Þjóðviljinn - 06.08.1966, Síða 3
Leugardagur 6. ágúst 1968 — ÞJÖÐVILJINN — StÐA 3
Kflainir óvinsælir í ,biblíubeltino‘
/7 september 1971
Klukkan var 22.32 þegar
síminn . í Hvíta húsinu
sem var í beinu sambandi
við Saigon hringdi. Allt til
þéirrar stundar hafði ekkert
sérstakt borið Við á þessum
— en það kom fyrir ekki cg
Quang Cai Quec hershöfð-
ingi fór með állt sitt lið til
eyjunnar Mai Tái um 100 km.
frá strönd Vietnams.
Hátiðleg yfirlýsing hans að.
degi, 17. september 1971. , ,hann myndi brátt halda aftur
Johnson forseti hafði enn til meginlandsins gerði hann
einu . sinni beðið bandarísku að hetju í augum Bandaríkja-
þjöðina að bíðá endaloka manna: Honum var boðið í
stríðsins í Vietnam með þol- fyrirlestráferð um Bandaríkin
inmæði. Síðdegis þennan dag
hafði McNamara landvarna-
ráðherra flutt þá yfirlýsingu
sem hann birti jafnan á hálfs
árs fresti að brátt myndi full-
ur sigur vinnast á Vietcong.
Rusk utanríkisráðherra
hafði fullvissað blaðamenn
um að þrátt fyrir óeirðirn-
ar og íkveikjurnar í banda-
rískum bókasöfnum hefði
hann fulla ástæðú til að ætla
að Qúang Cai Quec hershöfð-
ingja, sem tekið hafði völd-
in þremur vikum áður, myndi
takast að koma á styrkri
stjórn í .•Suður-Vietnam.
Þetta hafði sem sagt ver-
ið ósköp viðburð.alítill dag-
ur, þennan 17. september 1971,
eftir því sem Russel Baker
segir frá í siðasta heftí
bandariska tímaritsins „Sat-
urday Evening Post“. En öðru
máli gegndi þegar sendi-
herra Bandaríkjanna í Saigoh
skýrði forsetanum frá þyí kl.
22.32 að „Quang Cai Quec
hershöfðingi væri að leita að
eylandi".
Það skipti engum togum að
Johnson forseti tók sér far
með þotnu til Honolulu þar
sem Quec hershöfðingi sagði
honum að lengur væri ekki
tjónkandi við skæruliða Vi-
etcongs, og því hefði hann
látið allan ’her sinn fara um
borð í allar fleytur sem til
taks voru og hann hefði á-
kveðið að setja á stofn viet-
namskt 1 lýðveldi þjóðernis-
sinna á eyju þar sem hann
gæti endurski'pulágt lið sitt
og búið það undir að halda
aftuf til meginlandsins. Hin,-
ir bandarísku ráðunautar
hans höfðu reynt að telja
honum hughvarf og höfðu
bent honum á hvernig far-
ið hafði fyrir Tsjang Kajsék
og hann flutti ræðu á Banda-
ríkjaþingi. Hann fór fram á
að Bandaríkin veittu honum
allan þann stuðning sem þau
mættu, að byggt yrði Hilton-
hótei á Mai Tai og að kom-
ið yrði upp hæfilega mörg-
urh vínkrám handa hinum
bandarísku ráðgjöfum hans.
En Johnson forseti var í
miklum vanda: Ættu Banda-
ríkin að viðurkenna eyland-
ið Mai Tai sem hið raunveru-
lega Vietnam. enda þótt enn
væru 1.500.000 bandarískir
hermenn á meginlandinu?
„Málið horfir þannig við“,
sagði Rusk utanríkisráðherra,
„að þar sem við berjumst til
að vernda frelsi Vietnams, bá
verðum við að hafa herlið
okkar í Vietnam, eða með
öðrum órðum þar sem Viet-
nam er að finna".
Daginn eftir tilkynnti
Bandaríkjastjóm að hún
hefði viðurkennt hið viet-
namská lýðveldi þjóðernis-
sinna á Mai Tai og teldi ekki
að neitt annað land hefði
rétt til að kallast Vietnam.
Og þannig lauk stríðinu.
Russel Baker segir að í
minningum sínum hafi John-
son forseti skýrt svo frá áð
eina hæpna ráðið sem honum
var gefið þessa örlagaríku
daga hafi komið frá fjár-
málaráðherranum: „Herra for-
seti“, sagði ráðherrann, „það
er eitt sem við höfum alls
ekki ráð á, og það er annar
Quang Cai Quec“-
„Sagan hefur sýnt“, segir
Johnson í minningum sínum,
„að hann hafði á röngu að
standa. Svo framarlega sem
við getum komið allri Asíu
fyrir á eylöndum,', getum við
búið með henni í sátt og sam-
lyndi".
Fimm er enn leit-
eð á Mont Blanc
CHAMONIX 5/8 — Björgun-
arleiðangrar lögðu af stað í dag
frá Chamonix að reyna að hafa
upp á þremur svissneskum og
tveimur brezkum fjallgöngu-
mönnum sem óttazt er um á
Mont Blanc, en þar ha?a þeg-
ar fjórir menn beðið bana í
óveðrinu sem geisað hefur þar
undanfarna sólarhringa.
Wilson ekki eins
os
LONDON 5/8 — Skoðanakönn-
un sem íhaldsblaðið „Daily Tele-
graph“ birti i dag, ber með
sér að í fyrsta sinn síðan þing-
kosningarnar fóru fram í vor
hafi íhaldsflokkurinn meira fylgi
meðal kjósenda en Verkamanna-
flokkurinn. íhaldsflokkurinn hef-
ur að vísu aðeins 0,5 prósent
framyfir Verkamannaflokkinn,
en það myndi þó nægja honum
til sigurs í kosningum. Aðrar
skoðanakannanir gefa einnig
til kynna' að vinsældir Wilsons
fari mjög þverrfcndi.
Eins og áður hefur verið skýrt frá 5 fréttum hafa hinir upphaflegu
brezku Bítlar, þeir Ringo Starr og félagar, verið lýstir í bann af
fjölmörgum útvarpsstödvum í Bandaríkjunum, en einkum þó í svo-
kölluðu „biblíubeiti‘‘, en þar er átt við þau fylki Bandaríkjanna
þar sem trúarofsi og bókstafstrú ræður rSkjum, Gera má ráð fyrir
aö andróðurinn gegn Bítlunum í „biblíubeltinu“ verði aðeins til
að auka vinsæidir þeirra annars staðar. — MYNDIN er tekin af
þeim þegar þeir komu til Hamborgar fyrir' skemmstu.
KARLSRUHE 5/8 — Sambands
dómstóllinn í Karlsruhe, æðsti
dómstóll' Vestur-Þýzkalands,
komst að þeirri niðurstöðu í
dag að aðförin sem gerð var að
vikuritinu „Der Spiegel" í nóv-
ember 1962 hefði ekki brotið
í bága við stjórnarskrána og
var
frá.
kæru tímaritsins því vísað
Nýjar órásir Bandaríkjamanna
á skotmörk í og við þéttbýli
Bandarískir flugmenn í haldi í Norður-Vietnam skora á
félaga sína að segja sannleikann um Vietnamstríðið
SAIGON 5/8 — Bandarískar flugvélar héldu áfram í dag
árásum á friðlýsta svæðið sitt hvorum megin við mörkin
sem skipta Vietnam í tvennt, en aðrar bandarískar flug-
vélar vörpuðu sprengjum á skotmörk í og við hafnarborg-
ina Haiphong.
Bandaríkjamenn halda þannig
áfnam að virða að vettugi tilmæli
alþjóðanefndarinnar sem skipuð
er fulltrúum Indlands, Kanada
og Póllands um að virða ákvæði
Genfársamningsins frá 1954 sem
bannar allar hernaðaraðgerðir á
friðlýsta 'svæðinu. *•
Jafnframt halda Bandaríkja-
menn áfram sprengjuárásum sín-
um á skotmörk í og við Haip-
hong, helztu Kafnarborgar Norð-
ur-Vietnam. I Saigon var sagt að
skotið hefði verið á árásarflug-
vélarnar bæði úr loftvarnarbyss-
um og einnig þremur eldflaug-
um. Ráðizt hefði verið á herbúð- 1
ir og birgðaskemmur rétt hjá
Haiphong.
önnur mikil árás var gerð á
olíustöðvar við bæinn Vinh í suð- 1
urhluta Norður-Vietnams og enn
aðrar á brú eina við Mu. Gia, á
landamærum Norður-Vietnam og
Laos.
Kínverska fréttastofan segir að
tvær bandarískar flugvélar hafi
verið skotnar niður yfir Norður-
Vietnam í gær.
Langfleygar sprengjuþotur af
gerðinni B-52 vörpuðu í dag
sprengjum á s.væði við landa-
mæri Suður-Vietnam og Kamb-
odja þar sem sagt er að skæru-
liðar hafi búið um sig.
„Segið sannieikann“
I dag var birt í Hanoi ávarp
frá tveimur bandarískum flug-
mönnum sem nú erú í haldi í
Norður-Vietnam,. en .í því skora
þeir á félaga sína og landa að
hætta að berjast gegn viet-
nömsku þjóðinni. Fréttastofa N-
Vietnams segir að undir þessa
áskorun hafi ritað bandarísku
flugmennirnir James Hutton —
frá flugvélaskipinu „Independ-
ence“ — og James Young, sem
komið hafi frá flugstöð við Ud-
orn í Thailandi. í boðskap þeirra-
segja þeir að í stríðinu í Viet-
nam. sé „æsku okkar fórnað til
einskis" og baráttu vietnömsku
þjóðarinnar er líkt við frelsis-
stríð Bandaríkjanna á sinni tíð-
Flugmennimir biðja landá sína
að hugsa sig vel um, Komast
þeir að þeirri niðurstöðu að þessi
rök fái staðizt, þá ættu þeir að
skrifa stjómmálamönnunum
þingmönnum • öllum vandamönn-
um sínum, og vinum og segja
beim sannleikann. — Segið sann-
leikann um stríðið í Viétnam svo
að við getum bundið endi á það
eins fljótt og auðið er, segja
þeir-
Enn er grunur um að lækka
verði gengi sterlingspunds
Cousins neitaði að fjalla
um kauphindingarfrumvarpið
LONDON 5/8 — Brezki verklýðs- j:
leiðtoginn Frank Cousins sem .
nýlega sagði af sér embætti |
tæknimálaráðherra í mótmæla-
skyni við stefnu Wilsons í efna-
hagsmálum hefur sagt sig úr
þingnefnd þeirri sem fjallar um
kaupbindingarfrumvarp stjórnar-
innar.
Nefndin var á fundi um frum-
varpið í alla nótt, en undir morg-
un gekk Cnusins, formaður Sam-
bands flutningaverkamanna sem
í eru hálf önnur miljón verka- |
manna, af fundinum. Hafði kast- j
azt í kekki með honum og 1
Brown efnahagsmálaráðherra- —
Brown hafði sakað Cousins um
að hafa gengið íhaldsmönnum á
hönd, en við það reiddist Cous-
ins svo að hann gekk af fund-
inum og sagði síðar að hann
myndi ekki aftur mæta á nefnd-
arfundi.
Cousins hefur rökstutt and-
stöðu sína við „bjargráð“ Wil-
sons með því að Bretar gætu að-
eins losnað úr klípunni með því
að auka framleiðni sína, — en
það fengist ekki með verðhjöðn-
un og atvinnuleysi.
Kjarnatilrannir
iteðanjarðar enn
á dagskrá í Genf
GENF 4/8 — Alva Myrdal, full-
trúi Svíþjóðar á afvopnunarráð-
stefnunni í Genf, mæltist til
þess í dag við fulltrúa Banda-
ríkjanna og Sovétríkjanna að
þau kæmu sér saman um það
fyrir lok þessa árs að banna
allar kjarnasprengingar neðan-
jarðar. Hún sagði að ágreining-
urinn milli þeirra væri ekki
meiri en svo að hann ætti að
vera hægt að jafna. Bandaríski
fulltrúinn tók illa í brezka til-
lögu um að eftirlit á staðnum
væri bundið samþykki þess
lands þar sem grunur lægi á
að neðanjarðarsprenging hefði
átt sér stað.
NEW YORK 5/8 — Svo kann að
fara að tilburðir Harolds Wil-
6ons til að bjarga. við gengi
pundsins muni verða þess síð-
asta vörn-
Þannig kemst bandaríska fjár-
málabiáðiö .Wall Street Joum-
al“ að orði um ráðstafanir
brezku stjórnarinnar til að halda
við gengi sterlingspundsins. Blað-
ið segir í grein sem fjallar um
hver áhrif gengisfelling sterlings-
pundsins kynni að hafa að um
bað séu skiptar' skoðanir, en all-
ir virðist vera á einu máli um
í -onp-i’r* rn“ir)i
' Sumir sérfræðingar telji -að
samdráttur muni verða í öllu at-
vinnulífi á vesturlöndum ef gengi
pundsins verður fellt skyndilega,
en aðrir geri ráð fyrir að gengi
pundsins muni lækka smám sam-
an oe eigi .það ekki að draga
mikinn dilk á eftir sér-
Allir séu hins vegar á einu
máli um að „bjargráð" Wilsons
hafi ekki aukið stórum trú
mapna á að hægt verði að halda
uppi gengi pundsins. Sumir telji
jafnvel að bjargráð hans geri
eengisfellinguna enn tímabærari,
I S A B E L L A-
S O K K A R
• langbeztu sokka-kaupin
sem nú gerast hér á
markaðinum
• ÍSABELLA slétt lykkja
20 denier
• ÍSABELLA slétt lykkja
30 denier
I nýjustu tízkulitum
Hóflegt verð
Mjúkir, fallegir oq
endast ótrúíega lengi
Vel klœddar konur nota ÍSABELLA
Biðjið um ÍSABELLA - Fósf hvarvetna
/