Þjóðviljinn - 23.08.1966, Qupperneq 4
V
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 23. ágúst 1966.
Otgefandi: Sameluingarflolclcur alþýðu — Sósialistaflokk-
uriim.
Ritetjórar: Ivar H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
> Sigurður &uðmundsson.
Fréttarltstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastj.: Þorva’dur J‘',-annesson.
Simi 17-500 (5 llnur). Askriftarverð kr. 105.00 á mánuði. Lausa-
söluverð kr. 5.00.
r f
A elleftu stundu
Cjjónvarpsmálið er ekki mál sjónvarpsáhuga-
^ manna í Vestmannaeyjum.. Sjónvarpsmálið er
miklu stærra en þessi hneykslisangi þess í Vest-
mannaeyjum, sem er þó raunar í þann veginn að
gera heilan hóp af embættismönnum að viðundri.
Sjónvarpshneykslið ér sjálft sjónvarp Bandaríkja-
hersins inn á þúsundir íslenzkra heimila, ástand
sem meira að segja menntamála.ráðherra landsins,
einn þeirra sem þyngsta sök bera á hermanna-
sjónvarpinu, hefur játað opinberlega að sé óvið-
unandi ástand fyrir sjálfstæða menningarþjóð, og
því bæri að takmarka bandaríska sjónvarpið við
herstöðina þegar er íslenzka sjónvarpið tekur rtil
starfa. Ýmsir töldu' sig hafa ástæðu til að ætla að
ríkisstjórnin mannaði sig upp í ákvörðun og yfir-
lýsingu um það atriði áður en þingi lauk í vor,
en því var ekki að heilsa.
TVTú verður hins vegar ekki vikizt öllu lengur
undan ákvörðun, vegna undirbúnings að starfi
íslenzka sjónvarpsins. Fulltrúi Alþýðubandalags-
ins í útvarpsráði, ^jörn Th. Björnsson, svaraði ný-
lega spurningu blaðsins Dag'fara um líkur til þess
„að ríkisstjórnin láti takmarka útsendingar banda-
ríska Ke'flavíkursjónvarpsins við herstöðina eina
þegar hið íslenzka tekur til starfa“, á þessa leið:
„Á þessu stigi málsins er erfitf að segjá nokkuð
ákveðið um það. Svo mikið sýnist þó víst, að ráð-
herrar Alþýðuflokksins hafi tekið þá afstöðu að
takmarka beri Keflavíkursjónvarpið, og sennilega
reyna þeir að vitnna þá ráðherra Sjálfstæðis-
flokksins sem fylgjandi eru áframhaldandi starf-
semi þess á núverandi grundvelli, á sitt mál. Rík-
irstjórninni er ekki stætt á því öllu lengur 'að fresta
ákvörðun í málinu, því það er ómögulegt að halda
áfram dagskrárgerð eða öðrum undirbúningi fyr-
ir íslenzka sjónvarpið, nema úr því fáist skorið,
hvort hið bamdaríska muni s’tarfa samhliða því eða
ekki . . . „Skjót ákvörðun í þ'essu máli er þeim
mun brýnni sem tilkynna þarf með góðum fyrir-
vara, a.m.k. hálfum öðrum mánuði, hvenær ís-
lenzka stöðin hefur útsendingar sínar, svo bæði
innflytjendur sjónvarpstækja og tilvonandi kaup-
endur geti hugsað sitt mál í tíma. Það má því segja
að ellefta stundin sé komin, því alla vega tekur
íslenzká sjónvarpið til starfa í haust“. Björn
bendir á, að í bandarískum reglugerðum um
sjónvarpsstöðvar erlendis sé tekið skýrt fram
að hvergi megi reka sjónvarpsstöðvar á veg-
um bamdaríska hersins sem taki inn á sendi-
svæði sjónvarpsstöðva hlutaðeigandi lands. „Það
mætti því vel hugsa . sér að stjórnarflokk-
amir kysu heldur, af ótta við sjónvarpsbetlarana,
að láta frumkvæðið að takmörkun Keflavíkur-
stöðvarinnar koma frá Bandaríkjamönnum en
þeim sjálfum,“ segir Björn Th. ennfremur. He'fur
þess reyndar verið getið til hér í Þjóðviljanum, að
stjórnarflokkarnir kynnu að leysa sig þannig úr
málinu. Hvað sem því líður er hitt víst að fak-
mörkun hermannasjónvarpsins yrði sigur íslenzkr-
ar þjóðrækni yfir lítilsigldri ríkisstjórn og því her-
ríöðvadrasli sem biin ví^beldur í landinu þjóðinni
til skaða og smánar. — s.
Þettu þætti íslenzkum úí-
vegsmönnum góð vuxtukjöi
Um s.l. mánaðamót var til-
kynnt í Noregi að vextir aí lán-
um frá Statens Fiskarbank
myndu hækka frá 15. nktóber
um % prósent af 1. veðréttar-
lánum. Þessi ákvörðun bankans
var jafnhliða staðfest á ríkis-
ráðsfundi. Jafnhliða var sagt að
vextir af 2. veðréttarlánum
yrðu áfram óbreyttir, 2 prósent.
Eftir breytinguna eru vaxta-
kjörin þannig, eftir því sem
blaðið Fiskaren segir, en þaðan
er heimildin: Af lánum til
skipa 4,5 prósent. Af lánum til
dráttarbrauta, viðgerðarverk-
stæða, fiskvinnslustöðva ' #og
veiðarfærabúnaðar 3,% prósent
og af venjulegum rekstrarlán-
um 5,5 prósent.
Þessi V2 prósent hækkun er
sögð nauðsynleg til að standa
undir útgjöldum bankans. Á-
kveðin hlutföll eru í gildi hjá
bankanum viðvíkjandi 1. og 2-
veðréttarlánum, en hver þau
eru, um það er mér ekki kunn-
ugt.
Framleiðsla Norð-
manna á síldarmjöli
1966 /
. Eftir því sem norsk þlöð
fullyrða og hafa eftir Arnesen
forstjóra við Nordsildmel í
Björgvin, þá er framleiðsla
Norðmanna á síldarmjöli frá
áramótum til 15. júni s.l- 260
þúsund smálestir, en var á
sama tímabili 1965 150 þúsund
smálestir. Forstjórinn segir, að
árið í ár, sé á þessu sviði sér-
staklega gott ár-
Blöðin segja að miklar birgð-
ir af síldarmjöli liggi nú hjá
verksmiðjunum meðfram allri
norsku ströndinni. í blaðavið-
tali segir Arnesen forstjóri að
ennþá hafi engir söluerfiðleik-
ar gert vart við sig, hinsvegar
hafi salan á mjölinu ekki verið
jafn ör og framleiðslan sem sé
óvenjulega mikil. Þann 2- júlí
s.l. voru Norðmönn búnir að
flytja út 112,977 smálestir af
síldarmjöli.
Eitt allra bezta aflaár
í Finnmörku
Það má segja að gjafmildi
Ægis konungs leiki við íhúa
Finnmerkur í ár- Þar þefur
staðið yfir samhangandi afla-
hrota í vor og sumar. Síld,
loðna, þorskur, ýsá og ufsi
auk fleiri fisktegunda, hafa
gengið þar á miðin í miklu
stærri stíl en áður hefur þekkzt
um'tugi ára- Hvað eftir annað
hafa fiskiyfirvöld Finnmerkur
orðið að gn’pa í taumana og
stöðva veiðamar, þar sem
vinnslustöðvarnar höfðj ekki
undan. Síldarmjölsverksmiðj-
urnar hafa viku eftir vikú verið
með yfirfullar geymsluþrær Og
veiðiskipin orðið að bíða eða
flytja aflasn um langan veg
su með ströndinni. í júlí-
mánuði var það algengt að
fískibátamir sem stunduðu
þorsk- og ufsaveiðar gætu að-
eins farið f tvo og í hæsta lagi
þrjá róðra á viku, og þó höfðu
vinnslustöðvarnar ekki undan.
Hlaðafli var á togveiðum, hand-
færaveiðum og með flotlínu.
/
Uörð gagnrýni á
fyrirkomulag
rússneskra fiskveiða
Rússneskur blaðamaður, Ju
Zubov að nafni, skrifar í Iæn-
ingradskaja Pravda þann 19.
marz í ár harðorða gagnrýni á
fyrirkomulagi rússneskra fisk-
veiða eftir langa kynnisferð um
borð í' einu veiðiskipanna.
Þessi grein rússneska biaða-
mannsins hefur verið þýdd og
birt í ýmsum fræðiritum þar
á meðal í norska ritinu Fiskcts
Gang.
Blaðamaðurinn byrjar á því
að upplýsa að fiskifræðin sem
vísindagrein geti ekki svarað
þeirri spurningu nákvæmlega
hvað fiskimagn sé mikið í
heimshöfunum, en gizkar á, að
það sé einhversstaðar á milli
300 og 750 miljónir smálesta
Ársafli heimsins samanlagður
segir hann að sé 30—Í0 miljón-
ir smálesta eða 7—8 prósent af
áætluðu magni,
Blaðamaðurinn gagnrýnir það
sem hann kallar ofskipulagn-
ingu í rússneskum fiskveiðum
og of mikla skriffinnsku í landi.
Ju Zubov tekur sem dæmi
frystitogarann Pioner Zapeljar
sem lagði út frá Leningrad i
175 daga veiðiferð og hafði fyr-
irskipun um að toga með botn-
vörpu ekki færri en 1100
klukkustundir í ferðinni, þar á
meðal átti hann að toga með
botnvörpu 14 klukkustundir á
miðunum við Dakar á sólar-
hring og 12 klukkustundir á
sólarhring á miðunum við Suð-
vesiur-Afríku
Þá íylgdi með áætlun um
það fiskimagn sem togarinn
. átti að veiða í ferðinni bg
hljóðaði hún á þessa leið: 1065
smálestir hrossamakrfll, 74
smálestir venjulegur makríll.
37.3 smálesti.r fiskur sem nefnd-
ur er „karuss'1, 35,5 smálestir
sarÆnur, 156,3 smálestir „Mer-
luza“. Þá koma 48 smálestir óá-
kveðinn fiskur til matar, þar
næst 6. smálestir hákarl og
948,3 smálestir fiskur í fóður-
mjöl.
Síðan segir blaðamaðurinn að
þó fiskifræðingarnir geti ekki
nákvæmlega sagt til um fisk-
magn í höfunum þá séu skipu-
lagsfræðingar í landi ekki í
vandræðum með að setja sam-
an slíka áætlun sem þessa-
Hann segir svo, að þessi áætl-
un sé ekki sök sjómannanna, en
hún sé hinsvegar þeirra ógæfa
og þau dæmi sem hann bendi
á, - séu ,ekki einsdæmi heldur
algilt dæmi um ofskipulagningu
innan útgerðarinnar.
Svo heldur blaðamaðurinn
áfram: Á miðunum undan
Guinea mættum við túnfisk-
flotanum „Solnetsjnyj Lutsj
frá Kaliningrad. Flotinn var
með fasta áætlun um veiði, þar
sem sagt var að hvert veiðiskip
ætti að fiski 49 smálestir af
túnfiski og 14 smálestir af
sverðfiski í tilteknum fjölda
kasta. Hversvegna endilega
þessar tölur 49 og 14? sjpyr
þlaðamaðurinn og svarar sér
sjálfur: ,,Það veit enginn“- En
öll skipiri í flotanum voru með
þessar áætlun, útbúna í landi.
Þannig heldur blaðamaðurinn
áfram og ræðst án allrar misk-
unnar á ofskipulagninguna og
skriffinnskuna sem hann segir
að stórskaði fiskveiðar Sóvét-
ríkjanna. Blaðamaðurinn styð-
ur gagnrýni sína með ákvéðn-
um dæmum úr ferðinni og seg-
ir sjómennina vera oft b'undna
á höndum og fótum af ákveðn-
um fyrirmælum úr landi frá
mönnum sem oft skorti nægi-
Iega sérþekkingu á þessu sviði,
enda séu aðstæður svo breyti-
legar að við þær eigi ekki ein
og sama formúlan-
Vegna lengdar þessarar
greinar er ekki hægt að birta
hana í heild hér í þessum
þætti, en hún er skrifuð af
miklu hispursleysi þar sem
gagnrýni er án allrar misk-
unriar beitt gegn því sem
blaðamanninum þykir miður
fara í fiskveiðum Sovétríkjanna.
Um það hvurt þessi skarpa
gagnrýni rússneska blaða—
mannsins hefur orðið til þess
Framhald á 6. síðu.