Þjóðviljinn - 21.08.1966, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 21.08.1966, Qupperneq 2
2 SfÐÁ — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 21. ágöst 1966. Skólalæknar Skólalækna vantar við nokkra barna- og gagnfræðaskóla í Rey-kjavík á komandi skólaári. Nánari upplýsingar gefur forstöðukona Heilsuvemdar- stöðvar Reykjavíkur í síma 22400. Umsóknir sendist stjóm Heilsuverndarstöðvar Reykjavík- ur fyrir 15. september n.k. Reykjavík 18. ágúst 1966, Stjóin Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur. Aðvörun lil íbúðareigenda r fjölbýlishúsum við HRAUNBÆ og RÓFABÆ Skrifstofa borgarverkfraeðings leyfir sér að vekja at- hygli íbúðaeigenda við fyrrnefndar götur á grein úr út- hlutunarskilmálum lóðanna, þar sem segir, að þeim aðil- um, sem fengu lóðaúthlutun við Hraunbæ og Rofabæ, sé skylt að slétta lóðimar og koma þeim í rétta hæð. Eigi verður hægt að koma fyrir jarðstrengjum og raf- magnsheimtaugum fyrr en þessu skiiyrði er fullnægt. V. j Borgarverkíræðingurinn í Reykjavík. AKRANESVÖLIUR: í dag, sunnudag 21. ágúsí kk 4 e.h. leika Í.A. - K.R. Dómari: Hannes Þ. Sigurðsson. Ferð með Akraborginni kl. 1,30 og til baka að leik loknum. ' i NJARÐVÍKURVÖLLUR: í dag, sunnudag 21. ágúst kl. 4 e.h. leika á Njarðvíkurvelli Í.B.K. — Þróttur Dómari: Guðmundur Guðmundsson. II. DEILD MELAVÖLLUR: 1 kvöld kl. 7,30 (sunnudag) leika Fram - Víkingur Dómari: Xarl Jóhannsson. MÓTANEFND Minningarorð £yjóífur Eyjólfsson skósmiður Þann 14. ágúst sl. andaðist í Borgarsjúkrahúsinu Eyjólfur Eyjólfsson skósmiður, eftir langvarandi veikindi. Hann var fæddur 3. júlí 1902 í Hraunhjáleigu í Ölfusi. Foreldrar Eyjólfs voru hjón- in Guðrún Guðmundsdóttir frá Ytri-Grímslæk og Eyjólfur Eyjólfsson frá Efri-Grímslæk, komin af svonefndri Gríms- lækjarætt. Eyjólfur sálugi, sem héi; er minnzt, var einn af þréttán systkinum, og eru nú aðeins sex þeirra á lífi. Þrettán ára barn varð hann fyrir þeirri þungu lífsreynslu að veikjast af illkynjaðri beinbólgu í fæti og- var síðan fatlaður á fæti ævilangt síðan af völdum þessa. Eyjólfur hóf skósmíðanám árið 1920, eða 17 ára gamall, lauk því námi hjá Sófusi Guð- mundssyni skósmíðameistara í Vestmannaeyjum, en þar dvaldist hann um átta ára skeið. Árið 1930 flytur Eyjólfur til Reykjavíkur og festir kaup á skósmíðaverkstæði Kristjáns Kristjánssonar á Týsgötu 7. Árið 1933 kvæntist hann eft- irlifandi konu sinni, Sigur- björgu Guðmundsdóttur frá Haukadal vestur í Dýrafirði. Hún er af svonefndri Arnar- dalsætt, sem margir kannast við. Þeim hjónum varð sjö barna auðið, en af þeim eru fimm á lífi, öll uppkomin, það yngsta 16 ára stúlka. Börn þeirra hjóna eru öll hin gjörvilegustu — að ógleymdum 9 mann- vænlegum barnabörnum. Eyjólfur átti jafnan við al- varlegan heilsubrest að' stríða. — Eigi að síður á hann að baki dáðríkan ævidag. Hann var vinnuglaður með afbrigð- um, hagsýnn og búsæll, enda giftur þeirri konu, að fáum einum er gefið það lán að eign- ast þvílíkan lífsförunaut, að þeirra dómi, sem gerst vita um sambúð þeirra hjóna. Hann kunni og manna bezt að meta þetta lán sitt. Eyjólfur var félagslyndur maður að eðlisfari, var t.d. virkur maður í Sjálfsbjörg, fé- lagi fatlaðra, og víðar þar sejn kraftar hans og heilsa entust til. Ég hafði náin kynni af Eyj- ólfi þau átta ár sem hann dvaldist í Vestmannaeyjum, þá ungur maður, og sá góði kunn- / ingsskapur hélzt jafnan síðan, þótt leiðir skildi með köflum. Ég minnist glaðværðar hans, hjálpsemi hans og hjartans hreinskilni, sem er og verður aðalsmerki góðra manna. Ég kveð nú þennan gamla æskufélaga minn í hinzta sinni. — Ég flyt hinni ágætu konu, frú Sigurbjörgu, og öllum öðr- um eftirlifandi vandamönnum hans,' éihlægá sámúðarkveðju. Jón Rafnsson Ms. Anna Borg Vöruflufningar frá ítalíu og Spáni Ráðgert er að skip vort lesti vörur frá ítalíu og Spáni til íslands fyrri hluta okt- óber n.k. ef nægilegur flutningur fæst. Þeir sem hug hafa á flutningi með skipinu eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við skrifstofu vora í Garðastræti 3, sími: 11120. ’ Skipaleiðir hJ. Frá vélskóla Is/am/s Vélstjóranámskeið verða haldin á Akureyri og í Vest- mannaeyjum, ef nægileg þátttaka fæst, þau myndu hefjast um miðjan september. Námskeiðin veita. þéim er standast próf rétt til að vera yfirvélstjóri á fiskiskipi með allt að 500 hestafla vél, og þeim er hljóta framhaldseinkunn rétt til að setjast' í I. bekk Vélskóla Islands. Inntökuskilyrði eru 17 ára aldur og sundkunnátta. Umsóknir sendist sem fyrst, helst fyrir 1. september n.k. til Vélskóla íslands, Reykjavík. Gunnar Bjarnason, skólastjóri. 4 I

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.