Þjóðviljinn - 21.08.1966, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 21.08.1966, Qupperneq 3
Sunnudagur 21. ágúst 1966 — ÞáÖÐVIUWN — SÍ»A 3 kvikmyndir Fyrrverandi „undra- barn " / þroskaleit RahbaS v7ð Gifte Hœnning og OlegVidov Hingað til hefur allt gengið vel; að vísu hafa veðurguðirnir verið heldur uppstökkir, svosem Norðlendingum er vel kunnugt, en engu að síður var haegt að ljúka tökunni fyrir norðan nokkumveginn samkvæmt á- astlun- í Grindavík verður hópurinn u.þ.b. 2 vikur, þar munu kvik- myndaðir stórviðburðir, m.a. verða þar vegnir 5 menn í stór- kostlegum bardaga og Hag- barður verður útlægur gerður. Kvikmyndamennirnir voru glaðir og reifir mitt í annrík- inu, aðbúnaðurinn á Holti var öllum mjög að skapi og svo var það ævintýri að vera í Reykjavík, fæstir höfðu komið hingað fyrr- Gitte hrifin af hlutverkinu Gitte Hænning er ein af fá- um úr hópnurri sem hefur ver- ið áður í Reykjavík. Það var fyrir 7 árum, þegar hún var „undrabam“ og söng fyrir Reykvíkinga við góðan orðstír. Hún man vel eftir Islandsför sinni og hefur gaman af að rifja upp ýmislegt, sem þá gerðist. Síðan hefur margt á daga hennar drifið, t.d. hefur hún leikið í 8 kvikmyndum. Síð- asta myndin, sem hún, lék í áð- ur en hún var ráðin til að leika Signýju í „Rauðu skikkjunni“, var tékknesk og hét Pípan- Leikstjórinn heitir Vojtech Jasniy. og hefur áður gert frae,’a mynd sem heitir „Einn daginn kom köttur-“ Gitte var Gitte Hænning og Oleg Vidov á æfingu fyrir norðan. (Ljósm. IH) Það var mikið um að verá á Hótel Holti s.1. fimmtudag. Kvöldið áður hafði komið þang- að til dvalar hópur kvjki myndamanna, sem hefur verið að kvikmynda „Rauðu skikkj- una“ norður í Kelduhvcrfi að undanförnu. Á fimmtudag komu bílar að norðan með vclar, búninga og fleira sem tilheyrir kvikmynd- un og allir voru önnum kafnir að taka á móti þessu og búa sig undir áframhaldandi kvik- myndatöku í Grindavík- 2 mánuði í Tékkóslóvakíu og lætur vel af dvöl sinni þar. Og nú leikur hún Signýju Sig- varðardóttur í þessarí mynd, sem margir hafa nefnt norræna útgáfu af Rómeó og Júlíu. Hún segist vera ákaflega hrifin af hlutverkinu, en hrædd um að geta ekki leikið það sem skyldi. Hún hefur aldrei fyrr feng- izt við hlutverk af þessu tagi. en leikstjórinn, Gabríel Axel. segir að ótti hennar se ástæðu- laus, hún hafi allt sem þarf tii að leika Signýju. Og hann er ekki eipn um það álit. Gitte segir, að takist henni vel í þessari mynd hafa hún náð þýðingarmiklu takmarki í lífi sínu. Hlutverkið sé erfitt, en þakklátt og það verði henni lyftistöng í framtíðinni, ekki aðeins hvað snertir möguleika hennar f harðri samkeppni kvikmyndaheimsins, heldur einnig í þroskaleit hennar sjálfrar- Hún hafi ekki ennþá öðlazt trú á sjálfa sig sem leik- konu- 1 Hinsvegar getur hún ekki hugsað sér aðra braut í lífinu og keppir að háu marki. Gitte dáir mjög sænsku leikkonuna Evu 'Dahlbeck, sem leikur móð- ur Signýjar í „Rauðu skikkj- unni“ ög telur sig hafa lært miKið af samstarfinu við hana Gitte og Oleg í hlutverkum Signýjar og Hagbarðs. og Gunnar Björnstrand, sem lfeikur Sigvarð konung. Og þá er auðvitað komið að spurningunni óhjákvæmilegu; Hvemig líkar þér við Oleg Vidov, sem leikur Hagbarð? Gitte brosir: hann er elsku- legur strákur og áreiðanlega góður leikari. Okkur gengur ágætlega að skilja hvort annað, þótt megnið af samtölunum sé bendingar og látbragðsleikur. Hann er svo kátur og lífsglað- úr, manni leiðist aldrei þegar Oleg er nálægur. Oleg skvettir víni á Evu Dahlbeck Oleg Vidov er 23 ára Rússi, fæddur og uppalinn í Moskvu- S-l. vor láuk hann prófi frá Kvikmyndaskólá ríkisins í Moskvu, þarsem .hann stundaði. nám í 5 ár.' Hanri hefur leikið í 3 sovézkum kvikmyndum. — Ég hef lært mikið á að fást við hlutverk Hagbarðar í „Rauðu skikkjunni,“ segir hann. Fyrst í stað átti ég bágt með að fella mig við sum at- riði í handritinu, t.d. hinn dap- urlega endi, en eftir því sem ég kynnist ísiandi og Norð- urlandabúum betur sé ég að Gabríel Axel hefur alveg rétt fyrir sér- Mér finnst mjqg fróðlegt að vinna með þessu fólki og kynn- ast því, allt er þetta gott fólk og ég finn ekki til einmana- Framhald á 9, síðu. BifreiSakaupendur! RAMBLER hjónusta RAMBLFR varahlútir RAMBLER verkstœSi Rambler-umboðið JÓN LOFTSSON Hringbratit‘121 Sími 10600 Einstakt tœkifœri - Tekizt heíur vegna breytinga, sem verða á árgerð 1967, að íá loforð Rambler verksmiðjanna fyrir nokkr- um nýjum Rambler 1966 (allar gerðir) Á LÆGRA VERÐI til af- greiðslu í næsta mánuði, ef pantað er strax. Þar á meðal bjóðum við nokkra af hinum stórglæsilegu og vinsælu Rambler American „440” 4ra dyra station. Notið tækifærið og festið yður Rambler 1966 á Kaostæðu verði og með Rambler kjörum! Myndir af Rambler 1967 nýkomnar. — Komið — skoðið — sannfærizt — pantið. Fyrsta sendingin vænt- anleg í lok september með bílskipi beint fra Vötnunum! i

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.