Þjóðviljinn - 16.07.1966, Page 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 16. júlí 1966
Ný og vönduð
kennslubók í
landafræði
Ríkisútgáfa námsbóka hefur
nú gefid út nýja landafræði
handa barnaskólum og er höf-
undur Erling S- Tómasson,
gangfræðaskólakennari. Bókin
er í tveim heftum og í henni
námsefni 10, 11 og 12 ára
barna- I fyrra heftinu er fjall-
að um Island og önnur Norð-
urlönd og Bretland, Irland og
Þýzkaland; í hinu síðara um
önnur Evrópulönd, en báðum
heftum fylgja kaflar um al-
menna landafræði.
Hér skal bókin ekki ritdæmd
Itarlega og er þó full ástæða
til þess að gefa gaum þeim
kennslubókum, sem æskan áað
læra- Þess skal aðeins getið
að bersýnilega er um mikla
framför að ræða frá fyrri
landafræðikennslubókum ís-
lenzkum. Sérstakur fengur er
að hinum mikla myndafjölda
sem fylgir bókinni svo og
teikningum, en mestan hluta
þeirra hefur Þröstur Magnús-
son gert; hann annaðist einnig
uppsetningu bókarinnar. Hið
eina, sem undirritaður vildi
breyta, er liturinn á teikning-
um Þrastar í fyrra heftinu, þær
eru nær allar í brúnum lit, sem
vill verða dálítið leiðigjarn.
Um bókina er annars það að
segja, að hún er skrifuð á ein-
földu og einkar ljósu máli og
blessunarlega laus við þann
bamalega tón, sem sumir kenn-
arar og kennslubókarhöfundar
virðast halda að falli börnum
bezt í geð. — J. Th. H.
Golfklúbbur Reykjavíkur:
Þýzka knattspyrnuliðið „Sportclub 07“ sem kom hingað í gær.
Þjóðverjarnir leika
1. leikinn í kvöld
IS Eins og frá var skýrt í Þjóðviljanum í gær kom
þýzka knattspyrnuliðið Sportclub 07 Bad Neuenahr til
landsins í gær og leikur hér að minnsta kosti 3 leiki.
B Fyrsti leikurinn verður á morgun kl. 8.30^ e.h.' á
Njarðvíkurvelli við gestgjafa liðsins hér, lið íþrótta-
bandalags Keflavíkur.
A-lið SC 07 er í „Rheinland-
liga“, efsta flokki áhugamanna
og ieru allir leikmenn liðsins ó-
hugamenn. ,Rheinlandliga‘ er3.
efsti flokkur knattspyrnunnar
í Þýzkalandi- Efst er Bundea-
f
styttri áföngum
Þegar fjallað hefur verið
um verðhækkunaræðið í
borgarstjórn Reykjavíkur að
undanförnu, hefur brugðið
svo við að Framsóknarflokk-
urinn hefur gengið til liðs
við íhaldið, samþykkt hin al-
mennu hækkunarsjónarmið
þess, en haft uppi þann einn
ágreining að vera með aðrar
prósentutölur. Hann virðist
þannig vera horfinn endan-
lega frá því að fara hina
leiðina; framlag hans til þjóð-
málanna er að fara sömu leið
og íhaldið í ögn styttri á-
föngum.
Hé-
gómaskapur
Þjóðviljinn vakti fyrir
nokkrum dögum athygli á
hégómlegu umtali hernáms-
blaðanna um hingáðkomu Ú
Þants, framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna. Al-
þýðublaðið í gær ber sig upp
undan þessum ummælum og
segir að blöðin hafi öll rak-
ið skilvíslega það sem fram-
kvæmdastjórinn sagði í er-
indi sínu í háskólanum og í
viðtali við blaðamenn. Vissu-
lega voru þær frásagnir í
blöðunum, en þau vöktufyrst
og fremst athygli á einskis-
verðum hlutum; þau töldu
greinilega öll hámark heim-
sóknarinnar að Ú Þant hefði
étið hálfan banana í Hvera-
gerði; í Tímanum var skýrt
frá örlögum bananans í fjög-
urra dálka fyrirsögn á for-
síðu, en tveggja dálka og
næsta efnislaus fyrirsögn var
sett á fréttiná um blaða-
mannafundinn.
Þessi viðbrögð eru ekki að-
eins til marks um það að
hernámsblöðin áttu erfitt
með að þola skoðanir Ú
Þants á ýmsum álþjóðamál-
um, heldur eru þau glöggt
dæmi um þróunina í íslenzkri
blaðamennsku. Það færist nú
mjög í vöxt að íslenzku blöð-
in taki sér til fyrirmyndar
ýms smáborgarablöð erlend,
þar sem hégómaskapurinn er
hafinn til öndvegis — íslend-
ingar þekkja slík vinnubrögð
til að mynda úr umtali
dönsku vikublaðanna um
kóngafólk og leikara. Þar
skiptir manngildið engu máli,
ekki heldur skoðanir eða at-
hafnir, heldur frægðin ein,
og það er skrifað þindarlaust
um það hvernig það ves-
lings fólk sem fyrir þessum
ósköpum verður gengur til
fara, hvað það éti, hvernig
það skemmti sér, hvort það
eigi viðhald og þar fram eft-
ir götunum. Mat af þessu tagi
er að vísu skiljanlegtef endi-
lega þarf að skrifa um kónga-
fólk sem ekkert hefur sér til
ágætis annað en vegtyllurn-
ar, en það er fráleitt að nota
sömu aðferðina á forustu-
menn í alþjóðamálum,
menn sem móta sögu mann-
kynsins með skoðunum sín-
um og athöfnum, ekki sízt
þegar í hlut á maður sem er
jafn fjarlægur _ markaði hé-
gómleikans og Ú Þant. Hvort
:em ritstjórar hernámsblað-
anna gera sér það ljóst eða
ekki, var það tvímælalaus
móðgun að taka mataræði
hans fram yfir þann boðskap
sem hann hafði að flytja um
starfsemi Sameinuðu þjóð-'
anna, styrjöldina í Vietnam
og önnur alþjóðamál. —
Austri.
liga“ skipuð atvinnumönnum,
þá „Regionalliga" skipuð hálf-
atvinnumönnum og síðan kemur
„Rheinlandliga“ deild hreinna
áhugamanna.
Á síðasta keppnistímabili
<j, hafnaði Sportclub 07 í 8. sæti i
,,Rheinlandliga“ eða meistara-
keppni áhugamanna- Auk þess
tók liðið þátt í 2 öðrum kapp-
mótum Dg vann í bæði skipt-
in. Keppti liðið í alþjóðlegri
knattspyrnukeppni í Paría og
vann þá keppni, og einnig tók
það þátt í keppni í Remagen
(Þýzkalandi) og vann þar hér-
aðsbikar sem um er képpt.
En einna sætastur þykir þó
forráðamönnum félagsins sá
árangur er liðið náði í kapp-
leik við Borussia Dortmund —
núverandi handhafa Evrópu-
bikarsmeistana, en fyrir at-
vinnumönnum þess liðs tapaði
SC 07 aðeins með 4:6. Það er
mjög góður árangur þjá áhuga-
mannaliði.
Þjálfari liðsins er Jakob Od-
en, 47 ára gamall. Hann hefur
komið hér áður, Iék í úrvals-
liði Rínarlanda, er hér keppti.
Að loknum keppnísferli gerð-
ist hann þjálfari hjá Rínar-
sambandinu og starfaði þar í 7
ár. Önnur 7 ár var hann þjálf-
ari 'hjá samabandi Saarlands
og 1965 tók hann við þjálfun
hjá SC 07.
Þjóðverjarnir koma hingað
20 saman, 4 manna fararstjóm,
þjálfari og 15 leikmenn- Fyrir-
fram hafa þeir valið eftirfar-
andi lið til að leikaámorgun:
Markvörður Steinseifer, bak-
vörður Fuhrmann og Hans
Graf, framvörður Lorens Graf,
Wolfang Much og Ludwig
Geef, framherjar Helmut Stoll-
enwerk, Heins Welter, August
Thiir, Helmut Knebel og Rolf
Klooer. 1 hálfleik koma Jakob
Kloren og Franz Lörken í lið-
ið.
Fyrirliði Þjóðverjanna er
Wolfgang Much og er meðal-
aldur liðsins 23 ár.
ikil þátttaka í
Coca Cola keppni
Dagana 28. júní, 2. og 3. júlí
var háð á Grafarholtsvellinum
ein mesta keppni sumarsins á
vegum Golfklúbbs Reykjavikur.
Keppni þessi er 72 holu högg-
leikur, með og án forgjafar.
Keppt er um tvo veglega bik-
ara, sem verksmiðjan Vífilfell
h.f. hefur gefið.
Þátttaka í keppninni var mik-
il að þessu sinni. Alls hófu 43
kylfiragar keppni fyrsta daginn
og voru þeir frá GrR., Golf-
klúbb Suðurnesja og Golfklúbbi
Ness. Þann dag ,var veður
heldur leiðinlegt, enda náðist
ekki góður árangur.
2. júlí var blíðskaparveður,
en þá voru leiknar 24 holur.
Er keppni lauk um kvöldið
voru 4—5 kylfingar mjög líkir
að höggafjölda.
Lokaúrslit urðu þau, að Coca-
Cola meistari G.R. varð Þor-
björn Kjærbo, G.S., á 336
höggum. Sigurvegari í keppn-
inni með forgjöf varð Ragn-
ar Jónsson G.R. á 376-116=260
Fimm beztu menn í hvorr
keppni voru:
Án forgjafar:
1. Þorbjörn Kjærbo GS 33r
2.—3. Ingólfur Isebarn GR 34'
Ól. Ág. Ólafss. GR 34?
4. Óttar Yngvason GR 343
5. Ól. B. Ragnarss. GR 353
Með forgjöf:
1. Ragnar Jónsson GR 260
2. Ólafur Loftsson GR 273
3. Ingólfur Isebarn GR 274.
4. Þórir Sæmundsson GS 279’
5. Eiríkur Helgason GR 282
Níu skagfirzk met sett á
sundmótrá
Sundmót Ungmennasambands
Skagaf jarðar var haldið í Sund-
laug Sauðárkróks 2. og 3. júlí
sl. Keppendur voru um 35 frá
tveim félögum, Umf. Tinda-
stóli og Umf. Fram. Veður var
sæmilega gott báða dagana.
Sett voru 8 skagfirzk met i
einstaklingsgreinum og 1 í boð-
sundi. Birgir Guðjónsson setti
5 met, Þorbjörn Árnason 1,
Anna Hjaltadóttir 1 og Unn-
ur Björnsdóttir 1, og svo var
met sett í 4x50 m. boðsundi
kvenna.
Aðalúrslit urðu þessi:
Umf. Tindastóll vann mót-
ið með 124 stigum og sund-
mótsskjöldinn í annað sinn.
Umf. Fram hlaut 29 stig.
Sameiningarnefnd sveitar-
félaga er tekin til starfa
Undirnefnd safnar gögnum
Sameiningarncfnd svcitarfé-
Iaga, sem ríkisstjórnin skipaði
liinn 27. maí sl. til að endur-
skoða skiptingu Iandsins í sveit-
arfélög með það fyrir augum
að stækka sveitarfélögin, hélt
fyrstu fundi sína í Rvík dagana
11. og 12. júlí sl.
1 nefndinni eru Jónas Guð-
mundsson, formaður Sambands-
íslenzkra sveitarfélaga, Páll Lín-
dal, borgarlögmaður, Jón Eiríks-
son oddviti, tilnefndir af Sam-
bandi íslenzkra sveitarfélaga,
Ásgeir Pétursson, sýslumadur,
tilnefndur af Dómarafélagi Is-
lands, Unnar Stefánsson, við-
skiptafræðingur, tilnefndur af
Alþýðuflokknum, Bjami Þórðar-
son, bæjarstjóri, tilnefndur h1
Alþýðubandalaginu, Danfel Ág-
ústínusson fyrrverandi bæjarstj.,
tilnefndur af Framsóknarflokkn-
um, Jón Árnason alþingismaður,
tilnefndur af Sjálfstæðisflokkn-
um, og Hjálmar Vilhjálmsson,
ráðuneytisstjórl í félagsmálaráðu-
neytinu og er hann formaður
nefndarinnar. Ritari nefndar-
innar var kosinn Unnar Stef-
ánsson.
Nefndin kaus sér þriggja
manna framkvæmdanefnd til að
vinna að gagnasöfnun og voru
kosnir í hana þeir Hjálmar Vil-
hjálmsson, ráðuneytisstjóri, Páll
Líndal, borgarlögmaður og Unn-
ar Stefánsson, viðskiptafræðing-
ur.
Á fundinum var lögð fram
greinargerð um viðfangsefni
nefndarinnar, „Hugleiðing um
stælckun sveitarfélaganna“ eftir
Hjálmar Vilhjálmsson, ráðu-
neytisstjóra. Næsti fundur nefnd-
arinnar verður haldinn í sept-
ombermánuði.
Grettisbikarinn vann Birgir
Guðjónsson nú í 3. sinn. Þetta
var í 26. skipti, sem um hann
var keppt. Birgir setti 3 ný
Skagafjarðarmet í bringusundi.
Flugsundsbikarinn vann Þor-
björn Árnason nú í 3. sinn og
til fullrar eignar. Hann setti
Skagafjarðarmet í 50 m. flug-
sundi.
Bringusundsstyttuna vann
Birgir Guðjónsson nú í 3. sinn
og til fullrar eignar. Hún var
veitt fyrir sigur í 200 m.
bringusundi.
Bringúsundsstyttu kvenna
vann Guðrún Pálsdóttir nú í 1.
sinn. Hún vinnst til eignar
með sigri í 200 m. sundi 3svar
í röð eða 5 sinnum alls. (í 200
metra bringusundi).
Úrslit í einstökum greinum
urðu þessi:
50 m. bringusund karla: sek.
Birgir Guðjónson T 36,8
Skagf. met.
Sveinn Marteinssort T 40,7
Sveinn Gíslason T 41,5
290 m. bringusund karla: min:
Birgir Guðjónsson T 2:57,0
Ingim. Ingimundars. T 3:13,6
Sveinn Marteinsson. T 3:33,0 '
50 m. baksund karla: sek.
Birgir Guðjónsson T 36,6
Skagf. met.
Sveinn Marteinsson T 39,8
500 m. fráls aðf. karla: mín.
Birgir Guðjónsson T 8:06,1
Bringusund Skagf. met
Friðbjörn Steingrímss. F 9;45,5
Millitimar Birgis voru:
300 m. 4:45,7 mín.
400 m. 6:26,2 mín.
og eru þeir betri en eldri Skag-
firzk met.
100 m. skriðsund karla: mín.
Birgir Guðjónsson T 1:06,3
Ingim. Ingimundars. T 1:08,7
Sveinn Marteinsson T 1:21,2
100 m. baksund karla: mín.
Sveinn Marteinsson T 1:33,1
50 m. flugsund karla: sek:
Þorbjörn Ámason T 35,0
Skagf. met.
4x50 m. boðs. karla frj.: min.
Sveit Tindastóls 2:18,6
100 m. bringus. kvennaí mín.
Unnur Björnsdóttir T 1:42,3
Kolbrún Sigurpálsd. T 1:47,0
Árný Hjaltadóttir F 1:56,0
200 m. bringus. kvenna: mín.
Guðrún Pálsdóttir T 3:32,8
100 m skriðsund kvenna: min.
Unnur Björnsdóttir T 1:20,4
Skagf. met.
Anna Hjaltadóttir T 1:21,2
Ingibjörg Harðard. T 1:25,0
(Allar innan við eldra met).
50 m. baks. kvenna: sek.
Ingibjörg Harðard. T 41,2
Anna Hjaltadóttir T 48,8
100 m. baks. kvenna: mín.
Ingibjörg Harðard. T 1:30,2
4x50 m frj. aðf. kvenna: min.
Svéit Tindastóls 2:25,9
Skagf. met.
4x50 m. boðs. frj. aðf. mín.
Sveinasveit Tindastóls 2:39,8
Sveinasveit Fram . 3:15,3
Telpnasveit Tindastóls 2:48,5
Telpnasveit Fram 3:29,6
100 m. bringus. sveina: min.
Friðbjörn Steingrímss. F 1:35,5
Kristján Kárason T 1:40,2
Einar I. Gíslason T 1:41,3
Jóhann Friðriksson T 1:43,9
50 m. skriðs. sveina: sek.
Kristján Kárason T 36,6
Magnús Rögnvaldsson T 39,0
Hannes Friðriksson T 40,6
Einar I. Gíslason T 40,9
50 m. baks. sveina: sek.
Friðbjörn Steingrímss. T 48,8
2. Magnús Rögnvaldss. T 49,8
Framhald á 7. síðu.