — For- seti Guatemala, Enrique Peralta Azurdia, lýsti í gær yfir umsát- ursástandi í öllu landinu í næstu 30 daga. öll stjórnmálastarfsemi er bönnuð og aliur mannsafn- aður fleiri en fjögurra manna, hvort sem er á almannafæri eða ■ heimahúsum. Þessar ráðstafanir •■u sagðar nauðsynlegar vegna akinna aðger(|a skæruliðahersins. cins algengur matfiskur hér og í Noregi. Tvennt hefur verið taliö valda þessu: Annað hvort hafi menn ekki áttað sig á síldargöngunum og þær verið minni en þær síðar urðu, eða landsmenn hafi ekki haft nó,gu góð tæki til síldveiðanna og þessvegna hirt helzt þann fisk- inn sem auðfengnastur var. Upphafið t byrjun 18. aldar munu sfld- veiðar hafa verið stundaðar lít- ilsháttar frá einstaka verstöðv um á íslandi. Þannig getur Árni Magnússon þess í ferða- bók sinni að síldveiði hafi vér- ið stunduð við Oddeyri 1712 pg Olavius segir í sinni bók frá síldveiðum með netjum við Hofsós um 1730. Um aldamótin 1800 og í byrjun 19. aldar munu síldveið- ar Islendinga eitthvað hafa aukizt og á næstu áratugum var eitthvað lítilsháttar flutt út af síldarafurðum frá Akureyri og Hafnarfirði. Og svo sendu Norðmenn fyrstu nótalög sín til sfldveiða við ísland 1858 og á næstu ár- um og óratugum eykst til muna sókn norskra útgerðar manna hingað til síldveiða. Árið 1868 öfluðu Norðmenn allvel hér við land og söltuðu um 2000 tunnur af stórri og fyrir Norðmönnum í síldarleið- angri þessum,' en Otto þessi settist síðan að á Seyðisfirði og varð einn -helzti brautryðj- > andi síldarútgerðar og síldar- verkunar á Islandi. Viðgangurinn Um og uppúr 1880 jókst svo þátttakan í síldveiðunum ört og aflinn að sama skapi, og jafnframt hófu íslenzk fyrir- tæki um þær mundir þátttöku í síldveiðunum. Það voru sem sagt Norðmenn sem komu skriði á síldveiðarnar hér við land og Islendingar ‘ færðu sér í nyt reynslu þeirra. Einn helzti hvatamaður þess, að Islendingar legðu sjálfir stund á síldveiðar var Tryggvi Gunnarsson, en síðan koma, smám saman, fleiri til sögunn- ar og verða ekki taldir hér. Reknetaveiðar hófust hér við land um aldamótin síðustu að frumkvæði Tryggva, og herpi- nætur munu fyrst hafa verið reyndar við Island af erlendum skipum árið 1904, en árið eftir er sagt að 13 útlend skip hafi stundað herpínótaveiðar á Is- landsmiðum. Fyrsta íslenzka síldveiðiskip- ið var gert út á herpinót árið 1906 og síðan fer þátttaka Is- lendinga sjálfra í veiðunum mjög vaxandi ár frá ári. 1 því Framangreindar uppiýsingar eru tíndar saman úr ýmsum ritum og ritgerðum, sem birzt hafa á prenti, m.a. 50 ára af- mælisriti ÆGIS, tímariti Fiski- félags Islands, og Sjómanna- sögu Vilhjálms Þ. Gíslasonar (1945). í síðastnefndu bókinni er birtur kafli um herpinóta- veiðar. Þar segir m.a.: „Veiðarfæri, veiðiaðferðir og verkun hefur tekið ýmsum breytingum. Helzta veiðarfærið er herpinótin. Hún er smáriðið, stórt og vítt net, misstór eftir stærð skipanna, frá 150 til 230 faöma langt og 24 til 38 faðma breitt eða djúpt. I efri brún- inni eða teininum, sem hcldur henni uppi, er kork í þéttum flám, en blýsökkur í neðri brún. Á henni cru einnig hringir, sem langur, laus kaðall getur leikið um og lokað nótinni með því áð herpa hana saman í botn- inn. Af því dregur netið nafn sitt. Nótin er lögð úr tveimur bátum, hafður sinn helmingur hennar í hvorum bát. Hann hét nótabátur, en nótabassi sá, sem íyrir honum var, og nóta- brúk nótin með öllum lilheyr- andi áhöldum. Þessar orðasam- sctningar mynduðust kringum síldveiðarnar, en orðið nót er gamalt, og nótlag var áður til, einkum ijotað um samstæður af selanetum. Því var t.d. sagt; að selur væri nótvar. Annars var algengara við veiðar orðið net og samsetningar með því, netfiski, nettrossa, netlögn, net- kúla, netdufl, r.etháls o.s.frv., og yfirfærðar merkingar einsog sú, að trúa einhverju eins og nýju neti. Nótabátarnir, sem fylgjasíld- arskipinu, varpa út nótinni, þar sem síldartorfu er von, og breiða nokkuö úr henni og róa bátun- um síðan á sína hönd hvorum og fara í hálfhring umhverfis torfuna og lolca hana inni í lögninni með því að láta nót- ina lykjast eins og sívalning utanum hana. Síðan er byrjað aö herpa nótina, draga saman neðra borðið og loka þannig botni nótarinnar, svo að hún verður eins og stór háfur eða skál. Síldarskipið leggst að nóta- Kraftblökkin hefur valdið byltingu í síldveiðitækninni. bátunum og síldin er háfuð upp úr nótinni inn í skipið. Það heitir kast, sem í nótina fæst hvert sinn. Þau eru misstór, nokkur hundruð tunnur ef vel gengur. Dæmi eru til um meira en 2500 tunnur í kasti. Háíur- inn er þéttriðið net, eins og sí- valningur á járnhring, opinn í báða enda, en hægt að herpa saman botninn. Háfinum er sökkt í torfuna í nótinni og tekur 5 til 10 tunnur í einu og er hleypt úr háfinum með því að losa aftur botninn, þegar háfurinn hefur verið dreginn upp í skipið. önnur helztu síldveiðifæri hér hafa verið landnætur, rek- net,. lagnet og stauranet. Er- lendir fiskimenn hafa einnig notað botnvörpur til síldveiða." Öflugur atvinnu- vegur Þetta var skrifað fyrir meira en tveimur tugum ára. Síðan hafa orðið stórfelldar 'breyting- ar á veiðitækni og á síðustu ár- um má segja að hinn nýtízku- legi og fullkomni útbúnaður síldarskipanna, svo sem síldar- leitartækin cg kraftblökkin, hafi valdið gjörbyltingu í síldveið- um. Á því sviði hafa íslenzkir útgerðarmenn og sjómenn haft ótvíræðá forustu. En út í þá sálma verður ekki farið hér, heldur skal nú aftur blaðað í Sjómannasögu og birt niðurlag þess kafla bókarinnar, sem fjallar um síldveiðarnar: „Síldveiðarnar sköpuðu rtýtt og fjörugt líf á útgerðar- og verksmiðjustöðunum. Þær drógu þangað fjölda fólks. Það fólk var svo að segja úr öllum stétt- um, ekki sjómenn einir, héldur námsmenn, verkamann og sveitamenn, sem leituðu í síld- ina sér til fjárafla, því að ann- arsstaðar þótti ekki meiri uþp- gripa að vænta. Þegar vel gekk fóru margir þaðan með fullar hendur fjár. Oft báru menn skarðan hlut frá borði. Stundum var sukk- samt lífið í síldinni, hávaðay samt og óróasamt í innilegum, þegar mörgum lenti saman, út- lendum og innlendum. Sumir óttuðust einnig í upphafi, að síldarbæirnir yrðu hættulegir íslenzku þjóðerni. Þó að er- lendur keimur hafi verið þar á ýmsu, hafa síldarbæirnir yfir- leitt orðið íslenzkir, og því meira, sem lengra leið og hlut- ur Islendinga í veiðum ogverk- smiðjurekstri hefur orðið meiri. Síldveiðarnar, sem hófust sumstaðar sem gróðasókn er- lendra útgerðarmanna eða sem íslenzk leppmennska, hafa orð- ið öflugur þjóðlegur atvinnu- vcgur. Þær hófust á þilskipum, en hafa eflzt mest og aukizt með vaxandi og batnandi skipa- kcsti, vélbátum, línuskipum og togurum.“ Nótabátarnir bundnir við skipssíöuna, síldin háfutf um borð ívciðiskipið.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.