Þjóðviljinn - 22.06.1966, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINTSr — Míðvikudagur 22. }Önf 1966.
4*
..
.Karl úr GarðinurrT skrifar:
Flugsýnarvélin á Neskaupstað
- Hin- nýja Douglas Dakota vél Flugsýnar, som enn hcfur ekki verid gefið nafn, hefur nú byrjað reglu-
bundnar ferðir til Neskaupstaðar og fer þangað átta ferðir í viku, tvisvar með viðkomu á Akur-
eyri. Myndimar hér að ofan voru teknar þegar nýja vélin kom til Norðfjarðar S fyrsta sinn og er
efri inyndin af flugvélinni en á þeirri neðri sjást frá vinstri Bjarni Þórðarson bæjarstjóri, Egill
Benediktsson flugmaður, farþegi, Kristján Gunnlaugsson flugstjóri og Jón Magnússon forstjóri Flug-
sýnar. — (Ljósm. R. S.)
Skatta-
innheimta
I Morgunblaðinu á sunnu-
daginn var gat að líta næsta
furðulega frétt um nýupp-
kveðinn hæstaréttardóm útaf
stóreignaskatti. Dánarbúi einu
hér í bænum var gert að
greiða fjórðung miljónar í
stóreignaskatt og féU sú
skattkrafa í gjalddaga haustið
1958, þ.e. fyrir átta árum.
Ekki var upphæðin greidd og
ekki var gerður reki að því
að innheimta hana fyrr en
tveim árum síðar, haustið
1960. Innheimtuaðgerðir tóku
hvorki meira né minna en
hálft annað ár, og var loks
kveðinn upp fógetaúrskurður
um framkvæmd lögtaks vorið
1962. Þeim úrskurði var á-
frýjað til hæstaréttar, og tók
sá málarekstur nær tvö ár í
viðbót. Snemma árs 1964 ó-
gilti hæstiréttur lögtaksúr-
skurðinn og vísaði málinu
heim í hérað „til löglegrar
meðferðar og uppkvaðningar
úrskurðar að nýju“. Rúmum
fimm mánuðum síðar sendi
tollstjórinn yfirborgarfógetan-
um í Reykjavík endurrit af
heimvísunardómi hæstaréttar
með beiðni um að málið yröi
tekið fyrir á nýjan leik ,Jiið
allra fyrsta‘‘. Þrem mánuð-
um eftir það hófst fógeti
handa og kvað upp nýjan
iögtaksúrskurð. Honum var
enn áfrýjað til hæstaréttar,
og llta júní s.l. komsthæsti-
rétfcur að þeirri niðurstöðu að
borgarfógeti hefði , hafizt
handa of seint, málið væri
fyrnt og óheimilt að inn-
heimta stóreignaskattinn! Var
tollstjóra ná gert að greiða
dánarbúinu 30.000 krónur í
fébætur til þess , að standa
straum af málskoistnaði í
héraði og fyrir hæstarétti.
Þessi innheimtusaga er næsta
lærdómsrík fyrir óbreytta
gjaldþegna sem sannarlega
hafa aðra reynslu af rögg-
semi yfirvalda við skattainn-
heimtu. I sama eintaki Morg-
unblaðsins er birt þjóðhátíðar-
ræða Bjama Benediktssonar
forsætisráðherra 'þar sem lögð
er áherzla á það að albr skull
jafnir fyrir lögum: „Þar má
ekkert manngreinarálit til
koma, hvorki staða, stétt,
kunningsskapur, vild eða ó-
vild. Með lögum skal land
byggja en með ólögum eyða.“
Á-
gætt samræmi
1 þjóðhátíðarræðu sinni
komst Bjami Benediktsson for-
sætisráðherra m.a. svo að
orði: „Svo ' er sfcundum að
heyra sem það gangi land-
ráðum næst. að virkja vátns-
föll og efla hag þjóðarinnar
með því að selja erlendum
mönnum raforku, sem fæst
við virkjun stórfljóta, sem ella
mundi um áratugi renna ó-
nofcað tll sjávar engum til
gagns en mörgum til trafala.“
Þessi setning er til marks
um þann óheiðarleik í mál-
flutningi sem mjög einkennir
þjóðmálaumræður hér á
landi. Enginn Islendingurhef-
ur mælt gegn því að vatns-
föll séu virkjuð, hvað þá
minnzt á landráð í því sam-
bandi. Hins vegar hafa menn
dregið í efa að það efli hag
þjóðarinnar að afhenda er-
lendum auðhring rafork-
una fyrir verð sem trúlega
mun reynast lægra en fram-
leiðslukostnaður. Það er einn-
ig fjarri sanni að íslendingav
þurfi ekki að hagnýta raf-
orku frá Búrfellsvirkjun „um
áratugi‘‘ — við verðum að
ráðast í nýja og dýrari virkj-
un eftir aðeins einn áratug
vegna þess að útlendingar
eiga í hálfa öld að fá að
njóta ódýrustu orku sem
framleidd verður hérlendis.
‘ Hitt skal íúslega viður-
kennt að þessi málflutningur
ráðherrans er í ágætu sam-
ræmi við málstaðinn.
— Austri.
Landleysi Keflavíkur og
Geriahreppur
Þegar það fréttist, að til
stæði að frumvarp til laga yrði
lagt fyrir Alþingi, um stækk-
un lögsagnarumdæmis Kefla-
víkurkaupstaðar um ca 350 ha
yfir í land Gerðahrepps, sendi
hreppsnefnd Gerðáhrepps til
Alþingis tvö mótmælabréf við
því, að frumvarp þetta næði
fram að ganga. I öðru þessara
bréfa var því greinilega og ó-
tvírætt lýst, hvílíkt fjárhags-
legt tjón það yrði fyrirhrepp-
inn, ef að frumvarp þetta yrði
að lögum. Einnig voiu send
ti'l Alþingis mótmæli frá þeim
íbúum hreppsins sem búa á
Hólmsbergi, en þar eru ca
tíundi hluti af íbúum Gerða-^.
hrepþs, mótmæli gegn því, að
verða innlimaðir Keflavíkur-
kaupstað. Oddviti Gerðahrepps,
Bjöm Finnbogason, vann einn-
ig ötullega að því, meðpersónu-
legum samtökum við ýmsa al-
þingismenn, að tafið yrði fyrir
að frumvarp þetta yrði strax
afgreitt sem lög, þar sem mál
þetta var algerlega óundirbúið
og órætt hjá þessum tveimur
aðilum sem hlut áttu að máli,
þ.e. Gerðahreppi og Keflavikur-
kaupstað. Sýslunefnd Gull-
bringusýslu treysti sér ekki til
að mæla með þessu frumvarpi
og Landssamband ísl. sveitap-
félaga ekki heldur. Ætla hefði
mátt að þingmenn Reykjanes-
kjördæmis hefðu eitthvað lát-
ið þetta mál til sín taka, því
það var þeim mest viðkomandi,
að þéfcta yrði athugað nánar,
áður én það yrði gert að lög-
um. En sú varð þó ekki raun-
in á, heldur var þessu flaustrað
af undir þinglokin og frum-
varpið afgreitt sem lög.
Hér í Gerðahreppi hefur
alla tíð, langmestur hluti íbú-
anna fylgt Sjólfstæðdsflokknum
að málum, svo það er kald-
hæðni örlaganna, að þeir sem
vildu láta athuga málið betur,
áður en það yrði gert að lög-
um yoru þessir; 1. þingmaður
Sjálfstæðisflokksins. utan af
landi, sem hefur sennilega
aldrei á ævi sinni komið í
Árekstur c
Miklubraut
Rétt fyrir hádegi á mánud. varð
árekstu.r tveggja bíla á mótum
Miklubrautar og Háaleitisbraut-
ar. Annar bíllinn valt vig á-
S reksturinn og kviknaði smávegis
í honum, en tókst fljótlega að
slökkva. Hann skemmdist tals-
vert. Maður, sem í bílnum var,
Kristfinnur Ólafsson, Búðar-
gerði 5, meiddist lítillega og
var fluttur á Slysavarðstofuna.
hafa eignazt
máigagn
Þau t'" na£a gerzt í blaða-
útgáfu iögreglumenn hafa
eignazt málgagn. Nefnist það
Lögreglublaðið og er Lögreglufé- 1
lag Reykjavíkur útgefandi.
Blaðið fer allmyndarlega af
stað. I fyrsta hefti er m. a. við-
tal við lögreglustjóra um nýju
lögreglustöðina, viðtal um mót
lögreglukóra, endurminningaþátt-
ur eftir Erling Pálsson. spjall við
Jóhann Löve um hrakninga á
reginfjöllum og frásöguþáttur
eftir Guðlaug Jónsson.
Blaðið er vel myndskreytt og
verð þess er 40 krórrur.
Garðinn, 2 þingmenn Fram-
sóknarflokksins (þó ekki Jón
Skaftason) og 3 þingmenn Al-
þýðubandalagsins.
Þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjaneskjördæmi hafa
ábyggilega ekki aukið traust
sitt eða álit hjá íbúum Gerða-
hrepps fyrir framkoonu sína í
þessu máli. Hvers vegna mátti
Gerðahreppurinn ekki skaffa
land í byggingarlóðir eins og
Keflavíkurkaupstaður? Þetta
eru mennimir sem þykjastvera
að vinna að jafnvægi í byggð
landsins.
Eins og áður er getið, var
skýrt tekið fram í bréfum
þeim, er hreppsnefnd Gerða-
hrepps sendi Alþingi, hvegeysi-
legt fjárhagslegt tjón það yrði
jafnvel nú þegar, fyrir hrepp-
inn, ef áðumefnt frumvarp
næði fram að ganga. Hitt er
svo algerlega óútreiknanlegt,
hvaða tjón þessi lagasetning er
fyrir Gerðahrepp um framtíð
alla. Ég er fullviss um það, að
ef að Ólafur sál. Thors hefði
lifað og starfað nú, þá hefði
þessu máli aldrei verið flaustr-
að af, á þennan hátt, sem raun
hefur á orðið.
Mér kæmi það ekki á óvart,
þó að nokkuð mikið yrði af
auðum atkvæðaseðlum við
næstu Alþingiskosningar í at-
kvæðakassanum í Gerðahreppi
og ef til vill meira af atkvæð-
um sem tilheyrðu andstöðu-
flokkum Sjálfstæðisflokksins,
heldur en áður hefur verið.
Söltanarstúlkur
Söltunarstöðin Síldin h.f., Raufarhöfn óskar eftir
söltunarstúlkum.
Fríar ferðir og kauptrygging.
Upplýsingar hjá Síldinni h.f. Raufarhöfn eða í síma
50865 Hafnarfirði
T/LBOÐ
óskast í eftirtaldar bifreiðir, sem föstudaginn 24. júní, 1966 kl. 1—4 skrifstofu vora, Borgartúni 7; verða til sýnis í porti bak við
Volvo Amazon, fólksbifreið árgerð 1963
Mercedes Benz, fólksbifreið — 1960,
Taunus 17 M, station — 1959
Willys, statxon *"J*' _ f&ÖT*’1
Willys, station — 1959
Taunus Transit, sendiferðabifreið — 1961
Volvo, vörubifreið 8 tonna — 1955
Gaz 69, rússajeppi — 1959
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri Borgartúni 7 sama dag kl. 5 e.h., að viðstöddum bjóðendum. Réttur áskilinn til að hafna tilboðum, sem ekki
teljast viðunandi..
Innkaupastofnun ríkisins.
* BILLINN
Rent an Icecar
Símí 1 8 8 3 3
-L