Þjóðviljinn - 11.08.1966, Blaðsíða 4
Q SÍBA — ÞJÖÐVILJINN — Fámmtadagar II. ágúst 1966.
urinn.
Ritstjórar: Ivax H. Jónssan (áb). Magnús FCjartansson,
Sigurður Suðmundseon.
rréttaritstjóri: Sigurður V. Filðþjófseon.
Auglýsingastj.: Þorva’dur Jó'-anneeson.
Simi 17-500 (5 lintrr). Askriftarverð kr. 105.00 á mánuði. Lausa-
söluverð kr. 5.00.
AuBskffið
Oíytting vinnutíma með ósker'tu kaupi er mikil-
^ væg kjarabót, en hún ein gefur ekki verka-
manni auknar tekjur til að mæta útgjöldum
heimilis hans. Það er líka óumdeilanlega mikils-
verð kjarabót fyrir verkamann að lengja sumar-
fríið sitt um þrjá daga. En ekki færir sú kjarabót
honum auknar tekjur til að standa betur að vígi
í sífelldri baráttu fyrir því að láta kaupið endast.
Þess vegna er það blekkjandi og raunar tómar
sjónhverfingar þegar slík kjaraatriði sem þessi
eru talin merkja það að verkamaðuriran standi
miklu betur að vígi í baráttunni við dýrtíðina,
talin merkja að hann standi betur að vígi til að
greiða húsnæðiskostnað sinn eða hafi fremur
efni á því að borga skattana sína, — vegna þess
að hann hafi femgið styttan vinnutíma með ó-
skertu kaupi og orlofið lengt. Hann fær nákvæm-
lega sama kaup fyrir vinnudag sinn þrátt fyrir
þessar kjarabætur, þó hann fái meira fyrir hverja
stund þess vinnudags.
ffjað eru þessi einföldu sannindi sem Eðvarð Sig-
* urðsson hefur verið að reyna að kenma ritstjór-
um Morgumblaðsins. Og vegna þess hversu leiðin-
legt það er að væna starfsbræður sína við leiðara-
skrifin um vísvitandi blekkingar langar mig til að
hafa heldur hina skýringuna, þó ekki sé hún góð,
að þetta atriði varðandi kaup og kaupmát't sé bein-
línis ofvaxið skilningi þeirra sem skrifa forystu-
greinar Morgunblaðsins þessa dagana.
Natóblöð að vitkast
FVanska Natóblaðið Information gagnrýnir nú
” orðið einarðlega framferði Bamdaríkjastjórnar
gagnvart Yíetnam og lét nýlega svo ummælt í for-
ustugrein, að yfirgnæfandi hluti manna í Vestur-
Evrópu léti ekki blekkjast af bandaríska utanrík-
isráðumeytinu eða bandarísku herstjórninni um
stríðið í Víetnam. Annað Natóblað, Tíminn, mál-
gagn Framsóknarflokksins, trúir sýnilega ekki
heldur Bandaríkjaáróðrinum, og segir m.a. 9. ág-
úst: „Það getur ekki samrýmzt forustuþjóð lýð-
ræðisskipulagsins að heyja stríð fyrir herforingja-
klíku, sem nýtur ekki stuðnings meirihluta þjóð-
ar sinnar, undir því yfirskimi að um krossferð fyr-
ir lýðræðisskipulagið sé að ræða. Það er niðurlægj-
andi fyrir stærstu lýðræðisþjóð veraldar að veifa
kommúnistagrýlu sem röksemd fyrir slíkum að-
förum og Bandaríkjamenn gera sig hlægilega með
því að tala um „löglega stjórn Suður-Víetnam“ í
þessu sambandi“. „Víetkong nýtur stuðnings meiri-
hluta þjóðarinnar í Suður-Víejmam ög baráttan
gegn hersveitum stjórnarinnar í Saigon og Banda-
ríkjamönnum er fyrst og fremst háð af íbúum Suð-
ur-Víetnam“. Og loks vitnar Tíminn í ummæli Ú
Þants og gerir að sínum, að undirrót Víetnams-
stríðsins sé „barátta þjóðar fyrir að fá að lifa ein
og óáreitt af öðrum þjóðum í landi sínu“, Önnur
málgögn Atlanzhafsband a 1 a gsins á íslandi láta
-ár enn sæma að tyggja Bandaríkjaáróðurinn
hráan. — s.
Hvenær tekur lög-
reglan í taumana?
Þjóðviljanum hefur borizt
eftirfarandi bréf:
„Við Hvérfisgötu hér í borg
er hús sem vekur athygli veg-
farenda á tvennan hátt. Það
er frábrugðið öðrum húsum
að útliti, en þó vekur meiri
eftirtekt að þar er erill af
drukknum körlum og konum
á kvöldin og um helgar, að
koma og fara eftir atvikum,
og jafnvel á öllum tímum sól-
arhringsins.
Þetta hús er í eigu heiðar-
legs fólks, að því er ég bezt
veit, en því óskiljanlegra er,
að húsráðendur skuli geta
liðið það siðleysi sumra leigj-
enda sinna, sem þama búa,
en í kjallara hússins búa
nokkrir einhleypir karlmenn,
einn þeirra hefur ekki etund-
að aðra atvinnu, svo að vit-
að sé, um áraraðir, en áfeng-
issölu.
Annar maður sem þama
býr hefur einnig stundað sömu
iðju, en þó aðallega óskað
\>i3skipta við hið veika kyn.
Einnig er þar til húsa ungur
maður, sem varð snemma
eiturlyfj-um og áfengi að bráð,
að því er talið er-
Vmsar sögur væri hægt að
hafa eftir, um þann ósóma,
sem þama er sagður eiga sér
stað, og einnig það, er sá er
þetta skrifar, hefur séð og
heyrt sjálfur, en því skal
sleppt að þessu sinni.
Á undanfömum árum hef-
ur lögreglan unnið að því að
uppræta leynivínsölu hjá bif-
reiðastjórum og orðið allvel
ágengt, þótt betur þyrfti að
loka þeim brunnum, en þeim
mun meira undrunarefni er
það að einstaka mönnum
skuli haldast það uppi, að
hafa ólöglega áfengissölu fyr-
ir atvinnugrein um áraraðir,
og það á allra vitorði, nema
lögreglunnar.
Þá má einnig sjá á rölti,
í nágrenninu við umrætt hús,
mann nokkum, á kvöldin og
um helgar, sem selur áfengi
úr vösum sínum, hverjum sem
þess óska, og hefur hann
stundað þá iðju 2—3 síðustu
árin, án þess að lögreglan hafi
séð ástæðu til þess að gera
honum ónæði- P“.
Hvorir eru vinsælli, 'Jes-
ús eða Bítlamir? Svo virð-
ist sem allt sé að komast í
uppnám í Bandaríkjunum
vegna þessa vandamáls.
Samkvæmt fregnum í
Morgunblaðinu er því hald-
i8 fram þar vestra að
„kommúnistar hafi heila-
þvegið Bítlana“. í sömu
•fregn er sagt að mölva eigi
í borginni Birmingham í
-------------------------é>
Alabama allar hljómplötur
með Bítlasöng sem í næst
„í stórri tréslípivél sem
borgarstjgrnin á“. „Þegar
búið verður að mölva nið-
ur plöturnar, verður brotun-
um safnað saman í skrín,
sem afhent verður Bítlun-
um við komu þeirra til
Memphis i Tennessee hinn
19. þ.m.“. „Einnig hefur
Bítlabókum og plötum ver-
ið varpað á bálkesti víða i
Birmingham. . .“ Þá skýrir
Morgunblaðið svo frá að
þrjár útvarpsstöðvar á
Spáni hafi bannað útsend-
ingar á lögum Bítlanna þar
til Lennon hafi opinberlega
dregið þau ummæli sín til
þaka að Bítlomir séu vin-
sáelli en Jesús!
☆ ☆ ☆
plötuframleið-
enda stofnað
Hínn 8. ágúst sl. var slofnað
félag íslenzkra hljómplötufram-
leiðenda, en félagið verður deild
í hinu alþjóðlega sambandi
hljómplötuframleiðenda (Federa-
tion of the Phonographic Indu-
stry).
Tilgangur íélagsins er að gæta
hagsmuna meðlima sinna á inn-
lendum og erlendum vettvangi
svo og að vinna að framgangi
stefnumála alþjóðasambandsins
hér á landi-
Meginverkefni íslenzku deild-
arinnar verður að knýja fram í
félagi við listflytjendur samninga
við útvarp, sjónvarp og skemmti-
staði um greiðslur fyrir hljóm-
plötuafnot á sama hátt og tíðk-
ast í öðrum löndum. Einnig að
vinna að setningu nýrra höf-
rndalaga, sem félagið telur, að
dregizt hafi mjög úr hömlu.
I stjórn félagsins voru kjörnir:
Haraldur Ólafsson, formaður,
Svavar Gests, ritari, og Helgi
Hjálmsson, meðstjórnandi. End-
urskoðendur voru kjömir Sveinn
Guðmundsson og Ámi Ragnars-
son-
Á fundinum var einróma sam-
þykkt að ekora á ríkiisstjóm og
Alþingi 'að lögfepta þegar á
næsta þingi frumvarp dr. juris.
Þórðar Eyjólfssonar til nýrra
höfundalaga- Einnig fullgilda
milliríkjasáttmála þann, sem
gerður var í Róm 26. október
1961 um vemd listfiytjenda,
hljóðrita-framleiðenda o. fl.
Fróðlegt er að frétta af
þvílíkum menningarvið-
brögðum í Bandarikjunum
og fasistaríkinu Spáni, og
mundu margir telja að fyr-
irbæri af þessu tagi gætu
ekki gerst á Íslandi. En
bezt er að taka ekki of
stórt upp í sig. Það hefur
komið fyrir hér í Ríkisút-
varpinu að kunnur stjórn-
málamaður og heitur aðdá-
andi bandarískrar menning-
ar braut hátíðlega við
hljóðnemann plötuna „Ég
vil<H að ég vœri hanahœnu-
grey“, en raunar var tal-
ið að vísan væri eftir plötu-
brjótinn sjálfan og athöfn-
ina bæri að skoða sem
sjálfsgagnrýni misheppnaðs
skálds. En annað dæmi er
nærtœkara: Hugmynd
„sjónvarpsáhugamanna" í
Vestmannaeyjum að brenna
táknrænt virðulegan emb-
ættismann á þjóðhátíðinni
til að undirstrika ást á her-
mannasjónvarpinu frá
Keflavikurherstöðinni. Sú
hugmynd sver sig greinilega
í ætt við hin bandarisku
menningarfyrirbæri sem að
framan er lýst, og vantar
„sjónvarpsáhugamenn“ þá
ekki mikið annað en hvít-
an búning með topphúfum
til að verða þeim líkastir
sem þeir vilja likastir vera.
sitt af hverju
• Noel Carroll frá Dublin á
írlandi bætti fyrir skömmu
eigift Evrópumet í 880 jarda
hlaupi, hljóp á 1.47,4 mín. —
sem er 1/10 sek. betri tími
en fyrra met frá 1963.
• Rainer Stenius, Finnlandi,
stökk fyrir nokkrum dögrum
7,95 m. í langstökki á íþrótta-
móti í Kouvola- A sama móti
stökk BandaríkjamaJfturinn
Ron Morris 4,80 m- í stangar-
stökki.
• Janis Lusis, Sovétríkjuniun,
kastaði spjótinu 83 metra á
íþróttamóti í Stokkhólmi fyr-
ir skömmu.
• Lev Jasjín, hinn frægi
sovézki landsliftsmarkvörftur,
skýrfti frá þvi I sjónvarps-
viðtaii fyrir nokkrum dögum,
aft hann stefndi að því að
vera einnig meftal keppenda
á HM í knattspyrnu í Mexikó
eftir 4 ár. Jasjín er nú 37
ára gamall.
• Mary Peters, Englandi,
varft tíunda konan í heimin-
um til aft varpa kvennakúl-
unni yfir 17 metra línu. Á í-
þróttamóti sem haldið var í
Annotto á Jamaica fyrir
nokkrn varpafti hún kúlunni
17.10 metra-
• Egon Henninger, Austur-
Þýzkalandi, setti nýtt heims-
met í 110 jarda bringusundi
á dögunum, syntl vegalengd-
Lev Jasjín
■
■
ina á 1.08,4 mín. og bætti :
fyrra met Astralíumannsins I. :
O’Örien um einn tíunda úr ■
sekúndu. O’Brien þessi bætti :
hinsvegar daginn eftir heims- j
met Egons Henningar í 220 j
jarda sundi um 2,6 sek. synti ■
á 2.28,0 mín.
■
■
■
■
• Stanislaw Gredzinski vann j
400 m. hlaupið á pólska >
meistaramótinu fyrir nokkr- ■
um dögum á 46,0 sek- Næstur :
honum varð Badenski á 46,2 j
sek. f 1500 m. hlaupinu á j
sama móti sigraði Witold :
Baran á 3.39,5 mín.
utan úr heimi
Skíðamót í Kerlingarfjöilum
annan laugardág, 20. ág.
Þegar sumarnámskeið var
haldið í Kerlingarfjöllum í júlí
sl. varð að fresta stónsvigsmót-
inu vegna veðurs. Laugardag-
inn 20. ágúst nk. stendur til
að iáta mótið fara fram.
Fyrirhugað .er, að keppendur
verði komnir á mótsstað föstu-
dagskvöldið 19. ágúst. Stór-
svigsmótið mun fara fram laust
eftir hádegið laugardaginn 20.
ágúst-
Mótsstjórinn, Valdimar öm-
ólfsson, tilkynnir, að þrátt fyr-
ir mikla sólbráð í fjöllunum sé
ennþá mikill snjór, t>g skíða-
færi er hið bezta.
Keppendur og aðrir eru beðn-
ir að hafa með sér viðleguút-
búnað og nesti. Aætlunarbíll
fer frá Umferðarmiðstöðinni
föstudagskvöld kl. 8, og eru.
farþegar beðnir um að taka
farseðla daginn áður.
Að mótinu loknu (laugar-
dagskvöld) verður haldinkvöld-
vaka, og afhent verða mjög
falleg verðlaun, sem Skíða-
skólinn í Keriingarf jöllum ^hef-
ur gefið.
Skíðamenn og konur eru beð-
in um að fjölmenna á mót
þetta, þar sem þetta verður ef
til vill síðasta stórmótið á
þessu starfsári.
» ★
Allar nánari .upplýsingar veit-
ir Þorvarður Örnólfsson, Fjólu-
götu 5, sími 10470 «g Skíða-
ráð Reykjavíkur, sími 19931.
MeisUramót í frjálsíþróttnm
þraut og 10 km. hlaupi seinni
daginn. — Þátttökutilkynning-
ar þurfa að hafa borizt Einari:
Frímannssyni, c/o Samvinnu-
tryggingar, í síðasta lagi mánu-
daginn 15- þm-
Iþróttir 1.
Meistaramót Islands í frjáls-
um íþróttum, 3- hluti, fer fram
á Laugardalsvellinum í Reykja-
vik dagana 20. og 21. þ.m- —
Keppt verður í tugþraut, fimmt-
arþraut kvenna og 4x800 m.
boðhlaupi fyrri daginn og tug-
UTB0Ð
Tilboð óskast í að byggja tvær hæðir ofan á norð-
urálmu Fæðingardeildar Landspítalans. Uppdrátta
má vitja á teiknistofu húsameiStara ríkisins, Borg-
artúni 7, gegn 1.000,00 kr. skilatryggingu. Tilboðin
verða opnuð 30. ágúst kl. 2 e.h.
Reykjaví'k, 9. ágúst ’66.
Húsameistari ríkisins
Borgartúni 7.