Þjóðviljinn - 23.08.1966, Page 3
Þriðjudagur 23. ágúst 1366 — ÞJÓÐVTUINN — SlÐA J
Skoðanakönnun í USA sem vekur mikla athygli
Kennedy er talinn líklegri
til sigurs 1968 en Johnson
Auknar líkur taldar á því að, Robert Kennedy verði
framboði fyrir Demókrata — Vaxandi óvinsældir LBJ
WASHINGTON 22/8 — Um
helgina voru birtgr í Banda-
ríkjunum niðurstöður skoð-
anakönnunar og hafa þær
vakið mikla athygli fyrir þá
sök að Robert Kennedy, öld-
ungadeildarmaður, bróðir
hins látna forseta, reyndist
njóta meiri vinsælda meðal
kjósenda úr ílokki Demó-
krata en Lyndon B. Jo'hnson
forseti og töldu þeir hann
sigurstranglegri en Johnson
til framboðs í forsetakosning-
unum 1968.
40 prósent þeirra kjósenda úr
flokki rfemókrata sem spurðir
voru kváðust helzt vilja að
Robert Kennedy yrði í framboði
fyrir flokkmn í kosningunum
1968, en aðeins 38 prósent vildu
að Johnson.-yrði aftur í fram-
boði.
Fréttamenn í * Washington
benda á að Johnson forseti leggi
jafnan mikið upp úr skoðana-
könnunum og því geti ekki hjá
því farið að honum lítist illa
á þessar niðurstöður, og búizt
er við að hann muni nú leggja
allt kapp á að afla sér aftur
vinsælda með ferðalögum og
fundahöldum um land allt.
Þótt niðurstöður þessarar
skoðanakönnunar hafi vakið
mikla athygli, kom það ekki
beinlínis á óvart að vinsældir
Johnsons hafi minnkað; svip-
aðar^' kannanir hafa áður sýnt
að menn eru yfirleitt óánægðir
með frammistöðu hans, bæði í
Vié'fflSmiStríðinu og innanldrids-
málum.
í fréttaskeyti frá NTB er sagt
að enda þótt Robert Kennedy
hafi skuldbundið sig fprmlega
til að styðja framboð Johnsons
1968, séu flestir kunnugir þeirr-
ar skoðunar nú að frambjóð-
andi Demókrata þá muni líklega
heita Kennedy. Þar mun átt
við að Kennedy muni verða fyr-
ir valinu sem forsetaefni Demó-
krata, ef svo skyldi fara að
Johnson gæfi ekki aftur kost
á sér. Því hefur verið fleygt að
Johnson hafi í hyggju að draga
sig í hlé fremur en eiga á hættu
annaðhvort ósigur eða nauman
sigur í kosningunum.
Fæstir munu telja hugsanlegt
að framboði fráfarandi forseta
wzíiiítm,
...
Hætta er á farsóttum eftir
jaróskjálftana í Tyrklandi
Fundizt hafa 2.300 lík, en óttazt að 4.000 manns
hafi farizt. — Jarðhræringarnar halda enn áfram
ISTANBUL 22/8 — Hætta á taugaveikifaraldri ógnar nú
þeim héruðum í austurhluta Tyrklands þar sem jarðskjálft-
ar hafa orðið síðustu daga, en óttazt er nú að allt að 4.000
manns hafi beðið bana í þeim. Enn í dag varð vart jarð-
hræringa á þessum slóðum.
leið til Hvíta hússins? — Robert Kennedy.
Þegar síðast fréttist höfðu
fundizt 2.300 lík, en samkvæmt
opinberum héimildum er ástæða
til að ætla að mun fleiri hafi
beðið bana í jarðskjálftunum á
föstudag og laugardag, eða allt
að 4.000 manns.
Vatns- og skolpleiðslur eyði-
lögðust víða í jarðskjálftunum
og sökum þess og hins mikla
hita sem er í jarðskjálftahéruð-
unum er talin ástæða til að ótt-
dst að farsóttir gjósi upp. Reynt
hefur verið að koma í veg fyrir
það með því að sótthreinsa
drykkjarvatn með. klór.
Verst er ástandið í bænum
Varto en þar brundi svo að
segja hvert einasta hús £ rúst.
Þéttir flugnasveimar eru yfir
rústunum, en björgunarsveitir
geta fundið á rotnunarlyktinni
hvar lik er að finna undir þeim.
Teknar hafa verið grafirfyrir
1.300 þeirra sem fórust í bæn-
um, en líklega verður að grafa
enn fleiri.
Enn kunna einhverjir að vera
á lífi undir rústunum, en von
um það þverr meðhverri stundu.
Fólk leitar í örvinglun vanda-
manna sinna og nýtur. við það
aðstoðar fjölmenns herliðs, sem
sent var á vettvang.
Demirel forsætisráðherra sagði
í Istanbúl að stjómin myndi
gangast fyrir því að reistir yrðu
nýir bæir fyrir þá sem lifðu af
jarðskjálftann. Ætlunin &r að
reisa í staðinn fyrir Varto 6.000
manna bæ, en sagt er að fæst-
ir þeirra bæjarbúa sem komust
lífs af kæri sig um að búa þar
lengur, heldur vilji þeir flestir
flytjast þaðan.
Þúsundir manna i jarðskjálfta-
héruöunum hafa hafizt, við und-
ir berum himni af ótta viðnýja
jarðskjálfta. Allharðir kippir
urðu á þessum slóðum í morgun,
en ekki vitað til þess að þeir
hafi valdið tjóni á mönnum eða
mannvirkjum.
Auk hættunnar á taugaveiki-
faraldri sem oft hefur komið í
kjölfar jarðskjálfta óttast menn
að kólerufaraldur kunni að
breiðast út um jarðskjálftahér-
uðin, en vart hefur orðið kóleru
í nágrannalöndunum Sýrlandi og
írak. Margar flugvélar komu i
dag til Tyrklands með fullfermi
af lyfjum, ábreiðum,, tjöldum og
öðrum útbúnaði handa hinu bág-
stadda fólki. f
verði haínað, enda eru þess eng-
in dæmi. Fari hins vegar svo að
Johnson dragi sig í hlé, eru all-
ar líkur á því að Robert Kennedy
yrði fyrir valinu.
Hubért Humphrey varaforseti
er varla talinn koma til greina.
Hann hefur drðið að lýsa yfir
fullum stuðningi sínum við
stefnu Johnsons í öllum málum
og er því talinn bera ábyrgð á
því sem miður hefur farið og
Humphrey hefur fyrirgert þeim
stuðningi sem hann áður gat
gert ráð fyrir að fá frá hinum
•frjálslyndari öflum í Demókrata-
flokknum.
Þau öfl háfa nú svo að segja
öll gengið til liðs við Kennedy
sem ekki hafa dregið dul á and-
"Stöðu síha við Johnáön í sum-
um þeim helztu málum sem
Bandaríkjastjóm glímir við, þótt
hann hafi gætt þess að ganga
ekki f Tserhögg við stefnu henn-
ar. Hann hefur hvað eftir annað
varað við afleiðingum þess að
stríðið í Vietnam væri fært út
og lýst þeirri skoðun sinni að
Þjóðfrelsisfylkingunni í Suður-
Vietnam bæri sæti við samninga-
borðið þegar og ef viðræður gætu
hafizt um frið í Vietnam. Hann
og bróðir hans Edward Kennedy,
öldungadeildarmaður frá Massa-
chusetls, hafa lýst því yfir að
Bandaríkjunum væri nær að
verja fjárfúlgum þeim sem sóað
er í stríðið í Vietnam til að berj-
ast gegn fátæktinni og eymdinni
ho'mafyrir.
Bandaríska vikublaðið „Newsweek":
ammuiamM mra umvzs
'orður- Vietnam nú / haust
Blaðið hefur eftir góðum heimildum að ókveðið sé að
setja iið á land rétt fyrir norðdn 17. breiddarbaug
NEW YORK 22/8 — Bandaríska fréttatímaritið
„Newsweek" sem kom út í dag segist hafa áreið-
anlegar heimildir fyrir því að Bandaríkjamenn
munj gera innrás í Norður-Yietnam í haust. Blað-
ið segir að lið verði sennilega sett á land á strönd-
inni syðst í Norður-Vietnam svo að Bandaríkja-
menn geti á þann hátt lokað aðflutningsleiðum
til Suður-.Vietnams um. friðlýsta svæðið beggja
vegna 17. breiddarbaugsins.
Blaðið nafngreinir ekki heim-
ildarmenn sína, en fullyrðir að
ástæða sé til að ætla að fótur
sé fýrir þessu. Að sögn „News-
weeks“ benda sérfræðingar þeir
sem það hefur frásögn sína eft-
ir á þrjú atriði til stuðnings máli
sínu:
1. Bandaríska herstjórnin hef-
ur lengi haft strandlengju N-
Vietnams við Tonkin-flóa á lista
j sínum yfir staði sem til greina
j kemur að ráðast á, en mynni
| flóans er sem næst við 17.
breiddarbauginn, og telur þær
I árásir mikilvægari en árásir á
olíustöðvarnar við Haiphong.
2. Loftárásirnar á Norður-Vi-
etnam hafa ekki orðið til þess
að norður-vietnamska stjqrpin
hafi látið undan síga. Tilgangur
loftárásanna hafi' m.a. verið að
neýða Norður-Vietnama að
samningaborðinu.
3. Kína muni sennilega ekki
gera mikið veður út af því að
Randaríkjamenn komi sér upp
brúarsporði í suðurhluta Norð-
ur-Vietnams, vegna þess að
landganga þeirra þar muni ekki
stofna Hanoi-stjórninni í beina
hættu.
„Leyfi“ þegar veitt
Þessi frásögn „Newsweeks“
kemur ekki mjög á óvart, enda
er hún í samræmi við aðrar svip-
aðar sem birzt hafa í banda-
rískum blöðum að undanfömu.
Þannig skýröi „New York Trib-
une“ (Parisarútgáfan) frá því 13.
ágúst sl. að bandaríska herliðinu
£ Suður-Vietnam hefði verið
veitt „leyfi“ til þess að fara
norður yfir 17. breiddarbauginn
og reyndar öll önnur landamæri,
ef það væri talið nauðsynlegt i
„varnarskyni“.
„Oft er það svo“, sagði tals-
maður bandarisku herstjórnar-
innar við „New York Herald
Tribune", „að bezta vöm gegn
árás er að umkringja óvininnog
komast á svig við hann. Ef slík
aðgerð hefur í för með sér að
fara verður yfir landamæri, þá
myndi það ekki verða talin á-
stæða til herréttarhalda".
Loftárásir við Hanoi.
Bandarískar flugvélar réðust í
dag á skotmörk í næsta nágrenni
Hanoi, m.a. á flugskeytapalla og
var sagt í Saigon að þrír af
fjórum pöllum sem ráðizt var’
á hefðu verið eyðilagðir. Einn
þeirra var aðeins 14 km fyrir
sunnan Hanoi.
Samtals voru farnar 102 á-
rásarferðir á skotmörk í Norð-
ur-Vietnam, og - sögðu Banda-
ríkjamenn að allar- árásarflug-
vélarnar hefðu komið aftur, þótt
mjög hörð skothríð hefði verið
gerð að þeim.
Nær engar viðureignir hafa
orðið á landi í Suður-Vietnam,
en langfleygar bandarískar
sprengjuþotur héldu £ dag áfram
árásum á skotmörk þar, einkum
í grennd við - landamæri Kam-
bodja.
Bandafísk orustuþota var skot-
in niður syðst í Suður-Vietnam
og einnig ein af flugvélum Sai-
gon-stjórnarinnar.
Handsprengju var varpað að
bandariskum herjeppa í Saigon
og særðust fimm bandarískir
hermenn og vietnömsk kona.
Flugherstjéri V-
Þýzhlands fer frá
útaf Starfighfter
BONN 22/8 — Yfirmaður vest-
urþýzka flughersins, Wemer
Panitski hershöfðingi, hefur orð-
ið að láta af embætti, a.m.k. um
stundarsakir, og er ástæðan sú
að hann leyfði sér í blaðaviðtali
að gagnrýna landvarnaráðuneyt-
ið fyrir að hafa ekki séð flug-
mönnum á ,.Starfighter“-þotum
fyrir örvsútbúnaði.
VÖRUHAPPDRÆTTI S.Í.
Aðalumboð VöruhappdrœHis S.Í.B.S. er flutt úr Vesturveri í
AUSTURSTRÆTI 6, - 2. HÆÐ