Þjóðviljinn - 21.08.1966, Síða 1
Sunnudagur 21. ágúst 1966 — 31. árgangur — 196. tölublað.
Gosið hefur færzt í aukana
Nýja hraungosiö í Surtsey
hafði færzt talsvert í aukana
í gærmorgun. Heldur hraunið
áfram að streyma úr gígnum
og treysta tilveru eyjarinnar.
Gosið í Surtsey hófst að-
faranótt 15. nóvember 1963;
þannig að nú skortir aðeins
tæpa þrjá mánuði á að það
hafi staðið' í 3 ár og er það
orið annað lengsta gos sem
sögur fara af hér á landi næst
á eftir Mývatnseldum sem
stóðu yfir frá 1924 til 1729
með nokkrum hléum.
Og enn heldur Surtur á-
fram að gjósa svo að e.t.v. á
hann eftir að slá metið.
Einar Olgeirsson rifar i Réff um sósialisma og samfylkingu
Bezta færi frá 1942 til mikilla
og góðra umskipta fyrir alþý
□ „Það eru umbrot í aðsigi í stjórnmálum Norður- og Vestur-Evrópu, og
eigi síður hér á Islandi. Sósíalistískir flokkar eru í umsköpun. Flokkavald
almennt tekið til endurskoðunar. Alvarlega er til íhugunar, hvort samfylk-
ing er ekki heppilegasta form beirra pólitískra samsteypna, er sameina J
skulu frelsi inn á við og þrótt út á við. ! '
n Öll þessi mál eru nú á dagskrá til úrlausnar og það er því þýðingar-
meira að rétt og viturlega sé ráðið sem pólitískt gjaldþrot ráðþrota ríkis- /
stjórnar, — er glatað hefur með stjórnleysi tækifæíum bezta góðæris, sem
yfir ísland hefur komið, — skapar slíka deiglu í íslenzkum stjórnmálum,
að eigi hefur síðan 1942 verið annar eins möguleiki til mikilla og góðra um-
skipta frá alþýðu sjónarmiði, og vart nokkru sinni verið eins brýn þörf á 1
algerum umskiptum frá sjónarmiði þjóðarheildarinnar."
□ Þe.ssar eru niðurstöður Einars Olgeirssonar formanns Sósíalistaflokksins
í ýtarlegri grein um sósíalisma og samfylkingu, sem birt er í nýútkomnu
hefti af tímaritinu Rétti 3. hefti 1966.
í inngangi greinarinnar, sem
er 15 þéttprentaðar síður, skýr-
ir Einar viðfangsefni hennar á
þessa leið;
„Hreyfiaflið í sögu íslands á
20. öldinrn eru verkalýðs- og
þjóðfrelsishreyfingar. Saga ís-
lendinga á 20. öld er fyrst ög
Málgagn hernámsandstæðinga
Nýtt og fjölbreytt hefti af
Dagfara kam út fyrir he/gi
í nýútkomnu hefti af „Dag-
fara“, málgagni Samtaka her-
námsandstæðinga, er birt ávarp
frá ungu fólki til íslendinga um
hernámsmálin. Undir það ritar
ungt -fólk. sem hefur „ólíkar
skoðanir á ýmsum málum“ en
er „sammála um, að við viljum
ekki hafa herstöðvar eða her-
lið í landi okkar“, eins og seg-
ir í upphafi ávarpsinsr' '
Auk ávarpsins er í heftinu
margvíslegt efni.
Ragnar Arnalds alþingismað-
ur ritar grein, sem hann nefnir
ísland, Norðurlönd, NATO —
1969. Þar ræðir Ragnar um hin
nýju viðhorf í friðar- og varn-
armálum, og leggur í lok grein-
ar sinnar áherzlu á að hernáms-
andstæðingar fylgist vel með
þeim umræðum, sem fram fara
um þessi efni á Norðurlöndum.
— Síðan er í „Dagfara“ ýtar-
legt viðtal við Björn Th. Björns-
son, listfræðing, um íslenzkt
sjónvarp og bandarískt. Þá er
grein um hernámsframkvæmd-
irnar í Hvalfirði, með myndum
frá framkvæmdunum, Heimir
Pálsson stúd. mag. á kvæði í
heftinu „Nýtt kvæði um guð /
Kvæði um nýjan guð“. Þá er
greinin „Gunnur var þeim á
sinnum“ og fréttir eru af starfi
samtakanna upp á síðkastið.
Loks er' grein eftir Loft Gutt-
ormsson um Víetnammálið og
fremst í heftinu er grein um
landsfund Samtaka hernáms-
andstæðinga í Bifröst í Borgar-
firði 3.—4. september næstkom-
andi. ^
Ritstjórn Dagfara að þessu
sinni skipa Svavar Sigmunds-
son, cand. mag. og Loftur Gutt-
ormsson, sagnfræðingur.
(Frá Samtökum her-
námsandstæðinga.)
fremst saga þeirra. Þær hafa (
knúð fram þróunina, sem orðið
hefur til framfara, frelsis og
mannréttinda. Höfuðafl þjóð-
frelsishreyfingarinnar í upphafi
aldarinnar, — þegar enn er við
danskt afturhald að eiga, — eru
bændur og menntamenn, en
hluti borgarastéttarinnar stend-
ur með, — síðar verða það
verkamenn og menntamenn, er
forustuna hafa, einkum eftir að
höfuðóvinur íslendinga verður
amerískt auðvald og hervald.
Og það hefur eftir 1941 orðið
hlutverk Sósíalistaflokksins og,j,___
þeirra hreyfinga, sem hann hef- ,
ur staðið að og að mestu haft
forustu fyrir, að heyja þessa
baráttu.
Skipulagsmál þessara hreyf-
inga eru oft ekki síður mikil-
væg en stefnumálin sjálf, sök-
um þess að undir skipulagi
þeirra er það komið, hvort slík
öfl, er framvinduna knýja á-
fram, standa sameinuð eða
sundruð, — og þar með, hvort
þáu eru slíkt vald í þjóðfélag-
inu, sem þarf til að sigra, þrátt
fyrir ólíkar skoðanir innbyrðis.
Til þess að skilja þessi mál
til hlítar og geta stjórnað þess-
um hréyfingum farsællega, er
því nauðsyn að jafnt sósíalist-
ar sem aðrir verkalýðs- og/eða
þjóðfrelsissinnar, átti sig til
fulls á þeim tvíþættu verkefn-
Einar Oigeirsson
Fluttu með
tvö ung börn
í tjald í gœr
í GÆRDAG skömmu áður en
blaðið fór í prentun hringdi
kona til Þjóðviljans og kvaðst
vilja segja ofurlitla sögu um
ástandið í húsnæðismálunum í
borginni.
SAGA KONUNNAR var í stuttu
máli á þessa leið: í tveggja
herbergja íbúð við Bústaðáveg
hafa að undanfömu búið ung
hjón með tvö böm. Þessa í-
búð þurftu þau að rýma og í
vandræðum sínum sneru þau
sér til þeirra aðila hjá Rvík-
urborg sem hafa með hús-
næðismál að gera og leituðu
eftir aðstoð. Sóttu þau bæði
um að fá keypta íbúð á veg-
um borgarinnar og eins að fá
leigða íbúð til bráðabirgða a.
m. k. ^
ENGA FYRIRGREIÐSLU fengu
ungu hjónin hjá borginni. Og
í gær var komið að þeim degi
að þau áttu að flytja úr £-
búðinni sem þau hafa verið í
og stóðu þau uppi síðdegis í
gáer húsnæðislaus og á göt-
unni með böjnin tvö og allt
sitt innbú. ; •
ÞAR SEM ÖNNUR úrræði vóru
ekki fyrir hendi ætluðuungu
hjónin því að tjalda yfirsig
og börnin í nótt á eiáhverjum
blétti í nágrenni við húsið
þar sem þau hafa búið.
SÖKUM ÞESS AÐ blaðið var
að fara í prentun var ekki
unnt að athuga þetta mál nán-
ar £ gær en væntanlega verð-
ur sagt frá þvf nánar fÞjóð-
viljanum eftir helgina.
Framhald á 7. siðu.
Góðar horfur á hitaveitu fyrir Húsavík:
Líklegt er sb nægilegt vatn
fáist innan bæjarlandsins
□ Að undanförnu hefur verið unnið að því að
reynsludæla borholur þær í landi Húsavíkurkaup-
staðar sem boraðar voru á árunum 1961—1963 og
gefa þær tilraunir góðar vonir um að fást muni í
bæjarlandinu með frekari borunum nðégilegt heitt
vatn til hitaveitu fyrir kaupstaðinn.
Ikveikja í fngélfsstræti
TJm eitt leytið í fyrrinótt
lcviknaði í tveim húsum við
Ingóifsstræti, og bendir flest
til að þar hafi brennuvargur
verið á ferðinni.
Slökkviliðið var fyrst hvatt
að Ingólfsstræti 9, þar sem
Félagsbókbandið var áður til
húsa. Hafði eldurinn konjið
upp £ ruslageymslu bakatii
við húsið og það tekiðað loga,
en eldurinn var fljótt slökkt-
ur og pkemmdir urðu ekki
teljandi.
Meðan slökkviliðið var Á efri hæðinni er Ljósmynda-
þama statt varð elds vart f i stofa Péturs Thomsens og
húsinu nr. 4 við sömu götu.
Var þar eldur í íjallara og
húsið fullt af reyk. Eldurinn
virðist hafa komið upp í
geymsluherbergi , frá Ljós-
myndastofu Péturs Thomséns,
var þar mikið af filmum og
öðru eldfimu efni. Eyðilagðist
þar allt og einnig urðu nckkr-
gr skemmdir í öðrum hluta
kjallarans þar sem rafmagns-
vprkstæðið Rafröst er til húsa.
urðu þar miklar skemmdir á
tækjum og myndum.
Að þvi er rannsóknarlög-
reglan sagði Þjóðviljanum i
gær virðist lítill vafi á því
að um fkveikju hafi verið að
ræða á báðum þessum stöð-
um. Nokkrir menn sem voru
að flækjast drukknir kringum
húsin meðan á slökkvistarfinu
stóð voru teknir til yfir-
heyrslu, en ekkert er upplýst
hver valdur er að brunanum.
Þjóðviljinn átti fyrir helgina
tal við Áskel Einarsson bæjar-
stjóra á Húsavík um þessi mál.
Sagði hann að á árunum 1961-
1963 hefðu verið boraðar fjór-
ar holur í bæjarlandinu í leit
að vatni en síðan hefði orðið
langur dráttur á» því að dæla
fengist til þess að dæla úr hol-
unum til reynslu. Hafa menn
frá jarðborunum ríkisins unnið
að því að undanförnu að
reynsludæla holurnar og efna-
greina vatnið undir stjórn Jens
Tómassonar jarðfræðings.
Stærsta holan var boruð á
Höfðanum, er hún 1200 metra
djúp og úr henni hafa fengizt
5,5 sekúndulítrar af 94 gráðu
heitu vatni. Þá er önnur borhola
í Laugardalnum og hafa feng-
izt úr henni 5—6 sekúndulítrar
af 79 gráðu heitu vatni og er
álitið að þar sé hægt að fá
miklu meira vatn með frekari
borun. Þá var boruð hola á svo-
nefndu preststúni en hún hefur
reynzt „dauð“. Er ætlunin að
dýpka hana og bora eina til
tvær holur til viðbótar þar í
grennd og er verið að útvega
bor 'til þessara framkvæmda.
Fjórða holan er í Bakkanum.
Áskell taldi líkur á að úr
þeim fjórum holum sem þegar
er búið að bora megi fá um 15
sekúndulítra með fullri dælingu
en til þess að fá nægjanlega
mikið heitt vatn fyrir hitaveitu
handa kaupstaðnum mun þurfa
30-40 sekúndulítra. Eru allar
líkur taldar á að unnt verði að
fá svo* mikið vatn í bæjarland-
inu með því að dýpka þær hol-
ur sem fyrir ■ eru og bora nýj-
ar. Verða nú keyptar dælur í
holnrnar og jafnframt haldið á-
fram borun.
Að lokum sagði Áskell að
hitaveita fyrir Húsavíkurkaup-
stað yrði að sjálfsögðu dýr
framkvæmd en hefði jafnframt
mjög mikla þýðingu fyrir bæ-
inn. Sagðist hann vera mjög á-
nægður yfir því, að nú væri
farinn að sjást árangur af bor-
ununum. Þetta hefði verið eitt
fyrsta verkefnið sem hann hefði
beitt sér fyrir í sinni bæjar-
stjóratíð en nú væri hann að
láta af störfum 1. september n.
k.
Fyrirlestur um
þýðingar úr ísl.
Dr. Ladislav Heger frá Prag,
sem dvelst hér á landi.um þess-
ar mundir í boði menntamála-
ráðuneytis, heldur fyrirlestur í
Háskóla íslands miðvikudag 24.
ágúst kl. 5.30. Efni fyrirlestrar-
ins er þýðingar íslenzkra bók-
mennta, einkum forr.bókmennta,
á tékknesku. Fyrirlesturinn
verður fluttur á dönsku. Öllum
er heimill aðgangur.