Þjóðviljinn - 06.08.1966, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 06.08.1966, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — MÖÐVILJXNtl — l<augardagur 6. ágóst 1966- Otgeíandi: Samelnlngarflolckui alþýðu — SóedalistaOokk- nttaa. Ritatjórar: Ivar H. Jónsson (áb). Magnús Rjartanæoo, Sigurður Cadmundsson. fréttaritstjóri: Sigurður V. Piiðþjófsson. Auglýsingastj.: Þorva’dur J<tT'.annesson. Síml 17-500 (5 lfnur). Askriftarverð kr. 105.00 á mánuðl. Lausa- söluverð kr. 5.00. Stríðsg/æpadómstól/ JJeimsathygli vekur barátta hins háaldraða brezka heimspekings Bertrand Russels að friðarmál- um og gegn árósarstríði Bandaríkjanna í Víetnam. Undanfarin ár hefur Russell unnið sleitulaust að friðarmálum og beitt heimsfrægð sinni gegn kjarn- orkuvígbúnaði og stríðshættu. Hann hefur snúið sér 'til voldugustu manna stórveldanna með mynd-, ugleik vísindamannsins og sagt þeim til synd- anna, og ritað í greina- og bókarformi um vanda- mál friðar og stríðs. Og hvarvetna um heimsbyggð- ina er hlustað á rödd hins aldna brezka heimspek- ings. JJertrand Russell hefur í ræðu og riti fordæmt hryðjuverk Bandaríkjanna og leppa þeirra í .Víetnam. Ef verða mætti til þess að vekja sam- vizku heimsins hefur Russell nú skipulagt óopin- beran stríðsglæpadómstól, sem samkvæmt frétta- skeytum síðustu daga á að koma saman í París í nóvember til að fjalla um ákærur á héndur John- son Bandarí kj aforseta og nánustu samstarfs- mönnum hans fyrir stríðsglæpi. í dóminum munu sitja 12 15 Evrópumenn og Suður-Ameríkumenn sem kunnir eru á sviði alþjóðastjórnmála, lögfræði, trúmála, þjóðfélagsmála og lista. Verða meðal dómaranna frönsku rithöfundarnir Sartre og Sim- ane de Beauvoir, ítalski lögfræðingurinn og rit- stjórinn Lelio Basso, Lazaro Cardenas fyrrverandi Mexíkóforseti, júgóslavneski sagnfræðingurinn Dedijer, sagnfræðingurinn Isaac Deutscher, ítalinn Danilo Dolci og þýzk-sænski höfundurinn Peter Weiss. í fréttaskeytum segir ennfremur að vitna- leiðslur muni standa í tólf vikur og því næst verði dómur kveðinn upp. Um tvö hundruð manns muni koma flugleiðis frá Víetnam til að bera vitni fyrir dóminum. 'é7^ Qnnur frétt varðandi Víetnam hefur einnig vakið heimsathygli undanfama daga, yfirlýsingar fjögurra hinna kunnustu fréttaritara Bandaríkja- manna sem verið hafa austur þar um fréttafals- anir Bandaríkjaherstjómarinnar varðandi stríðið í Suðaustur-Asíu og hvemig bandaríska þjóðin sé blekkt um eðli stríðsins með hinurr\ opinbera bandaríska áróðri. Þetta ætti sérstaklega að verða umhugsunarefni íslenzku Natóblöðunum sem und- antekningalítið hafa talið sér skylt að taka hinn fáránlega blekkingaáróður bandarískra stjómar- valda um Víetnamstríðið sem heilagan sannleika og afsakað hvers konar hryðjuverk Bandaríkja- manna og leppa þeirra þar með því að verið sé að „berjast gegn kommúnismanum“. Sú afstaða og undirgefni við bandarískan áróður er nú orðin sjaldséð í erlendum blöðum. Stríðsglæpadómstóll Bertrand Russells og uppljóstranir hinna banda- rísku fréttaritara ættu að vera nokkur viðvörun og bending um hversu smánarlegt er að íslenzk blöð skuli gera áróður Bandaríkjahers í Víetnam að sínum og telja að stríðið þar sé krossferð fyrir vestrænaf hugsjónir. — s. Hann segir, gerir og skapar.það sem aðrir láta sig aðeins dreyma um mmrnm Dýrlingur bandarískrar skólaæsku — Baldinn strokumaður — Söngvari mótmælanna — Líkt við Faulkner og Hemingway — Engrnn þekkir hann Sá ekki dagsins Ijés í 130 daga Frægðin kom yfir Bob Dylan eins og skýfall. Fyrir fimm árum var hent í ’hann ' tveim dollurum eða svo fyrir að hamra á gítar á krám í New„, York. Nú flýgur hann i einkaflugvél milli hljómleika- sala- Hér virðumst við semsagt hafa enn eina væmna banda- riska sögu um blaðastrákinn sem varð forseti. Svo er þó ekki — Bob Dylan er þekkt- asti „mótmælasöngvari“ Banda- ríkjanna- Bob er aðeins 25 ára. Hánn er lérvitur með afbrigðum og siðhærður í anda kynslóðar- innar. Hann gerir sig sekan um bamalegar tiltektir og auk- lýsingabrellur — lætur til dæm- is þjón sinn krumpa sérstak- lega brækur sínar á morgnana og kemrar matarleifum fyrir í skyrtu sinni áður en hann fari út að ganga- En sæmilega virðuleg bandárísk blöð hafa nefnt hann í sömu andrá og William Faulkner og Ernest Hemingway. ★ Bob Dylan leikur á gítar í taugaóstyrkri ákefð. rödd hans er hrjúf og á milli á- deiluvisna sinna, þegar aðrir söngvarar kjósa að taka sér smáhvfld, blæs hann stuttar- leg hljóð úr munnhörpu, sem hann festir framan á sig. Söngva sína semur hann sjálfur og kallar þá ekkl ,,songs“ heldur „stories" — sögur, því þar er jafnan sagt frá ein- hverju: frá einverunnl frá fá- tækt, frá grimmd jog örvænt- ingu. Sögur hans eru árásir á styrjöld, kynþáttahatur, atóm- sprengjuna, á hverskcnar órétt- læti. Hann hefur sagt: „Mestu glæpamennimir eru þeir sem Mesti signr Bobs Dylans: í fyrra söng hann fyrir sjötíu og Newport-hátíðinni. fimm þúsund áheyrendur á reisn án glöggra markmiða. Ljóð hans og líf hafa einhverja þá töfra, sem margir láta heill- ast af. Hann segir, gerir og skapar það sem aðrir láta sig í bezta falli dreyma um- Merkari höfundur en Saul Bellow og Norman Mailer? Tíu ára gamall strauk þessi þrjózki drengur, sem þá hét enn Robert Zimmermann, í fyrsta sinn frá heimabæ sín- um, Hibbing, námubæ í Minne- sota (hann tók síðán upp nafn eftirlætisskálds síns Dylans Thomas frá Wales). Stroku- maðurinn komst til Chicago og þar kenndi götusöngvari einn honum undirstöðuatriði í gítar- leik. Síðan sendi lögreglan hann heim aftur- Dylan sagði siðar: „Hibbing er elskulegur gamall bær, ég strauk þaðan tíu, tólf, þrettán, fimmtán, fimmtán og hálfs, sautján og átján ára gamall. Ég náðist alltaf og var sendur heim aftur — utan einu sinni“. . Eftir aðra strokutilraun (þá var hann tólf ára) lærði harm að spila á píanó og munnhörpu og æfði sig á sérkennilegri tegund hörpu- A milli flökku- Ieiðángra lauk hann við skóla og var sex mánuði við háskól- ann í Minne?ota. Hann hrósar sér af því, að hafa ekki opnað bók meðan hann var þar, og hann kveðst síðan ekki geta skilið hvernig fólk fáist til að leggja á sig langskólanám. í fjórtán mánuði flakkaði aði hann um Bandaríkin með gítar sinn og söng á götum og strætum. I ársbyrjun 1961 komst hann til New York og í „Gerde’s Folk City“ í lista- mannahverfi borgarinnar, Gre- enwich Village, var honum tekið sem jafningja- 1 frum- kemur, allir vita hvert hann fer: ofar, hærra . . .“ ★ Málfar Dylans er harðneskju- legt, knappt, stundum dá- lítið klunnalegt. En ,,sögur“ hans fjalla jafnan um efni sem er efst á baugi og hann tekur með þeim ákveðna afstöðu. Þegar hnefaleikameistari, blökkumaður, týndi titli og lífi á hnefaleikapallinum, varð til ballaðan ,,Hver drap Davey Moore?“ Þegar loftárásirnar á Norður-Vietnam hófúst, mót- ' mælti Dylan með „Herrar stríðsins“. Söngur hans ,,Blow- in’ in the Wind“ — sem mætti e-t.v. þýða „Svarið veit vind- urinn einn“, flaug um allan heim. Bandarískri æsku er Bob Dylan miklu meira en söng- stjarna sem selur kynstrin öll a£ plötum. Skoðanakönnun með- al stúdenta ieiddi það í Ijós, að þeir álíta ekki skáldsagna- einnig takmarkalitla aðdáun hinumegin Atlanzhafs- Þýzka blaðið „Frankfurter Ailgemeine Zeitung“ kallar hann ,,Hómer og Beethoven í einni persónu." Dylan virðist lita á þessa viðurkenningu aðeins sem byrjun á meiri tíðindum og er ekki alldeilis á þvi að leggja árar í bát. Á fimm árum hef- ur hann skapað 400 söngva og nú leggur hann æ meiri á- herzlu á kvæði sem ætluð eru einungis til frásagnar- Síðasta áætlun hans er „Leiðarvísir greinds manns um Bandaríkin“» sem saminn verður frá sjónar- miði hinna undirokuðu. Mesta sigur sinn vann Bob Dylan í fyri-asumar er hann söng á Newport-hátíðinni: sjö- tíu og fíiroji þúsund áheyrendur fognuðu honum innilega. ★ Dylan leyfir aðeins þeim ljós- myndurum að koma nálægt sér, sem hann þekkir persónu- lega- 1 viðtölum gefur hann oft- Framhald á 7. síðu. 4 ný Eands- lagsfrímerki f fyrradag gaf póst- og síma- málaþjónustan út fjðgur ný frí- merki, og eru myndir frá þekkt- um og fögrum stöðum á þeim öllum. Verðgildin eru 2,50 kr„ 4 kr„ 5 kr. og 6,50 krónur. Á 2,50 kr. merkinu er niynd af Lóndröngum, á 4 kr. merk- inu mynd frá Mývatni, á 5 kr. merkinu mynd af Búlandstindi og af Dyrhólaey á 6,50 kr. merk- inu. Frimerkin eru prentuð í fjórum litum. Merkin eru prentuð í Sviss hjá Courvoisier S/A La Chaúx de Fonds í Sviss, en ekki er getið um teiknara. vilja ekki koma auga á órétt- lætið, þó þeir viti hvað órétt- læti er“. 1 einum þekktasta söng Dylans segir m.a. á þessa leið: .,Hve oft þarf maðurinn að horfa upp áður en hann sér himininn, hve mörg eyru þarf maðurinn að hafa til að heyra fólkið hrópa. . •“ Bob Dylan, sem hefur verið kallaður „kynblendingur kór- drengs og beatniks“, er að dómi bandarísks æskufólks forystu- maður í uppreisn þess — upp- sömdum vísum hans sagði frá blökkustúlkunni Hattie Caroll, sem hlaut að kveðja þennan heim án skynsamlegrar ástæðu og hóruhúsinu í New Orleans, þar sem aðeins er þá ást að finna sem ekki fær neitt svar. Blaðið „New York ’ Times‘‘ komst í mikla hrifningu: .jSöngvar hans eru frumlegir og lýsa furðulegum hæfileikum. Bob Dylan segir sem fæst um uppruna sinn. En það skiptir heldur ekki máli, hvaðan hann höfundana Saul Bellow eða „ Norman Mailer markverðustu höfunda Bandaríkjanna um þessar mundir — heldur þenn- an mjóslegna dreng frá Minne- sota- I annarri skoðanakönnun, er fram fór meðal bandarískrar háskólaæsku, varð Bob Dylan í öðru sæti, næst á eftir hinum myrta forseta, John F. Kenne- dy, er spurt var um „athyglis- verðasta persónuleika okkar líma“. Og söngvarinn hlýtur LONDON 4/8 — 27 ára gamall Englendingur, David Lafferty, sá í dag í fyrsta sinn í 130 sólarhringa dagsins Ijós, þegar hann kom upp úr jarðgöngum við Cheddar þar sem hann hef- ur hafzt við aleinn á 120 metra dýpi síðan 27. marz. Honum tókst að bæta met Frakkans Antoine Senni sem hafðist við niðri í jörðinni í 126 daga. Sjálfur hafði hann týnt tölunni á þeim dögum sem hann hafði verið í göngunum og hélt sig enn eiga eftir 25 daga þar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.