Þjóðviljinn - 28.08.1966, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 28.08.1966, Blaðsíða 12
Rœtt við f jórverði í Döium Gengur 50 km annan hvem dag Það eru ekki allir sem feta i fótsporin hans. Og; það í eigin- Iegri merkingu, því Hreinn Frið- finnsson, ungur myndlistarmað- ur frá Bae í Dölum gengur fimmtíu kilómetra annan hvorn dag. — Og hinn daginn hvílirðu þig náttúrlega eða hváð? — O, nei, ég hjálpa til við búskapinn hér heima og mála svolítið, segir Hreinn, sem í sumar vinnur sem eftirlitsmað- ur við fjárgirðingu Dalasýslu og þarf að ganga meðfram allri girðíngunni annan hvern dag og gæta þess að fé festist ekki í henni og að hún sé í fullkomnu lagi. Sem kunnugt er hafa Dala- menn orðið harðast úti i mæði- veikinni og hefur t.d. £ Suður- Dalahólfi þrisvar orðið að skera niður allt fé. — >að er engu að lýsa, þetta er mjög litilfjöriegt, segir Hrekm þegar við biðjum hann að segja okkur frá leiðirmi sem hann gengur. — Ég fer af stað klukkan átta á morgnanna frá hliðinu á Bröttubrekku og er yfirleitt kominn aftur um sexleytið. Ég held í vesturátt og fer hring- inn. f>etta er varnargirðing vegna mæðiveikinnar og það þarf að fylgjast með henni. — Er þetta ekki þreytandi? — Ekki mjög. Ég var búinn að fá æfingu áður en ég byrj- aði. Það er alltaf gert við girð- inguna á vorin áður en fénu eP sleppt og ég var við það. Ég kann vel við þetta. Þetta er ólíkt allri annarri vinnu. Veðr- ið hefur verið hálfleiðinlegt og verst í júlí, en nú er það á- gætt og þá er bara gam.an að ' Framhald á 9. síðu. fr einbúi á Bröttu- brekku ulit sumurið Uppi á miðri Bröttubrekku, þar sem mætast Mýrar og Dalir, er lítill kofi við girðinguna milli sýslumanna. Þama býr Ólafur Guðmundsson á sumrin og gæt- ir hliðsins. Ólafur er frá Horn- ströndum i Laxárdal, en býr nú í Reykjavík. Á veturna fæst hann við dýralækningar. — Jái já, ég er hér einn allt sumarið, frá því að fénu er sleppt lausu þar til á haustin að smalað er, segir hann í smá- viðtali við Þjóðviljann- — Hvað er eiginlega þitt starf hér? — Ég er fjárvörður við hlið- ið og á að cgæta þess að ekkert fé frá Borgarfirði komist inn í Dali og ekkert Dalafé í Borg- arfjörðinn. Á daginn er hliðið opið, enda talsverð umferð hér, en ég loka því þegar skyggja tekur og kem svo út og opna fyrir bílunum. — Alla nóttina? — Nei, ég læt þá um þetta sjálfa uppúr hálftólf á kvöldin. Fer þá að sofa, maður sefur hér aleinn og eldar oní sig sjálfur. — Er ekki stundum einmana- legt? — Ojú, ekki ér því að neita. — Þér veitti ekkert af að hafa kvenmann hjá þér ... — Oho, nei, satt segirðu. En það er ekki pláss, væna min, ekki pláss... — vh Sunnudagur 28. ágúst 1966 — 31. árgangur — 194. tölublað. Tonlistarfélagið hefur starf: Hjón írá Bunduríkj- unum httidu tónleika □ Tónlistarfélagið byrjar st.arfsemi sína á þessu hausti með því, að hjón frá Bandaríkjunum halda hér tvenna tónleika i byrjun næsta mánaðar. Eru það óperusöngkon- an Leona Gordon, sem er íslenzk í báðar ættir en fædd í Bandaríkjunum, og maður hennar, píanóleikarinn Marcus Gordon. Hreinn Friðfinnsson við bæjardyrnar á Bæ Elínu Guðmundsdóttur. ásamt móður sinni, <?>- Gestaleikhúsið sýnir gaman- leikinn Bunbury i Reykjavík Gestaleikhúsið hefur í sumar sýnt gamanleikinn „Bunbury" víðs vegar um landið og hafa undirtektir hvarvetna verið með bezta móti. Gestaleikhúsið er nú komið til Reykjavíkur og mun reykvískum leikhúsgestum gef- ast kostur á að sjá þcnnan br^ð- skemmtilega gamanleik næstu daga, en fyrsta sýningin verður í Iðnó á sunnudagskvöldið ki. 20,30. Höfundur „Bunbury" er Osc- ar Wilde, sem óþart ætti að vera að kynna nánajr. Leikrit það sem hér er á ferðinni, er eitt af frægustu verkum höfund- arins og er enn í fullu gildi sem hnitmiðuð og skemmtileg lýsing a ensku yfirstéttarfólki 19. aldar- innar. Brezki leikstjórinn Kevin Palmer setti leikinn á svið, en leiktjöld og búninga gerði Una Collins. Þau hafa bæði verið ráðin til starfa við Þjóðleikhús- ið á næsta leikári. Kevin Palm- er stjómaði í vor uppsetningu á leikritinu „Ó, þetta er indælt stríð“, en hann hefur náð hvað mestri frægð fyrir uppsetningu sina á þvi leikriti. Ólafur Guðmundsson: Býr aleinn og eldar oní sig sjálfur. — (Ljm. Þjóðs. vh.j. Dregurúrvin- sældum Johnsons vestanhafs /, WASHINGTON 27/8 — Stjóm- málasérfræðingar í Washington segja í dag, að Johnson forseti sé öruggur um að verða í fram- boði sem forsetaefni Demókrata 1968, þrátt fyrir að skoðana- kannanir í þessari viku sýni .tð óháðir og Demókratar fylgi fremur Robert Kennedy að mál- um. Kennedy hefur lýst því yfir að hann styðji framboð John- sons. Vinsældir Johnsons hafa far- ið mjög minnkandi í ár og er það skýrt með stríðinu í Viet- nam, hækkandi verðlagi, háum vöxtum óg almennu öryggisleysi í efnahagsmálum þrátt fyrir að efnahagslífið blómstrar enn. Samkvæmt skoðanakönnunum er það greinilegt að Kennedy er mjög vinsæll og telja margir Bandaríkjamenn að hann eigi eftir að setjast í forsetastól. Sauðárkróki. — Ljóst er að mik- ill samdráttur verður í mjólk- urframleiðslu hjá skagfirzkum bændum á næsta ári. Er þegar búið að slátra um 100 naut- gripum hér á Sauðárkróki í sum- ar en venjulega fer nautgripa- slátrun þó ekki fram fyrr en á haustin að lokinni sauðfjár- slátrun. — H.S. # í San Francisco hafa nokkr- ar íslenzkar fjölskyldur valið sér búsetu, og gert þar garð- inn frægan, sem á mörgum öðr- um stöðum vestanhafs. Má þar til nefna tvo bræður, Ellis og Henry Stoneson, er stóðu fyrir miklum byggingaframkvæmdum, og systur þeirra, Stefaníu, en foreldrar þeirra voru Þorsteinn Þorsteinsson og Ingibjörg Ein- arsdóttir frá Stafholti í Biskups- tungum. Stefanía giftist dr. Andrési Oddstad, en hann var sonur Jóns Sveinbjarnarsonar frá Oddsstöðum í Lundareykja- dal og Guðnýjár Fjeldsted frá Narfeyri, en bróðir hennar var Andrés Fjeldsted á Hvítárvöll- um. Einn son áttu þau, Andrés verkfræðing, sem varð stórtæk- ur í byggingariðnaði, og fjórar dætur, sem allar voru vel mennt-' aðar og söngelskar, en hin yngsta þeirra, Leona, lagði þó mest kapp á að nema tónlist og söng, enda hefur hún ‘náð langt á þeirri braut. Og nú heimsækir hún ættland sitt í fyrsta sinn og máske borgfirzkar byggðir forfeðra sinna, því alízlenzk er hún, eins og áður er sagt. Hún er gift Marcus Gordon, sem talinn er í röð fremstu píanóleikara í Ameríku og hef- ur t.d. hlotið mikið lof fyrir túlkun sína á franskri tónlist síðari tíma. Frú Leona Gordon hefur vak- ið aðdáun með söng sínum og túlkun á hinum ólíkustu við- fangsefnum. Hér skal þó ekki Framhald á 9. síðu Marcus Gordon SELJUM NÆSTU DAGA fjölmargrar gerðir af KVENSKÓM frá Frakklandi og Englandi fyrir kr. 298,00. Ennfremur ýmsar gerðir kvensandala og töfflur fyrir mjög lágt verð. SKÓVAL Austurstræti — Eymundssonarkjallara. SKÓBÚÐ AUSTURBÆJAR Laugavegi 100. / \

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.