Þjóðviljinn - 21.08.1966, Page 5
Sunnudagur 21. ágúst 1966 — ÞJOÐVILJINN — SlÐA g
VIII. EM í frjálsíþróttum:
Hverjir verða Evrópumeistarar?
Merkt afmæli — Þjálfað
af kappLí Evrópu
í lok þessa mánaðar liefst
8. Evrópumeistaramótið í
frjálsíþróttum í Budapest.
Þangað munu koma um þús-
und íþróttamenn og konur til
keppni um Evrópumeistara-
titla ársins 1966. Mótsins er
beðið með eftirvæntingu og
fjörlegar umræður um sigur-
líkur einstakra keppcnda í
gangi eins og jafnan a sér
stað þegar miklir íþróttavið-
burðir eru í nánd. Eftirfar-
andi greinaflokkur fjallar um
flestar greinar EM og líkur
beztu afreksmanna í Evrópu
um þessar mundir á sigri í
Budapest og er þá stuðzt við
þau afrek sem náðst hafa í
■sumar og álit „sérfræðinga“
og íþróttafólksins sjálfs.
En áður en komið er að
efninu sjálfu skal minnzt á
ekki ómerkan atburð í ís-
lenzkri íþróttasögu sem gerð-
ist fyrir réttum 20 ármn.
Úti í Noregi árið 1946 í lok
ágústmánaðar fór 3. Evrópu-
meistaramótið í frjálsíþrótt-
um fram á hinum fræga í-
þróttaleikvangi Osloborgar,
Bislet. íslendingar sepdu
þangað 10 manna flokk. Með-
al þeirra var Gunnar Huse-
by sem þá var orðinn víð-
frægur fyrir afrek sín í kúlu-
varpi og miklar líkur á þ'ví
taldar að hann hlyti þar 2.
sætið. Fremri honum var að-
eins sovézki kastarinn Lipp
talinn. Lipp mætti ekki til
leiks, en engu að síður átti
Gunnar við skæða keppi-
nauta að etja — 13 að tölu.
í úrslit kúluvarpsins kom-
ust 9 af þessum 13 en til
þess þurfti að kasta yfir 14
m. Gunnar átti lengsta kast-
ið í þeirri lotu og kastaði
15,64 m. í úrslitunum um
titilinn Evrópumeistari í
kúluvarpi 1946 hófst barátt-
an fyrir Gunnar fyrir al-
vöru. Sovézki kastarinn Gor-
j'anov reyndist Gunnari
skæðastur. í fyrstu umierð
kastaði hann 15,28 m, en
Gunnar aðeins 14,94 m.
Gunnar lét þetta þó lítið á
sig fá og kastaði í næstu
umferð 15,56 m, sem nægði
honum til sigurs því hVorki
Gorjanov né risanum Lethila
(varð 3.) tókst að ná betra
kasti. Þetta afrek Gunnars
var fyrsta afrek íslenzks í-
þróttamanns á erlendum vett-
vangi og upphaf margra og
minnisstæðra afreka ís-
lenzkra frjálsíþróttamanna á
næstu árum.
Fjórum árum- síðar tókst
Þremenningarnir, scm héldu merki íslenzkra frjálsíþrótta hátt
á loft á Evrópumeistaramótinu í Brussell 1960. Frá vinstri:
Torfi Bryngeirsson Evrópumeistari í stangarstökki, Gunnar
Huseby Evrópumcistari í kuluvarpi og Örn Clauscn, sem varð
annar í tugþrautarkeppninni.
Gunnar Huseby tryggir sér Evrópumcistaratitilinn í kúluvarpi
á Bisley-Ieikvanginum í Osló 1946 mcð því að varpa kúlunni
15,56 metra í úrslitum.
Gúnnari að verja titilinn og
kastaði þá 16,74 m sem þá
var nýtt' Evrópumet og er
enn íslenzkt met. Þriðja Evr-
ópumeistaratitilinn fyrir ís-
land vann Torfi Bryngeirs-
son í langstökki á sama móti
og stökk 7,32 m. Þessi ár
voru blómaskeið íslenzkra
frjálsíþrótta.
Eins ,og vænta mátti hefur
sumarið borið þess greinileg
merki að íþróttafólk álfunn-
ar miðar þjálfun sína við
þátttöku í EM. í sumum
löndum hefur þjálfuninni
verið þannig hagað að keppn-
istímabilin eru látin vera tvö^
þ.e. snemma í vor og fyrir
EM, en tímabilið á milli not-
að til undirbúnings. Önnur
lönd hafa hinsvegar haldið
sig við „gömlu“ aðferðina —
langt undirbúningstímabil og
eitt keppnistímabil eða þá
einfaldlega seinkað keppnis-
tímabilinu svo að íþrótta-
fólkið sé í beztri þjálfunþeg-
ar EM fer fram.
Vegna þessa hefur verið
erfitt að geta sér til um af-
reksgetu einstakra íþrótta-
manna og þar fyrir utanhafa
fæstir haft hug á því að
leggja „spilin á borðið“.
Undanfarið hefur þó ýmis-
legt komið í Ijós sem gefur
tilefni til ályktana. Við skul-
um því lita á einstakar
greinar og keppendur í næstu
blöðum.
1. GREIN
INGIMARS
JÓNSSONAR
Evrópukeppni bikarmeistara:
Valur og Standard
Liegé annað kvöld
Það er annað kvöld, mánu-
dag, sem Valsmenn leika á
Laugardalsvelli við belgísku
bikarmeistarana Standard de
Liegé. Þetta er sem kunnugt
er fyrri leikur liðanna í Evr-
ópukcppni bikarmeistara og
hefst kl. 7.30.
Þjóðviljinn hefur áður sagt
nokkuð frá hinu fræga belg-
íska félagi, en hér fer á eftir
stutt kynning á helztu leik-
mönnum félagsins:
Jean Nicolay, fæddur 1937.
Hann ’hefur verið sjálfkjörinn
markvörður belgíska landsliðs-
ins, og hefur tvö undanfarin
ár leikið alla milliríkjaleiki, en
auk þess verið valinn í Evr-
ópuúrval.
Guy Raskin fæddur 1937.
Bakvörður sem keyptur var
frá Beerschot 1965. Hann er
landsliðsmaður, þykir róleg-
ur. og sterkur leikmaður.
Lucien Spronck, , f æddur
1937. Leikur miðvörð, og hefur
verið valinn í landslið. Hávax-
inn og þykir meistari í því að
ná háum sendingum.
Luis Pilot, fæddur 1939.
Bezti leikmaður og fyrirliði
landsliðs Luxemborgar. Leikur
I framvörð og þykir mjög sterk-
ur leikmaður
Roger Claessen, fæddur 1941.
Leikur miðherja. Var valinn
í landsliðið 1961, en vegna
meiðsla og ofreynslu var hann
lengi frá keppni, en hefur nú
náð sér að fullu.
Léon Semmeling, fæddur
1940. Leikur hægri útherja.
Hefur oftsinnis verið valinn í
landslið. ítölsk og spænsk fé-
lög hafa haft mikinn augastað
á honum.
Paul Vandenberg, fæddur
1940. Hann þykir mjög góður
sóknarleikmaður, hefur leikið
í landsliði. Þykir mjög góður
uppbyggjari, og snjall í lang-
skotum.
Velco Naumovic, fæddur
1935. Keyptur frá Júgóslavíu,
og hefur leikið í landsliðinu.
2. deild
Fram- Víkingur
I kvöld, sunnudag, kl. 7-30
hefst á Melavellinum leikur
Fram og Víkings í 2. deild,
dómari verður Karl Jóhanns-
son.
Ef Framarar sigra í þessum
leik, hefur aðstaða þeirra
styrkzt mjög fyrir úrslitaleik-
inn í riðlinum gegn Vest-
mannaeyingum, en þar verður
úr því skorið hvort það verð-
úr Fram eða ÍBV sem leikur
gegn Breiðabliki, sigúrvegar-
anum í hinum riðlinum, um
setu í 1. deild næsta ár.
1. deild
2 leikir um helgina
ÍBK-Þróttur, ÍA-KR
I dag verða leiknir 2
leikir í 1. deild íslandsmótsins
í kpattspyrnu.
Keflvíkingar og Þróttur
leika á Njarðvíkurvelli, dóm-
ari verður Guðmundur Guð-
15 ára og sigur-
vegari á golfmóti
Fyrir nokkru var háð hin ár-
lega keppni Golfklúbbs Rvíkur
um afmælisbikar Guðmundar
Sigmundssönar.
Tvö sl. ár hafa verið leiknar
✓
einungis 12 hclur og hefur það
mælzt vel . fyrir. Svo er fyrir
mælt í reglugerð gefandans, að
bikar þessi sé farandgripur,
verðlaun fyrir beztan árangur
í höggleik með forgjöf.
Til leiks mættu 24 kylfingar,
þrátt fyrir mjög slæmt veður,
ausandi stórrigningu af suð-
austri, sem næstum hindraði
allan golfleik. Var því eigi að
vænta sérstaks árangurs að
þessu sinni.
Leikar fóru svo að ungur
kylfingur. Markús Jóhannsson,
bar sigur úr býtum. Markús
er sonur hins góðkunna kylf-
ings Jóhanns Eyjólfssonar og
aðeins 15 ára gamall. Hann
hefur verið mjög áhugasamur
við æfingar og keppni í sumar
og má áreiðanlega mikils af
honum vænta í framtíðinni, ef
hann leggur slíka alúð við
þjálfunina. Ásamt honum hafa
nokkrir aðrir unglingar æft all-
vel í sumar og verður gaman
að fylgjast með meistarakeppni
unglinga, sem háð verður í lok
bessa mánaðar.
Urslitin urðu annars sem hér
segié:
Markús Jóhannsson 64-20=40
Hilmar Pietsch 66-21=45
Haukur Guðmundsson 60-14=46
Erlendur Einarsson 64-17=47
Jónátan Ölafsson 73-23=50
—4>
UMF Höfðstrendingur sigruði
ú héruðsmóti UMS Skugufj.
□ Ungmennafélagið Höfðstrendingar bar sig-
ur úr býtum á héraðsmóti Ungmennasambands
Skagafjarðar, sem haldið var á Sauðárkróki um
síðustu helgi, dagana 13. og 14. ágúst sl. Þrjú
skagfirzk met voru sett á mótinu.
Hörður Ingimarsson T 5:15,4
Páll Ragnarsscn T 5:17,4
4x100 m boðhl.:
Sveit Tindastóls 48,2 (Skmet).
Sveit Höfðastr. 48.5.
Langstökk
Veður var mjög gott báða
dagana, sólskin en lítilsháttar
gola. Keppendur voi'u frá f jór-
um ungmennafélögum: Ung-
mennafélaginu Höfðstrendingi.
Umf. Tindastóli, Umf/ Fram-
för og Umf. Glóðafeyki.
Urslit i einstökum greinum
urðu þessi:
100 metra hlaup.
Gestur Þorsteinsson H
Ragnar Guðmundsson T
Sigmundur Guðmss. H;
Ölafur Ingimarsson T
400 m hlaup.
Ragnar Guðmundsson T 54.4
Gestur Þorsteinsson H 55,2
Ólafur Ingimarsson T 57,2
Bjöm Jóhannsson H 58,2
800 mctra hlaup
Ólafur Ingimarsson T 2:15,5
Tómas Þorgrímsson H 2:20,2
Sigfús Ólafsson H 2:21,1
Hörður Ingimarsson T 2:28,3
1500 m hlaup
Sigfús Ólafsson H 5:11,2
5:14,9
H
11.5
11.6
11,9
12,0 ' Pálmi Rögnvaldsson H
Gestur Þorsteinsson
Ragnar Guðms. T
Páll Ragnarsson T
Erlendur Sigurþórs T
Þrístökk:
Gestur Þorstelnsson H
Ragnar Guðmundsson T
Sigmundur Guðms. H
Erlendpr Sigurþórss. T
Ilástökk
Gestur Þorsteinsson H
Ólafur Ingimarsson T
6,83
6,20
5,70
5,65
13,31
12,75
12,06
11,12
1,66
1,61
Framhald á 9. síðu.
mundsson. Leikur þessi er
mikilvægur fyrir bæði liðin,
með sigri Keflvíkinga hafa
þeir enn góða von um sigur í
mótinu, en það þýðir hins veg-
ar að möguleikar Þróttar til
að halda sæti sínu í 1. deild
eru orðnir harla litlir.
Á Akranesi leika Akurnes-
ingar og KR, dómari verður
Hannes Þ. Sigurðsson. Eins og
staðan í mótinu er verður þessi
leikur að teljast mikilvægari
fyrir Akurnesinga, því að
með sigri yfir KR hafa þeir
ekki glatað allri von um að
endurheimta íslandsmeistara-
titilinn og KR-ingar þurfa
tæpast að óttast fall niður í 2.
deild þótt þeir tapi þessum
leik.
, Báðir þessir leikir hefjast kl.
4, og í sambandi við leikinn á
Akranesi verða sérstakar ferð-
ir með Akraborg. Farið verður
frá Reykjavík kl. 1.30 og til
baka aftur að loknum leik.
Staðan í
1. deild
Leikir Stig
Valur
ÍBA
ÍBK
ÍA
KR
Þróttur
11
9
8
7
6
3
i