Þjóðviljinn - 06.08.1966, Síða 10
um grænmetísuppskerunu
Grænmetisuppsfcera ársins
1966 stendnr og fellur með
haustinu. Ef vel viðrar getur
hún orðið ágæt, en leggist
haustið snemma að með frost-
um getur allt eyðilagzt, að
því er Þorvaldur Þorsteinsson
forstjóri Sölufélags garð-
yrkjumanna tjáði Þjóðviljan-
um í gær.
Kálrækt og önnur garð-
yrkja hefur verið heldur erf-
ið fram að þessu. Vegna
kulda og óvenju óhagstæðra
veðurskilyrða í vor komst allt
hálfum mánuði og víða mán-
uði seinna í gang en mörg
undanfarin ár og þetta hefur
sín áhrif á alla uppskeruna,
Hún verður síðar á ferðinni,
og sennilega minni að magni
til en venjulega og komi
frostnætur þegar í ágúst get-
ur grænmetið eyðilagzt jafn-
vel áður en það nær fullum
þroska.
Tiltölulega lítið er komið
af grænmeti á markað enn,
sagði Þorvaldur, blómkál og
hvítkál er rétt farið að sjást
og kemur helzt þaðan sem
einhver velgja er í jörðu.
MYNDINA hér að ofan tók
ljósmyndari Þjóðviljans, A. K.
í Aldamótagörðunum fyrir
nokkrum dögum og sjást á
henni blómkálshöfuð sem von-
^ andi eiga enn eftir að stækka
talsvert.
Laugardagur 6- ágúst 1966 — 31. árgangur — 173. tölublað.
Piatigorskyskákmótið:
Lursen og Spusskí
berjust um forustu
Verið að æfa Fjalla-Eyvind og Goldoni
41 þúsund áhorfendur á sýn-
ingum Leikfélugs Reykjuvíkur
□. Lgikfélag Reykjavíkur sýndi tíu leikrit á síðasta
leikári, þar af þrjú frumsamin íslenzk verk. Leikhúsgestir
urðu rúmlega 41 þúsund og sætanýting um 80%. Tvö léik-
rit eru nú í æfingu fyrir næsta leikár — Fjalla-Eyvindur
Jóhhanns Sigurjónsonar og Tveggja þjónn eftir Goldoni.
Upplýsingar þessar koma
fram í frettatilkynningu um
aðalfund Leikfélagsins sem hald-
inn var fyrir skömnju.
Sveinn Einarsson leikhússtjóri
flutti skýrslu um leikhúsrekstur-
Helgarferð ÆF
„út í bláinn“
' Æskulýðsfylkingin efnir til
helgarferðar „út í bláinn“ um
aðra helgi, 13—14. ágúst og
verrður að venju ekki tilkynnt
um ákvörðunarstað fyrr en
lagt er af stað.
Fylkingarfélagar eru hvattir
til að fjölmenna og Iáta skrá
sig sem fyrst í ferðina í skrif-
stofu ÆF.
Æ. F.
inn- Sýnd voru tíu leikrit en
níu á næstsíðasta leikári. Þrjú
af þessum sýningum voru upp
teknar frá f. ári: Ævintýri á
gönguför (alls sýnt 186 sinnum
til þessa), Þjófar lík og falar
konur og Sú gamla kemur í
heimsókn eftir Diirrenmatt. Þrjú
leikritanna voru einþáttungar,
sem sýndir voru saman síðdegis
á laugardögum — en aðsókn að
slíkum sýningum hefur reynzt
minni en skyldi þau tvö ár sem
þær haía verið haldnar. _ /
Þrjú leikritanna voru frum-
samin íslenzk verk. Sjóleiðin til
Bagdad eftir Jökul Jakobsson
(sýnt 40 sinnum), barnaleikrit-
ið Grámann eftir Stefán Jónsson
(26 sýn.) og Dúfnaveizlan eft-
ir Halldór Laxness- Þá er ótalið
eitt verkefnanna, „Hús Bern-
örðu Alba“ eftir Garcia Lorca.
Á því leikriti var haldinn há-
tíðasýning 19. marz og þess
minnzt, að þá voru liðin þrjá-
Minnzt á níorgun 175. ártíð-
ar sr. Jóns Steingrímssonar
11. ágúst n.k. eru 175 ár li3-
in frá andláti sérá' Jóns Stein-
grímssonar, sem prestur var í
Vestur-Skaftafellssýslu frá 1760—
1791, og um skeið prófastur í
öllu Skaftafellsþingi.
%
Sem kunnugt er bar nafn
hans hæst, er hann í Skaftár-
eldum hertist við hverja raun og
átti meiri þátt í því en nokkur
annar maður að leiða söfnuð
sinn í gegnum þær hörmungar,
er þá dundu yfir héraðið og
landið allt.
Á morgun, sunnudag verður
haldin hátið að Prestsbakka og
Kirkjubæjarklaustri til minriing-
ar um séra Jón Steingrímsson,
og verður dagski’á hennar sem
hér segir:
Kl. 13.30: Safnazt saman heima
á Prestsbakka og gengið til kirkju.
Kl. 14. Messa í Prestsbakkakirkju.
Altarisþjónustu annast ásamt
biskupi Islands, fyrrverandi sókn-
arprestur Prestsbakkakirkju, þeir
séra Öskar J. Þorláksson og séra
Gísli Bi-ynjólfeson. Sóknarprest-
urinn séra Sigurjón Einarsson
prédikar. Kirkjukór Prestsbakka-
sóknar syngur. Kl. 16.00. Úti-
samkoma í hinum foma kirkju-
garði á Kirkjubæjarklaustri?
Biskup Islands flytur ræðu.
Kirkjukór Prestsbakkasóknar
syngur. Að lokum verður sam-
eiginleg kaffidrykkja' í Félags-
heimilinu að Kirkjubæjarklaustri.
tíu ár frá því að Regína Þórð-
ardóttir lék fyrst í Iðnó.
Gestur Pálsson hlaut Skálholts-
sveininn fyrir leik sinn í Sú
gamla kemur í heimsókn og Þor-
steinn ö. Stephensen Silfurlamp-
ann fyrir bezta leik ársins (í
Dúfnaveizlunni). Þetta er í annað
skipti að hann fær verðlaunin
og þriðja árið í röð sem þessi
verðlaun eru veitt fyrir leikaf-
rek, sem unnið er á sviðinu í
Iðnó.
Leikhúsgestir voru rúmlega 41
þús. eða svipað og í fyrra. Sýn-
ingar urðu 219 en 218 í fyrra,
sem þá var glæsilegt met. Sam-
tals 37 leikarar fóru með hlut-
verk hjá félaginu, en aukaleik-
arar voru 22. Nú stendur yfir
leikför vi^ Sjóleiðina tfl Bag-
dad.
TVö leikrit eru nú í æfingu,
Fjalla-Eyvindrir eftir Jóhann
Sigurjónsson, leikstjóri Gísli
Halldórsson og Tveggja þjónn
eftir Carlo Goldoni, leikstjóri
Christian Knud, sem setti Þjóf-
ar lík og fálar konur á svið. SS
sýning verður tekin upp aftur,
svo og sýningar á Dúfnaveizlu
Laxness, en bæði þessi leikriit
voru sýnd langt fram á sumar
við mikla aðsókn. Dúfnaveizlan
var sýnd 22 sinnum og var upp-
selt á allar sýningar.
I lok fundarins var Brynjólf-
ur Jóhannesson einróma kosinn
heiðursfélagi LR.
Leikfélag Reykjavfkur verður
sjötugt í vetur.
Guðrún Ásmundsdóttir i' hlut-
verki sínu í „Sjóðleiðinni til
Bagdad‘‘.
Um þessar mundir stendur yf-
ir í Santa Monica í Kaliforníu
í Bandaríkjunum svonefnt Piat-
igorskymót í skák og keppa þar
10 stórmeistarar um miklar
verðlaunaupphæðir. Tefla þeir
tvöfalda umferð eða 18 um-
ferðir alls og er fyrsta hluta
mótsins nýlokið. Var staðan eft-
ir 9 umferðir þessi: 1.-2. Spasskí
og Larsen 6 vinninga, 3. Res-
hevsky 5, 4.-6. Najdorf og IJnz-
icher og Portisch 414, 7.-8. Petr-
osjan og Donner 4, 9. Fischer
314 og 10. Ivkov 3 vinninga.
«
f 10. umferð vhnn Fischer
Reshevsky, Petrosjan og Spas-
skí gerðu jafntefli og sömuleið-
is Unzicher og Donnef, Najdorf
og Portisch. Biðskák varð hjá
Larsen og Ivkov og hafði Lar-
sen betri stöðu. Þegar biðskák-
in var tefld fórnaði Larsen ridd-
ara fyrir þrjú peð og fór bið-
skákin öðru sinni í bið sl. mið-
vikudag eftir 57 leiki. Var stað-
an í biðskákinni þá þessi: Hvítt:
Larsen. Kóngur a4, riddari g5
og peð c5, e4, e3, Í7 og h7.
Svart: Ivkov. Kóngur g7, ridd-
arar c6 og f8. peð e5. Svartur
á leik í biðstöðunni. Segir Lar-
sen sjálfur i viðtali yið BT sl.
miðvikudag að hann gé öruggur
um sigur í skákinni, én vinni
Larsen skákina er hann orð-
inn efstur . á mótinu, hálfum
vinningi ofar en Spasskí og
tveim vinningum fyrir ofan þar
næstu menn, þá Reshevsky,
Portisch, Najdorf og Unzicher.
Biðskákin verður tefld i dag en
í gær átti að tefla 11. umferð
og átti Larsen þá að tefla við
Donner.
Athygli vekur hin slælega
frammistaða þeirra Petrosjans,
núverandi heimsmeistara, og
Fischers. Petrosjan hefur tap-
að tveim skákum, fyrir Larsen
og Portisch, en unnið aðeins
eina. Fischer hefur tapað þrem
skákum og unnið tvær. Larsen
fór fremur illa af stað, tapaði
fyrstu skák mótsins fyrir Iv-
kov, gerði síðan þrjú jafntefli
í röð, vann næstu þrjár skákir
og þar á paeðal bæði Petrosjan
og Fischer! gerði jafntefli i 8.
umferð, vann Portisch í 9. um-
ferð og á eins og áður segir
unna biðskák við Ivkov úr 10.
umferð. Hefur hann þá fengið
514 vinning úr 6 skákum. Geri
aðrir betur á svo sterku móti.
Bent Larsen
Lenti í pekkRRar-
vél og handleggs-
brotnaði illa
í gær varð það slys í Kassa-
gerðinni, að kona sem var að
vnnna við • að pakka rúllum
lenti með aðra höndina í pökk-
unarvélinni og handleggsbrotn-
aði illa um olbogann. Konan,
sem heitir Anna Magnúsdóttir,
til heimilis að Karfavogi 21, var
flutt í slysavarðstofuna og síð-
an í Landspítalann.
Úrslitakeppni stúdentaskákmótsins:
íslenzka sveitin
lenti í B-flokki
/
□ Heimsmeistaramót stúdenta í skák hófst eins og frá
hefur verið skýrt hér í blaðinu 30. júlí sl. í Örebro í Sví-
þ’jóð. 20 þjóðir tiaka þátt í mótinu og er undankeppni lokið.
íslendingar lentu í riðli með Tékkum og Hollendingpm
en báðar þær þjóðir hafa á að skipa sterkum sveitum.
Tapaði íslenzka sveitin báðum leikjunum með IV2 vinn-
ing gegn 2¥2 og lenti þar með í B-flokki í úrslitakeppn-
Áður hefur verið ságt frá úr-^
slitum einstakra skáka í keppn
Rændur 14
þás. kr.?
Maður nokkur hefur kært til
rannsóknarlögreglunnar yfir því
að veski með 14 þúsund krón-
um hafi verið stolið af honum
á fylliríi í fyrrakvöld og voru
tveir menn sem við málið eru
riðnir í yfirheyrslum í gær.
Maðurinn sem kærði man lít-
ið eftir atvikum vegna ölvunar
en hann mun hafa hitt annan
mann fyrir utan áfengisverzlun-
ina og farið með honum í hús
og ,sátu þeir þar um hríð að
sumbli ásamt þriðja manninum
og e.t.v. fleira fólki. Þegar ve§k-
iseigandinn kom heim til sín
um kvöldið saknaði hann vesk-
isins og fannst það síðar um
nóttiria í fórum „þriðja manns-
ins“ og var þá lítið fé orðið
eftir í því.
Framburði mannanná' tveggja
sem með ákærandanum voru ber
ekkert saman, og kannast hvor-
ugur við að hafa tekið veskið.
vísa þeiy hvor á annan en
segja jafnframt að eigandinn
hafi verið að gef§ fé í ölæðinu.
Liggur málið allt harla óljóst
fyrir.
ipni við Tékka en í leiknum við
Hollendinga tapaði Trausti
Björnsson fyrir Ziudema, Bragi
Kristjánsson tapaði fyrir Ree,
Jón Þ. Þór vann Scholl en Guð-
mundur Lárusson gerði jafntefli
við Krabbe.
1 1. umferð úrslitakeppnirinar
í B- flokki tefldu fslendingar við
Skota, Bragi Kristjánsson vann
Jamieson, Jón Þ. Þór vann Mc-
Alfhine, Guðmundur Lárusson
og Davie gerðu jafntefli og
sömul. Jon Friðjónssoh og Levy.
Bifreið stolið
Aðfaranótt sl. fimmtudags var
bifreiðinni R-5320 sem er Taunus
17M stationbifreið árgerð 1958,
stolið frá Stóragerði 8- Er bifreið-
in hvít blá að lit en hægra fram-
bretti nýtt, ósprautað og grátt
að lit- Bifreiðin var enn ófundin
í gær og eru þeir sem kynnu að
geta gefið einhverijar upplýsing-
ar um hana vinsamlega beðnir
að snúa sér til rannsóknarlög-
reglunnar.
mn
andi ti! Keflavík-
iir í
Miklar skemmdir urðu á vél-
bátnum Fiskakletti frá Hafnar-
firði, er eldur kom upp í vélar-
rúmi bátsins snemma i gærmorg-
un-
Baturinn var að dragnótaveið-
um djúpt úti í Fxaflóa, þegar
eidurinn kviknaði, og kom varð-
skipið María ^Júlía, sem nærstatt
var, fljótlega til hjálpar. Meðan
báturinn var dreginn áleiðis til
Keflavíkur komu varðskipsmenn
vatnsslöngum yfir í hann og
höfðu að verulegu leyti slökkt
eldinn, er komið var til hafnar
klukkan rúmlega tíu í gærmorg-
un Slökkvilið Keflavíkur réð
svo að fullu niðurlögum eldsins
er að bryggju var kómjð. en
skemmdir urðu miklar á bátnum,
einkum í vélarrúminu.