Þjóðviljinn - 30.08.1966, Blaðsíða 1
Þriðjudaguí 30. ágúst 1966 — 31. árgangur — 195. tölublað.
Síldaraflinn í sl. viku var 50 þús. lestir
Heildarafli nú 90 þúsund
lestnm meiri en í fyrra!
^ Á miðnætti sl. laugardag var heildarsíldarafl-
inn á sumrinu orðinn 299.677 lestir og er það 90
þúsund lestum meiri afli en á sama tíma í fyrra.
Um helgina var búið að salta í rúmlega 189 þúsund
tunnur og er það nálega 60 þúsund tunnum meiri
söltun en í fyrra um þetta leyti. Síldveiðin var
wijög góð síðustu viku og bárust alls á land nær
50 þúsund lestir.
Séð yfir hluta fundarsalarins í Lindarbæ þar sem fundur Alþyðubandaiagsins var haldinn (Ljósm- Bj. Bj.)
Landsfundur Alþý
1 skýrslu Fiskifélags Islands
segir svo:
Síldveiðin síðastliðna viku var
afbragðsgóð. Fyrstu fjóra daga
vikunnar var sólarhringsaflinn
frá 5.800 til 16.100 lestum, þá
kom bræla og næstu tvo daga
var afli sáralítill en á laugac-
dag var veður orðið sæmilega
gott og var sólarhringsaflinn til
sunnudagsmorguns 12.869 lestir.
Veiðisvæðin voru tvö, annað um
150 sjómílur NA af Raufarhöfn
en hitt 70 til 100 sjómílur A og
ASA af Dalatanga-
Aflinn sem barst á land í vik-
unni nam 49-843 lestum. Saltað
var í 69.601 tunnu, frystar voru
117 lestir og 39.464 lestir fóru £
bræðslu. Heildarmagn komið á
land s.l. laugardagskvöld nam
>■■■■■■■■■■■■!
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■>
Framhald á 7. siðu.
Á fimmtudagskvöldið
heimsækir Pétur Pálsson fé-
lagsheimilið í íjarnargötu
20 með nýjan gítar og
ferskar steflur.
ÖLLTJM OPIÐ.
STJÓRNIN.
■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■i
Slys við Búr-
fellsvirkjun
f gærmorgun varð það slys á
virkjunarstaðnum við Búrfell, að
stór grjótflutningsbíll valt ofan
í Fossá. Vegkanturinn bilaði
undan þunga bílsins, sem var
fullhlaðinn, og fór hann eina
veltu niður brattann sem er um
7 m hár. Bílstjórinn virtist ekki
hafa slasast mjög alvarlega en
hann var fluttur í sjúkrahúsið á
Selfossi.
Yerkefnf landsfunckirins að ganga frá lögum banda-
fagsins og sfefnuyfirlýsingu og kjósa stjórn þess
Á ráðstefnu fulltrúa Alþýðubandalagsin^ úr ölluni kjördæmum lands-
ins, sem haldín var í Lindarbæ í Reykjavík laugardag og sunnudag, var
einróma samþykkt að halda lándsfund Alþýðubandalagsins.
Um tímasetningu og verkefni landsfundar samþykkti ráðstefnan eftir-
farandi tillögu:
„Undirbúningsráðstefna Alþýðubandalagsins, haldin dagana 27. og 28.
ágúst 1966, samþykkir að boða skuli til landsfundar Alþýðubandalagsins
þann 28. október n.k. í Reykjavík. Verkefni landsfundarins skulu m.a. vera:
að ganga frá stefnuyfirlýsingu Alþýðubandalagsins og setja samtökunum
starfsreglur og kjósa yfirstjórn þeirra“.
Enn tvö dráttarvélaslys:
Tveir Jrengir, annar 15 óra
hinn 10 ára gamall, slasðst
Það slys varð að Þrastarhóli
í Arnarneshreppi á sunnudag-
inn að dráttarvél valt og dreng-
ur, sem ók henni varð undir
henni. — Ennfremur varð drátt-
arvélarslys að Traðarholti í
Stokkseyrarhreppi á sunnudag.
Sá sem ók fyrrnpfndu drátt-
arvélinni er 15' ára gamall, heit-
ir Hreinn Pálsson og á heima
að Þrastarhóli. Aftan á dráttar-
vélinni stóðu tveir drengir, 13
og 14 ára gamlir og gátu þeir
stokkið af áður en vélin valt.
Hreinn varð hinsvegar undir
vélinni og hlaut einhver meiðsli
en þau voru ekki talin alvar-
leg. Hann var fluttur á sjúkra-
hús á Akureyri.
Þennan sama dag varð einnig
slys að Traðarholti í Stokks-
eyrarhreppi er 10 ára gamall
drengur varð fyrir heykvísl sem
var framan á dráttarvél. Rakst
einn tindurinn í hnésbót drengs-
ins og stóð tindurinn út um
hnéð, 'að sögn lögreglunnar á
Selfossi.
Erfitt var að ná tindinum
lausum og þurfti að fá logsuðu-
tæki tíl að ná honum í sundur.
Drengurinn sem fyrir þessu
varð heitir Guðni Einarsson og
á heima að Traðarholti. Hann
var fluttur á Landspítalann.
^ Undirbúningsráðstefnan undir
landsfund Alþýðubandalagsis var
sett í Lidarbæ á laugardag, 27.
ágúst, og mættu 60 fulltrúar af
þeim 66 sem rétt áttu til fund-
arsetu.
Magnús Torfi Ölafsson íbrmað-
ur Aljpýðubandalagsins í Rvík
setti ráðstefnuna með ávarpi og
forseti Alþýðubandalagsins
Hannibal Valdimgrsson og for-
maður þingsflokks bandalagsins
Lúðvík Jósepsson ávörpuðu enn-
fremur ráðstefnuna-
Fundarstjóri var kosinn Sig-
urður Guðgeirsson (Reykjavík)
og varamenn Freyr Bjarnasbn
(Húsavík) og Haukur Hafstað
(Skagafirði). Skrifarar voru
kjömir Bergþór Finribogason
(Selfossi), Jenni R. Ólason
(Stykkishólmi) og Sigurjón Pét-
ursson (Reykjavík). Kosnar voru
nefndir til undirbúnlngs aðal-
mála fundarins og voru álit
þeirra rædd og afgreidd síðari
dag ráðstefnunnar, sunnudag, en
ráðstefnan stóð þessi tvo daga.
Ráðstefnan samþykkti m.a- til-
lögu um tímasetningu landsfund-
arins og verkefni sem birt er
í inngangi fréttarinnar, og enn-
fremur reglur um kosningu full-
trúa á landsfund.
Kosnar voru tvær nefndir,
skipulagsnefnd og stefnuskrár-
nefnd, til frekari undirbúnings
landsfundarins og var samþykkt
að verkefni skyldu skiptast þann-
ig milli þeirra að stefnuskrár-
nefnd semji' drög að stefnuyfir-
lýsingu landsfundar, en skipu-
lagsnefnd annist allan annan
undirbúning landsfundar. „Hún
semur uppkast að lögum fyrir
Alþýðubandalagið, beitir sér fyr-
,ir stofnun nýrra Alþýðubanda-
lagsfélaga, semur dagskrá lands-
fundar, velur framsögumenn,
tryggir húsnæði og leysir af
hendi önnur störf sem nauðsyn-
leg eru fyrir landsfund“ segir í
samþykktinni.
í stefnuskrárnefnd voru 1 kjör-
in: Adda Bára Sigfúsdóttir, Al-
Framhald á 7. síðu.
Eldur í íbúðar-
húsi í Kéuavofi
Uppúr miSnætti aðfaranótt
sunnudagsins varð elds vart að
Álfhólsvegi 145 í Kópavogi, sem
er timburhús, ein hæð og ris.
Eigandi hússins sagði svo frá
að nágranni hefði komið kl.
rúmlega eitt og vakið heimils-
fólkið og gert því viðvart. Tókst
að bjarga börnunum út en þau
sváfu í norðurenda hússins.
Eldurinn kom upp í stofu á
hæðinni en ekki er vitað hvern-
ig. Talsverðar skemmdir urðu í
stofunni en litlar annarsstaðar
í húsinu.
Sættir á Seyðisfirði
r ■-
• •
viður-
kenna greiðsluskylduna
■ Um kl. 5 í fyrrinótt náðist samkomulag
milli aðila í vatnsdeilunni á Seyðisfirði,
en það mál var rakið í Þjóðviljanum á
laugard. Höfðu þá staðið yfir svo til stanz-
lausir fundir og viðræður siðan á laug-
ardag.
É Samkomulagið var á þá lund, að hinar
6 síldarverkunarstöðvar, sem neitað höfðu
að greiða tengigjald, fallast á að greiða
2,250 milj. kr. fyrir 1. sept. Bæjarráð
lofar hins vegar fyrir hönd bæjarstjórn-
ar að endurskoða þann. kafla reglugerðar
fyrir vatnsveituna sem fjallar 'um tengi-
gjald, en síðan verði það lagt undir dóm
Félagsmálaráðuneytisins hve hátt gjaldið
eigi að vera. Báðir aðilar skuldbinda sig
til að hlíta úrskurðinum. Bæjarráð skuld-
bindur sig ennfremur til að loka ekki fyrir
vatnið, enda falli lögbannskrafan niður
og öll eftirmál þeirrar deilu sem reis.
■ Bæjaryfirvöld á Seyðisfirði telja þetta
samkomulag farsæla lausn á þessu déilu-
máli, með því hafa síldarverkunarstöðv-
arnar viðurkennt greiðsluskyldu sina, og
upphæð sú sem þær greiða nú telja þau
aðeins uppígreiðslu. en meginkostnaður-
inn við þessa vatnsveituframkvæmd fnuni
lenda á umræddum verkunarstöðvum eins
og ráð var gert fyrir í reglugerðinni.
M Bæjarstjórn Seyðisfjarðar ætlaði að ha'lda
fund kl. 8.30 í gærkvöld um samkomu-
lagið.