Þjóðviljinn - 10.06.1966, Side 10
/
Fjögra ílokka
samvinna er ó
Seyðisfírði
□ Fyrsti fundur bæjar-
stjómar Seyðisfjarðar var
'ialdinn í fyrradag. Fulltrú-
ir stjómmálafloMcanna fjög-
urra, Alþýðubandalagsins,
Alþýðuflokksins, Framsókn-
arflokksins og Sjálfstæðis-
flokksins höfu gert með sér
málefnasamning um stjórn
bæjarins næsta kjörtímabil
og stóðu saman um kjör
bæ'jarstjóra og aðrar kosn-
ingar.
Hrólfur Ingólfsson sem verið
befur bæjarstjóri frá 1962 var
endurkjörinn í það embætti.
Forseti bæjarstjómar var kjör-
inn Theódór Blöndal (Sj.) og
varaforseti Sveinn Guðmundsson
(Sj.).
í bæjarráði voru kjörair Theó-
dór Blöndal (Sj.), Hjörtur Hjart-
arson (F) og Gísli Sigurðsson
(Ab.). 1 hafnarnefnd voru kjöm-
ir Sveinn Guðmundsson (Sj.),
Leifur Haraldsson (Sj) og Hall-
steinn Friðþjófsson (Afl.). I
bygginganefnd voru kjörnir
Garðar Einarssbn (Ab.), Karl
Jónsson (Sj.), Leifur Haraldsson
(Sj.) og Gissur Sigurðsson (ó-
háður).
I bæjarstjórn Seyðisfjarðar
eiga sæti 3 Sjálfstæðismenn, 2
Framsóknarmenn, 1 Alþýðu-
flokksmaður, 1 Alþýðubanda-
lagsmaður og 2 fulítrúar H-
listans, óháðra.
Fundn síld við
Jan Mayen í gær
Bræla er nú á síldarmiðunum
fyrir Austfjörðum.
M/s Gísli Árni RE var í gær-
morgun staddur 65—70 sjómilur
SSA frá Jan Mayen og fékk þar
um 50 tonn af síld, sem var
blönduð stórri sild. Þá var m7»
Akurey RE á svipuðum slóðum,
Dg lóðuðu ■ bæði skipin á nokkurt
síldarmagn, en þar var fremur
óhagstætt veður eða um fimm
vindstig.
Sildarleitin á Raufarhöfn bjóst
við að nokkur skip væru þegar
á leið á framangreint veiðisvæði
SSA af Jan Mayen, enda hefði
ekki fundizt mikil síld á þeim
slóðum, sem skipin hafa verið á
veiðum undanfaraa daga út af
Austfjörðum og Norðausturlandi.
Á veiðisvæðið SSA af Jan
Mayen eru um 300—320 sjómíl-
ur frá Raufarhöfn.
S.l. sólarhring tilkynntu níu
skip um afla, samtals 405- tonn.
Jón á Stapa SH 60 tonn
Anna SÍ 30 —
Jón Þórðarson BA 60 —
Akraborg EA 60 —
Björgvin EA 30 —
‘Hugrún IS 50 —
Lómur KE 40 —
Helgi Flóventsson ÞH 35 —
Loftur Baldvinsson EA 40 —
Skákeinvíginu
ernú lokið
MOSKVU 9/6 — Tuttugustu og
fjórðu og síðustu skákinni í ein-
vígi þeirra Petrosjans og Spassk-
ís um heimsmeistaratitilinn varð
ekki lokið þrátt fyrir 77 leiki.
Petrosjan hefur þar með hlotið
einum vinningi fram yfir Sj.asskí
— var reyndar vitað eftir 22.
skák að hann myndi halda titl-
inum.
Ólafur og Skúli
í Unesco-nefnd
Af vangá féllu niður nöfn
tveggja rnanna er sagt var frá
íslenzku Unesco-nefndinni í
blaðinu í gær. Eru það þeir
Skúli Þorsteinsson formaður
Sambands ísl. bamakennara og
Ólafur Einarsson form. Lands-
sambands framhaldsskólakenn-
ara. Eru þeir báðir beðnir vel-
virðingar á mistökunum.
1
Myndina tók Ijósm. Þjóðviljans, A. K. af nokkrum þátttakcnda S ökufcrð L. & L.
Vistfólk að Hrafnistu í ökuferð sgær
• 1 gær bauð Ferðaskrifstofan
Lönd og Leiðir vistfólki dval-
arheimilis aldraðra sjómanna i
ökuferð um bæinn og var m.
a. farið upp að Arbæ og safn-
ið þar og kirkjan skoðuð.
Að sögn starfsmanns Ferða-
skrifstofunnar Lönd og Leið-
Ir, Steins Lárussonar, er hér
um að ræða samskonar ferð
og erlendum ferðamönnum,
sem koma hingað flugleiðis og
stanza í einn sólarhring, er
boðið upp á.
I gær var haldið frá Hrafn-
istu klukkan 2 e.h. í gær og
tóku flestir vistmanna þátt S
ferðinni eða allir þeir sem
ferðafærir voru — og voru
tveir hópferðabílar þéttsetnir.
Fyrst var ekið upp að Ár-
bæ og stanzað þar góða stund,
síðan var ekið um bæinn og
m.a. farið upp í Öskjuhlíð, en
að endingu var hópnum boðið
upp á kaffi í Hótel Loftleið-
Að vonum var létt yfir
ferðafólkinu, enda hlýtur ferð
sem þessi að vera því ágætis
tilbreyting.
VVWW/VVV\A/V\AA/V4MV\^A/\M/V\A*A/\AAA/VVVVVVVW\/VWVVA/VW\AA/VW\\\/WVWVV/WV\\/VVWVVWVVVW\A/VVVVWVVVA/WVVVW\VVVV\A/VVVVVV\
Samtök til varnar umferðarslysum:
, Varúi á vegum' var
stofnuð í fyrradag
■ Framhaldsstofnfundur
„Varúðar á vegum1', banda-
lags félagasamtaka til varn-
ar gegn umferðarslysum og
til eflingar umferðarmenn-
ingu á íslandi, var haldinn
í fyrradag að Hótel Sögu og
voru þar mættir fulltrúar frá
18 félögum og félagasamtök-
um, en fyrri fundurinn var
haldinn 23. jan. s.l.
■ Samþykkt var tillaga
stjórnamefndar um stofn-
samkomulag eftir allmiklar
umræður, sem. snerust aðal-
lega um það hve marga full-
tnía Slysavamafélagið og bif-
reiðatryggingafélögin ættu að
eiga í fulltrúaráði.
Haukur Kristjánsson setti
fundinn, en fundarstjóri var
skipaður Ágúst Hafberg og fund-
arritarar þeir Jóhannes Briemog
Hannes Þ. Sigurðsson. .
Haukur Kristjánsson, forrnað-
ur flutti skýrslu stjórharnefndar,
en þar kom m.a. fram að 18 að-
ilar ákváðu á fundinum í janú-
ar að gerast stofnendur samtak-
anna, sumir þó með fyrirvara.
1 lok ráðstefnunnar í janúar
voi-u eftirtaldir menn kjörnir í
stjórnarnefnd til frekari undir-
búnings framhaldsaðalfundar: —
Haukur Kristjánsson, yfirlæknir,
Ágúst Hafberg, framkvæmdastj.,
Egill Gestsson, deildarstjóri,
Guttormur Þormar, yffrverkfræð-
ingur, Jón Rafn Guðmundsson,
deildarstjóri og Ólafur B. Thors,
deildarstjóri.
Eftir að formaður hafði lokið
máli sínu urðu líflegar umrasð-
ur, einkanlega um frumvarp að
lögum fyrir samtökin og var það
sjöunda greinin sem mestar um-
ræður vakti, en i henni segir
að fulltrúaráðið verði skipað
þannig: Frá Slysavarnafélagi fs-
Framhald á 3. síðu.
Vinstri samvínna
í Stykkishólmi
Stórstúkan er 80 ára gömul þann 24. júní næstkomandi
60. þing Stórstúku Íslands
sett í Cóðtemplarahúsinu
□ í gær var sett í Góðtemplarahúsinu í Reykja-
vík 24. þing Stórstúku íslands. Þingið, sem er hið
64. í röðinni, mun væntanlega standa fram á sunnu-
dag og sitja það um 60 fulltruar frá um 40—45
stúkum hvaðanæva að af landinu. Jafnframt er
þetta hið merkasta afmælisþing: Stórstúkan verð-
ur 80 ára þann 24. júní næstkomandi, var stofnuð
í Alþingishúsinu 1886.
Þingið var sem fyrr segir sett
í gær, en síðan hófst opinn fund-
ur. Stórtemplar, Ólafur Þ. Krist-
jánsson, skólastjóri í Hafnarfirðij
Samþykkt tilboð
í gatnigerð
Á fundi sínum á þriðjudag
fjallaði borgarráð um tilboð þau
sem bárust í gatnagerð í ein-
býlishúsahverfi Breiðholtsins.
Hér er um tvö verk að ræða, í
útboði nefnd A og B. Véltækni
hf._ bauð í verk A 12.926.355 kr.
og" B 23.171.480 kr. Loftorka
bauð í A 11.124.745 kr. og í B
14.979.935 kr. Almenna bygginga-
félagið hf. bauð í verk A 14.164.
158 kr. og Hlaðbær hf. í verk
A 9.251.138 kr.
Stjórn Innkaupastofnunar R-
víkurborgar mælti með því við
borgarráð og það samþykkti að
taka tilboði Hlaðbæjar hf. í A-
verkið og tilb’oði Miðfells hf. í
verk B.
Áætlun g.-’tnamálastjóra á verk
A var 10.400.000 kr. og verk B
15.200.000 kr.
ávarpaði í fyrstu ýmsa af emb-
ættismönnum -reglunnar og bar
íram spurningar um það hvert
væri hlutverk Reglunnar. Með
hverjum hætti hún hefði gegnt
því, hvort einkamál væri, hvort
menn neyttu áfengisogvar svar-
ið, að svo væri ekki, nema að
mjög takmörkuðu leyti. Hlut-
verk Reglunnar £ nútíma þjóð-
félagi töldu þessir embættis-
menn hennar mjög veigamikið.
Stórtemplar lýsti síðan nokk-
j uð sögu þessara samtaka. Hann
I minnti á þann merkisatburð, er
fyrsta stúkan, Stúkan Isafold,
var stofnuð á Akureyri, sú stúka
er nr. 1 í stúkuröðinni og starf-
ar enn. Merkum áfanga í sögu
samtakanna var náð, er bann-
lögin voru sett að þeirra tilhlut-
an 1. janúar 1915. Ólafur rakti
það síðan, hvernig grafij hefði
verið undan banninu með alls-
konar undanþágum og undirróðri
I og jafnvel haldið úti blaði
| gegn bannlögunum unz þau voru
J afnumin 1935. Taldi stórtempl-
ar, að allt ástand í áfengismál-
j um þjóðarinnar hefði stórversnað
I síðan.
Ennfremur gat Ólafur um alhliða
i menningarstarf Stórstúkunnar á
þessum áttatíu árum og minnt-
ist t.d. þess, að fyrstu forystu-
menn verkalýðssamtakanna höfðu
vel flestir fengið félagslegt upp-
eldi sitt í stúkunum. Auk þess
hefur bindindishreyfingin unnið
brautryðjendastarf á sviði leik-
listar, líknarmála, íþrótta, út-
gáfustarfsemi og allra almennra
menningarmála.
En þótt mikið hafi á unnizt,
taldi þó Ólafur, að Reglunni
væri nú brýn þörf liðsauka. Mik-
ilvægasta verkefni Stórstúkunn-
ar nú taldi hann vera það að
breyta ' hugarfari almennings
gegn áfenginu og hvatti menn til
starfa.
Síðan var gert fundarhlé, en
eftir það skyldi flutt skýrsla
framkvæmdanefndar og Stór-
stúkustig veitt. Það kom fram á
fundi með Stórtemplar, að einn
fulltrúi fer frá Islandi á há-
stúkuþing í Lausanne í Sviss nú
í sumar. Það þing hefst nánar
til tekið 16. júlí, en auk þess
kemur um 30 manna hópur ís-
lenzkra templara við á því þingi.
■ Alþýðubandalagið og
Framsóknarflokkurinn hafa
myndað meirihluta í hrepps-
nefnd Stykkishólms og var
Jenni R. Ólason annar
hreppsnefndarmaður Alþýðu-
bandalagsins kjörinn oddviti
á fyrsta fundi hreppsnefndar-
innar sem haldinn var fyrra
mánudag. Hafa flokkamir
gert með sér málefnasamn-
ing um stjórn kauptúnsins
næsta k'jörtímabil. Er þar
með lokið áralangri stjórn
Sjálfstæðisflokksins í Stykk-
ishólmi.
/
Þjóðviljinn átti í gær tal við
hinn nýkjöma oddvita, Jenna
R. Ólason. Sagði hann að Al-
þýðubandalagið og Framsóknar-
flokkurinn hefðu gert með sér
málefnasamning um stjóm
hreppsins næsta kjörtímabil þar
sem m.a. væri kveðið á um
helztu verkefni í hreppsmálum
sem þeir ætluðu að hrinda í
framkvæmd. Helztu verkefnin
eru ný vatnsveita, bygging fé-
iagsheimilis, bygging fyrsta á-
fanga nýs bamaskóla og mynd-
un byggingarsjóðs á vegum
hreppsins, ennfremur að ljúka
smíði dráttarbrautarinnar og
stofna skipasmíðastöð til þess
að reka hana og er ætlunin að
hreppurinn verði eigandi hennar
að einum þriðja á móti skipa-
Jenni R. Ólason
smiðum og fleiri einkaaðilum.
Þá er ætlunin að fá sérfróðan
mann til þess að semja fram-
kvæmdaáætlun fyrir hreppinn
næsta kjörtímabil á grundvelli
þessa málefnasamnings.
Núverandi sveitarstjóri i
Stykkishólmi lætur af störfum
um næstu helgi og hefur starf
sveitarstjóra verið auglýst laust
til umsóknar en oddvitinn mun
gegna því til bráðabirgða þar
til nýr maður hefur verið ráð-
inn í starfið.
Sjálfstæðisflokkúrinn hefur
farið með stjórn hreppsins um
langt árabil, ýmist einn eða
háft forustu í samstarfi við aðra,
en nú er valdaferli hans lokið,
nýir framfarasinnaðir menn
teknir við stjórninni.
Umræðufundur og skemmtun í Sigtúni
★ Samtök hernámsandstæð-
inga efna til umræðufundar í
Sigtúni sunnudaginn 12. júni
n.k. klukkan 2. e.h. Þorleifur
Hauksson stud. mag. hefur
framsögu um menningarviku
sem haldin verður í haust á
vegum samtakanna.
★ Þá verða og rædd sjón-
varps- og menningarmái. Um
kvöldið efna samtökin til
skemmtunar í Sigtúni og hefst
hún klukkan 9. Þar flýtur
Sverrir Hólmarsson stud mag.
ræðu og frumfluttur verður
Ieikþátturinn „Leitin‘‘ eftir
Bjarna Benediktssou frá Hof-
teigi. Leikstjóri verður Bjarni
Steingrímsson og Icikcndur
Bryndís Schram, Jón Júlíus-
son og Karl Guðmundsson.
★ Aðgöngumiðasala verður
við innganginn og eru her-
námsandstæðingar hvattir t’f
að mæta á skemmtun þessa í
Sigtúni á sunnudag.
★ Allar upplýsingar eru
gefnar á skrifstofu samtak-
aiina, Mjóstræti 3, sími 24701.